Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ STELLA lætur lítið yfir sér þar sem hún situr bakvið svartan skerm í þessu einkennilega viðtali. Öðru hverju skrjáfar í fatnaði hennar þeg- ar hún skiptir um stellingu og er ógjörningur að heyra hvort hún klæðist karlmanns- eða kvenmanns- flíkum. Til skiptis slær fyrir vit mín daufum ilmi af karlmannlegum rak- spíra og ofurkvenlegu ilmvatni. Hún veit hvað hún syngur hún Stella. Með sama áframhaldi verður henni erfiðast að slá sjálfa sig út hvað dul- úð varðar en hún er nú ókrýnd drottning íslenskra spennusagna hvernig svo sem á skilja það, þegar öll kurl verða komin til grafar. – Hvernig kom það til að Bertels- mann vildi gefa út bækur þínar? „Hvernig áttu þeir að standast Stellu Blómkvist? Þegar vinir mínir hjá Máli og menningu höfðu kynnt þeim rækilega þessar tvær bækur, Morðið í Stjórnarráðinu og Morðið í Sjónvarpinu, kom það ekki á óvart að þeir féllu fyrir söguhetjunni!“ – Hafa bækurnar þegar verið þýddar á einhver erlend tungumál og hver er þýðandinn? „Þessi þýska þýðing verður sú fyrsta.“ Þriðja bókin í smíðum – Ertu að semja eitthvað núna? „Þriðja bókin er í smíðum. Efnið er ennþá leyndarmál. Ég má því ekkert segja. En ég skemmti mér jafn mikið við að skrifa nýju söguna eins og hinar fyrri. Kannski klára ég hana fyrir næstu jól. Samt lofa ég engu. Það kemur í ljós.“ – Hefurðu samið annars konar skáldskap en spennusögur? „Vigdís Grímsdóttir sagði í ritdómi um Morðið í Stjórnarráðinu að höfundurinn væri ekki að skrifa sína fyrstu sögu. Vigdís er klár stelpa!“ – Hver finnst þér staða spennu- sögunnar vera á Íslandi í dag? „Spennusagan er á hraðferð upp vinsældalistann. Staðan breyttist ár- ið 1997 með fyrstu bókinni um Stellu og fyrstu bók Arnalds Indriðasonar. Þá urðu íslenskar spennusögur allt í einu spennandi og mikið lesnar því Morðið í Stjórnarráðinu fór í mörg þúsund eintökum. Núna koma nokkrar nýjar sögur út á hverju ári. Útlend forlög sýna líka áhuga. Framtíðin er því björt.“ – Hvernig finnst þér form spennu- sögunnar henta íslensku umhverfi? „Spennusögur geta gerst hvar og hvenær sem er, en Stellubækurnar eru beintengdar við nútímann. Skuggahliðar borgarlífsins eru fínn bakgrunnur fyrir spennandi at- burðarás. Hérna er fullt af krimm- um og klámköllum, grimmum pen- ingasugum og ósvífnum pólitíkusum, ofbeldismönnum og eiturlyfjasölum. Það er hægt að finna litríka skúrka út um allt. Þetta umhverfi er fínt fyrir skáldsögur og bíómyndir sem gerast í nútímanum.“ – Áttu erfitt með að setja þig í spor sögupersóna þinna? „Nei. Það er bara vinna. Ég var viss um að lykillinn að frumlegum ís- lenskum krimma væri óvenjuleg söguhetja. Eftir miklar pælingar stóð hún skyndilega fyrir framan mig, bráðlifandi og herská eins og Pallas Aþena forðum daga. Með fastmótaða skapgerð sem réði frá- sagnarstílnum.“ – Ertu að lýsa sjálfri þér eins og þú vildir vera eða eins og þú ert? „Hefurðu séð Stellu Blómkvist á götu? Eða í réttarsalnum? Líklega ekki. Enda eru þetta engar sjálfs- ævisögur. En djöfull væri gaman að sjá eina alvöru Stellu í lögfræðinga- liðinu sem ungað er út úr háskól- anum. Það gæfi lífinu regnbogalit!“ Pælt mikið í Hæstarétti – Sóttirðu um starf hæstaréttar- dómara? „Mér fannst það ekki tímabært, hvað sem síðar kann að gerast. Ann- ars hef ég pælt mikið í Hæstarétti síðustu mánuði. En það er bara vegna sögunnar sem ég er að skrifa.“ – Hversu lengi hefurðu hugsað þér að halda þínu raunverulega nafni leyndu? „Stella Blómkvist á að standa á eigin fótum í veröldinni. Það lá fyrir um leið og hún fæddist. Og það hefur gengið bærilega. Stella lifir sjálf- stæðu lífi. Mér liggur ekkert á að troða upp á hana höfundi. Hún væri líka vís til að taka því illa!“ – Finnst þér gaman að fara í bíó? „Mér finnst gaman að brjálæðis- legum hrollvekjum sem hrista ræki- lega upp í taugakerfinu.“ – Finnst þér kvikmyndir eiga margt sameiginlegt með spennusög- um? „Kvikmyndir nærast á skáldsög- um eins og vampýrur. Sumar spennusögur skila sér vel í bíói en öðrum er misþyrmt hræðilega. Ég get ekki ímyndað mér eymdarlegri örlög frábærrar spennusögu en að enda sem léleg bíómynd.“ – Áttu von á því að sögur þínar verði kvikmyndaðar? „Af hverju ekki? Það væri hægt að gera frábæra kvikmynd eða sjón- varpsþætti eftir bókunum. En ég léti þær ekki í hendurnar á hverjum sem er.“ – Af seinni bók þinni má ráða að þér sé ekki sérlega vel við gagnrýn- endur. Hefurðu slæma persónulega reynslu af þeim? „Skúrkarnir í sögunum mínum eru af ýmsu tagi. Ég get nefnt sem dæmi pólitíkusa, klámkóng, fjár- málakall, uppdópaðan íþróttakenn- ara og sálsjúkan skurðlækni. Mér er ekkert illa við þessar starfsstéttir. Ekki heldur við gagnrýnendur. Spennusögur verða bara að hafa skúrka sem koma úr öllum áttum og þar eru gagnrýnendur jafngjald- gengir og aðrir. Mér fannst gaman að skapa Hallgerði sjónvarpsgagg- ara sem er bæði skúrkur og fórn- arlamb. Það er engin ein fyrirmynd að henni. Persónan varð til úr mörg- um pörtum eins og skáldsagnaper- sónur yfirleitt.“ Tími spennusagnanna kemur – Hvað borgar Bertelsmann fyrir útgáfurétt sagnanna? „Ég kvarta ekki.“ – Áttu von á því að fleiri útlend forlög vilji gefa bækur þínar út? „Af hverju ekki? Viðbrögð við þýsku útgáfunni ráða kannski miklu um framhaldið. Bertelsmann á víst forlög út um allt.“ – Varðstu fyrir vonbrigðum með að bók þín skyldi ekki tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna? „Því miður var engin spennusaga tilnefnd. En þeirra tími kemur!“ – Hvaða skoðun hefurðu á Ís- lensku bókmenntaverðlaununum? „Þetta eru verðlaun útgefenda. Þau hafa það markmið að selja fleiri bækur og gera það skilst mér.“ – Ertu meðlimur í Hinu íslenska glæpafélagi (þ.e. félagi spennu- sagnahöfunda)? „Já, mér var boðið í félagið í fyrra. Þótt ég geti ekki sótt fundi í félaginu fylgist ég með því sem þar er um að vera. Ég er með þeim í andanum.“ – Hvernig sérðu sjálfa þig fyrir þér eftir 20 ár? „Árið 2021? Ætli nokkur maður lesi bækur eftir tuttugu ár? Ég veit það ekki. En vonandi verður Stella Blómkvist sem lengst í banastuði. Hver veit, kannski endar söguhetjan eftir allt saman í Hæstarétti. Eða á Bessastöðum! Stella er til alls vís. Sagði mamma.“ Drottning spennusagnanna, Stella Blómkvist, í einkaviðtali „Fullt af krimmum og klámköllum“ Morgunblaðið/Ásdís Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri Máls og menningar, verst allra frétta um hver sé á bakvið nafnið Stella Blómkvist. Rithöfundurinn Stella Blómkvist er að leggja heimsbyggðina undir sig eftir að þýski útgáfu- risinn Bertelsmann keypti útgáfurétt að báðum bóka hennar; Morðinu í Stjórnar- ráðinu og Morðinu í Sjónvarpinu. Hávar Sigurjónsson fékk einkaviðtal eftir ýmsum krókaleiðum við þennan dularfulla höfund. SÖNGVAR frá sjónarhóli barna var yfirskrift Tíbrártónleikanna sem haldnir voru í Salnum sl. mánudags- kvöld þar sem Margrét Bóasdóttir og Miklós Dalmay fluttu barna- söngva eftir íslensk og erlend tón- skáld. Orðið barnasöngvar getur þýtt margt; söngvar sem ætlaðir eru börnum til söngs, sönglög þar sem fjallað er um barnalegt efni og „full- orðinna manna lög“, sem annað- hvort á að syngja við börn eða eru um börn og ætluð fullorðnum hlust- endum. Margir hafa sett sig upp á móti því að sérstakir söngvar séu fyrir börn og hafa bent á að börn geta sungið alls konar tónlist og eru ekki síðri hlustendur en þeir full- orðnu. Þeir söngvar sem Margrét Bóas- dóttir og Miklós Dalmay fluttu voru fullorðinna manna lög, um börn og barnalegt efni en fyrir fullorðna. Í efnisskrá er vitnað í þau orð Bern- steins „að söngvarinn skuli ekki reyna að syngja eins og hann haldi að barn myndi syngja, heldur nálg- ast þann heiðarleika og óspilltar til- finningar sem börn búa yfir“. Þetta er erfitt, og birtist oft í leikaraskap, þannig að barnið í söngvunum er gert broslegt, eins og t.d. í laga- flokknum I hate music eftir Bern- stein. Tónleikarnir hófust á sex lögum eftir Þorkel Sigurbjörnsson við texta eftir Þorstein Valdimarsson og nefnist lagaflokkur þessi „Lög handa litlu fólki“. Textinn er smá- ljóð, er sum hafa á sér svip vöggu- vísunnar. Lög Þorkels eru falleg, sérstaklega Dögun í skógi, Hugsvar og Þröstur. Í laginu Trúðar, sem er á margan hátt skemmtilegt lag, var nokkuð ofgert í píanóinu. Flutningur Margrétar á lögum Þorkels var sér- lega góður, að ekki sé talað um sér- lega skýran framburð hennar, og ekki spillti fyrir frábær undirleik- urinn hjá Dalmay. Vögguvísan var ekki fjarri í næstu sex lögum, sem eru eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og gefur hún þeim yfirskriftina „Barnalög – í gamni og alvöru“. Þetta eru falleg lög við kunna barnatexta, Verndi þig englar og Sofna, sofna, bæði við texta eftir Streingrím Thorsteinsson, Dags þegar rennur fagur fákur eftir Sveinbjörn Egilsson og þjóðvísan Guð blessi börnin. Margrét söng þessi lög af innileik, eins og vera ber þegar um vögguvísur er að ræða. Tvö síðustu lögin eftir Elínu eru við tvær vögguvísur eftir Jón úr Vör og var hér um að ræða frumflutning. Þetta eru einstaklega fallegar tón- smíðar er voru sérlega vel fluttar. I hate music eftir Bernstein hefur undirrituðum ávallt þótt vera í and- stöðu við það sem hann ráðleggur flytjendum að gera ekki. Hann býr til þann heim sem hann heldur að sé barnalegur, enda syngja flestir þessi lög með barnalegu látæði og gera sér gaman að „barnaskap“ barn- anna, sem nokkuð vildi loða við flutning Margrétar, þótt í heild væri látlaus. Það er einnig athyglisvert hversu einfaldur undirleikurinn er þegar þess er gætt að Bernstein var afburðagóður píanóleikari. Fallegasta tónlistin á efnisskránni var eftir Reger og Schumann og þar var söngur Margrétar bestur, að ekki sé talað um leik Dalmays, sem var ótrúlega glæsilegur, sérstaklega fallegur í Vögguljóði Maríu eftir Reger og glæsilegur í Aufträge op. 77 eftir Schumann. Seinna lagið eftir Reger, úr Einföldum lögum, var Kóngurinn frá Austurlöndum, er var mjög vel flutt, og Maríuhænan op. 79. eftir Schumann, er var mjög vel mótað og flutt af Margréti. Barnaherbergið eftir Mússorgskí er meðal frægustu tónverka um börn og þykir vera snilldarvel gert og er sérstakt uppáhald hjá söngv- urum, enda er textinn sérlega leik- rænn og fær sterka undirstrikun í píanóinu. Þarna var rödd Margrétar ekki nógu hljómmikil, þótt túlkun hennar væri töluvert sannfærandi og píanóleikurinn hjá Dalmay mjög áhrifamikill. Í heild voru tónleikarn- ir framfærðir af fagmannlegu ör- yggi, bæði hvað varðar túlkun og framburð, og var söngur Margrétar sérstaklega fallegur og innilegur í lögunum eftir Reger og Schumann og einnig í þeim íslensku. Píanóleik- ur Dalmays var hreint út sagt frá- bær. TÓNLIST S a l u r i n n Margrét Bóasdóttir og Miklós Dalmay fluttu barnasöngva eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Elínu Gunnlaugsdóttur, Bernstein, Reg- er, Schumann og Mússorgskí. Mánudaginn 29. janúar. EINSÖNGS- TÓNLEIKAR Að syngja um og fyrir börn Jón Ásgeirsson ÍSLENSKUM kórsöngvurum á aldrinum 17 til 26 ára gefst kost- ur á að þreyta inntökupróf í Heimskór æskunnar laugardag- inn 24. febrúar. Kórinn mun hitt- ast í Venesúela 19. júlí og æfa í Merida í tvær vikur. Síðan verður kórinn á tónleikaferðalagi í aðrar tvær vikur í Venesúela og fer til Flórída og Louisiana. Stjórnendur kórsins í sumar verða Maria Guinand frá Venesúela og Anton Armstrong frá Bandríkjunum. Kórfélagar verða sjálfir að bera kostnað af ferðinni milli heima- lands og Caracas í Venesúela en Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri veitir nánari upplýsingar. Starfar á ólíkum stöðum Heimskór æskunnar (World Youth Choir) var stofnaður árið 1989. Kórinn hefur starfað einn mán- uð á hverju sumri og alltaf á ólík- um stöðum í heiminum. Kórfé- lagar eru 96 talsins á aldrinum 17-26 ára og eru valdir úr hópi þúsunda umsækjenda hvaðanæva úr heiminum. Þeir þurfa að hafa mjög góða kunnáttu í nótnalestri og raddbeitingu ásamt reynslu í kórsöng og kórstarfi. Nokkrir íslenskir kórsöngvarar hafa við góðan orðstír sungið með Heimskór æskunnar. Heimskór æskunn- ar til Venesúela Þúsundir manna sækja um inngöngu í Heimskór æskunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.