Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Jólaostakaka
með trönuberjum
– ómissandi á aðventunni
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
„VÁ! Hann er miklu sætari í raun og
veru heldur en í bíómyndunum.“
Svona lýsir blómarósin Bergþóra
Þorsteinsdóttir bandarísku kvik-
myndastjörnunni Brad Pitt, sem kom
ásamt stórstjörnunum George Cloon-
ey, Matt Damon, Julia Roberts og
Andy Garcia óvænt inn í gleraugna-
verslunina Optical Studio í Leifsstöð
síðdegis í gær, en þar starfar Berg-
þóra.
Stjörnurnar spígsporuðu um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavík-
urflugvelli, ásamt um 30 manna föru-
neyti, í um hálfa klukkustund. „Ég
var bara á bleiku skýi,“ segir Berg-
þóra, „fyrst sá ég Matt Damon, svo
Brad Pitt. Matt Damon brosti til mín
og ég til baka. Hann er svo mikill
daðrari, en alveg ótrúlega fallegur.
Svo sá ég að allar konurnar sem
vinna á barnum í Leifsstöð voru bein-
línis stjarfar og þá leit ég til hliðar og
sá George Clooney og enn einu sinni
leit ég í kringum mig og sá þá Andy
Garcia. Ég hélt að mig væri að
dreyma.“ Bergþóra segir að stór-
stjörnurnar hafi verið ótrúlega
elskulegar í viðmóti, en Julia Roberts
hafi alls ekki viljað leyfa myndatök-
ur af sér, hún hafi verið svo þreytt.
„Þetta var ótrúlega skemmtilegt,
en verst var, að ég var eiginlega al-
veg orðlaus til að byrja með. Svo fór
ég að tala svolítið við Brad Pitt. Þá
leið hálftíminn bara á augabragði.
Hann vildi læra hvað gjaldmiðillinn
okkar heitir og ég kenndi honum að
segja krónur. Það tókst í nokkrum
tilraunum, en til að byrja með sagði
hann alltaf klónur!“ segir Bergþóra.
„Þetta var alveg hersing, 30–40
manns, það voru þarna miklar
stjörnur á ferð,“ segir Logi Úlf-
arsson framkvæmdastjóri. Hann seg-
ir að ekki hafi verið sjáanleg sérstök
öryggisgæsla í kringum stjörnurnar
þó svo að líklega hafi öryggisverðir
verið í hópnum. Allir í hópnum voru
með húfur sem á var letrað „Ocean’s
Eleven“ en leikararnir leika saman í
kvikmynd með þessu nafni. Hún var
frumsýnd í Los Angeles í Bandaríkj-
unum í fyrrinótt.
Stjörnufans frá Hollywood í Leifsstöð
Ég var bara á
bleiku skýi!
Ljósmynd/Burkni Birgisson
ENDURSKOÐENDUR eru að fara
yfir bókhald Fóðurblöndunnar hf.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins er staða fyrirtækisins ekki sú sem
gert var ráð fyrir þegar Búnaðar-
bankinn keypti fyrirtækið af Eignar-
haldsfélaginu GB og Kaupþingi í júní
síðastliðnum. Samkvæmt sömu heim-
ildum voru það væntingar væntan-
legra kaupenda Fóðurblöndunar af
Búnaðarbankanum sem brustu þegar
farið var að fara yfir stöðu fyrirtæk-
isins með þeim.
Þremur vikum eftir að Búnaðar-
bankinn keypti Fóðurblönduna yfir-
tóku Mjólkurfélag Reykjavíkur svf.
og Lýsi hf. fyrirtækið. Samkeppnis-
ráð ógilti þá yfirtöku í nóvember.
Forsaga þessa máls er sú að GB
fóður og Kaupþing keyptu mest allt
hlutafé í Fóðurblöndunni hf. af Gunn-
ari og Sigurði Garðari Jóhannssyni og
fjölskyldum þeirra í júní á síðasta ári.
GB fóður, sem er í eigu feðganna Páls
Ólafssonar og Bjarna Pálssonar frá
Brautarholti á Kjalarnesi, eignaðist
síðan 96,7% í félaginu haustið 2000.
Staða Fóðurblöndunnar
ekki eins og ætlað var
SAMKEPPNISRÁÐ tilkynnti í
gær að það hefði sektað Landssím-
ann hf. um 40 milljónir fyrir alvar-
legt brot á samkeppnislögum sem
fólst í samningi sem fyrirtækið
gerði við Hafnarfjarðarbæ um
síma- og gagnaflutningsþjónustu.
Samkeppnisráð telur að í samn-
ingnum felist alvarleg misnotkun á
markaðsráðandi stöðu fyrirtækis-
ins og brot á 11. grein samkeppn-
islaga. Fjarskiptafélagið Títan
kærði samninginn til samkeppnis-
ráðs en fyrirtækið hafði einnig
boðið í þjónustuna en Hafnarfjarð-
arbær hafnaði tilboðinu.
Í umræddum samningi var m.a.
kveðið á um að Hafnarfjarðarbæ
væri óheimilt að eiga viðskipti við
önnur fjarskiptafyrirtæki á samn-
ingstímanum. Þá fékk Hafnar-
fjarðarbær afslátt af viðskiptum
sem fóru fram 8–9 mánuðum áður
en samningurinn var undirritaður.
Landssíminn hefur tilkynnt að
málinu verði skotið til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála.
Óskar Jósefsson, sem ráðinn var
tímabundið sem forstjóri Lands-
símans í október sl., segir að ekki
sé ágreiningur um að með samn-
ingnum hafi verið brotið gegn sam-
keppnislögum. Á hinn bóginn hafi
þau ákvæði sem Samkeppnisstofn-
un telur brjóta í bága við lögin
aldrei komið til framkvæmda, að
frumkvæði Landssímans.
Þá hefur samkeppnisráð úr-
skurðað að Skífan skuli greiða 25
milljónir króna í sekt vegna samn-
ings sem fyrirtækið gerði við Að-
föng, dreifingarfyrirtæki Baugs.
Sektar
Lands-
símann og
Skífuna
Óviðunandi/6
Gert að greiða/4
Samkeppnisráð
KAUPMÁTTUR launa á almennum
vinnumarkaði hefur aukist um 5% frá
gerð kjarasamninga vorið 2000, að
því er fram kemur í nýju fréttabréfi
Samtaka atvinnulífsins. Þar segir
jafnframt að markmið samninganna
hafi náðst um að þeir lægst launuðu
hækkuðu umfram aðra og það sé
„ótvíræð niðurstaða úrvinnslu á
gögnum kjararannsóknanefndar“.
Samkvæmt þeim niðurstöðum
jókst kaupmáttur lægstu launa hjá
afgreiðslufólki um 16% frá febrúar
2000 til febrúar 2001 en um 6% hjá
þeim hæst launuðu. Kaupmáttur
lægst launaðs verkafólks jókst um
12% á sama tímabili og kaupmáttur
iðnaðarmanna með lægri mánaðar-
laun en 155 þúsund jókst um 14–15%
á meðan kaupmáttur þeirra sem hafa
yfir 215 þúsund í mánaðarlaun jókst
um 7%.
Í fréttabréfi SA kemur fram að
kaupmáttur launa á almennum
vinnumarkaði hafi aukist á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs um 9,5% mið-
að við sama tímabil árið 2000, sam-
kvæmt mælingum Kjararannsókna-
nefndar.
Lægstu launataxtar voru hækkað-
ir sérstaklega í samningunum vorið
2000 og var markmiðið að þeir lægst
launuðu hækkuðu umfram aðra. Í
fréttabréfi SA segir að sérstök úr-
vinnsla hafi nýlega verið gerð á
gagnasafni Kjararannsóknanefndar í
því skyni að fá úr því skorið hvort það
markmið hefði gengið eftir. Gerð var
athugun á launahækkunum sömu
einstaklinga í febrúar á þessu ári
miðað við febrúar árið 2000.
„Niðurstöður þessarar athugunar
eru ótvíræðar. Á fyrsta ári samnings-
tímans hækkuðu laun þeirra sem
lægst höfðu launin meira en þeirra
sem hærri laun höfðu. Þetta kemur
einkar skýrt fram hjá afgreiðslufólki,
þar sem kaupmáttur þeirra lægst
launuðu hækkaði um 16% á samn-
ingstímanum, en um 6% hjá þeim
hæst launuðu.“
Auk afgreiðslufólks tók könnunin
til verkamanna og iðnaðarmanna og
innan hvers hóps voru einstakling-
arnir flokkaðir eftir því hve há laun
þeirra voru. Miðað var við regluleg
laun og voru þau skilgreind sem mán-
aðarlaun að viðbættum föstum auka-
greiðslum, bónusgreiðslum og vakta-
álagi. Kaupmáttur afgreiðslufólks
með lægri mánaðarlaun en 95 þúsund
hafði aukist um 16% í febrúar á þessu
ári miðað við sama mánuð árið 2000
og að teknu tilliti til verðbólgu ársins
lætur nærri að kaupmáttaraukning
þessa hóps sé 8% frá upphafi samn-
ingstímans. Kaupmáttaraukning af-
greiðslufólks í heild var 10,7% á um-
ræddu 12 mánaða tímabili, þannig að
kaupmáttur nú í árslok er töluvert
hærri en í upphafi samningstímans,
að því er fram kemur í fréttabréfi SA.
Kaupmáttur talsvert meiri í árs-
lok en í upphafi samningstímans
Kaupmáttur lægstu launa hjá
verkafólki, sem hefur minna en 95
þúsund á mánuði, hafði aukist um
12% í febrúar 2001 frá sama mánuði
árið 2000 á meðan kaupmáttaraukn-
ing verkafólks með 125 til 185 þúsund
á mánuði jókst um 8%. Í heild var
kaupmáttaraukning launa verkafólks
í febrúar sl. 9,5% að því er fram kem-
ur í fréttabréfi SA.
Samtök atvinnulífsins segja kaupmátt launa hafa aukist um 5%
Lægstu launin hafa hlut-
fallslega hækkað mest
! " " #$
%" &'("! ( "'
' '"!%")
(!
)" %89:4(!"25!&+;&!3<<=>377
3?7
3:?
3:7
3@?
3@7
36?
367
33?
337
37?
377
<?
3<<= 3<<A 3<<< 6777 6773