Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÉG gæti sagt ykkur frá öllum þeim verðlaunum sem þessi plata hefur verið tilnefnd til, sem eru þónokkur, eða á hversu mörgum listum hún var yfir bestu plötur síðasta árs, því hún var á þeim flestum, eða hvaða stór- kostlegu söngkonum er búið að líkja henni við, því henni hefur verið líkt við þær flestar, en ég ætla ekki að gera það. Þess í stað ætla ég að segja ykkur frá söngkonu sem heitir Jill Scott og hún er einstök. Hún byrjaði að skrifa ljóð sem hún síðan las á sérstökum kvöldum sem hún kallaði Orð og hljóð sem urðu þó nokkuð vinsæl í heimabæ hennar Philadelphiu, New York og New Jersey og eftir að hafa hlustað á diskinn skilur maður af hverju. Trommuleikarinn í Roots heyrði í henni og örfáum dögum síðar var hún búin að semja Grammy-verð- launalagið „You Got Me“ sem Roots fluttu með Erykuh Badu (eitt allra besta r og b/hip-hopp lag síðustu ára). Síðan þá hefur hún verið á ferðalagi með Roots, unnið með Eric Benet, Will Smith og snillingnum Common og nú loksins er komin út hennar fyrsta plata. Það er eiginlega alveg sama hvar þú dettur inn á þennan magnaða disk því ferðalagið sem Jill Scott leiðir okkur í gegnum gæti byrjað á fyrstu mínútu disksins eða þeirri síðustu. Eins og hún segir í upphafinu „Jilltro“ þá fær hún sinn sterkasta innblástur frá ást. Um það snýst tón- list hennar og þetta túlkar Jill Scott með ótrúlega fallegum textum ljóða sinna sem pottþéttur hljóðfæraleik- ur og frumleg útsetning, ramma inn á frábærum geisladiski. Þetta er ekki hefðbundin r og b tónlist heldur ástríðufull og einlæg sögustund sungin með flauelsmjúkri rödd og maður getur ímyndað sér stemmn- inguna á reykmettuðum klúbbum í New York þegar Jill Scott steig á svið og las upp úr bókum sínum. Ferskar og frumlegar lagasmíðar, yndislegur söngur og þægileg spila- mennska skapa einstakt andrúmsloft sem verður betra og betra við hverja hlustun. Lög eins og „Do You Rem- ember“, „Getting in the Way“, hinn gullfallegi óður til elskhuga hennar „He Loves Me (Lyzel in E Flat)“, „Love Rain“, „Watching Me“ og aukalagið „Try“ eru nokkur sem ég einfaldlega verð að nefna því þau eru mögnuð. Takið líka sérstaklega eftir „Exclusively“ sem er algjör snilld! En það er samt heildin sem gerir þennan disk svo eftirminnilegan. Platan heitir Hver er Jill Scott? og mér fannst ofboðslega gaman að komast að svarinu við þessari spurn- ingu því hér er á ferðinni einn allra besti diskur í safni undirritaðs. Í hnignandi heimi færibandafram- leiddrar popptónlistar fagnar maður því þegar maður heyrir í tónlistar- mönnum sem hafa eitthvað að segja. Þessir tónlistarmenn semja lög sem hreyfa við manni, hvort sem er and- lega eða líkamlega. Jill Scott er slík- ur tónlistarmaður. Í nýlegu viðtali var hún beðin um að lýsa sér sem tónlistarmanni og hún sagði einfaldlega: „Ég vona bara að þetta sé byrjun á hreyfingu sem sýnir að góð, ekki bara grípandi, tón- list er að koma aftur, með lifandi hljóðfæraleik og söng sem kemur frá sálinni.“ Ég vona það svo innilega líka. ERLENDAR P L Ö T U R Jón Gunnar Geirdal fjallar um fyrstu plötu r og b listamanns- ins Jill Scott, Who Is Jill Scott?: Words and Sounds, Vol. 1  Jill Scott lyftir r og b tónlistinni upp á hærra plan á frumburði sínum og gefur hnignandi heimi popptónlistarinnar langt nef að mati Jóns Gunnars Geirdals. Hver er nú þessi Jill Scott? Á GRAND ROKK tefla menn ekki við páfann. Þó er deginum ljósara að ef hann léti sjá sig yrði skorað á hann af áhugasömum skák- áhugamanni, því eins og flestir vita er barinn helstu húsakynni þeirra. Á laugardaginn síðasta fór þar fram firmaskákmót á vegum skák- félagsins sem þar er starfandi og leiddu mörg þjóðþekkt andlit sam- an hesta sína, biskupa og hróka. „Mótið fór þannig að SkjárEinn sigraði með sjö og hálfan vinning,“ tilkynnti Hrafn Jökulsson. „Björn Þorfinnsson tefldi fyrir þeirra hönd. Þetta voru 28 keppendur, níu umferðir og baráttan var býsna hörð á toppnum enda voru þarna nokkrir mjög snjallir skák- menn. Tómas Björnsson, sem tefldi fyrir Esso, varð í öðru sæti með sjö vinninga. Það var svo Ró- bert Harðarson er tefldi fyrir strik.is sem varð í þriðja sæti.“ En þarna mætti líka áhugafólk. Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður tefldi fyrir hönd Íslandssíma og kom á óvart með óvæntum sigri á Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, margföldum Íslandsmeistara kvenna í skák, og fékk kúbanskan vindil að launum. Jakob Bjarnar Grétarsson fékk einnig vindil af- hentan fyrir að sýna mikinn drengskap og réttan keppnisanda. Lenka Ptáckíkova keppti fyrir hönd Morgunblaðsins og náði best- um árangri kvenna á mótinu, lenti í fjórða til sjöunda sæti með sex vinninga. Það verða sem fyrr miklar hreyfingar á taflborðunum á Grand Rokk á næstunni. Í febrúar heldur skákfélagið þar ásamt Við- skiptanetinu tvö úrtökumót sem skera úr um hvaða 16 einstakling- ar keppa svo til úrslita. Verðlaunin í því móti eru 130 viðskiptanets- krónur en fyrir þær er víst hægt að kaupa flest það sem hugurinn girnist. Öllum er velkomið að mæta til leiks. Þá er bara að læra mannganginn. Morgunblaðið/Jim A-liðsmenn Skákfélags Grand Rokks: Hrafn Jökulsson, Ómar Jónsson, Róbert Harðarson og Tómas Björnsson. SkjárEinn vann Fyrsti leikur mótsins. Jakob þiggur góð ráð frá Hrafni. Vantar Loga? Logi Bergmann með verðlaunavindilinn. Skák og mát á Grand Rokk @ ((@?(5%% ' ' 5((@?( @> 4 # @ (6(@?(&885  4 # ' 5(I(@?( @> 4 # @ (H(@?( @> 4 #                !                    = $ &# $ ' & =   # $ '                  !" ! ###    Anddyri LINKIND EÐA HARKA? Í KVÖLD: Mið 31. jan kl. 20 Umræðufundur um stöðu leiklistargagnrýni á Íslandi í dag. Fyrir hvern og til hvers er leiklistargagnrýni? Hverju getur hún komið til leiðar? Hvert er hlutverk leiklistargagnrýni, skyldur hennar og staða?. Þátttakendur í umræðunum eru: Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður, Halldóra Friðjónsdóttir, leiklistargagnrýnandi DV, Páll Baldvin Baldvinsson, formaður Leikfélags Reykjavíkur og Soffía Auður Birgisdóttir, leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins. Fundarstjóri er Magnús Þór Þorbergsson. Litla svið - VALSÝNING ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab Fim 1. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Fös 2. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Litla svið ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Fös 16. feb kl. 20 Fös 23. feb kl. 20 Stóra svið LED ZEPPELIN TÓNLEIKAR Fös 2. feb kl. 19.30 og kl. 22.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir flytur tónlist Led Zeppelin. Meðal gesta sem einnig koma fram eru: Pink Floyd og Deep Purple. Forsala aðgöngumiða er í Japis. Stóra svið SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason Lau 3. feb kl. 19 – UPPSELT Lau 10. feb kl. 19– ÖRFÁ SÆTI LAUS Fös 16. feb kl. 20 - UPPSELT Fös 16. feb kl. 20 - UPPSELT Stóra svið MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Sun 4. feb kl. 14 - UPPSELT Sun 4. feb kl. 17 - AUKASÝNING Sun 11. feb kl. 14 – UPPSELT Sun 11. feb kl. 17 - AUKASÝNING Sun 18. feb kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Stóra svið FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen Fös 9. feb kl. 20 FRUMSÝNING Ertu í saumaklúbbi? Skráðu klúbbinn á póstlistann á www.borgarleikhus.is og fáðu glæsileg leikhústilboð fyrir hópinn vikulega. Mánaðarlega er einn sauma- klúbbur dreginn út og öllum meðlimum boðið á leiksýningu í Borgarleikhúsinu. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: $%&'( &)*'(& ( +,-  . /0 % 0!  @  . $ %'@  .1 %%@ !  1   2.  34567843  . 9 9  %% = $ &@ %  = ?@ ! /@  .   :-;* $4+55(&*44  . 3 2   6  @ $%  .* $%" .  %%@ $%  .  %?@ $ %   < 2.  * $%"  < 2. 1  8@   < 2.  $% * $ %"  2. 1  @&$%  . * $%"  < 2. 1 %%@&$%   2.  Smíðaverkstæðið kl. 20.00: )' (--3 =33 3 7&/85*  .  / A!$ &%@% . %@  . $ &@  .1  @  . "@  .1 ?@  . ! /@  . % @  .1 $  %"@  . *  %?@  .1  @  . $  @  .  8@  .1  ?@   < 2.  ;5>%4(& ?*@3%  : A3 0!  @   2. 1 ! /@ $ %'@  Litla sviðið kl. 20.30: /;1 $3 *47/34  . >.B< C9 $  0!  @  .1 $ &@  .1 ! /@ $ %'@  ###  0   D  0  6  $%'       < EF EG1  E E 552 3000 Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 sun 4/2 örfá sæti laus fös 9/2 örfá sæti laus lau 17/2 laus sæti lau 24/2 laus sæti SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG lau 3/2 kl. 20 örfá sæti laus lau 10/2 kl. 20 örfá sæti laus fös 16/2 kl. 20 örfá sæti laus 530 3030 SÝND VEIÐI lau 3/2 kl. 21 laus sæti fös 9/2 kl. 20 laus sæti TRÚÐLEIKUR fös 2/2 kl. 20 laus sæti lau 3/2 kl. 13 laus sæti Síðustu sýningar Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar og fram sýningu alla sýningardaga. Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. midasala@leik.is — www.leik.is     . 7A ?AA  ! %3#$ ' $<.  $ %"#$%/ & = !  &#$ '  =   8#$%/ 3.0  H..  .  <       0* $        + + ,$  2$  $    /   $ *  $%87%/ 7$ *    =   =    6 $ $%'     I !        
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.