Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Lag- arfoss kemur og fer í dag. Northern Lindnes Freyja RE, Dimas og Freri RE koma í dag. Dettifoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Saltor kom í gær. Lag- arfoss fer í dag. Fréttir Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda. Svarað er í síma Krabbameins- ráðgjafarinnar, 800- 4040, kl. 15–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–16.30 klippimyndir, útsaumur o.fl., kl. 13 smíðastofan opin og spilað í sal, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl.9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur og vefnaður. Laust í glerskurði, upp- lýsingar í síma 568- 5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós! Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjudögum og fimmtu- dögum, kl. 13–16,30, spil og föndur. Leikfimi er í íþróttasal á Hlaðhömr- um á þriðjudögum kl. 16. Sundtímar á Reykja- lundi kl. 16 á mið- vikudögum. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos., eru á Hlaðhömrum á fimmtudögum kl. 17– 19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun, hárgreiðslu- stofan og handa- vinnustofan opnar, kl. 13 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðju- dögum kl. 13.30. Spilað í Holtsbúð 1. feb. kl. 13.30 bókmenntahópur og les- hringur í bókasafninu 5. feb. kl. 10.30. Spila- kvöld, félagsvist á Álfta- nesi 8. feb. kl. 19.30. Akstur skv. áætlun. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 10. Söngfélag FEB, kór- æfing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB á morgun 1. febr- úar kl. 11–12. Panta þarf tíma. Leikhópurinn Snúður og Snælda munu frumsýna 4. febrúar „Gamlar perl- ur“, þættir valdir úr fimm gömlum þekktum verkum. Sýningar eru fyrirhugaðar á mið- vikudögum kl. 14 og sunnudögum kl. 17. Laugardagur 10. febr- úar kl. 13.30. Fyrsti fræðslufundur „Heilsu og hamingju“ verður laugardaginn 10. febr- úar kl. 13.30 í Ásgarði, Glæsibæ. Ólafur Ólafs- son, formaður FEB og fyrrverandi landlæknir, gerir grein fyrir rann- sóknum sínum á heilsu- fari aldraðra. Þorsteinn Blöndal yfirlæknir greinir frá helstu sjúk- dómum í lungum, sem aldraðrir verða fyrir. Allir velkomnir. Upplýs- ingar á skrifstofu FEB í s. 588-2111 kl. 10 til 16. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Línudans kl. 11. Getum bætt við byrjendum. Myndmennt kl. 13. Get- um bætt við í fáein pláss. Píla kl. 13.30. Á morgun er púttæfing í Bæjarútgerðinni kl. 10– 12. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. almenn handavinna, umsjón Eliane Hommersand, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá hádegi spila- salur opinn. Kl. 13.30 tónhornið. Mynd- listasýning Ólafs Jakobs Helgasonar stendur yf- ir. Fimmtudaginn 22. febrúar er leikhúsferð í Þjóðleikhúsið að sjá leikritið „Með fulla vasa af grjóti“, skráning haf- in. Aðstoð frá Skattstofu við skattframtöl verður veitt miðvikudaginn 7. mars, skráning hafin. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. hringdansar, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.10 og 10.10 leikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 ker- amikmálun, kl. 13.30 enska. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 9– 12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9 opin vinnustofa, postulíns- málun og fótaaðgerð, kl. 13 böðun, kl. 13.30 sam- verustund. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla, keramik, tau- og silkimálun og jóga, kl. 11 sund í Grensáslaug, kl. 14 danskennsla, Sigvaldi, kl. 15 frjáls dans, Sig- valdi, kl. 15 teiknun og málun. Þorrablót verður haldið föstudaginn 2. febrúar kl. 19, húsið opnað kl. 18.30. Þorra- hlaðborð, kaffi og kon- fekt, skemmtiatriði. Ræðumaður kvöldsins Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, tæ- lenskur dans, Borg- ardætur syngja við und- irleik Eyþórs Gunnarssonar. Ólafur B. Ólafsson leikur á harmónikku og píanó og leiðir söng. Sigvaldi stjórnar dansi. Skráning í síma 588-9335. Norðurbrún 1. Fótaað- gerðarstofan opin frá kl. 9–14, kl. 9–12.30 út- skurður, kl. 9–16.45 handavinnustofurnar opnar, kl. 10 sögustund, kl. 13–13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist, kaffi og verðlaun. Þorrablót verður haldið föstudag- inn 2. febrúar kl. 19. Vesturgata 7. Kl. 8.30 sund, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 aðstoð við böðun, mynd- listarkennsla og postul- ínsmálun, kl. 13–16 myndlistarkennsla, glerskurður og postul- ínsmálun, kl. 13–14 spurt og spjallað. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 bankaþjónusta, kl. 10 morgunstund og fótaað- gerðir, bókband og bútasaumur, kl. 13 handmennt og kóræf- ing, kl. 13.30 bókband, kl. 14.10 verslunarferð. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun, fimmtudag, kl. 10, á Korpúlfsstöðum. Pútt- að, kaffi og spjallað. All- ir velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Ingi- björg Sigurþórsdóttir í síma 545-4500. Bústaðarkirkja, starf aldraðra, miðvikudaga kl. 13–16.30 spilað, föndrað og bænastund. Boðið upp á kaffi. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Í dag kl. 19.30 félagsvist. Félag kennara á eft- irlaunum. Fimmtudag- ur 1. febrúar kl. 14 bók- menntahópur, kl. 16 EKKÓ-kórinn, söng- æfing. Laugardagur 3. febrúar kl. 14 skemmti- fundur, dagskrá: félags- vist, kaffiveitingar, frá- sögn, söngur. Rangæingar – Skaft- fellingar. Félagsvist í Skaftfellingabúð kl. 20 í kvöld, kaffiveitingar og góð verðlaun. Hana-nú, Kópavogi. Af óviðráðanlegum ástæðum verður næsti fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú ekki í kvöld heldur nk. mið- vikudag 7. febrúar kl. 20 á LesstofuBókasafns Kópavogs. Dagskrá auglýst síðar. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverf- isgötu 105, kl. 14–17: Handverk af ýmsu tagi í styrktar- og fjáröfl- unarskyni. Allir vel- komnir. Í dag er miðvikudagur 31. janúar, 31. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Óttast eigi land! Fagna og gleðst, því að Drottinn hefir unnið stórvirki. (Jóel 2, 22.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... HEITIÐ Staðardagskrá 21, semsnýst um margs konar verk- efni á sviði sjálfbærrar þróunar, hefur alltaf vafist nokkuð fyrir Vík- verja. Er það notað almennt um að- gerðir sem sveitarfélög og önnur yf- irvöld hyggjast ráðast í á þessu sviði. Orðið staðardagskrá segir ekki beint mikið. Er ekki hugsan- legt að nefna þetta fyrirbæri svæð- isstefnu eða svæðisverkefni? Sam- anber svæðisútvarp sem er að mati Víkverja vel heppnuð samsetning á því sem fer fram eða er bundið við tiltekið svæði. Svæðisstefna er í það minnsta ívið meira lýsandi heiti en staðardagskrá. Þetta geta kannski orðhagari menn en Víkverji er í dag ígrundað. x x x GÓÐ þjónusta er lykilatriði íverslun og viðskiptum og raun- ar í samskiptum manna á öllum sviðum. Þetta vita flestir sem gegna þjónustustörfum en stundum verð- ur á veginum fólk sem ekki gerir sér gjörla grein fyrir þessu mikilvæga atriði í starfi sínu. Víkverji varð nýlega fyrir barðinu á lítils háttar þjónustumistökum hjá Búnaðarbankanum (Það er sem sagt nöldurdagur hjá Víkverja í dag). Hugðist hann bregða sér í útibú í Kringlunni og var ekki viss um að það væri opið jafnlengi og verslanirnar þar og klukkan rétt að verða fjögur. Hafði því vaðið fyrir neðan sig, að því er hann hélt, og hringdi í aðalsíma bankans og spurði hvort umrætt útibú væri opið lengur en til kl. 16. Var því svarað játandi, opið væri til kl. 18. Enn var spurt hvort það væri daglega, nei, aðeins á fimmtudögum, en þá var einmitt fimmtudagur. Góður banki, hugsar Víkverji, sem nennir að hafa opið lengur en til fjögur einn dag í viku. Arkar hann svo yfir götuna og hyggur á innlegg (!) en yfirleitt er erindið í banka frekar að greiða reikninga. Um kl. 16.07 er Víkverji við bankainngang- inn og þar eru þá allar gáttir harð- lokaðar með gleri og ógjörningur að ráðast til inngöngu. Á glerið var af- greiðslutíminn letraður og þar kom fram að bankinn væri opinn kl. 17– 18 á fimmtudögum. Þetta vissi ekki starfsfólk á aðalsímaborði bankans og það finnst Víkverja skortur á vitneskju sem þar með þýðir laka þjónustu. Víst var það rétt að bank- inn var opinn til kl. 18 en í samtalinu við skiptiborð bankans átti vitan- lega að fylgja með að hann væri lok- aður milli kl. 16 og 17. Víkverji gerir sér grein fyrir að hér er ekki við símaverðina að sakast. Þeir geta ekki bergmálað annað en það sem þeir eru upplýstir um. Þess vegna er mikilvægt að slíkt andlit fyrirtækja sem starfsmenn skiptiborðanna eru sé vel inni í öllu sem snýr að þjón- ustu og fái að vita allar nýjar fréttir og breytingar sem upp kunna að koma. x x x AÐ endingu er rétt að slá á já-kvæðari strengi. Jeppadeild Útivistar hefur safnað jeppaeigend- um í sérstakar ferðir sem er góður kostur að mati Víkverja. Bæði er farið á jökla á breyttum og dugmikl- um bílum og einnig boðið uppá ferð- ir fyrir hina sem leggja aðeins í „venjulega“ fjallvegi. Þannig eru t.d. í bígerð næsta sumar ferðir um Vestfirði og Gæsavatnaleið. Þetta er góð aðferð til að kynna mönnum há- lendið og til að venja jeppaeigendur til vandaðra fjallaferða. Auðvitað kunna þeir það langflestir en þeir sem lítið hafa farið á fjöll á þessum farartækjum sínum ættu að skella sér í leiðangra sem þessa, ferðast með vönum mönnum sem þekkja leiðirnar út og inn og landið líka. LANDSSÍMINN blekkir viðskiptamenn sína með villandi „upplýsingum“ á þjónusturás farsíma. Í símaskrá sem send er not- endum er skráð farsíma- númer séra Geirs Waage í Reykholti. Ég ætlaði að hafa tal af honum vegna kirkjuvígslu í Hvalnessókn, brauði séra Hallgríms Pét- urssonar. Vel prentað núm- er Reykholtsprestsins sam- kvæmt upplýsingum símans er birt á bls. 92 í símaskránni 2000. Svara- köld tölvurödd ansar „Þetta númer er ekki til. Vinsam- legast athugið hvort rétt hefir verið valið“. Ég hugsa með mér „Bannsettur klaufinn. Sérð ekki lengur á símaskrá. Flettu upp aft- ur“. Leita í heimildarbók Landssímans. Landsbyggð. Sama númer kemur upp. Hringi enn. Sama svara- kalda tölvurödd mælir dómsorðin. „Þetta númer er ekki til. Vinsamlegast at- hugið hvort rétt hefir verið valið“. Ég hringi í 118. Ung og aðsópsmikil rödd svarar. Mér fannst ég kannast við KEA-blæinn, undan kirkju- tröppunum á Akureyri. Eða var það kannske úrsvöl Ísa- fjarðardama með hafís- hreim, tæpast engjarós á Egilsstöðum. 118 er um- hverfisvæn byggðalína. Ég tjáði símastúlkunni vand- ræði mín. Bað hana að hringja í farsímanúmer Reykholtsklerksins og hlusta á svör Landssímans. Símadaman brást hin versta við. Kvaðst hafa ann- að að starfa en að sinna er- indum gamalla ruglukolla. Sleit síðan sambandi að loknum fúkyrðaflaumi. Mér varð hugsað til „Ebbu góðu“, Elínborgar Gísladóttur frá Mosfelli, mágkonu Davíðs Ólafsson- ar seðlabankastjóra. Hún var gimsteinn í starfsliði Landssímans. Skildi aldrei við viðskiptamenn fyrr en vandi þeirra var leystur. Landssíminn hefir nú tekið upp aðra starfshætti en á dögum Ebbu góðu. Nýr stjórnandi Lands- símans, Þórarinn fyrrum vinnuveitendasambands- forstjóri, horfir stórum spurnaraugum, rétt eins og hann heyri enn örlagadyn Þjóðviljapressunnar, mál- gagns þjóðfrelsis, verka- lýðshreyfingar og sósíal- isma í fjarska, en hefir nú stofnað til vináttusambands við dillibossakór í Suður- ríkjum Bandaríkjanna. Þar sveiflar hann síðpilsum í kántrýdansi með mislitum Suðurríkja símabellum „á hverfanda hveli“. Lætur sem hann sjái ekki Sigríði systur Hannibals og Finn- boga Rúts, með skotthúf- una og skapfestuna, þótt hún búi í símablokkinni á Birkimel, hvað þá Ásthildi Steinsen og stelpurnar á stöðinni. Vandséð hvaða er- indi engilsaxneskur sálma- söngur á í sjónvarpsauglýs- ingar Landssímans á kostnað þjónustunnar við klerkinn í Reykholti. Við, aldraðir elliglópar sem göngum í gildru Landssímans og trúum símaskránni, verðum svo að greiða herkostnaðinn af því að hringja í síma 118. Landssímanum ber að grisja í blómareit sínum. Hann á að reita illgresið og ráða til sín starfsstúlkur af gerð Ebbu góðu. Farsímanúmer séra Geirs Waage er enn hið sama í skránni. Ef þú hring- ir færðu enn hið sama svar. Reykholtsbóndinn Snorri Sturluson hafði eng- an síma. En hann kunni að koma fyrir sig orði. Um framkomu stjórnenda sím- ans sem auglýsa „rétt skal vera rétt“ hefði hann sagt „þeim var ekki gefin hin andlega spektin“. Snorri gleymdi ekki ákveðna greininum í þessu samhengi. Pétur Pétursson þulur. Tapað/fundið Svartur silkitrefill tapaðist SVARTUR silkitrefill með kögri og flauelsmunstri tapaðist í sólarkaffi á veg- um Ísfirðingafélagsins á Broadway, föstudaginn 26. janúar sl. Vinsamlegast hafið samband í síma 564- 2810 eða 866-5663. Dýrahald Lilli er týndur LILLI er mjög stór, gulur og hvítur köttur, óvenju- lega gæfur. Hann býr að Hrísateig 8 og er merktur, bæði með hálsól og eyrna- merktur. Hann hvarf að heiman miðvikudaginn 24. janúar sl. Mig langar að biðja fólk að athuga bíl- skúra og kjallara ef hann skyldi hafa lokast inni. Vin- samlegast hringið í síma 553-9766. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Landssíminn dregur dár að ellimóðum og sjóndöprum 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 kvenvargur, 4 viðureign- ar, 7 bál, 8 vitlaus, 9 mein- semi, 11 framkvæmt, 13 trylltar, 14 árnar, 15 sorg, 17 duft, 20 lemja, 21 að baki, 23 mjó málmstöng, 24 dreng, 25 fargar. LÓÐRÉTT: 1 karlfugl, 2 sálir, 3 meiða, 4 líffæri, 5 reiðar, 6 afkom- endur, 10 stór, 12 frístund, 13 heiður, 15 farmur, 16 skrifar, 18 verk, 19 korns, 20 slöngu, 21 ávíta. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kjánaskap, 8 eitur, 9 kyssa, 10 auk, 11 aumar, 13 innan, 15 snarl, 18 sakir, 21 ána, 22 gnauð, 23 kinda, 24 klæðnaður. Lóðrétt: 2 játum, 3 nárar, 4 sekki, 5 ausan, 6 nema, 7 fann, 12 aur, 14 nóa, 15 saga, 16 aðall, 17 láðið, 18 sakka, 19 kunnu, 20 róar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.