Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 39
Ég fór frá honum neðar í ána og eftir hæfilega stund fór ég uppeftir aftur og mætti mínum manni með 18 punda lax á bakinu og eitt sólskins- bros á vör og sagði er ég mætti hon- um. „Þetta er nú ekki alvitlaust.“ Eft- ir þetta fórum við saman í nokkrar veiðiferðir og að lokum tók hann smá á á leigu og naut sín vel, ekki síst einn. Elsku Palli minn, það er svo margs að minnast að því verða ekki gerð skil í nokkrum línum en við Inga systir þín söknum þín innilega og eigum ekki lengur von á að einhver banki upp á og segi: „Nú, eruð þið heima?“ Við sættum okkur við að þú sért far- inn yfir móðuna miklu þar sem Ninna konan þín og foreldrar þínir taka á móti þér og umvefja þig. Palli minn, við Inga kveðjum þig með söknuði, en þó er söknuður barna og barnabarna mestur og biðj- um við Guð að blessa þau og styrkja. Vertu ávallt Guði falinn. Þín systir, Ingibjörg Helgadóttir og Steingrímur Gíslason mágur. Hinn 21. janúar sl. lést vinur minn, Páll S. Helgason, á Landspítalanum í Reykjavík. Kallið kom snöggt og óvænt þótt allir mættu við því búast því Páll hefur átt við mikil veikindi að stríða í langan tíma. Kynni okkar Páls hófust árið 1978 þegar við stóð- um saman að stofnun óháðs flokks um bæjarmálefni í Kópavogi, „Borg- aralistans“. Það kom fljótt í ljós að Páll var traustur og trúr, enda var honum trúað fyrir sæti í bygginga- nefnd Kópavogs það kjörtímabil. Þar vann hann sér traust allra sem með honum störfuðu. Næsta kjörtímabil varð hann formaður bygginganefnd- ar en þá fyrir Framsóknarflokkinn. Páll lærði vélsmíði á Patreksfirði ungur að árum og rak vélsmiðju til margra ára í Reykjavík. Hann þótti nettur og fínn smiður enda eftirsótt- ur í faginu og ósjaldan sóttur til að gefa ráð og fleira. Gaman var að koma í litlu kaffistofuna á verkstæði hans, en þar var oft þröngt á þingi því vinirnir voru margir. Þá fann maður hvað velkominn hver og einn var. Ég og fjölskylda mín höfum átt því láni að fagna að njóta vináttu Páls allt frá fyrstu kynnum og er því margs að minnast. Oft fórum við saman í stutta bíltúra um nágrennið og einkanlega eftir að hann veiktist. Þá var skrafað um heima og geima. Hann var mikill útivistarmaður og fór gjarnan í göng- ur sér til heilsubótar. Páll var ættrækinn með afbrigðum og hafði sérstakt yndi af sinni heima- byggð, Patreksfirði. Enda fór hann þangað eins oft og hann gat, meðal annars átti hann um tíma lítinn veiði- kofa á Rauðasandi. Þar undi hann sér vel. Nú þegar komið er að skilnaðar- stund bið ég góðan guð að vaka yfir börnum hans og fjölskyldum þeirra. Sárt er vinar að sakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húmskuggi féll á brá, lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta, vinur þó falli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Fjölskyldu Páls og ættingjum vottum við samúð okkar. Blessuð sé minning hans. Alexander Alexandersson og fjölskylda. Öll getum við átt von á því að fá af því fréttir að einhver samferðamaður sé látinn, það er gangur lífsins að eft- ir því sem árin líða kveðja þeir sem áður settu svip sinn á mannlífið og umhverfi líðandi stundar. Að sjálfsögðu snertir það hvern einstakling misjafnlega eftir því hve viðkomandi hefur staðið honum nærri. Til þess að minnast vinar míns, Páls Helgasonar, þarf ég að gang- setja hugarflugið og rekja ofan af tímahjólinu ein þrjátíu ár. Fyrstu kynni mín af Palla Helga voru er við hjónin keyptum húseign- ina númer 93 við Kópavogsbraut. Þá var þar frekar snaggaralegur þybb- inn maður að aðstoða fyrrum eiganda hússins við ísetningu á innihurðum. Sá ég þá strax að þarna var handlag- inn maður sem kunni að halda á og beita verkfærum rétt. Þarna kynntumst við hjónin þess- um mikla öðlingi, Páli S. Helgasyni. Ég er þess fullviss að einmitt á þessu væntanlega heimili okkar Ás- dísar minnar, og allri fjölskyldu, byrjuðu örlögin að spinna sína ósýni- legu þræði milli fjölskyldna okkar Palla, sem eru oft og tíðum sterkari heldur en þeir sem sjást með berum augum. Tilviljum ein réð því að lóðir okkar lágu saman, þ.e. horn í horn þótt Palli ætti hús við aðra götu, Þinghólsbraut 54. Fljótlega voru því nokkrar spýtur teknar úr minni girðingu svo hægara væri með samgang á milli heimila. Svo sterk voru vináttubönd okkar, að ævinlega ræddum við saman í ein- rúmi um ýmsar hugmyndir og mik- ilvægar ákvarðanir sem Palli tók á sinni lífsgöngu og sýndi þar með vini sínum mikið traust, sem ég verð æv- inlega hreykinn af. Þótt ævistarf Palla hafi lengst af verið vél- og rennismíði var eins og sjómennskan togaði pínulítið í hann. Árið 1952 var ég vélstjóri á mb. Helga Helgasyni undir skipstjórn Finnboga Magnússonar, sem var frændi Palla, og atvikaðist það þann- ig að við Palli færum til Vestmanna- eyja til að undirbúa skipið til síld- veiða, vélbúnað þess og ýmislegt annað. Þetta varð mjög eftirminnileg síldarvertíð og urðu aflabrögð með eindæmum góð. Oft höfum við vin- irnir rifjað upp að gamni okkar þegar við sátum að kvöldlagi í íbúð Palla í Gullsmára 9 ýmis atvik, sem gerðust þetta eftirminnilega sumar og læt ég hér kyrrt liggja. Eins var þegar hann ákvað að stofna til síns eigin atvinnurekstrar eftir að hafa unnið í mörg ár og verið meðeigandi í Vélsmiðju Jens Árna- sonar. Það tók okkur Palla nokkra daga að finna heppilegan stað til að setja á stofn eigið vélaverkstæði. Þá fundum við hús í byggingu og var neðri hæðin einungis rúmlega fok- held, Páll kaupir þá hæðina og stofn- ar þar Vélsmiðju Páls Helgasonar við Síðumúla 11 í Reykjavík. Það var aldrei neitt kannski eða ætli ef Páll ætlaði að gera eitthvað, það var gert á stundinni. Þetta fyrirtæki stækkaði fljótt, veitti mörgum mönnum vinnu og gekk afskaplega vel. Nú vil ég snúa mér að félagsmála- manninum Páli S. Helgasyni og sleppa stórum kafla úr lífshaupi hans. Áður hefir komið fram um ýmsar nefndir sem hann sat í fyrir sitt sveit- arfélag. Eins og fyrr er sagt ræddum við ýmsa mikilvæga hluti í einrúmi og er þá komið að inngöngu hans í Odd- fellow-regluna, þ.e. stúku nr. 11 Þor- geir. Gamalt máltæki segir „lengi býr að fyrstu gerð“ og þar á ég við hlut- verk hans í skátahreyfingunni á Pat- reksfirði. Hann hafði alla burði til þess að verða sannur Oddfellow, enda kom það fljótt í ljós. Ég sem var Oddfellowi var að sjálfsögðu leiðtogi hans við inngöngu. Páll var mjög virkur félagi í reglunni og gegndi þar mörgum mjög þýðingarmiklum emb- ættum og margt sem honum fannst betur mega fara lagfærði hann sjálf- ur eða fékk aðstoð við. Þannig var að Páll hafði næmt auga fyrir flestum hlutum, hvort sem var innanhúss eða utan. Ég vil helst ekki rifja mikið upp veikindasögu vinar míns, þótt ég hafi fylgst grannt með henni alveg frá upphafi, einhver annar gerir það kannski betur en ég. Ég bý í Gull- smára 7 í Kópavogi og eftir að konan mín elskuleg, Ásdís Ólafsdóttir, lést þ. 26. júní í sumar hefir ekki fallið úr einn einasti dagur, þannig að við Palli hefðum ekki samband. Og ósköp leið mér vel að geta rölt yfir til hans, sest í góða stólinn hans, rabbað saman um gamla daga eða þá horft á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Þannig eyddum við kvöldunum oft fram yfir miðnætti og höfðum báðir gagn og gaman af. Það líður sjálfsagt nokkur tími þar til maður sættir sig við að Palli sé ekki lengur á fimmtu hæðinni á nr. 9 bjöllu 20. Þegar þú ert nú horf- inn af sjónarsviðinu erum við öll, sem stóðum þér næst, fátækari og sökn- um góðs vinar og félaga. Það var allt- af gott að leita til þín og frá þér fór enginn bónleiður til búðar. Hafðu heila þökk fyrir órofa vin- áttu. Ég bið góðan guð að styrkja ykkur öll og votta mína innilegustu samúð. Enginn veit hver annan grefur allt er líf í drottins hendi. Menn vita best er misst hann hefur, mætan vin er vel ég kenndi. (I.G.) Ingimundur Guðmundsson. Á Þinghólsbraut 54 bjó Páll Helga- son og fjölskylda hans lengst af. Heimsóknirnar þangað voru margar og minningarnar góðar. Alltaf feng- um við hlýjar móttökur, kossa og klapp á kollinn. Sem barn hafði ég ekki hugmynd um hvernig við tengdumst Palla og fjölskyldu hans. Þau voru bara alltaf til staðar þegar mamma og pabbi þurftu að bregða sér frá og við vorum alltaf velkomin. Þar sem ég ólst ekki upp í návist ömmu og afa þá hafa þau Palli og Ninna sjálfsagt fengið það hlutverk. Maður þarf ekki að vera hár í lofti til að skynja þá gagnkvæmu virðingu og óskaplega miklu væntumþykju í sambandi mömmu og Palla sem síðan við systkinin nutum góðs af. Nú í seinni tíð var Palli sá ættingi mömmu sem stóð henni næst, því er missir hennar mikill en minning hans mun lifa með okkur öllum. Þótt heimsóknum okkar hafi fækk- að með árunum minnkaði ekkert væntumþykjan, hann hefur alltaf átt stórt hlutverk í lífi okkar og mun allt- af eiga. Með þessum línum kveð ég Palla og sendi aðstandendum hans mínar innilegustu samúðarkveðju. Theodóra Þorsteinsdóttir. Góður vinur minn, Páll Helgason, er nú genginn á vit feðra sinna og það er erfitt að sætta sig við þá tilhugsun að fá aldrei að sjá hann aftur, tala við hann, hlæja með honum. Eina hugg- unin er sú fallega minning sem hann skilur eftir sig. Við Páll kynntumst við dálítið óvenjulegar aðstæður, á skemmti- siglingu í Karíbahafi. Þegar á fyrsta degi um borð í skipinu tókst með okk- ur góð vinátta, sem varð traustari með hverjum deginum sem leið. Ég fann hvílíkur sómamaður hér var á ferð og mér leið vel í návist hans og hið sama má segja um Björgu konu mína. Ófáum stundum eyddum við hjónin saman með Páli þessa daga sem siglingin tók og það er gott að geta nú ornað sér við þær ljúfu minn- ingar. Í þessari skemmtisiglingu var Páll á ferð með reglubræðrum sínum úr Oddfellowreglunni, úr stúku númer 11, Þorgeiri. Þetta voru fyrstu kynni mín af Oddfellowreglunni. Það fór ekki framhjá mér hversu sterk þau voru vináttu- og bræðraböndin, sem batt þessa menn saman, og þessi óvenju mikla samstaða, ásamt glað- værð og hlýju viðmóti stúkubræðra og eiginkvenna þeirra, vakti áhuga minn á starfsemi reglunnar. Það var síðan vinur minn Páll Helgason, sem leiddi mig fyrstu sporin inn í Odd- fellowregluna, og fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur því þetta voru vissulega gæfuspor. Ég gæti rifjað upp margar skemmtilegar stundir sem við Páll áttum saman eftir þetta. Í minning- unni stendur ljúfmennska og traust vinátta upp úr, þótt vissulega mætti benda á fjölmarga fleiri góða eigin- leika sem Páll var gæddur. En orð mega sín harla lítils þegar söknuður og tómarúm fylla hjartað. Páls Helgasonar verður lengi minnst og sárt saknað úr röðum okkar Þor- geirsbræðra, enda er með honum genginn góður félagi og virkur og traustur reglubróðir. Við Björg sendum aðstandendum hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum Guð að blessa þau og minningu Páls Helgasonar. Sveinn Guðjónsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 39 KIRKJUSTARF Bústaðakirkja: Starf aldraðra í safn- aðarheimili Bústaðakirkju kl. 13.30. Þar verður spilað, föndrað, sungið, spjallað og boðið upp á kaffi. Allir velkomnir. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja: Foreldramorgunn kl. 10–12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Samverustund eldri borgara kl. 14. Biblíulestur, bænastund, kaffiveitingar, og sam- ræður. TTT (10–12 ára starf) kl. 16.30. Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Gátlisti fyrir heimili. Her- dís Storgaard, verkefnisstj. Árvekni. Háteigskirkja: Samverustund eldri borgara kl. 11–16 í Setrinu í umsjón Þórdísar Ásgeirsdóttur þjónustu- fulltrúa. Viðtalstímar Þórdísar eru alla virka daga kl. 10–11. Sími 551 2407. Kórskóli fyrir 5–6 ára börn kl. 16. Barnakór 7–9 ára kl. 17. Kvöld- bænir og fyrirbænir í dag kl. 18. Laugarneskirkja: Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kirkjuprakkarar (6–7 ára) kl. 14.30. Fermingarfræðsla kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarnes- kirkju, Þróttheima og Blómavals kl. 20. Gospelsamvera í Hátúni 10 kl. 20 í samvinnu kirkjunnar og ÖBÍ. Langholtskirkja: Kyrrðar- og fyrir- bænastund er kl. 12–12.30. Fyrir- bænaefnum má koma til sóknar- prests og djákna. Létt máltíð gegn vægu gjaldi á eftir í safnaðarheim- ilinu. Samvera eldri borgara er kl. 11–16. Spjall, kaffisopi, heilsupistill, létt hreyfing, slökun og kristin íhug- un er á dagskrá kl. 11–12. Bænagerð, sálmasöngur og orgelspil er í kirkj- unni kl. 12–12.30. Síðan er létt máltíð (500 kr.) í safnaðarheimilinu. Frá kl. 13 er spilað, hlustað á upplestur eða málað á dúka og keramik. Kaffisopi og smákökur eru í boði kirkjunnar kl. 15.20. Stundinni lýkur með söng- stund á léttu nótunum undir stjórn Jóns Stefánssonar organista. Um- sjón hefur Svala Sigríður Thomsen djákni. Neskirkja: Orgelandakt kl. 12. Jónas Þórir organisti spinnur af fingrum fram stef á sálmum. Ritningarorð og bæn. Starf fyrir 7 ára börn kl. 14–15. Opið hús kl. 16. Kaffiveitingar. Bænamessa kl. 18. Sr. Halldór Reynisson. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur málsverður á eftir í safnaðarheimilinu. Starf fyr- ir 11–12 ára börn kl. 17. Árbæjarkirkja: Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús i dag kl. 13–16. Hand- mennt, spjall og spil. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnaðarins. „Kirkjuprakkarar“, 7–9 ára kl. 16– 17. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17– 18. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl.12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. „Kirkjuprakkarar“, starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10– 12 ára kl. 17.15. Digraneskirkja: Æskulýðsstarf KFUM og Digraneskirkju fyrir10– 12 ára drengi kl. 17.30. Unglinga- starf KFUM & KFUK og Digranes- kirkju kl. 20. Fella- og Hólakirkja: Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Opið hús fyrir fullorðna til kl. 15. Bæna- og þakkarefnum má koma til Lilju djákna í s. 557-3280. Látið einnig vita í sama síma ef ósk- að er eftir akstur til og frá kirkju. Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 15– 16. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja: Kyrrðarstund í hádegi kl. 12með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði. Allir vel- komnir. KFUM fyrir drengi á aldr- inum 9–12 ára kl. 16.30–17.30. „Kirkjukrakkar“ í Engjaskóla kl. 18–19. Hjallakirkja: Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Kópavogskirkja: Samvera 8–9 ára barna í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. TTT, sam- vera 10–12 ára barna, í dag kl. 17.45– 18.45 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Léttur kvöldverður að stund lokinni. Tekið á móti fyrirbænaefnun í kirkjunni í síma 567 0110. Vídalínskirkja: Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12 í safnaðarheimilinu. Víðistaðakirkja: Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14–16.30. Helgistund, spil og kaffi. Hafnarfjarðarkirkja: Kyrrðarstund í hádeginu kl. 12, altarisganga og fyrirbænir. Léttur hádegisverður frá kl. 12.30–13. Kletturinn, kristið samfélag: Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Landakirkja í Vestmannaeyjum: Kl. 12 kyrrðar- og bænastund í hádegi. 20 mín. hlé frá amstri dagsins. Klukkan 20 er opið hús fyrir ung- linga (8.–10. bekkur) í KFUM&K- húsinu. Fíladelfía: Súpa og brauð kl. 18. Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur, ung- lingafræðsla, kennsla fyrir ensku- mælandi og biblíulestur. Allir vel- komnir. Hvammstangakirkja: Kapella sjúkrahúss Hvammstanga: Bæna- stund í dag kl. 17. Allir velkomnir. Keflavíkurkirkja: Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25 – súpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshóp- ar. Umsjón: Ásta Sigurðardóttir. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. KEFAS: Samverustund unga fólks- ins kl. 20.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja: STN-starf miðvikudaginn 31. janúar kl. 16.30 í umsjá Vilborgar Jónsdóttur og er ætlað börnum sex til níu ára. Hvalsneskirkja: Safnaðarheimilið í Sandgerði.Fundur með foreldrum fermingarbarna í Sandgerði kl. 20:30. Safnaðarstarf Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Kaffi- bollar Nýtt - nýtt Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.