Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 35 UM áramótin síð- ustu tóku gildi lög um sjúklingatryggingu (nr. 111/2000). Þeim er er ætlað að tryggja betur en áður réttindi sjúklinga sem verða fyrir líkamlegu eða geðrænu tjóni í tengslum við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. Talsvert hefur verið fjallað um þessi nýju lög opinberlega en engu að síður er ástæða til að benda á nokkur atriði þeirra til frekari glöggvunar. Sjúklingatrygging allra heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna Sjúklingatryggingin nær nú til allrar heilbrigðisþjónustunnar en ekki einungis opinberra sjúkra- stofnana eins og var samkvæmt eldri sjúklingatryggingu. Er þetta veigamikið nýmæli í lögunum. Tryggingastofnun ríkisins annast sjúklingatryggingu fyrir heilsu- gæslustöðvar, sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir sem ríkið á í heild eða að hluta, svo og heilbrigð- isstarfsmenn sem annast sjúkra- flutninga á vegum ríkisins. Enn fremur annast Tryggingastofnun sjúklingatryggingu vegna sjúklinga sem fengið hafa samþykki stofn- unarinnar til vistunar á erlendu sjúkrahúsi vegna þess að ekki er unnt að veita nauðsynlega hjálp í íslensku sjúkrahúsi. Samkvæmt nýju lögunum er öll- um heilbrigðisstofnunum sem ekki eru í eigu ríkisins, svo og öllum sjálfstætt starfandi heilbrigðis- starfsmönnum er hafa starfsleyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, skylt að hafa sjúklingatrygg- ingu hjá vátryggingafélagi vegna þeirra tjóna sem eru bótaskyld samkvæmt þessum lögum. Þetta þýðir m.a. að héðan í frá er t.d. einkareknum læknastofum, lyfsöl- um, hjúkrunarheimilum og dvalar- heimilum með hjúkrunardeild, svo nokkuð sé nefnt, skylt að hafa slíka vátryggingu. Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn geta verið: læknar, tannlæknar, sjúkraþjálfar- ar, hjúkrunarfræðingar, hnykkjar, lyfjafræðingar, sálfræðingar, fóta- aðgerðafræðingar, sjúkranuddarar, tannfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, ljósmæður, aðstoðar- lyfjafræðingar, lyfjatæknar, meina- tæknar, sjóntækjafræðingar, sjúkraliðar, þroskaþjálfar, lækna- ritarar, matarfræðingar, matar- tæknar, matvælafræðingar, nátt- úrufræðingar í heilbrigðisþjónustu, næringarfræðingar, næringarráð- gjafar, röntgentæknar, sjúkraflutn- ingamenn og talmeinafræðingar. Bótaskyld atvik – bótafjárhæðir Í nýju lögunum eru bótaskyld at- vik tilgreind nákvæmlega. Þau at- vik eru: 1) tjón sem ætla má að komast hefði mátt hjá ef rannsókn eða meðferð við þær aðstæður sem um ræðir hefði verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkom- andi sviði, 2) tjón sem hlýst af bilun eða galla í tæki, áhöldum eða öðr- um búnaði, 3) tilvik þar sem mat sem síðar er gert leiðir í ljós að komast hefði mátt hjá tjóni með því að beita annarri meðferðaraðferð eða -tækni sem völ var á og hefði frá læknisfræðilegu sjónarmiði get- að gert sama gagn við meðferð sjúklings og 4) tjón sem hlýst af meðferð eða rannsókn, þ.m.t. aðgerð sem er ætlað að greina sjúk- dóm og tjónið er af sýkingu eða öðrum fylgikvilla sem er meiri en svo að sann- gjarnt sé að sjúklingur þoli það bótalaust. Þeir sem gangast und- ir læknisfræðilega til- raun sem ekki er liður í sjúkdómsgreiningu eiga að öllu jöfnu sama rétt og sjúkling- ar sem og þeir sem gefa vef, líffæri, blóð eða annan lík- amsvökva. Lágmark og hámark bótafjár- hæða eru tilgreind í lögunum. Bæt- ur greiðast ekki nema tjón nemi kr. 50.000 eða hærri fjárhæð en há- mark bótafjárhæðar fyrir hvert einstakt tjónsatvik er kr. 5.000.000. Þessar fjárhæðir eru bundnar vísi- tölu neysluverðs og breytast 1. janúar ár hvert. Ef sjúklingur er meðvaldur að tjóni af ásetningi eða stórfelldu gáleysi er heimilt að fella niður bætur eða lækka þær. Hvert eiga sjúklingar að snúa sér? Sjúklingur sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni í tengslum við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð á sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða annarri heilbrigðisstofnun í eigu ríkisins leggur inn umsókn um bæt- ur hjá Tryggingastofnun ríkisins. Sama gildir varðandi sjúkdóms- meðferð erlendis og sjúkraflutn- inga á vegum ríkisins. Sjúklingur sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni hjá sjálfstætt starfandi heilbrigð- isstarfsmanni eða stofnun sem ekki er í eigu ríkisins leggur inn umsókn um bætur hjá vátryggingafélagi viðkomandi starfsmanns eða stofn- unar. Heilbrigðisstofnanir og heil- brigðisstarfsmenn veita sjúklingum sínum upplýsingar um hvaða vá- tryggingafélags þeir geti snúið sér til. Sérnorrænt fyrirbrigði Með sérstökum lögum um sjúk- lingatryggingu hafa Íslendingar nú skipað sér við hlið hinna Norður- landanna í þeirri viðleitni að tryggja rétt sjúklinga sem best. Lög um sjúklingatryggingu eru sérnorrænt fyrirbrigði. Fyrstu lög- in af þessu tagi voru sett í Svíþjóð árið 1975, Finnar settu sérlög 1987 og Danir árið 1992. Norðmenn hafa að vísu ekki sérstök lög en þeir hafa reglur um sjúklingatryggingu sem byggjast á samkomulagi. Fyrsti vísir að sjúklingatrygg- ingu hérlendis er lög sem sett voru á Alþingi árið 1989. Samkvæmt þeim lögum var sjúklingatrygging- in hluti af slysatryggingum al- mannatrygginga. Þau lög voru bráðabirgðaúrræði þar sem ætlunin var að setja síðar sérstök lög um sjúklingatryggingu. Þau hafa nú verið sett en tíminn og reynslan munu að sjálfsögðu leiða í ljós hvernig til hefur tekist. Víðtækari réttur til bóta en áður Sæmundur Stefánsson Sjúkratryggingar Með sérstökum lögum um sjúklingatryggingu hafa Íslendingar nú skipað sér við hlið hinna Norðurlandanna, segir Sæmundur Stefánsson, í þeirri viðleitni að tryggja rétt sjúklinga sem best. Höfundur er deildarstjóri kynning- armála hjá Tryggingastofnun ríkisins. MIKIÐ getur nú ver- ið fróðlegt að sjá hversu auðvelt sumir stjórn- endur stórfyrirtækja eiga með að þurrka út þann hluta kvótasögu fyrirtækisins sem þeir starfa hjá. Sem hentar ekki í væli þeirra um að kvótasöfnun þeirra sé ekki nógu hröð og mikil, eins og Guðbrandur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri ÚA gerir í Fiskifréttum 19. janú- ar sl. Auðvitað heldur framkvæmdastjóri skipulega til haga öllu því sem hann telur til hagsbóta fyrir sig í árvekni sinni við að safna saman sem mestum kvóta inn á eignarreikn- ing ÚA. Það er jafnljóst að í þeim tilgangi er best að minnast alls ekki á hvaðan kvótinn kom til ÚA né frá hvaða fólki og byggðarlögum atvinnurétturinn var tekinn þegar ÚA keypti og yfirtók veiðiréttinn, fiskinn óveiddan í sjón- um, kvótann. Í lögum ber þessi réttur nafnið aflahlutdeild og gengur á milli fyrir- tækja í frjálsri sölu kvótabrasksins sem engu eirir og drepið hefur niður búsetu, atvinnu og eignarétt fólks í mörgum sjávarbyggðum víða um land. Lokaða tölvuminnið í ÚA Nú væri fróðlegt ef Guðbrandur Sigurðsson vildi opna lokaða minnið í tölvunni og veita upplýsingar um það sem passaði ekki í umrædda grein um yfirgang smábátasjómanna á skipu- lagða kvótasöfnunargleði ÚA sem orðið hefur svo illa fyrir barðinu á ein- staklingsframtaki trillukarla, að það jafngildi tapaðri vinnu 16 sjómanna sem gætu unnið hjá ÚA og fengið borgað það handstýrða þorskverð sem ÚA greiðir sínu fólki. Að sjálfsögðu hefur í huga Guð- brands líka verið þurrkað út úr tölvu- minninu, að fisktonnin sem hann saknar svo mjög í kvótaskúffum ÚA hafa verið undirstaða atvinnu og mannlífs annars staðar á landinu. Er það virkilega svo að kvótakaup ÚA og yfirtaka þessa fyrirtækis á skipum og kvóta hafi ekki áhrif á fólk annars staðar á landinu, atvinnu þess og lífs- öryggi? Verða störfin bara til hjá ÚA, án annarra áhrifa? Var kvótinn send- ur af himnum til ÚA? Fróðlegt væri að fá yfirlit um skipa- og kvótakaup ÚA á þeim undanförnu 17 árum sem Guðbrandur gerir að umtalsefni í grein sinni. Hvaðan komu þau fiski- skip og kvótar þeirra? Notaði fyrir- tækið sér fjölmargar smugur kvóta- braskskerfisins á undanförnum áratugum með því m.a. að notfæra sér alkvótareglu norðursvæðis meðan þær reglur voru við lýði, eða val um sóknarmark meðan það var í gildi? Það væri skemmtilegt ef upplýst yrði fyrir alþjóð hvernig ÚA hefur nýtt sér göt og glufur í fiskveiðistjórnunar- kerfinu á undanförnum árum eins og orðrétt segir í grein Guðbrands í Fiskifréttum en þar átti hann við að smábátasjómenn hefðu gert slíkt á kostnað ÚA. Eftir miðjan níunda áratuginn voru togskip tvö, um 5-600 brúttólestir, er hétu Bjarni Herjólfsson og Dag- stjarnan, gerð út frá suðursvæði en um þær mundir var kvótasetningunni skipt í norður og suðursvæði. Norð- ursvæðaskipin voru að meðaltali með mun meiri þorskveiðiúthlutun. Aftur á móti voru suðursvæðaskipin með mun meira af karfa- og ufsakvóta og öðrum ruslfiski sem þá var verðlítill. Skipin tvö sem hér um ræðir voru með verðlítinn og lélegan kvóta. Á þessum tíma kaupir ÚA skipin, hlutu þau nöfnin Hrímbakur og Sólbakur. Þá er það Halldór Ásgrímsson sjáv- arútvegsráðherra sem grípur inn í með pólitískum og ósiðlegum hætti, hann breytir þessum litla ruslkvóta, sem skipin tvö höfðu, yfir í meðaltals- þorskveiðiheimildir á norðursvæði. Verðgildi þessara umskipta voru ríflega ígildi þessara 2.600 kvótatonna sem Guðbrandur telur ÚA vanta frá smábáta- mönnum. Hlutur smábátamanna Við síðustu stjórn- valdsaðgerðir var um 219 smábátum leyft að vera áfram í dagakerfi. Þessu sér Guðbrandur ofsjónum yfir. Árið 1996-7 höfðu bátar þessir 84 sóknardaga á ári. 9́7 og 9́8 voru þeir skornir niður í 40 sóknardaga. Árið 1998-9 voru þeir færðir niður í 23 sóknardaga leyfilega á ári og svo gildir enn í dag. Þeim er sannarlega mjótt á milli augnanna sem öfunda smábátamenn við þessi starfsskilyrði. Greinarhöfundur, Guð- brandur, bendir á að hlutfall þorskafl- ans sem veiddur var af smábátum sl. ár hafi verið 16% en fyrir 17 árum hafi það verið 2%. Í þessu sambandi má koma fram að allt fram til ársins 1975 var afli vertíðabátanna svokölluðu um 75% af lönduðum þorski landsmanna. Vertíðabátar voru almennt á bilinu 50 til 150 brúttólestir. Eftir að kvóta- kerfið tók völdin var vertíðabátunum útrýmt að mestu, þeir úreltir, þeim sökkt og þeir brenndir. Þeir sem það gerðu voru að mestu stórútgerðar- menn skuttogara og annarra stærri skipa. Þar fékk ÚA ríflega sinn skerf. Sjómennirnir á þessum vertíðabát- um stóðu margir uppi atvinnulausir og reyndu að klóra í bakkann með því að færa sig niður á trillur og smábáta. Með þeim hætti tókst þeim að ná í lít- inn hluta af aflaafköstum vertíðabát- anna sálugu. Mesti hlutinn fór til stóru togskipanna. Nú vilja stórút- gerðirnar á hlutabréfmörkuðunum ná öllum smábátunum yfir í aflamarks- kerfið (braskkerfið) og kaupa þá síðan upp og höggva í spað, eins og gert var við vertíðabátana. Þá yrði strand- veiðiflotinn, sem bjargar mörgum byggðarlögum, í stórri útrýmingar- hættu. Við eigum því ekki von á góðu af hálfu stjórnvalda frekar en fyrri daginn í stjórnskipan fiskveiða og meirihluta Alþingismanna getum við í engu treyst, fullum af þrælslund til ríkisstjórnarinnar. Ég hvet smábátamenn til þess að standa saman og fólkið að baki þeim í sjávarplássunum sem nú eiga í vök að verjast. Það getur orðið stutt í harðari átök en áður hafa þekkst. P.s. Nú kvað stefna í ca. 600 milljón króna tap hjá ÚA á sl. ári. Hann Guð- brandur er aldeilis heppinn að hafa haft meiri fisk til ráðstöfunar en nú er. Annars hefði tapið orðið mun meira. Blessaður maðurinn tapar á hverju fiskkílói sem hann meðhöndl- ar. Guðbrandur í glerhúsinu Halldór Hermannsson Kvóti Ég hvet smábátamenn til þess að standa saman, segir Halldór Hermannsson, og fólkið að baki þeim í sjávar- plássunum sem nú eiga í vök að verjast. Höfundur er skipstjóri á Ísafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.