Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í TILLÖGUM meirihluta fjárlaganefndar
um lækkun útgjalda er meðal annars lagt til
að hækka innritunar- og efnisgjöld í fram-
haldsskólum, skráningargjöld í háskólum og
bifreiðagjöld auk þess sem útgjöld verði
lækkuð um 134 milljónir með breytingu á
sóknar- og kirkjugarðsgjöldum. Morgunblað-
ið leitaði viðbragða hjá þeim sem þessar
hækkanir snerta.
Enginn rökstuðningur á bak
við hækkun skráningargjalda
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður
Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir að mið-
að við tillögur fjárlaganefndarinnar hækki
skráningargjald við Háskóla Íslands, Há-
skólann á Akureyri og Kennaraháskólann
um 30% á einu bretti eða úr 25 þúsund krón-
um í 32.500 krónur.
Þorvarður segir að það muni um þessa
hækkun fyrir stúdenta. „Það hafa verið að
safnast saman ansi miklar hækkanir á stúd-
enta úr öllum áttum og það munar orðið um
hverja krónu. Og það er hart til þess að
hugsa að þessi hækkun skilar ríkissjóði mjög
litlu. Þessi hækkun á námsfólk nú er öfugt
við það sem önnur lönd hafa gert þegar
kreppir að, þau hafa mörg hver valið að veita
aukið fé til menntamála og stúdenta vegna
þess að menn telja það bestu leiðina til þess
að komast upp úr öldudalnum aftur.“
Langt umfram vísitöluhækkun
Þorvarður segir að 25 þúsund króna gjald-
ið hafi verið ákveðið þegar ný lög um HÍ
voru sett árið 1999 og því sé ljóst að hækk-
unin nú sé langt umfram verðlagshækkanir.
„Í tillögum sínum vísar nefndin til vísitölu-
hækkana allt aftur til ársins 1991 en það er
skrýtið enda verður við það að miða hvenær
gjaldið var síðast ákveðið. Þeir virðast halda
að þessi tala sé bara einhver geðþótta-
ákvörðun. Upphæðin nú er sú þriðja sem við
höfum fengið að heyra. Fyrst var talað um
35 þúsund en Framsóknarflokkurinn sagði
nei við því og nefndi töluna 30 þúsund og nú
kemur þessi tala, 32.500.“
Þorvarður segir að skráningargjöldin eigi
einfaldlega að nægja fyrir þeim kostnaði sem
hlýst af innritun nemenda. „Það er ansi
furðulegt að Alþingi ákveði þetta af ein-
hverju handahófi. Það er undarlegt að fá
þessa tölu nú og að okkar mati er hún allt of
há. Við vorum með undirskriftasöfnun meðal
stúdenta í október þar sem við mótmæltum
þeirri hækkun sem þá var boðuð eða í 35
þúsund og afhentum síðan menntamálaráð-
herra undirskriftirnar. Við hefðum viljað sjá
mun minni hækkun og raunar helst enga.
Það er algengur misskilningur þetta sé al-
mennt þjónustugjald sem Háskólinn geti
rukkað inn fyrir hvaða þjónustu sem er.
Þetta gjald á að standa undir kostnaði við
innritun og ekkert annað. Það á ekki að vera
háð geðþóttaákvörðun.“
Eignaskattur á tengingar
við verðmæti
„Við erum óhressir með hækkun á bif-
reiðagjöldum. Bifreiðagjald reiknast á kíló-
þunga hverrar bifreiðar og þessi skattlagn-
ing er í raun eignaskattur sem leggst á
miðað við þyngd bifreiða og hefur ekki neina
tengingu við verðmæti og heldur ekki teng-
ingu við notkun eins og t.d. bensíngjald eða
þungaskattur,“ segir Runólfur Ólafsson, for-
maður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
„Bifreiðagjaldið var sett með bráðabirgða-
lögum árið 1988 og átti bara að gilda í eitt ár
en menn vita hvernig það fór. Það var þá
fjórar krónur á kíló á ári en er nú komið í
meira en þrettán krónur og skilar ríkissjóði
ríflega tveimur milljörðum króna á ári.“
Runólfur segir að FÍB hafi frá upphafi
lagst gegn þessum skatti, m.a. vegna þess að
menn hafi talið að þarna væri um tvísköttun
að ræða þar sem þegar sé lagður eigna-
skattur á bíla í formi almennra eignaskatta.
„Þá hlýtur maður að spyrja að því hvernig
það sé réttlætanlegt að láta fólk greiða skatt
af eignum sínum miðað við kílóafjölda, það
er svipað og að skattleggja þegnana eftir
þyngd þeirra. Þetta var bráðabirgðaskattur
sem hefur fest sig kirfilega í sessi en er samt
engu að síður hálfgerður bastarður og við
viljum sjá hann burt. Þetta er ekki notk-
unartengdur skattur og ekki er þetta meng-
unarskattur heldur. Hann rennur bara beint
í samneysluna óháð bílum og umferð. Og
hann leggst þyngst á þá sem eiga eldri og
þyngri bíla þannig að hann leggst oft hlut-
fallslega þyngra á þá sem hafa úr minna að
spila.“
Runólfur segir að skattheimta af þessu
tagi sem hafi engan rökstuðning á bak við
sig sé mjög óeðlileg. „Bensíngjald og þunga-
skattur er eyrnamerkt til ákveðinna þátta og
nýtist því til þess að bæta umferðina og um-
ferðaröryggi. Ekki er hægt að finna að því
en þetta á alls ekki við um bifreiðagjaldið.
Við miðum okkur oft við önnur lönd og
skattayfirvöld hér hafa náð þeim „árangri“
að vera alveg í hæsta kanti miðað við
OECD-ríkin í skattheimtu á þessum þætti í
lífsmynstri þegnanna, þ.e. bifreiðum og bif-
reiðanotkun. Menn ættu auðvitað frekar að
reyna að draga úr þessum álögum.“
Kirkjan einkanlega þjónustustofnun
Þjóðkirkjan lítur svo á að sóknargjöld séu
félags- eða þjónustugjöld sem meðlimir
hennar reiða af hendi til hennar. Miðað við
það ástand sem nú er uppi horfist þjóð-
kirkjan í augu við þá staðreynd að verið er
að skerða þessi þjónustugjöld.
Þetta segir Halldór Reynisson, verkefn-
isstjóri upplýsingamála hjá þjóðkirkjunni, en
í tillögum fjárlaganefndar er lagt til að með
breytingum á sóknargjöldum og kirkjugarðs-
gjöldum verði útgjöld ríkisins lækkuð um
134 milljónir.
Halldór segir að í eðli sínu sé kirkjan
þjónustustofnun sem haldi úti þjónustu um
allt land. Hún muni hins vegar leitast við að
halda þjónustu sinni við fólkið í landinu
óbreyttri – jafnvel auka hana í ljósi þeirra
þrenginga sem margt fólk hafi verið að lenda
í og starfsfólk kirkjunnar finni greinilega
fyrir hjá almenningi. „Þess vegna munum
við væntanlega fyrst og fremst skerða fram-
lög til ýmissa sjóða kirkjunnar sem þýðir
aftur minni framlög til framkvæmda, við-
halds og endurbóta á kirkjum og öðru hús-
næði í eigu kirkjunnar.“
Halldór segir að í þessu sambandi beri
hins vegar minna á að samkvæmt nýlegum
kirkjulögum og ýmsum samningum sem
fylgt hafa í kjölfarið við ríkið hafi verið
stefnt að auknu fjárhagslegu sjálfstæði
kirkjunnar: „Þess vegna skýtur það skökku
við að tekjustofnar kirkjunnar skulu vera
skertir að frumkvæði ríkisins, ekki síst
vegna þess að litið er á sóknargjöldin sem
þjónustu- eða félagsgjöld sem almenningur
greiðir en ekki sem framlag frá ríkinu. Þá
má einnig benda á að ríkið skerðir með þess-
um aðgerðum einnig sóknargjöld til annarra
trúfélaga. Þessi skerðing getur eflaust komið
þeim illa, svo og ýmsum þjóðkirkjusöfnuðum
um allt land sem stofnað hafa til fjárhags-
legra skuldbindinga, t.d. með ráðningu
starfsfólks.“
Viðbrögð við tillögum meirihluta fjárlaganefndar um lækkun ríkisútgjalda
Telja engan rök-
stuðning fyrir
hækkun gjalda
ÞINGMENN stjórnarandstöð-
unnar gagnrýndu mjög fyrirhug-
aðar breytingar á skattalögum á
Alþingi í gær. Sögðu þingmenn
Samfylkingarinnar m.a. við aðra
umræðu málsins að tillögurnar
ykju möguleika á skattasniðgöngu
og tilfærslu á launatekjum yfir í
arð og hagnað og einnig að breyt-
ingarnar kæmu mjög misjafnlega
niður á landshlutum.
Vilhjálmur Egilsson (D), formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis, sagði hins vegar,
þegar hann mælti fyrir breytingartillögum nefnd-
armeirihlutans, að frumvarp ríkisstjórnarinnar
væri til þess fallið að skapa hér nýtt hagvaxt-
arskeið á næstu árum. Hér væri um að ræða eitt
af helstu málum þessa þings.
Tillögur ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir marg-
víslegum breytingum á skattalögum sem varða
bæði einstaklinga og fyrirtæki. Tekjuskattar fyr-
irtækja lækka verulega og sama má segja um
eignarskatta fyrirtækja og einstaklinga. Nokkur
lækkun verður einnig á tekjuskatti einstaklinga,
auk þess sem skattskylda húsaleigubóta fellur
niður. Á móti er gert ráð fyrir lítils háttar hækkun
á tryggingagjaldi.
Tengjast breytingartillögur meirihluta efna-
hags-og viðskiptanefndarinnar við frumvarp rík-
isstjórnarinnar að mestu leyti ákvæðum er varða
reiknað endurgjald og lífeyrisréttindi.
Víðtæk gagnrýni
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, sagðist sjaldan hafa séð jafnvíðtæka
gagnrýni á frumvarp, og borist hefði frá umsagn-
araðilum um skattafrumvarpið. Jóhanna, sem
mælti fyrir nefndaráliti fyrsta minnihluta efna-
hags- og viðskiptanefndar, sagði að Samfylkingin
legðist gegn hækkun tryggingagjalds og vildi
lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 30% í 25% í stað
þess að lækka það í 18% eins og tillögur stjórn-
arflokkanna gera ráð fyrir. Má hins vegar geta
þess að Pétur H. Blöndal (D) lýsti þeirri skoðun
við umræðuna í gær að færa ætti þessa skattpró-
sentu niður í 11%.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði að Samfylkingin
vildi að hækkun frítekjumarka í hátekjuskatti
verði frestað um tvö ár sem þýddi 600 milljóna
króna sparnað á næsta ári. Sam-
fylkingin styddi einnig hækkun
fríeignamarka eignarskatts og
sérstaks eignarskatts um 20%
vegna eigna í árslok 2001 til að
koma í veg fyrir hækkun eign-
arskatta vegna sérstakrar hækk-
unar á fasteignamati. Þá styddi
flokkurinn afnám sérstaks eign-
arskatts á lögaðila og einstak-
linga og lækkun á almennum
eignarskatti á einstaklinga.
Loks sagði Jóhanna að tillögur ríkisstjórnar-
innar hefðu í för með sér verulegt tekjutap sveit-
arfélaga og taldi hún það ámælisvert ef á rökum
væri reist, að stjórnvöld hefðu ekki haft samráð
við sveitarfélögin við undirbúning tillagnanna.
Taldi hún að með því væri verið að brjóta ákvæði
samstarfssáttmála ríkisins við sveitarfélögin í
landinu.
Vilja fresta breytingunum
Ögmundur Jónasson (VG) gerði grein fyrir
nefndaráliti annars minnihluta í efnahags- og við-
skiptanefnd en þar er lagt til að í ljósi gagnrýni
sem komið hafi fram á frumvarpið, og þeirrar
óvissu sem nú er uppi í efnahagsmálum, verði
áformuðum skattkerfisbreytingum ríkisstjórnar-
innar frestað og þess freistað að ná fram víðtækri
sátt í þjóðfélaginu um breytingar sem leiði til auk-
ins jöfnuðar og kröftugra atvinnulífs.
Sagði Ögmundur að í því sambandi væri eðli-
legt að hafa það að leiðarljósi að stefnt verði að því
að samræma skatta á lögaðila, fjármagn og laun.
Til að ná því markmiði væri nauðsynlegt að
hækka fjármagnstekjuskatt frá því sem nú er en
jafnframt hækka persónuafslátt og tryggja með
því móti hækkun skattleysismarka fyrir einstak-
linga.
Sverrir Hermannson (F) sagði að skattaíviln-
anir til forréttindahópa bæri hér hæst. Sagði hann
frumvarpið í raun þensluvaldandi og því væri rétt,
við núverandi aðstæður, að fresta því og beita
heldur vaxtalækkun þegar í stað, þ.e. ef valdhafar
teldu slíkt óhætt. Það hefði í öllu falli skjótvirkari
áhrif og yrði til að auka umsvif á ný. „Ég geri ekki
ráð fyrir að þingflokkur Frjálslynda flokksins
muni ljá þessu máli lið að einu eða neinu leyti,“
sagði Sverrir Hermannsson um frumvarpið.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra tók til máls
við lok umræðunnar í gærkvöldi og svaraði þá
m.a. þeim spurningum sem til hans hafði verið
beint. Hann sagði ekki hafa verið haft samráð út
fyrir stjórnarflokkanna, hvorki sveitarfélög, aðila
vinnumarkaðar eða aðra, um tillögurnar enda
hefðu menn talið að það gæti haft óæskileg áhrif.
T.d. að það hefði getað leitt til innherjaviðskipta
enda hefðu þá sumir fengið vitneskju um hluti, er
hefðu áhrif á markaðinn, sem aðrir fengu ekki.
Taldi Geir þó ekki að brotið hefði verið á sam-
starfssamningi sveitarfélaga og ríkisins.
Geir sagði það vissulega rétt að frumvarpið
hefði í för með sér að sveitarfélögin þyrftu að
greiða meira í tryggingagjöld en áður. Hann
kvaðst hins vegar telja að aukin umsvif, sem
breytingarnar hefðu væntanlega í för með sér,
myndu vega þar upp á móti og vel það.
Skattalagabreyt-
ingar gagnrýndar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Geir H. Haarde fjármálaráðherra telur ekki
að brotinn hafi verið samstarfssamningur.
MENNTAMÁLANEFND Alþingis
hefur lagt fram tillögu á Alþingi um
hverjir hljóti heiðurslaun listamanna
á næsta ári. Listamennirnir eru 21
talsins, þeir sömu og á síðasta ári, og
samkvæmt tillögunni hljóta þeir 1,6
milljónir króna hver.
Fjölgað var um 10 í heiðurslauna-
flokki listamanna á síðasta ári en
listamennirnir sem hljóta launin á
næsta ári, samkvæmt tillögu mennta-
málanefndar eru Atli Heimir Sveins-
son, Árni Kristjánsson, Ásgerður
Búadóttir, Erró, Fríða Á. Sigurðar-
dóttir, Guðbergur Bergsson, Guð-
björg Þorbjarnardóttir, Gunnar Eyj-
ólfsson, Hannes Pétursson, Herdís
Þorvaldsdóttir, Jón Nordal, Jórunn
Viðar, Kristján Davíðsson, Matthías
Johannessen, Róbert Arnfinnsson,
Rúrik Haraldsson, Stefán Hörður
Grímsson, Thor Vilhjálmsson, Þor-
steinn frá Hamri, Þráinn Bertelsson
og Þuríður Pálsdóttir.
Heiðurs-
launaflokk-
ur lista-
manna
óbreyttur
FJÁRLÖG fyrir árið 2002
verða tekin til þriðju og síð-
ustu umræðu á Alþingi í dag.
Hefst fundurinn kl. 10.30 fyrir
hádegi.
Ráðgert er að ljúka um-
ræðunni í dag en að atkvæða-
greiðsla um fjárlaga-
frumvarpið fari síðan fram á
fundi á laugardag. Á þeim
fundi yrði einnig mælt fyrir
bandorminum svokallaða, þ.e.
frumvarpi um ráðstafanir í
ríkisfjármálum sem kveður á
um aðgerðir er eiga að afla
ríkissjóði aukinna tekna.
Fjárlög rædd í dag