Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 66
66 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OPNA IDSF-danskeppnin fór
fram sl. laugardag og sunnudag.
Fjöldi erlendra para tók þátt í keppn-
inni bæði í sígildu samkvæmisdöns-
unum og í þeim suður-amerísku.
Á laugardeginum var keppt í sí-
gildum samkvæmisdönsum og var
keppt í einum flokki, flokki áhuga-
manna. Tæplega 30 pör voru skráð til
leiks, sem gerir það að verkum að
keppnin gildir til stiga á alþjóðlega
keppendalistanum og er það í fyrsta
skipti sem slíkt er gert hér á landi.
Auk íslenzku keppendanna var
fjöldi erlendra gesta og ber þar hæst
að nefna nýkrýnda heimsmeistara í
10 dönsum þau Marat Gimaev og Al-
ian Bassiouk frá Rússlandi. Að sögn
Bo Lofts Jensen, fyrrum heimsmeist-
ara atvinnumanna í 10 dönsum, hafa
þau gert mjög góða hluti að undan-
förnu og verið á stöðugri siglingu síð-
ustu ár. Þau eru gríðarlega nákvæm
og öguð í sínum vinnubrögðum og ár-
angurinn lætur því ekki á sér standa.
Marat og Alian eru í „Team 2008“
ásamt fleiri danspörum, m.a. tveimur
íslenzkum, þeim Jónatan Arnari Ör-
lygssyni og Hólmfríði Björnsdóttur
og Birni Inga Pálssyni og Ástu
Björgu Magnúsdóttur.
Í keppninni í sígildu samkvæmis-
dönsunum voru pörin í fyrstu tveimur
sætunum örugg með sín sæti, báru
svolítið höfuð og herðar yfir hin pörin.
Í fyrsta sæti voru heimsmeistararnir
Marat og Alian, en í því öðru voru
Fanck Radich og Susanne Holde frá
Danmörku. Það er ekki oft sem dans-
áhugafólki gefst kostur á að sjá þenn-
an fjölda af glæsilegum pörum sem
nú, en vonandi verður áframhald á
þessu.
Ég vil leyfa mér að fullyrða að hér
hafi verið um einstakan viðburð að
ræða í íslenzkri danssögu, því sjaldan
eða aldrei hefur slíkur fjöldi góðra
para tekið þátt í opinni alþjóðlegri
keppni hér á landi.
Á sunnudeginum var keppt í fleiri
flokkum. Í samtali við blaðamann var
Bo Loft mjög ánægður með keppnina
í heild sinni og fannst hún mjög já-
kvætt skref fram á við fyrir íslenzkan
dans. Skipulag keppninnar hafi verið
til fyrirmyndar og öll framkvæmd.
Spurður um gæði dansins á Íslandi
sagði hann:
„Nú finnst mér dansinn vera að
taka stór skref fram á við á ný á Ís-
landi. Það er svona eins og það hafi
verið stutt stöðnunartímabil, en nú
eigið þið mjög mikið af ákaflega efni-
legum pörum sem eiga svo sannar-
lega eftir að láta til sín taka í framtíð-
inni. Helsti gallinn við íslenzkan
dansheim er þó reynsluleysi, því það
eru yfirleitt mjög fá pör í hverjum
flokki hér, sérstaklega þegar kepp-
endur komast í eldri flokkana. Þetta
gerir samkeppnina minni og minnkar
þannig samkeppnisdrifkraftinn sem
getur gert ótrúlegustu hluti.
Íslenzk pör hafa þó verið aðdáan-
lega dugleg við að mæta í keppnir á
erlendri grund og það ber að virða,
því slík ferðalög eru oft á tíðum löng
og kosta mjög mikið. Í heild sinni er
íslenzkur dansheimur þó á mikilli
siglingu fram á við um þessar mundir,
nú ríður á að halda sér við efnið.“
Um yngstu tvo flokkana, börn I og
börn II, vildi Bo segja að þar væri
gríðarlega mikill efniviður í mjög
góða dansara. Öll pörin stóðu sig
mjög vel og fróðlegt væri að sjá þau
dansa meira í framtíðinni. Íslending-
ar þyrftu engu að kvíða með þessi
pör, þau ættu eftir að gera vel.
Sigurvegarar í flokknum börn I
urðu Alex Freyr og Vala Björk, en í
öðru sæti urðu Sigurður Már og Sara
Rós. Í þriðja sæti urðu svo Sigtrygg-
ur og Eyrún. Í flokki börn II sigruðu
Haukur Freyr og Hanna Rún nokkuð
örugglega, en Aðalsteinn og Erla
Björg unnu til silfurverðlauna, en í
þriðja sæti voru Karl og Helga Soffía.
Flokkur unglinga I var mjög
spennandi og jafn að mati Bo Lofts.
Honum fannst fyrstu tvö pörin vera
langsterkust.
„Þorleifur og Ásta og Jónatan og
Hólmfríður eru gríðarlega jöfn pör en
samt sem áður mjög ólík. Þau hafa
verið að skiptast á að vinna hvort ann-
að og er það ekkert óeðlilegt. Því mis-
munandi dómarar leita oft eftir mis-
munandi atriðum og smekkur manna
er jú misjafn, sem betur fer. Dags-
formið getur þá líka skipt miklu máli.
Tvö frábær pör og mjög efnileg!“
Í flokknum unglingar II sigruðu
Davíð Gill og Helga. „Davíð og Helga
dönsuðu miklu betur á sunnudegin-
um en í Norðurlandamótinu. Þetta er
án efa par sem á eftir að gera mjög
vel á alþjóðlegum keppnum í framtíð-
inni ef þau halda rétt á spilunum.
Damien og Claudia eru einnig mjög
sterk og eru greinilega í mikilli fram-
för um þessar mundir, eins og Davíð
og Helga.“
Í flokki áhugamanna sigruðu Dan-
irnir Sören og Metta og í öðru sæti
voru Tobias og Vickie Jo. Að mati Bo
voru þessi tvö pör í algerum sérflokki
í þessari keppni og Finnarnir nokkuð
öruggir í þriðja sætinu. Tvö íslenzk
pör dönsuðu í úrslitum, þau Ísak og
Helga Dögg og Gunnar Hrafn og Sig-
rún Ýr. „Þessi tvö pör eru mjög sterk,
en eiga þó töluverða vinnu eftir. Ísak
og Helga Dögg dönsuðu mun betur
nú en þegar ég sá þau á German Open
í haust, þau eru á góðri leið. Gunnar
og Sigrún komu líka skemmtilega á
óvart, Gunnar kom mjög sterkur inn í
þessa keppni og vakti mikla athygli
og var mjög áberandi á gólfinu,“ sagði
Bo Loft Jensen, fyrrum heimsmeist-
ari í 10 dönsum.
Það er mín von að mót sem þau
sem haldin voru nú um helgina verði
endurtekin sem oftast, þau voru öll-
um aðstandendum og keppendum til
sóma, að ég tali nú ekki um dans-
íþróttina sjálfa.
Úrslit:
Börn I – suður-amerískir dansar
Alex F. Gunnarss/Vala B. Birgisd., Íslandi
Sigurður M. Atlas./Sara R. Jakobsd., Íslandi
Sigtryggur Haukss./Eyrún Stefánsd., Ísl.
Pétur G. Magnúss./Jóna Benediktsd., Íslandi
Ragnar I. Péturss./Sara K. Rúnarsd., Íslandi
Sigurþór Björgvinss./Thelma Sigurðard., Ísl.
Börn II – suður-amerískir dansar
Haukur F. Hafsteinss./Hanna R. Ólad., Ísl.
Aðalsteinn Kjartanss./Erla Kristjánsd., Ísl.
Karl Bernburg/Helga S. Guðjónsd., Íslandi
Valdimar Kristjánss./Rakel Guðmundsd., Ísl.
Arnar M. Einarss./Helena Jónsd., Íslandi
Magnús A. Kjartanss./Ragna B. Benburg,
Ísl.
Unglingar I – suður-amerískir dansar
Þorleifur Einarss./Ásta Bjarnad., Íslandi
Jónatan A. Örlygss./Hólmfríður Björnsd., Ísl.
Emilian Seiersen/Benedicte Bendtsen,
Danm.
Björn E. Björnss./Herdís H. Arnalds, Íslandi
Stefán Claessen/María Carrasco, Íslandi
Baldur K. Eyjólfss./Erna Halldórsd., Íslandi
Unglingar II – suður-amerískir dansar
Davíð G. Jónss./Helga Björnsd., Íslandi
Damien Czanecki/Claudia Rex, Danmörku
Allan Vedel/Camilla Dalsgaard, Danmörku
Sigurður R. Arnarss./Sandra Espersen, Ísl.
Mads Nielsen/Anne Koborg, Danmörku
Friðrik Árnas./Sandra J. Bernburg, Íslandi
Áhugamenn – suður-amerískir dansar
Sören Haugaard/Metta Georgie, Danmörku
Tobias Carlson/Vickie Jo Ringgaard, Danm.
Jani Rasimus/Milla Virtanen, Finnlandi
Christoph Kies/Silke Zetzsche, Þýskalandi
Ísak H. Nguyen/Helga D. Helgad., Íslandi
Gunnar H. Gunnarss./Sigrún Ýr Magnúsd.,
Ísl.
Framfarir í dansinum
DANS
Laugardalshöll
OPNA IDSF-DANSKEPPNIN
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Haukur Freyr Hafsteinsson og Hanna Rún Óladóttir.
Jóhann Gunnar Arnarsson
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Axel Freyr Gunnarsson og Vala Björk Birgisdóttir.
Á NÝAFSTÖÐNU Norðurlandamóti í samkvæm-
isdönsum, sem haldið var í Laugardalshöll sl.
helgi, færðu tvenn pör Íslendingum Norð-
urlandameistaratitla en keppt var í fjórum flokk-
um. Íslenskir Norðurlandameistarar í ár eru þau
Ísak Halldórsson Nguyen og Helga D. Helgadóttir
í flokki ungmenna og Jónatan Arnar Örlygsson og
Hólmfríður Björnsdóttir í flokki 12-13 ára ung-
linga.
Morgunblaðið ræddi stuttlega við þau Jónatan
Arnar og Hólmfríði í tilefni sigursins. Þau segjast
ekki hafa búist við sigri, en hann hafi verið sætur
þegar hann var í höfn. Þau höfðu þó titil að verja,
en þau urðu Norðurlandameistarar í fyrra þegar
keppt var í Finnlandi.
Jónatan segir að pressa hafi verið á þeim að
halda titlinum og einnig að sigra vegna þess að
mótið var haldið á Íslandi.
Samkeppnin hörð
„Samkeppnin var hörð, þrátt fyrir að í ár væru
færri erlend pör í keppninni en í fyrra,“ segir Jón-
atan Arnar, en hann hefur æft samkvæmisdansa
frá því hann var fimm ára. Hólmfríður hefur æft
frá því hún var sjö ára og segist alltaf hafa jafn
gaman af. „Ég held að ef maður hefur ánægju af
dansinum, skemmti sér í keppninni og er vel æfður
fyrir hana geti maður náð langt. Númer eitt, tvö og
þrjú er að hafa gaman af þessu,“ segir Hólmfríður.
Norðurlandameistararnir eru búnir að dansa
saman í fimm ár, stunda námið í Dansskóla Jóns
Péturs og Köru og hyggjast halda ótrauð áfram í
dansinum næstu árin.
Ánægjan
kemur manni
áfram
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir,
nýbakaðir Norðurlandameistarar í samkvæmisdönsum í
flokki unglinga I, í léttri sveiflu á dansgólfinu.
STÚDENTARÁÐ HÍ samþykkti
eftirfarandi ályktun um samkeppn-
isstöðu Háskóla Íslands á fundi sín-
um fyrir stuttu:
„Stúdentaráð lýsir yfir þungum
áhyggjum af lágum opinberum fjár-
framlögum til menntunar. Háskólar
eru hér hornreka enda eru ríkisút-
gjöld til háskólastigsins langt undir
meðaltali OECD-ríkja og tvöfalt
lægra en á hinum Norðurlöndunum.
Háskóli Íslands er í alþjóðlegri sam-
keppni og stjórnvöld gera skólanum
erfitt að standast þá samkeppni…
Háskóli Íslands er sömuleiðis í
samkeppni hér innanlands enda hef-
ur skólum á háskólastigi fjölgað hér-
lendis á undanförnum árum. Stúd-
entaráð fagnar aukinni samkeppni
milli innlendra háskóla en krefst
þess að samkeppnin sé háð á jafn-
réttisgrundvelli. Stúdentaráð gagn-
rýnir harðlega innbyrðis skiptingu
ríkisútgjalda til háskólastigsins og
minnir á ósanngirni þess að íslenskir
skólar á háskólastigi fá nú ríkisfjár-
veitingar á sömu forsendum, óháð
því hvort þeir innheimta skólagjöld
eða ekki. Þessi stefna er í miklu
ósamræmi við það fyrirkomulag sem
tíðkast á hinum Norðurlöndunum
þar sem framlög ríkisins til háskóla
lækka í takt við upphæð skólagjalda.
Samkeppnisstaða Háskóla Íslands
er afar erfið þegar einkaskólar fá
jafnmikinn eða jafnvel meiri opin-
beran stuðning á hvern nemanda.
Menntamálaráðherra hefur stað-
fest að framlög til háskóla vegna
kennslu fylgja reiknilíkani þar sem
sömu reglur gilda fyrir alla. Með
þessari stefnu sinni er menntamála-
ráðherra að neyða Háskóla Íslands
og aðra ríkisháskóla til að taka upp
skólagjöld til að geta keppt við
einkaháskólana á jafnréttisgrund-
velli. Hvernig á Háskóli Íslands ann-
ars að geta keppt við einkaháskóla
sem fá sömu fjárveitingar og skapa
sér síðan umtalsverðar viðbótar-
tekjur með innheimtu skólagjalda?
Enn hefur samningur um opinber
framlög vegna rannsókna í Háskóla
Íslands ekki litið dagsins ljós en
rúmt ár er frá því að hann átti að
vera tilbúinn. Stúdentaráð leggur
áherslu á að samningurinn verði
undirritaður hið fyrsta og að Háskóli
Íslands fái notið sérstöðu sinnar sem
fullburða rannsóknarháskóli.
Stúdentaráð berst gegn öllum
hugmyndum um skólagjöld og sam-
þykkir ekki stefnu menntamálaráð-
herra sem neyðir þjóðskóla Íslend-
inga til að taka upp skólagjöld.“
INNLENT
Segja samkeppnis-
stöðu HÍ erfiða