Morgunblaðið - 07.12.2001, Qupperneq 1
281. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 7. DESEMBER 2001
ur,“ sagði Karzai. Hann
kvaðst ekki vita hvar Omar
væri niðurkominn. „Ef hann
gengur ekki að kröfu [okk-
ar] þýðir það að hann er aðili
að hryðjuverkum. Ef hann
er aðili að hryðjuverkum
verður hann dreginn fyrir
dómstóla.“ Hermenn talib-
ana fengju að snúa til síns
heima án vandkvæða, en
afganskir hermenn hliðholl-
ir al-Qaeda-hryðjuverka-
samtökunum væru glæpamenn og
yrðu handteknir.
Rumsfeld sagði á fréttamanna-
fundi í gær að Bandaríkjamenn hefðu
gert afgönskum andstæðingum talib-
ana ljósa grein fyrir „afdráttarlausri
afstöðu“ sinni til afdrifa Omars. Sam-
starf og aðstoð Bandaríkjamanna við
andstæðinga talibana „myndi aug-
ljóslega snarversna“ ef eitthvað það
yrði gert sem ekki væri í samræmi við
þá afstöðu Bandaríkjamanna að ekki
yrði þolað að Omar yrði veitt sakar-
uppgjöf.
Rumsfeld hefur áður sagt að það sé
markmið Bandaríkjamanna að
Ekki var þó fyllilega ljóst,
af orðum Karzais í gær,
hver hann teldi verða örlög
Omars. Hann tjáði AP að
enn ætti eftir að „semja um
smáatriði“. Uns þessi smá-
atriði liggja fyrir og hafa
verið samþykkt af öllum að-
ilum, þ. á m. Bandaríkja-
mönnum, gæti samkomu-
lagið um uppgjöf Kandahar
farið út um þúfur.
Talsmaður talibana, og
fyrrverandi sendiherra þeirra í Pak-
istan, Abdul Salam Zaeef, sagði að yf-
irráðin yfir borginni yrðu sett í hend-
ur múllans Naqibullah, höfðingja í
þjóðflokki Pastúna. Eina skilyrðið
væri, að Omar yrði ekki dreginn fyrir
dómstóla. „Þeir hafa lofað okkur því,
að Omar geti búið á heimili sínu og
ekki verði barist við hann. Þeir munu
vernda og virða líf hvers einasta talib-
ana,“ sagði Zaeef.
Karzai sagði aftur á móti að hann
hefði boðið almenna sakaruppgjöf öll-
um „óbreyttum talibönum“, en Omar
yrði að fordæma hryðjuverk. „Geri
hann það ekki verður hann ekki óhult-
tryggja að forsprakkar talibana og al-
Qaeda geti ekki haldið áfram hryðju-
verkastarfsemi, og Bandaríkjamenn
vilji að þessir menn verði dregnir fyr-
ir dómstóla. Rumsfeld ítrekaði í gær
að Bandaríkjamenn hefðu veitt afg-
önskum andstæðingum talibana í suð-
urhluta landsins umfangsmikla að-
stoð, þ. á m. með loftárásum á stöðvar
talibana, vopnaframlögum, ráðgjöf og
sérsveitaliðum er hafi tekið þátt í
landhernaðinum.
Sagði Rumsfeld að Bandaríkja-
menn myndu taka aðstoðina til end-
urskoðunar, ef þeir teldu hana ekki
skila þeim árangri sem þeir kysu.
Er hann var spurður hvort hann
myndi krefjast þess að réttað yrði yfir
Omar í Bandaríkjunum, svaraði hann
því til, að Bandaríkjamenn hefðu ekki
nægan mannafla í Afganistan til að
stjórna landinu. Þess vegna yrðu þeir
líklega að reiða sig á að afganskir and-
stæðingar talibana sæju um leiðtoga
talibana og al-Qaeda.
Stjórnendur herfararinnar gegn
hryðjuverkum fögnuðu uppgjöf talib-
ana í Kandahar í gær. Nú væri hægt
að einbeita sér að leitinni að Osama
bin Laden og mönnum hans. Háfleyg-
ar, bandarískar B-52 þotur héldu í
gær áfram að varpa sprengjum á
skotmörk í Hvítufjöllum í Austur-
Afganistan, en afganskir ráðamenn
fullyrða að bin Laden og menn hans
haldi þar til í fjallavirkinu Tora Bora.
Talibanar í Kandahar samþykkja að gefast upp og leggja niður vopn
Bandaríkin hafna því að
Omar fái sakaruppgjöf
Washington, Kabúl. AP, AFP.
Múllann Moh-
ammed Omar,
andlegur leið-
togi talibana.
HERMENN hliðhollir talib-
anahreyfingunni, þ.á m. útlend-
ingar, híma á bak við lás og slá í yf-
irfullu fangelsi í Sibirgan, skammt
frá borginni Mazar-e-Sharif í Norð-
ur-Afganistan. Tæplega 3.400 her-
menn talibana voru settir í fangelsið
þar eftir að herir Norðurbandalags-
ins tóku þá til fanga.
Reuters
Yfirfull
fangelsi
PALESTÍNUMENN og Ísraelar
munu halda fund í dag um öryggismál
til þess að reyna að draga úr spennu
fyrir botni Miðjarðarhafs, að því er
Yasser Arafat, forseti heimastjórnar
Palestínumanna, greindi frá í gær-
kvöldi. Anthony Zinni, sáttafulltrúi
Bandaríkjamanna, hefði haft milli-
göngu um að koma fundinum á, eftir
að hafa rætt við Shimon Peres, utan-
ríkisráðherra Ísraels.
Arafat ræddi í gærkvöldi við Ahm-
ed Maher, utanríkisráðherra Egypta,
sem hafði átt fund með Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, áður en
hann hitti Arafat. Sharon tjáði Ahm-
ed að Ísraelar hefðu engin áform um
að „skaða“ Arafat, og að Ísraelar
myndu ekki varpa sprengjum á fang-
elsi þar sem herskáir Palestínumenn
væru í haldi, eins og Arafat óttaðist.
Bæði Ísraelar og Bandaríkjamenn
segja að Arafat hafi ekki gengið nógu
hart fram gegn herskáum múslimum.
Palestínu-
menn og
Ísraelar
funda
Síðasta tækifæri/30
Ramallah, Jerúsalem. AFP.
HVAÐ er til ráða þegar stóri
kötturinn er búinn að missa all-
an áhuga á stóru læðunni? Kín-
verjar hafa velt þessu mikið
fyrir sér og nú hafa þeir dottið
niður á svarið: Gefum honum
bláa pillu, það er að segja
Viagra.
Í dýragörðum í Kína eru 48
kínversk tígrisdýr en á þessu
ári hafa þau aðeins getið af sér
einn kettling. Veldur það Kín-
verjum miklum áhyggjum enda
er villti stofninn í útrýmingar-
hættu og ekki er að sjá, að sex
ára friðun hafi neinu breytt um
það.
Rannsóknir á tígrunum sýna,
að fangavistin fer illa með þá.
Hún drepur smám saman niður
alla kynferðislega löngun og
1997 kom í ljós, að sæðisfram-
leiðsla í karldýrunum var al-
mennt mjög lítil og í sumum
engin. Úr þessu á nú að reyna
að bæta og hefur verið ákveðið,
að tvö getulaus karldýr í dýra-
garðinum í Chongqing verði
fyrst til að fá bláu pilluna.
Viagra
fyrir stóra
ketti
Peking. AP.
BANDARÍKJAMENN munu ekki þola að múllann Mohammed Omar fái
að fara frjáls ferða sinna í Afganistan og búa óáreittur í Kandahar, gegn
því að talibanahreyfingin gefist upp í borginni og afvopnist, sagði Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í gær. Talibanar gáfust
upp í Kandahar í gær, og fyrirhugað er að í dag byrji þeir að láta af
hendi vopn sín. Hamid Karzai, leiðtogi nýmyndaðrar bráðabirgðastjórnar
í Afganistan, sagði að talibanar hefðu fallist á að leggja niður vopn, gegn
því að þeim yrði veitt sakaruppgjöf.
Hyggst sniðganga/28