Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 21
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 21 ALLT TIL RAFHITUNAR Fyrir heimili - sumarhús - fyrirtæki ELFA-OSO hitakútar og túbur Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu. Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og 300 lítra. Getum útvegað stærðir frá 400—1.000 lítra. Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar fylgja. Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6—1200 kW og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og handþvott. ELFA-VÖSAB olíufylltir ofnar Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti, engin rykmengun, lágur yfirborðshiti. Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja. Stærðir á lager: 400—750—800 og 1.000 W. Hæð: 30 eða 60 sm. Getum einnig útvegað tvöfalda ofna. HAGSTÆTT VERÐ! Borgartúni 28,  562 2901 TÓNLISTARMENNIRNIR eru á aldrinum 16 til 26 ára og eru þau öll að ljúka prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Það eru þau Annette Ar- vidsson fagottleikari, Ari Þór Vil- hjálmsson fiðluleikari, Karen Erla Karólínudóttir flautuleikari og Vík- ingur Heiðar Ólafsson píanóleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru konsert fyrir fagott eftir Mozart, fiðlukonsert eftir Saint-Saëns, konsert fyrir flautu og hljómsveit eftir Carl Nielsen og píanókonsert eftir Tsjaíkovskí. Stjórnandi á tónleikunum er Bern- harður Wilkinson. Stóra stundin nálgast Æfingunni með Sinfóníuhljóm- sveitinni er í þann mund að ljúka þeg- ar blaðamaður nær tali af einleikara- efnunum. Þau eru létt á brún eftir þennan áfanga, en þetta er í fyrsta sinn sem þau leika með stórri hljóm- sveit. „Mér fannst þetta ótrúlega gaman,“ segir Annette. „Maður er búinn að æfa sig svo lengi einn og er svo allt í einu kominn þarna upp með hljómsveitinni.“ ,,Já og heyrir öll þessi hljóð sem maður er búinn að vera að ímynda sér einn að æfa sig,“ bætir Karen við. Einleikaraefnin fá aðra æfingu með hljómsveitinni áður en þau leika á tónleikunum. En hvernig búa þau sig undir stóru stundina? Víkingur segist venjulega fara í gönguferð í Öskjuhlíðinni til þess að búa sig undir tónleika og öll taka þau undir það að mikilvæg undirbúningsvinna eigi sér stað í huganum. „Þegar ég er að æfa ímynda ég mér að ég sé að spila á tón- leikunum. Þannig að þegar ég geng inn á sviðið verður það í raun ekki í fyrsta skipti sem ég geri það,“ segir Annette. Ari segir að nýyfirstaðin æfing hafi verið mikilvægt skref í sín- um undirbúningi. „Mér líður mjög vel eftir hana, og veit að ég get þetta,“ segir Ari og Karen tekur í sama streng. Það er því ekki annað að sjá en einleikaraefnin fjögur séu vel upp- lögð fyrir tónleikana með Sinfóníu- hljómsveitinni á morgun. Annette Arvidsson er fædd árið 1974. Hún byrjaði tónlistarnám tíu ára gömul og lærði þá á klarinett. Hún hóf nám við Tónlistarháskólann í Gautaborg árið 1994, lauk gítar- kennaraprófi 1998 og hafði fagott sem aukahljóðfæri. Tvo síðastliðna vetur hefur hún lært á fagott hjá Haf- steini Guðmundssyni í Tónlistarskól- anum í Reykjavík. Annette mun lík- lega halda til Svíþjóðar og ljúka námi þar, en hún hefur einnig áhuga á að dvelja á Íslandi í framtíðinni. Ari Þór Vilhjálmsson er fæddur árið 1981. Hann hóf að læra á fiðlu samkvæmt Suzuki-aðferðinni fimm ára gamall en þá bjó hann í Banda- ríkjunum. Hann hefur verið nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur í Tónlist- arskólanum í Reykjavík frá því árið 1996. Hann hyggur á framhaldsnám erlendis í haust. Karen Erla Karólínudóttir er fædd árið 1977. Hún hóf að læra á flautu tíu ára gömul í Tónlistarskólanum í Garðabæ. Hún hefur lært hjá Bern- harði Wilkinson og Hallfríði Ólafs- dóttur í Tónlistarskólanum í Reykja- vík frá árinu 1995. Hún útskrifaðist einnig úr blásarakennaradeild frá skólanum árið 2000. Víkingur Heiðar Ólafsson er fædd- ur árið 1984. Hann hóf píanónám fimm ára hjá Erlu Stefánsdóttur í Tónmenntaskólanum í Reykjavík. Árið 1995 hóf hann nám í Tónlistar- skólanum í Reykjavík og hefur verið nemandi hjá Peter Maté. Hann hygg- ur á frekara tónlistarnám eftir að hann lýkur menntaskóla, en í sumar mun hann sækja tónlistarnámskeið í Aspen í Bandaríkjunum en þangað koma frægir píanóleikarar og kenna. Fjölbreytt efnisskrá Hópurinn segir efnisskrá tón- leikanna vera nokkuð fjölbreytta. „Í mínum hluta leikur aðeins hluti af hljómsveitinni, það er tvö horn, tvö óbó og strengir. Síðan bætist við hljómsveitina þegar Ari spilar og þannig verður þetta stærra og stærra,“ segir Annette. „Og lýkur eiginlega með sprengingu,“ bætir Víkingur við og hin hlæja. Annette leikur konsert fyrir fagott og hljómsveit í B-dúr eftir Mozart. Hún segir hann vera mjög skemmti- legan, ekki síst vegna þess að hann nýti möguleika hljóðfærisins mjög vel. „Mozart var búinn að kynna sér hvað fagottið getur gert þegar hann samdi verkið. Þannig fær fagottið að gera skemmtilega hluti, það er létt og skemmtilegt en líka lýrískt og fal- legt,“ segir Annette. Fiðlukonsert nr. 3 í h-moll eftir Ca- mille Saint-Saëns er ekki einn af stóru fiðlukonsertunum, en sæmilega þekktur að sögn Ara. „Þetta er þriðji fiðlukonsert Saint-Saëns og sá eini af þeim sem enn er fluttur. Hann er mjög rómantískur,“ segir hann. „Þetta verður góð blanda,“ bætir Víkingur við. „Það verður einn Moz- art, tveir rómantíkerar og síðan verð- ur Karen með módernískt verk.“ „Já,“ segir Karen. „Konsertinn er eftir Carl Nielsen og er saminn árið 1926 fyrir flautu og hljómsveit. Hann er reyndar saminn fyrir danska flautuleikarann H.G. Jespersen og átti að vera eins konar karakterlýs- ing á honum. Karen segir að e.t.v. megi greina togstreitu í verkinu sem birtist í eins konar keppni milli bassa- básúnunnar og sólóflautunnar. „Bassabásúnan reynir að trufla flaut- una í melódíunni en hún vinnur á end- anum. Það má eiginlega segja að það sé dálítill geðklofi í verkinu,“ segir Karen. Víkingur mun leika síðasta verkið á tónleikunum, píanókonsert nr. 1 í b- moll eftir Pjotr Tsjaíkovskí. „Kons- ertinn er saminn á árunum 1874–5 og er fyrsta píanóverk Tsjaíkovskís. Hann var ekki píanisti sjálfur, og þekkti ekki hvað var mögulegt á pí- anóinu. Hann fór því með verkið til Rubinsteins, frægs píanista, sem hafnaði verkinu gjörsamlega. Pían- istinn Hans von Bülow tók verkinu hins vegar vel og gerði það fljótlega að einum vinsælasta píanókonsert sem saminn hefur verið. Hann er samt ekki spilaður svo mikið núna, hann hefur fengið orð á sig fyrir að vera alltof rómantískur og væminn. Ég er að sjálfsögðu mjög ósammála því,“ segir Víkingur og brosir. Ari bætir því við að hópurinn vilji koma á framfæri þakklæti til Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands fyrir að láta eina vinnuviku af hendi fyrir þessa tón- leika. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Karen Erla Karólínudóttir flautuleik- ari og Annette Arvidsson fagottleikari að lokinni æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Er svo allt í einu kominn þarna upp Fjórir ungir einleikaranemar leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum á morgun kl. 19.30. Þar með ljúka þeir fyrri hluta einleikaraprófs síns frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við tónlistarmennina eftir fyrstu æfingu þeirra með hljómsveitinni. SPENNA, útilistaverk Hafsteins Austmanns, við stjórnstöð Lands- virkjunar á Bústaðavegi, fékk á dögunum nýja lýsingu. Verkið bar sigur úr býtum í samkeppni sem Landsvirkjun efndi til árið 1989 og var sett upp árið eftir. „Verkið hefur aldrei haft almennilega lýs- ingu og því var tímabært að láta af þessu verða. Þetta kemur mjög vel út,“ segir Hafsteinn. Það var Guðjón Sigurðsson ljósahönnuður sem hannaði lýs- inguna. Morgunblaðið/Kristinn Upplýst Spenna TÍU STYRKIR voru veittir til hand- ritsgerðar fyrir árið 2001 við úthlut- un úr Kvikmyndasjóði Íslands hinn 27. janúar síðastliðinn og nemur hver styrkur 300.000 krónum. Styrki hlutu Arnaldur Indriðason fyrir Napóle- onsskjölin, Ásgrímur Sverrisson fyr- ir Hvítu eldinguna, Karl Ágúst Úlfs- son fyrir Barndóm, Jón Steinar Ragnarsson fyrir Skugga, Einar Kárason og Friðrik Þór Friðriksson fyrir Þórðar sögu kakala, Guðbergur Bergsson og Ólafur Páll Sigurðsson fyrir Sjúka sál, Jakob Magnússon fyrir Kapphlaupið til tunglsins, Jóa- kim Reynisson fyrir Birtu, Kristín Ómarsdóttir og Oddný Eir Ævars- dóttir fyrir Búktalaraást og Ragnar Bragason fyrir Snjódóníu. Alls bár- ust 66 umsóknir um handritastyrki. Alls voru veittar 3 milljónir í hand- ritastyrki en að auki verða 3 milljónir veittar í framhaldsstyrki og aðstoð við handritshöfundana á árinu. Að sögn Ingu Bjarkar Sólnes, skrifstofu- stjóra Kvikmyndsjóðs, eru fram- haldsstyrkir veittir í tvennu lagi síðar á árinu, fyrst 5 höfundum en síðan 1-2 höfundum og er sótt um þá sér- staklega. Í millitíðinni verður auk þess fenginn erlendur handritaráð- gjafi til landsins og höfundum boðin aðstoð hans. „Þetta fyrirkomulag hefur gefið góða raun frá því Kvik- myndasjóður hóf að veita handrita- styrki árið 1997. Höfundum er með því gefið tækifæri til að þróa verkefni sín áfram og hafa nokkrar myndir verið frumsýndar sem farið hafa í gegnum þetta ferli. Sem dæmi má nefna Fíaskó, 101 Reykjavík og Næsland sem fengið hefur vilyrði til framleiðslu. Þannig hafa heimtur verið góðar og er það vísbending um að við séum á réttri leið,“ segir Inga Björk. Tíu handrit styrkt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.