Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 63
nægilega vel, sem hefði getað
komið í veg fyrir ýmiskonar mis-
skilning. Þarna hefur upp á síð-
kastið bæst við sérkennileg aug-
lýsingaherferð iðnrekanda nokk-
urs á hendur sjóðunum og hefur
komið í ljós í viðtölum við þennan
einstakling í fjölmiðlum, að honum
er ýmislegt óljóst í þessu sam-
bandi, svo ekki sé dýpra í árinni
tekið. Hann hefur meðal annars
hvatt til þess að lífeyrissjóðirnir
verji um það bil einum tíunda af
ráðstöfunarfé sínu til byggingar
dvalarheimila fyrir aldraða. Nú er
það svo, að samkvæmt lögunum er
lífeyrissjóðunum þetta gjörsam-
lega óheimilt. Þeir mega eingöngu
eiga húseignir til að nota fyrir
skrifstofuaðstöðu sína sem og
mega þeir í skamman tíma eiga
s.n. fullnustueignir, þ.e. ef þeir
neyðast til að taka eignir skuldu-
nauta sinna yfir vegna vanskila.
Þessi lagaákvæði eru mjög eðlileg
og nauðsynleg. Hlutverk lífeyris-
sjóða á að vera að taka við iðgjöld-
um félagsfólks síns, ávaxta þau
sem best og greiða því síðan lífeyri
þegar eftirlaunaaldri er náð, eða
það þarf að fá örorkulífeyri. Hjá
umræddum iðnrekanda og raunar
mörgum fleirum hefur einnig kom-
ið upp mikil gagnrýni á hvernig líf-
eyrissjóðir ávaxta ráðstöfunarfé
sitt. Það virðist ekki vera lýðum
ljóst, að í þeim efnum er farið eftir
skýrum lagaákvæðum. Grunnregl-
an er sú, að sjóðirnir eigi að dreifa
áhættunni sem mest svo ein ávöxt-
unarleið, sem hugsanlega bregst,
geti ekki velt öllu kerfinu um koll.
Í máli þessa umrædda gagnrýn-
anda lífeyriskerfisins hefur hann
beinlínis sagt, að lífeyrissjóðirnir
„eigi ekki að vera að lána pen-
inga“. Nú er vandséð, hvernig er
hægt að ávaxta fé nema lána það
með því leigugjaldi, sem við höfum
vanist að kalla vexti. Ef peningar
eru lagðir inn á bók í banka er í
raun verið að lána bankanum pen-
ingana gegn þóknun, vöxtum.
Sjóðirnir nota því ýmsar leiðir,
sem lögin gera ráð fyrir, til að
ávaxta fé sitt. Þar með má telja
lán til sjóðfélaga, lán til sveitarfé-
laga og fyrirtækja og kaup á
markaðsbréfum, sem hafa viður-
kenningu Fjármálaeftirlitsins.
Ennfremur er beinlínis gert ráð
fyrir að þeir kaupi skráð og óskráð
hlutabréf innan ákveðinna hlut-
falla, sem lögin ákvarða og Fjár-
málaeftirlitið útfærir nánar. Jafn-
framt er talið sjálfsagt og nauð-
synlegt að tiltekinn hluti fjár
sjóðanna sé ávaxtaður erlendis
með þeim aðferðum, sem taldar
eru nægilega traustar og Fjár-
málaeftirlitið viðurkennir. Þetta er
því brýnna, sem efnahagslíf Ís-
lands er tiltölulega einhæft og
hagsveiflur hér meiri en víða ann-
arsstaðar og oft afleiðing af sér-
íslenskum fyrirbrigðum, svo sem
náttúrufari landsins.
Framsýni
ráði för
Menn mega ekki láta skamm-
tímasjónarmið ráða of mikið af-
stöðu sinni til lífeyrissjóðanna.
Þeir eru í eðli sínu langtímafyr-
irbrigði, sem verða að skipuleggja
sig með það í huga. Skemmst er að
minnast þess að þegar ávöxtun
sjóðanna var sem best fyrir örfá-
um misserum, þá komu fram radd-
ir á sjálfu Alþingi, um að rétt væri
að leggja fjármagnstekjuskatt á
sjóðina. Sem betur fór tókst að
sýna þessum mönnum fram á, að
slíkt væri firra og jafnvel stjórn-
arskrárbrot, þar sem með því væri
verið að margskatta þessa fjár-
muni, því lífeyrisgreiðslur eru
tekjuskattsskyldar eins og aðrar
tekjur. Myndi því slík skattlagning
í besta falli draga úr skatttekjum
ríkisins síðar og jafnvel kalla á
meiri framlög ríkisins til grunnlíf-
eyris vegna þess að greiðslugeta
sjóðanna á lífeyri til félagsfólks
síns myndi rýrna verulega með
þessu móti.
Mörgum hefur vaxið í augum
það fjármagn, sem í sjóðunum er
nú um stundir. Þá verður að minn-
ast þess, að nú næstu tíu árin eða
svo verður fjárhagsstaða þeirra í
hámarki hlutfallslega miðað við
fjölda sjóðfélaga. Draga mun úr
sjóðssöfnuninni þegar jafnvægi
næst á milli greiðandi sjóðfélaga
og lífeyrisþega, sem verður fljót-
lega eftir að fullri virkni sjóðanna
er náð. Þá mun hlutfall lífeyris-
greiðslna fara hækkandi og meira
gegnumstreymi fjár verða um
sjóðina.
Við búum hér á landi við gott líf-
eyriskerfi, eins og hér hefur verið
reynt að sýna fram á. Við getum
verið stolt af því og eigum að vera
þakklát þeim framsýnu mönnum,
sem komu því á. Við eigum einnig
að standa vörð um það og ekki síst
samábyrgðarfyrirkomulag sam-
eignarsjóðanna sem og skylduað-
ildina, sem eins og Rafiðnaðar-
sambandið benti á í skeleggri
ályktun, er gagnkvæm og kemur í
veg fyrir að sjóðir geti flokkað
menn eftir áhættu. Öll gagnrýni er
nytsamleg og getur orðið til þess
að opna augu fólks og upplýsa.
Hinsvegar þarf hún að vera byggð
á rökum og staðreyndum, en ekki
á upphrópunum og ógrunduðum
sleggjudómum, allra síst þegar í
húfi er afkoma fólks þegar starfs-
ævinni sleppir.
Höfundur er skrifstofumaður.
Lífeyrir
Menn mega ekki, segir
Þorkell Guðbrandsson,
láta skammtímasjón-
armið ráða of mikið
afstöðu sinni til
lífeyrissjóðanna.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 63
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
Heilsunnar vegna
„Við meðhöndlun hálsvandamála er einn mikilvægasti
þátturinn að gefa réttan stuðning við hálssvæðið þegar
legið er í hvíldarstellingum, til að ná náttúrulegri stöðu
hryggjarsúlunnar. Hið erfiða í þessari meðhöndlun er
að ná þrýstingslétti á hálssvæðið og ná um leið fram
slökun í hinum margvíslegu svefnstellingum. TEMPUR
heilsukoddinn er eini koddinn að mínu viti sem uppfyllir
allar þessar kröfur.“
Röng höfuðlega er erfið fyrir
háls, herðar og bak og leiðir
til meiðsla og verkja.
Góður koddi veitir stuðning
og þægindi þannig að þú
getur sofnað án allrar
spennu.
James H. Wheeler, M.D.
Dr. Wheeler er stjórnar-
formaður félags bæklunar-
skurðlækna í USA, og aðili
að Amerísku Bæklunar-
læknaakademíunni
Jólagjöf
sem lætur þér og þínum líða betur
Yfir 32.000
sjúkraþjálfarar,
kírópraktorar
og læknar um
heim allan
mæla með
Tempur Pedic,
þ.á.m. á
Íslandi. VARISTeftirlíkingar!!!
I
i lí i
!!!
Pipar og salt kvarnir
Mikið úrval
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
mbl.is