Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 45
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 45 Síðasti dagur útsölunnar Nú 40% aukaafsláttur f l tt r tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. Opið daglega kl. 10—18 laugardag kl. 10—14 Heimferðir bjóða nú beint flug alla föstudaga til Kaupmannahafnar í sum- ar, á lægsta verðinu á Íslandi. Brottför frá Keflavík kl. 17.10 á föstudögum og þremur tímum síðar lend- ir þú á Kastrup flugvelli. Heimflug á miðvikudagsmorgnum frá Kaupmannahöfn. Hjá Heimsferðum getur þú valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl eða flug og hótel, og við bjóðum gott úrval gististaða í hjarta Kaupmannahafnar. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 16.400 Gildir fyrir fyrstu 300 sætin sem bók- uð eru til Kaupmannahafnar í sumar. M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Skattar, kr. 3.780 fyrir fullorðinn, kr. 3.090 fyrir barn, ekki innifaldir. Verð kr. 18.900 Flugsæti fyrir fullorðinn. Skattar kr 3.780 ekki innifaldir. 300 sæti til Köben í sumar frá 16.400* Flug alla föstudaga Brottför frá Keflavík kl.17.10 Flug heim á miðvikudagsmorgnum Opið í dag frá kl. 12-16 SIGURÐUR var orðinn aldraður maður – kominn hátt á níræðisaldur. Hann hafði verið hraustur alla ævi. Eftir að hann settist í helgan stein naut hann þess að fara í góða göngu- ferð á hverjum degi. Dag einn þegar Sigurður var á sinni daglegu göngu hné hann niður. Hjartað var hætt að slá. Sjónarvottar hringdu á sjúkrabíl sem kom á mikilli ferð. Lífgunartil- raunir voru þegar hafnar með raflosti og hjartahnoði og þeim haldið áfram á meðan ekið var með blikkandi ljós og sírenur á sjúkrahús. Hjarta Sigurðar fór aftur að slá. Og fáeinum dögum síðar komst hann aftur til meðvitund- ar. Ósjálfbjarga maður Það var gjörbreyttur maður sem vaknaði til lífsins á ný. Nú gat Sig- urður ekki staðið, ekki talað, ekki skrifað, ekki lesið og hvorki stjórnað hægðum né þvagi. Maðurinn sem hafði notið þess að ganga úti, hitta fjölskyldu og vini, spila við félagana í hverri viku, lesa blöð og bækur gat nú ekkert af þessu. Sigurður gat ekki einu sinni sinnt sínum persónulegu þörfum eins og að klæða sig, borða sjálfur, baða sig eða fara á klósettið. Þegar ástand Sigurðar var orðið stöðugt, eins og kallað er, var reynt að þrýsta á konuna hans að taka hann heim. Það gat hún ekki öldruð konan og farin að heilsu. Hún gat ekki með nokkru móti sinnt manninum sínum sem var hjálparvana eins og ungbarn – aðeins 80 kílóum þyngri. Sigurður fór á langlegudeild. Tím- inn leið. Sigurður fékk lungnabólgu. Mikil lyfjagjöf læknaði lungnabólg- una. Um sumarið var deild Sigurðar lokað og hann fluttur ásamt öðrum sjúklingum á aðra deild. Um haustið voru þeir fluttir aftur til baka. Og tím- inn leið. Sigurður fékk aftur lungna- bólgu. Aftur fékk hann lyf og lungna- bólgan lét sig. Sorg á tækniöld Árin liðu. Ástand Sigurðar breytt- ist ekkert. Hann var áfram fullkom- lega ófær um að njóta nokkurs af því sem hafði gefið lífi hans gildi áður en hann fékk slag. Loks dó Sigurður. Konan hans, ættingjar og vinir syrgðu hann mjög en sorg þeirra var blandin létti yfir því að Sigurður var nú loks laus úr þeim viðjum sem líf hans var komið í. En einnig mikilli sektarkennd yfir þeim létti. Sorgin fékk á sig afskræmda mynd. Þau byrjuðu öll að sakna Sigurðar þegar hann fékk áfallið. Þá hvarf sá Sigurð- ur sem þau höfðu þekkt og þótt vænt um. Árin liðu milli vonar og ótta. Von- ar um að honum myndi batna og von- ar að hann myndi deyja – og ótta um að hann væri að deyja. Þetta er sú nýja tegund af sorg sem hátæknivætt heilbrigðiskerfið færir okkur. Fyrir nokkrum árum hefði þetta farið á annan veg. Þá var einfaldlega litið svo á að þegar hjarta einstaklings stoppaði væri viðkomandi dáinn. Nú er öldin önnur. Nú hafa slíkar fram- farið orðið í læknavísindum og tækni að hægt er að fá hjarta sem hefur stansað til þess að byrja aftur að slá. Þessi tækni er ekki spöruð en notuð við alla sem hjartað stansar í – nema annað sé fyrirfram ákveðið. Hvað með þig, ágæti lesandi? Hvernig vilt þú hafa þetta þegar röðin kemur að þér? Ef þú ert fylgjandi því að alltaf sé allt gert sem í mannlegu valdi stendur til þess að hindra það að einstaklingur deyi getur þú verið al- veg rólegur. Þótt þú náir háum aldri þegar þú færð hjartaáfall eða heila- blóðfall verður ekkert til sparað að kalla þig aftur til lífsins með full- komnasta hátæknibúnaði sem völ er á. Að deyja með reisn Ef þú vilt að dauðinn fái óhindraður að hafa sinn gang ef þú færð hjarta- áfall eða heilablóðfall sem aldraður einstaklingur verður þú að gera ráð- stafanir í tíma. Þá verður þú að ræða opið við ættingja þína um hvað þú vilt ekki að gert sé við þig ef þú verður veikur eða slasast. Gott ráð er líka að skrifa það niður og geyma skjalið á aðgengilegum stað og láta nánaustu aðstandendur eða vini hafa eintak. Víða í öðrum löndum eru til eyðu- blöð sem fólk getur fyllt út og eru upplýsingarnar síðan geymdar hjá slysa- og bráðamóttökudeildum. Þá geta starfsmenn sjúkrahússins at- hugað hvort þeim er heimilt að reyna að endurlífga viðkomandi einstakling. Hér á landi ríkir mikil óvissa í hug- um almennings hverju fólk ráði varð- andi læknismeðferð í eigin veikindum og við ævilok. Því miður gera heil- brigðisyfirvöld lítið til þess að fræða fólk um þann rétt sem það hefur til þess að ráða eigin meðferð í veikind- um og slysum. Lög um réttindi sjúklinga frá 1997 nr. 74 kveða skýrt á um réttindi sjúk- linga til þess að hafna meðferð. Þar segir í 7. gr.: Virða skal rétt sjúklings til þess að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð. Og í 8. gr. segir svo: Sjúklingur getur stöðvað meðferð hvenær sem er. 24. gr. fjallar einnig um sjálfs- ákvörðunarrétt einstaklings: Dauðvona sjúklingur á rétt á að deyja með reisn. Gefi dauðvona sjúk- lingur ótvírætt til kynna að hann óski ekki eftir meðferð sem lengir lífið eða tilraunum til endurlífgunar skal læknir virða þá ákvörðun. Val einstaklingsins Þótt hver einstaklingur hafi rétt skv. lögum til þess að hafna meðferð leysir það ekki lækna undan þeirri skyldu að vera þeir sérfræðingar sem val einstaklingsins byggist á. Opin og heiðarleg umræða lækna við sjúkling og aðstandendur hans um heilsufar hans og möguleika á bata er sá grunn- ur sem val sjúklings eða aðstandenda hans byggist á. Um þetta atriði segja lögin um rétt- indi sjúklinga: 5. gr. Sjúklingur á rétt á upplýs- ingum um: heilsufar, þar á meðal læknisfræði- legar upplýsingar um ástand og bata- horfur, fyrirhugaða meðferð ásamt upplýs- ingum um framgang hennar, áhættu og gagnsemi, önnur hugsanleg úrræði en fyrir- hugaða meðferð og afleiðingar þess ef ekkert verður aðhafst. Einnig segir í 5. gr.: Upplýsingar samkvæmt þessari grein skulu gefnar jafnóðum og tilefni skapast og á þann hátt og við þau skil- yrði að sjúklingur geti skilið þær. Hvað um það ef sjúklingur er ófær um að taka ákvarðanir fyrir sig sjálf- ur? Lögin um réttindi sjúklinga taka einnig á því. Í 24. gr. segir: Sé dauðvona sjúklingur of veikur andlega eða líkamlega til þess að geta tekið þátt í ákvörðun um meðferð skal læknir leitast við að hafa samráð við vandamenn sjúklings og samstarfs- fólk sitt áður en hann ákveður fram- hald eða lok meðferðar. Þessvegna er það ekki síst í þágu okkar nánustu að við mótum okkar eigin skoðun á því hvernig við viljum að brugðist verði við í alvarlegum veikindum eða slysum sem geta verið ævilok okkar. Það léttir þungbæra ákvarðantöku aðstandenda ef sjúk- lingurinn hefur áður lýst vilja sínum varðandi læknismeðferð við ævilok. Frásögnin af Sigurði er sönn en nafni og öðrum kennileitum er breytt. Hún er skrifuð til þess að vekja fólk til umhugsunar að það hefur val hvernig það vill haga málum þegar þar að kemur. JÓRUNN SÖRENSEN, Hlíðarhjalla 2a, Kópavogi. Við ævilokFrá Jórunni Sörensen: NÝTT frumvarp til laga um tekju- tengingu lífeyris er orðið að lögum. Með kúnstum segja sumir. Ekkert bendir þó til þess að deilum um tekjutenginguna sé lokið. Ég hef oft velt því fyrir mér hvern- ig ríkisvaldið geti sett lög, sem heim- ili Tryggingastofnun að ráðstafa hluta launatekna einstaklings til framfærslu annars einstaklings án þess að viðkomandi launþegi hafi til- lögurétt þar um. Ég hélt að samn- ingsbundin laun, sem einstaklingur hefur unnið fyrir, væru alfarið hans eign eftir að hann hafi greitt af þeim skatt og útsvar. Mér finnst því illa vegið að persónufrelsi og eignarétti einstaklingsins með þessari laga- setningu. Það er aftur á móti spurn- ing, úr því Hæstiréttur dæmdi skerðingu tekjutryggingar vegna launa maka ólögmæta, hvort skerð- ing ráðstöfunartekna launþegans hefur þá ekki verið ólögmæt. Sé svo er það líka spurning hvort launþeg- inn eigi ekki fullan rétt á því að skerðingunni verði skilað 7 ár aftur í tímann og jafnvel eigi rétt á skaða- bótum. Um það fjallaði Hæstiréttur ekki. Ákveðið hefur verið að miða lífeyr- ir við 43 þús. kr. en ekki 51 þús. krón- ur. Það er því ljóst að ákvörðunin um að halda inni tekjutengingu losar hærra launaða að mestu við tekju- tenginguna, en full tenging helst inni hjá þeim sem lægst hafa launin. Rétt er svo að hafa í huga að þótt miðað hefði verið við 51 þús. kr. verður launþeginn að greiða allverulegan hluta framfærslu lífeyrisþegans hafi hann lágar greiðslu úr lífeyrissjóði, því 51 þús. kr. eru ekki nema lítill hluti af framfærslukostnaði einstak- lings, svo þessi ákvörðun virkar ein- göngu sem skerðing á framfærslu þeirra sem verst eru settir. Stjórnarliðar kvörtuðu undan því að með þessum dómi væri verið að færa þeim hærra launuðu mesta pen- inga. Það er einmitt það sem nýju lögin gera og er bara í samræmi við annað í þjóðfélaginu. Sé eitthvað gert fyrir þá sem búa við lægstu kjörin fá þeir hærra launuðu það til sín margfalt, eins og t.d. alþingis- menn. Þessi nýju lög færa þeim hærra launuðu kjarabætur, en þeim lakast settu ekkert og á það virðast stjórnarliðar leggja mikla áherslu, með því að viðhalda skerðingar- ákvæðinu. Ef menn í alvöru vilja gera eitthvað fyrir þá sem verst eru settir þarf að afnema tekjuteng- inguna alveg eða tengja hana ein- göngu við háar launatekjur. Í umfjöllun um öryrkjamálið var mikið talað um fjölskyldutekjur. Slíkar kúnstir eru ekki notaðar nema þegar rætt er um kjör þeirra sem al- þingismenn og atvinnurekendur telja vera í jaðri mannréttinda. Gagnvart þeim hærra launuðu er starfið metið til verðgildis launa ein- staklings og þá oftast margfalt hærra en fjölskyldulaunin, þannig að hálaunafjölskylda getur verið með margra ára tekjur láglaunafjölskyld- unnar í mánaðarlaun. Þessara háu tekna njóta þeir ekki síst sem leggja mikla áherslu á fjölskyldulaunakerf- ið fyrir aðra en sjálfan sig. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík. Eru öryrkjar og ellilíf- eyrisþegar niðursetn- ingar? Frá Guðvarði Jónssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.