Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 62
UMRÆÐAN
62 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TAKTU LÍFINU LÉTT
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400
Kringlunni,
sími 568 0400
Smáralind,
535 0400
www.myndlist.is
— Sigrún Eldjárn —
AÐ undanförnu
hafa orðið miklar um-
ræður í fjölmiðlum
um málefni lífeyris-
sjóða landsmanna og
er það í sjálfu sér
eðlilegt og hið ágæt-
asta mál, sé sú um-
ræða byggð á réttum
upplýsingum. Með
hækkandi meðalaldri
fólks samhliða því
sem þrýstingur vex á
að það fari fyrr út af
vinnumarkaði og á
eftirlaun er mikilvægt
að lífskjör eftirlauna-
fólks séu viðunandi.
Við Íslendingar erum
svo heppnir, að við búum nú við
vandað lífeyriskerfi, sem verður
með því besta sem gerist þegar
það verður komið til fullrar virkni
á öðrum áratug þessarar aldar.
Byggt er á svonefndu þriggja
stoða kerfi, sem alþjóðlegar fjár-
málastofnanir mæla mjög með.
Stoðirnar þrjár, sem talað er um í
þessu sambandi felast í fyrsta lagi
í sjóðssöfnun í samtryggingar-
kerfi, sem helst allir þegnar þjóð-
félagsins eigi aðild að, í öðru lagi
séreignasjóðsmyndun, sem getur
m.a. nýst til að brúa það bil sem
verður óhjákvæmilega fyrstu miss-
erin eftir að hver einstaklingur
lýkur starfsævi sinni og í þriðja
lagi sé til staðar opinbert trygg-
ingarkerfi, einskonar öryggisnet,
til að að tryggja af-
komu þeirra, sem lítt
eða ekki geta byggt
upp sjóði með iðgjöld-
um af vinnulaunum
sínum.
Lagaumhverfi
og eftirlit
Fjármálaeftirlitinu
er falið í lögum um líf-
eyrissjóði að hafa með
þeim kerfisbundið eft-
irlit svo rekstur
þeirra og ráðstöfun
fjármuna sé í sam-
ræmi við lög og hags-
muna sjóðfélaga sé
gætt í hvívetna.
Starfsaðferðir Fjármálaeftirlitsins
eru að sjálfsögðu í stöðugri mótun,
en aðhald þess er vissulega
strangt og á að vera það.
Upp á síðkastið hefur ávöxtun
lífeyrissjóða verið undir vænting-
um miðað við undanfarin ár og
hafa spunnist um þá staðreynd
nokkrar umræður um starfsað-
ferðir sjóðanna við ávöxtun fjár-
muna. Hrafn Magnússon, frkvstj.
Landssambands lífeyrissjóða, hef-
ur í hnitmiðaðri blaðagrein nú fyr-
ir stuttu skýrt frá helstu stað-
reyndum um ávöxtun og ávöxt-
unaraðferðir lífeyrissjóðanna og
verður það trauðla gert betur af
öðrum. Því miður virðast fæstir og
það á ekki síður við um fjölmiðla-
fólk en aðra, hafa lesið þá grein
Lífeyrismál
Þorkell
Guðbrandsson
HVERS vegna ætli
það sé? Við höfum
heyrt sögur um með-
ferð sumra meistara á
nemum, léleg laun og
slæma framkomu.
Nema skortir kjark til
að fara fram á leiðrétt-
ingu launa sinna. Ef
nemi „ibbir gogg“ er
ekkert mál að ráða
annan hársnyrtinema
sem er tilbúinn til að
gangast undir „skil-
mála“ meistarans.
Hvers vegna eru laun
hársnyrtinema 67%
lægri en launakjör
húsasmiða-, bifvéla-
virkja- eða rafvirkjanema? Gera hár-
snyrtinemar minna gagn í starfs-
þjálfunarnámi en aðrir nemar? Eru
kennarar svona lélegir?
Í fjölmiðlum hafa meistarar haldið
því fram að það sé dýrt að hafa hár-
snyrtinema í vinnu og hársnyrtinem-
ar sýni ekki framlegð fyrr en eftir
tvö ár í námi. Að sögn meistara í
Meistarafélagi í hárgreiðslu stendur
hársnyrtineminn fyrstu tvö árin og
horfir á meðan meistarinn sinnir við-
skiptavinum sínum. Það væri þokka-
legt ef öll kennsla í ökunámi væri
þannig. Er þetta ölmusa af hálfu
meistara að aumka sig yfir hár-
snyrtinema? Er þetta á rökum reist?
Meistarar hafa með þessu móti gert
lítið úr kennslu verkmenntaskóla-
kennara og sjálfum sér. Meistarar
gleyma aðalatriðinu. Að vera meist-
ari í iðngrein gefur þeim heimild til
að vera kennarar. Meistarar eru jafn
ábyrgir fyrir kennslunni og kennar-
ar í verkmenntaskólum. Atvinnurek-
endur vilja fá árangur sem fyrst frá
launþegum sínum og leggja „metn-
að“ sinn í að fá sem hæfastan starfs-
kraft á sem stystum tíma. Iðnnemar
í öðrum iðngreinum eru flestir löngu
farnir að fá þjálfun hjá meisturum
sínum en af hverju eru margir hár-
snyrtinemar eingöngu látnir þvo
hár, sópa og setja í þvottavél?
Ef skoðuð er ferilskráning starfs-
náms í hársnyrtiiðn frá umsýslu-
skrifstofu námssamninga undanfar-
in fjögur ár hafa 45% hársnyrtinema
hætt í námi, 20% rift námssamningi
og farið að vinna á annarri stofu, en
aðeins 35% náðu að ljúka námi. Þetta
eru sláandi tölur. Þetta segir okkur
að 65% hársnyrtinema eigi í vanda-
málum við atvinnurekanda sinn. Því
viljum við beina orðum okkar til for-
eldra þessara nema. Standið með
börnum ykkar í baráttu fyrir bætt-
um kjörum.
Annar hver hársnyrti-
nemi hættir námi
Þórunn
Daðadóttir
Kjarasamningar
Standið með börnum
ykkar, segja Súsanna
Björg Vilhjálmsdóttir
og Þórunn Daðadóttir,
í baráttu fyrir
bættum kjörum.
Súsanna Björg er formaður Félags
hársnyrtisveina.
Þórunn er framkvæmdastjóri
Iðnnemasambands Íslands.
Súsanna Björg
Vilhjálmsdóttir
Stofnvistfræðingur
LÍÚ, Kristján Þórar-
insson, heldur því fram
í grein í Morgun-
blaðinu, að ekki væri
unnt að taka upp fær-
eyska fiskveiðistjórn-
arkerfið hérlendis
vegna þess að „það er
vandséð að setja megi
slíkar reglur hérlendis
vegna dóms Hæsta-
réttar frá 1998, svo-
nefnds „Valdimars-
dóms“.“ Þessi fullyrð-
ing er röng og til marks
um hvernig umræðan
um fiskveiðistjórnun-
ina er ævinlega á hvolfi
þegar gjafakvótamenn eru annars
vegar.
Niðurstaða Hæstaréttar var ein-
faldlega sú að ekki má mismuna Ís-
lendingum um aðgang að sameigin-
legum fiskimiðum. Í því felst að
kvótakerfið var dæmt andstætt
stjórnarskránni og kvótalögin voru
því ólög að mati Hæstaréttar. Þenn-
an dóm hunsaði Alþingi með fráleit-
um útúrsnúningi. Hagsmunir kvóta-
eigenda voru teknir fram yfir
almannahagsmuni og stjórnar-
skrána. Alþingismenn sem stóðu að
því verki munu fá verðskuldaðan
dóm sögunnar.
Dómurinn felur ekki í sér bann við
takmörkunum á sókn í auðlindina.
Augljóst er að ákvæði stjórnarskrár-
innar um jafnræði og atvinnufrelsi
má virða þó að hindrun sé sett við
óheftri nýtingu auðlindarinnar ef all-
ir landsmenn hafa
sömu tækifæri til að
uppfylla skilyrði sem
sett yrðu um nýtingu
miðanna. Sóknarkerfi
með takmörkuðum
fjölda veiðileyfa til að
tryggja góða nýtingu á
fjárfestingum í sjávar-
útvegi getur þannig
verið í góðu samræmi
við stjórnarskrána ef
gætt er að sanngjörn-
um leikreglum og að
veiðileyfin séu ekki
framseljanleg. Veiði-
leyfi með takmörkun-
um má t.d. bjóða upp
eða úthluta til manna
sem aflað hafa sér menntunar og
reynslu við fiskveiðar og stýra eft-
irspurn með aflagjaldi.
Undirritaður hefur bent sérstak-
lega á sóknarkerfi með svokölluðu
lokuðu veiðileyfakerfi með ófram-
seljanlegum veiðiréttindum (Limited
Entry Non Transferable Licensing)
og auðlindagjaldi. Rækilega þarf að
undirstrika orðið óframseljanlegum.
Veiðum uppsjávarfiska (síld, loðnu,
kolmuna) yrði þó sennilega best
stjórnað með kvótum í uppboðskerfi.
Illt er að gjafakvótasinnar skuli
hafa komist upp með að rugla um-
ræðuna um fiskveiðistjórnina með
því að setja endalaust fram rökleys-
ur og rangar staðhæfingar. Stór-
felldir hagsmunir landsins eru í húfi
að þeim haldist ekki uppi slíkt fram-
ferði og nauðsynlegt að hrópa þá nið-
ur. Þjóðin verður að hafna þátttöku
LÍÚ í mótun nýrrar fiskveiðistefnu
meðan vinnubrögðin eru með þessu
sniði þar á bæ. Einstaklingar innan
hagsmunasamtakanna LÍÚ eiga
ekki að hafa sérréttindi, sem bundin
eru við aðal, nafnbætur eða lögtign
svo að vísað sé í jafnræðisgrein
stjórnarskrárinnar eins og hún var
orðuð fyrir 1995 þegar stjórnar-
skránni var breytt. Þetta verða bæði
þeir og aðrir að muna vel.
Ef stofnvistfræðingur LÍÚ vill
láta taka sig alvarlega á hann að
segja satt. Valdimarsdómurinn segir
ekkert um færeyska kerfið. Hann
dæmdi hinsvegar íslenska kvóta-
kerfið andstætt stjórnarskránni og
þar með ólöglegt. Framkvæmda-
valdið hefur hingað til hunsað dóm-
inn og hefur í því tekið sér alræð-
isvald að þessu leyti. Þrískipting
valdsins var þar með fyrir borð borin
á Íslandi og lýðræðið stendur á
brauðfótum.
Umræða á hvolfi
Valdimar
Jóhannesson
Fiskveiðistjórn
Þrískipting valdsins var
þar með fyrir borð borin
á Íslandi, segir
Valdimar Jóhannesson,
og lýðræðið stendur
á brauðfótum.
Höfundur er með eigin rekstur.
ÞAÐ er mikil ham-
ingja fyrir hvern ein-
stakling að stunda það
starf, sem gefur honum
lífsfyllingu, njóta þess
dag hvern að ganga til
þess starfs, sem á hug
hans allan, og sjá ár-
angur batna sökum
sinna verka.
Sauðfjárbúskapur
veitir mörgum þessa
hamingju og lífsfyll-
ingu og hana ber að
þakka af heilum hug.
Sauðkindin þakkar
okkur á sinn hátt, hún
fagnar okkur þegar
komið er í húsin, þakk-
ar hjálpina við burðinn, að vera hýst
þegar kólna fer og ef við erum svo
heppin að geta reist hana við ef hún
verður afvelta. Ég hef ekki fengið
betri þakkir um dagana, en í vor þeg-
ar ég gat aðstoðað kind á fætur; það
er margt hægt að segja með augna-
ráði.
Já, sauðfjárbúskapur er óska-
atvinnugrein fyrir marga, en það er
nú einu sinni svo að við lifum ekki á
loftinu, eins og sagt er, og það sem
vantar fyrst og fremst eru auknar
tekjur. Ég vil sjá miklu markvissara
unnið að útflutningi á dilkakjöti, auk
þess að auka innanlandssölu með
fjölbreyttara úrvali af skyndiréttum.
Mér finnst alltof mikil uppgjöf í
þessum málum, eins og mörgum öðr-
um málum hjá okkur, og ætla ég því
að snúa mér að því máli sem átti að
vera aðalmál þessa pistils. En það
eru hin margumtöluðu landsbyggð-
armál.
Hvað er landsbyggð?
Landsbyggð er allt í kring um
landið, en ég ætla að einbeita mér að
Þingeyjarsýslum, þar sem er mín
vagga.
Í sannleika sagt finnst mér okkur
líða ósköp vel hér, margar fegurstu
náttúruperlur landsins eru innan
okkar sýslu, ásamt fleiri gæðum til
lands og sjávar.
Mannauður er til staðar, en
vinnum við ekki of mikið hvert í sínu
horni?
Það vantar meiri samvinnu, opnari
tjáskipti og að láta
heyra kröftuglega frá
okkur, að það sé fullur
baráttuvilji til þess að
standa vörð um okkar
byggð. Það hvetur
stjórnvöld til dáða að
standa með okkur og
það mun verða gert
beri okkur gæfa til þess
strax að snúa vörn í
sókn.
Atvinnufyrirtækin
þurfa að vera í höndum
okkar sjálfra, afli sem
berst á land verður að
skapa atvinnu heima.
Við eigum að sam-
einast um það, að
standa vörð um okkur sjálf og
styrkja hvort annað. Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga er ein sú stofnun
sem við eigum að efla, ég er nýkomin
heim frá mánaðardvöl þar og þar var
gott að vera. Ég nefni þetta einstaka
dæmi um stofnun sem við eigum að
láta okkur varða, en auðvitað eru
stofnanir um allt héraðið sem okkur
ber skylda að hlúa að.
Já, kæru Þingeyingar, og aðrir
landsbyggðarmenn. Látum í okkur
heyra og lofum öðrum að komast að
því hvað gott er að búa á lands-
byggðinni, þegar stjórnvöld skynja
hinn mikla baráttuvilja okkar
sjálfra.
Sérstakar þakkir til þeirra sem
björguðu Hraunsrétt, þar eru mikil
menningarverðmæti.
Mannauður á
landsbyggðinni
Kristín
Kristjánsdóttir
Landsbyggðarmál
Látum í okkur heyra,
segir Kristín
Kristjánsdóttir, og
lofum öðrum að komast
að því hvað gott er að
búa á landsbyggðinni.
Höfundur er húsfreyja á Syðri-
Brekkum á Langanesi.
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050