Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 47 DAGBÓK Aukið sjálfsöryggi meira sjálfsöryggi Upplýsingar í síma 694 5494 Nýtt námskeið hefst 7. febrúar Með sjálfsdáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða upp- byggingu á öllum sviðum. Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.  Kæru ættingjar og vinir! Hjartans þakkir til allra þeirra, sem heimsóttu mig og glöddu með söng og góðum gjöfum á níræðisafmæli mínu 10. janúar sl. Guð blessi ykkur öll. Pétur Einarsson, Dalbraut 21. 3ja vikna ferð til Kanaríeyja fyrir 4 frá 14. febrúar til 7. mars á glæsilegasta hóteli eyjarinnar sem er niðri við sjóinn. Nánari upplýsingar gefur Óskar í símum 587 1565 og 898 6405. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert rómantískur og lífs- þorsti þinn vekur aðdáun annarra. Gættu þess að eig- ingirnin beri þig ekki ofurliði. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hver er sinnar gæfu smiður og þú ekki síður en aðrir. Því skaltu ekki gefast upp heldur berjast áfram að því takmarki sem þú hefur sett þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ferð langt á sjálfstraustinu en þarft líka að gæta þess að hafa fleiri tromp uppi í erm- inni sem þú getur gripið til þegar verkefnin liggja fyrir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það þýðir ekkert að berja höfðinu við steininn þótt eitt- hvert andstreymi sé um sinn. Þú hefur alla burði til að sigr- ast á erfiðleikunum og þarft því engu að kvíða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að gæta þess að draga þig ekki um of inn í skel þína heldur umgangast annað fólk bæði þér til skemmtunar og lærdóms. Mundu að maður er manns gaman. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert í færi til að ná árangri fyrr en þú áttir von á og það er sjálfsagt að þú sýnir hæfni þína með því að koma í mark með slíkum glæsibrag. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Aðstæður kalla nú á að þú sýnir sérstaka aðgæslu og haldir þér til hlés meðan ákveðin mál ganga yfir á vinnustað þínum. Þinn hlutur mun batna með þeim hætti. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Til þín verður leitað til þess að skera úr viðkvæmu vanda- máli og þá reynir á óhlut- drægni þína og að þú kynnir þér vandlega alla málavexti. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Valdið er vandmeðfarið og þú skalt varast það eins og heit- an eldinn að láta kné fylgja kviði þótt þú hafir möguleika á því. Lítillæti er aðal valds- mannsins. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Nú er tími til að lyfta lokinu af verkefni sem þú hefur verið að vinna að í leynum. Viðtök- ur annarra eiga eftir að koma þér skemmtilega á óvart. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Reyndu að finna þér tíma til þess að vera úti í náttúrunni. Útivist hleður batteríin til nýrra átaka og er kjörin leið til að lyfta líkama og sál. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nú getur þú ekki lengur vik- ist undan því að ganga í breytingar sem þú hefur lengi vitað að vofðu yfir. Mundu að hálfnað er verk þá hafið er. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Farðu þér hægt þótt þér finn- ist allt með þér því flas er ekki til fagnaðar heldur er betra að vera viss í sinni sök þegar lagt er í hann. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, miðviku- daginn 31. janúar, Gunnar Yngvason, Breiðholti, Garðabæ. Hann tekur á móti gestum í samkomuhús- inu á Garðaholti föstudaginn 2. febrúar eftir kl. 20. LJÓÐABROT Áfangar Liðið er hátt á aðra öld; enn mun þó reimt á Kili, þar sem í snjónum bræðra beið beisklegur aldurtili; skuggar lyftast og líða um hjarn líkt eins og mynd á þili; hleypur svo einn með hærusekk, hverfur í dimmu gili. Þverhöggvið gnapir þúfubjarg þrútið af lamstri veðra; Ægir greiðir því önnur slög, ekki er hann mildur héðra; iðkuð var þar á efstu brún íþróttin vorra feðra: Kolbeinn sat hæst á klettasnös, kvaðst á við hann úr neðra. Nú er í Dritvík daufleg vist, drungalegt nesið kalda; sjást ekki lengur seglin hvít sjóndeildarhringinn tjalda; Tröllakirkjunnar tíðasöng tóna þau Hlér og Alda; Fullsterk mun þungt að færa á stall, fáir sem honum valda. – – – Jón Helgason ÞÆTTINUM hefur borist skemmtilegt bréf frá Sigur- bergi M. Sigurðssyni í Kópavogi, þar sem hann veltir fyrir sér hvort keppn- isformið tvímenningur stuðli að „slæmri spila- mennsku“. Hann nefnir til þetta dæmi: Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♠ Á83 ♥ Á1053 ♦ 76 ♣ ÁKG5 Vestur Austur ♠ G10976 ♠ K52 ♥ D2 ♥ G9 ♦ Á109 ♦ DG82 ♣987 ♣D1043 Suður ♠ D4 ♥ K8764 ♦ K543 ♣62 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 4 hjörtu Allir pass Gefum nú Sigurbergi orðið: „Ég spila brids með eldri borgurum í Kópavogi og sendi þér þetta spil úr tví- menningi í Gjábakka fyrir áramótin. Ég sat í suður, en makker minn í norður var Björn A. Kristjánsson. Vestur kom út með spaðagosa, tekinn með ás. Síðan tók ég hjartaás og kóng, og spilaði því næst laufi á gosann. Austur átti slaginn á drottningu og vörnin tók spaðakóng og tvo slagi á tígul. Einn niður. Minn makker var ekki ánægður og hafði ég mér ekkert til varnar, nema sagði að þetta væri nú tví- menningur. Allir aðrir sem sögðu fjögur hjörtu höfðu fengið tíu slagi. Það sem ég ætlaði að gera ef laufsvín- ingin tækist var að henda spaðadrottningu í lauf og vinna 5–6 hjörtu eftir atvik- um. Svona getur græðgin leikið mann grátt. Nú spyr ég þig Guðmund- ur; getur verið að tvímenn- ingur stuðli að slæmri spila- mennsku? Í sveitakeppni hefði ég hleypt á spaða- drottningu eftir útspilið og fengið mína tíu slagi.“ Svar umsjónarmanns: Þetta er áhugaverð spurn- ing, en mín skoðun (og margra annarra) er sú að tvímenningur sé erfiðasta keppnisformið og stuðli síð- ur en svo að slæmri spila- mennsku. Hver slagur skiptir máli og aldrei má slaka á klónni. Hitt er svo annað mál hvaða taktík best er að beita. Græðgi er sjald- an til góðs – ekki einu sinni í tvímenningi. Ásmundur Pálsson heldur því fram að það eigi að spila tvímenning nákvæmlega eins og sveita- keppni. Ekki er ég alveg sammála Ásmundi, því stundum er ástæða til að taka áhættu fyrir yfirslag þótt það gæti kostað samn- inginn í slæmri legu. En hvað viðkemur þessu spili er örugglega ekki skynsam- legt að svína laufgosa. Betra er að taka ÁK og reyna að trompa niður drottninguna þriðju (áður en hjartaás er tekinn). Bara það að ná geiminu er gott og því ættu tíu slagir að gefa yfir 50% skor. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson SÍÐASTA umferð Skák- þings Reykjavíkur fer fram í kvöld, 31. janúar, kl. 19.30 í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Mikil spenna hefur verið í mótinu og margar áhugaverðar hildir háðar. Staðan kom upp í mótinu á milli Arnars E. Gunnarssonar (2285), hvítt, og Guðmundar Kjartanssonar (1860). 25. d5! Dæmigert gegn- umbrot sem opnar allar línur að svarta kónginum. 25...exd5 Ekki var heldur björgulegt að leika 25...Re7 þar sem eftir 26. dxe6 Rf5 27. e7+ situr svartur uppi með gjörtapað tafl. 26. Dh6+ Kg8 27. Hh4 Re7 28. Hxe7 Df6 29. Hxb7 d4 30. Dxh7+ Kf8 31. Hf4! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 31...Dxf4 32. Dh8# Staða keppninnar eft- ir 10 umferðir er þessi: 1.–2. Jón Viktor Gunnarsson og Sigurbjörn Björnsson 8 vinningar af 10 mögulegum 3. Stefán Kristjánsson 7½ v. 4.–6. Björn Þorfinnsson, Davíð Kjartansson og Guðni Stefán Pétursson 7 v. Loka- umferð mótsins fer fram í kvöld, 31. janúar, kl. 19.30 í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik Ljósmyndastofan Grafarvogi BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. ágúst sl. af sr. Sigurði Kr. Sigurðssyni á Borg á Mýrum Halla Eygló Sveinsdóttir og Guðmund- ur Jóhannsson. Heimili þeirra er að Lágengi 31, Sel- fossi. Árnað heilla FRÉTTIR Árans. Við hefðum átt að nota stærra epli. DREGIÐ hefur verið úr lukku- potti B&L og Kringlunnar sem komið var fyrir í Kringlunni í des- ember sl. og hlaut Þóra Péturs- dóttir vinninginn sem felst í fríum afnotum af nýjum Renault Scenic- bíl í eitt ár. Bíllinn sem Þóra fær til afnota er fjölnota fjölskyldubíll og er búinn fullkomnum tækni- og öryggisbúnaði, segir í frétta- tilkynningu. Á myndinni afhendir Páll Líndal, markaðsstjóri B&L, Þóru og dóttur hennar, Söndru Steingrímsdóttur, bílinn en Sandra á heiðurinn af að setja nafn móður sinnar í lukkupottinn sem varð til þess að hún hlaut vinninginn. Vinningshafi í lukkupotti B&L og Kringlunnar ÞRÍBURASÝNING frímerkja var haldin helgina 17.–21. janúar í Tucs- on, Arizona. Voru það sýningarnar „NORDIA 2001“, „ARIPEX 2001“ og „AMERISTAMP EXPO 2001“. Á tveim þeim fyrstnefndu voru söfn ís- lenskra frímerkja í efstu sætum. Í heiðursdeild á Nordia-sýningunni var safn Indriða Pálssonar „Sígilt Ís- land 1836–1902“, sem hefir unnið sér sæti þar með fyrri verðlaunum. Á Aripex-sýningunni var það safn dr. Roger G. Schnell, „Sígilt Ísland, 1788–1902“, sem fékk hæstu verð- launin, eða „Aripex Grand Prix“. Eru þetta vafalaust tvö bestu Íslandssöfn- in á sýningum í dag. Auk þessa voru fjögur önnur ís- lensk söfn á Nordia: Safn Þórs Þor- steins. „Íslensk stimpilmerki, söfnun- ar og gjaldmerki“, sem fékk stórt gyllt silfur, hamingjuóskir dómnefnd- ar og aukaverðlaun. Vantaði þarna aðeins eitt stig á að fara í gullverð- laun. Safn Hjalta Jóhannessonar af íslenskum Atiqua og Lapidar stimpl- um, sem einnig hlaut stórt gyllt silf- ur. Tegundasafn Guðna Friðriks Árnasonar, sem hlaut gyllt silfur og safn Jóns A, Jónssonar, „Danmörk 1979–1905, tvílit frímerki“, sem einn- ig hlaut gyllt silfur. Er þetta vafalaust besti árangur í verðlaunum, sem íslensk frímerkja- söfn hafa náð á erlendri sýningu. Umboðsmaður sýningarinnar var Sigurður R. Pétursson, sem einnig var dómari. Auk þessa voru tvö með sjaldgæfustu merkjum veraldar sýnd þarna undir stöðugri lögregluvakt. Það voru þrír skildingarnir gulu frá Svíþjóð, en umboðsmaður eiganda var Thomas Höyland frá Danmörku. Hitt var ein af fjórum þekktum fjór- blokkum af ameríska flugmerkinu með miðhlutanum á hvolfi. Er hvort um sig milljónavirði. Hátt í 20 þúsund gestir komu á sýninguna. Sígilt Ísland í heiðursdeild Söfn íslenskra frímerkja efst í Arizona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.