Morgunblaðið - 09.07.2002, Side 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2002 37
eitthvað og fór að dunda við að búa
til lampa, lítil jólatré og fánastangir
til að gefa ættingjum og vinum.
Elsku besti afi minn. Þakka þér
fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir
mig og gefið mér. Þú varst alltaf til
staðar þegar ég þurfti á því að halda,
og þakklátur fyrir þau ár sem við átt-
um saman. Ég elska þig, þú verður
alltaf í hjarta mínu.
Þinn
Brynjar Örn.
Siggi afi var mjúkur, góður, sæt-
ur, skemmtilegur, fyndinn, duglegur
og hraustur. Hann vildi allt fyrir mig
gera og ég sakna hans.
Elsku afi, núna getum við ekki
lengur heimsótt þig og leikið okkur
með þér og spilað krikket í garðin-
um. Þú varst svo góður afi. Við sökn-
um þín svo mikið. Við pössum ömmu
fyrir þig.
Núna ertu ósýnilegur hjá Guði og
getur flogið um og passað okkur öll.
Þín langafabörn
Heiðar Már, Arnór Fannar,
Una Svava, Bergur Elí og
Bjarki Rafn.
Líf mitt var svo samtvinnað Sigga
föðurbróður mínum og vini, hann var
líka pabbi beztu vinkonu minnar og
var heimili þeirra á Sogaveginum
eins og mitt annað heimili. Ég veit til
dæmis að ef foreldrar mínir hefðu
verið fráteknir þegar ég valdi mér
þá, hefðu Siggi og Magga örugglega
orðið næst í röðinni. Við fylgdumst
að og með hvert öðru alla tíð, þegar
ég eignaðist mína fyrstu íbúð sá
Siggi um allt tréverkið og var það
vandað eins og allt annað sem hann
lét frá sér fara.
Ég á margar góðar minningar um
hann, allt frá því að fá að fara með í
berjamó á Moskovits, hlusta á hann
syngja á gleðistundum, sjá hann
svífa í dansi með Möggu sinni, glett-
ast og gæla við barna- og barna-
barnabörnin, sjá hann halda þétt ut-
an um afkomendur sína sem hann
var stoltur af.
Þegar Siggi varð sjötugur fyrir
ellefu árum gat ég glatt hann með
því að birtast óvænt í heimsókn til
þeirra Möggu á Rimini þar sem þau
dvöldu og fært honum eftirfarandi
ljóð frá pabba:
Sjötíu ár með sóma ber,
sæmd er öllum hann að þekkja.
En það finnst ýmsum eins og mér
að aldurinn sé tímaskekkja.
Allan staðið aldur þinn
í ístaði með gjörðum sönnum.
Að flestu leyti er ferillinn
til fyrirmyndar öðrum mönnum
Væri mennskan mæld á vog
myndi hún víst öllum sýna
að berðu hiklaust höfuð og
herðar yfir bræður þína.
Þú ert jafnan geð með glatt,
gildur líka andans sjóður.
Ég tel mig vera að segja satt
um Sigurð Ragnar litla bróður.
(Ben. Björnsson.)
Þegar við pabbi heimsóttum Sigga
og Möggu í Ölfusborgir fyrir tveim-
ur vikum lék hann á als oddi, sól-
brúnn og sætur. Þeir bræður urðu
eins og stráklingar (báðir á níræð-
isaldri) þegar þeir rifjuðu upp æsku-
árin góðu fram í Múla og á Þorbergs-
stöðum. Þeir hristust af hlátri yfir
strákapörum sínum og systkina
sinna sem var einstaklega samrýnd-
ur hópur. Þeir kepptust líka við að
fara með ljóð sem þeir kunnu
ógrynni af og botnuðu fyrir hvorn
annan ef minnið brást. Eftir þetta
ljúfa síðdegi með þeim hjónum fylgdi
Siggi okkur úr hlaði með gleði og
hlýju sem einkenndu nærveru hans.
Ég vil þakka frænda mínum sam-
fylgdina og styrkinn sem hann veitti
mér þegar ég þurfti á því að halda.
Megi Almættið leiða elsku Möggu,
Eygló, Elfu, Sigmar, Svan og aðra
ástvini.
Með kveðju frá fjölskyldu minni,
Birna Dís.
Sumarið 1954 byrjuðum við Siggi
að vinna saman á skurðgröfu frá
Vélasjóði ríkisins vestur á Rauða-
sandi. Ég var talinn vanur gröfu-
maður, hafði unnið á skurðgröfu
austur í Breiðdal í tvö sumur. Á
undraverðan hátt náði Siggi fljótt
tökum á skurðgröfunni. Kom það
mér reyndar ekki á óvart þar sem ég
þekkti af eigin raun hversu lagtækur
hann var. Mér var fljótt ljóst að
þarna var mættur til starfa kapp-
samur atorkumaður sem gaman var
að vinna með.
Þarna hófst það samstarf okkar
félaga sem átti eftir að verða okkar
sumarstarf í rúman áratug. Stund-
um komu konurnar okkar í sveitina
og dvöldu hjá okkur um tíma. Þá var
frítíminn gjarnan notaður til veiði-
ferða í nálæg vötn og veiðiár. Stund-
um vorum við heppin og fiskuðum
vel, ef ekki, þá voru sumarkvöldin
gefandi í góðum félagsskap.
Þú varst mikill gæfumaður í þínu
einkalífi því saman áttuð þið hjónin
55 ára sambúð að baki og voruð alla
tíð mjög samstiga. Þið áttuð ykkar
yndislega heimili sem öllum stóð op-
ið enda oft gestkvæmt hjá ykkur.
Um árabil höfðuð þið hjónin tekið
þátt í sundleikfimi hér í Árbæ og
eignast þar góða vini og félaga.
Þú varst maður sátta og samlynd-
is, vinur sem hægt var að treysta. Þú
varst vinur vorsins og alls nýgræð-
ings. Þér var einkar vel lagið að um-
gangast fólk, ekki hvað síst börn og
unglinga sem urðu þínir vinir og fé-
lagar.
Þökk fyrir allar samverustundirn-
ar í gegnum lífið, þökk fyrir allt sem
þú gafst og varst fjölskyldu okkar.
Megi almættið ávallt vaka yfir þér
og fjölskyldu þinni.
Ragnar og Friðgerður.
„Hvað segirðu – þetta getur bara
ekki verið“ sögðum við þegar okkur
bárust þessar mjög svo slæmu frétt-
ir af okkar góða félaga og vini. Ekki
höfðum við haft nokkra trú á öðru en
Siggi myndi hrista þetta af sér líkt
og önnur þau skipti þegar hjartað
hafði verið eitthvað að stríða honum.
Hann var eins og kötturinn sem átti
níu líf sem sýndi sig í því að ávallt
spratt hann aftur á fætur þó svo að
einhverjar „gangtruflanir“ hafi verið
að plaga hann á stundum. Sigga
fannst engin ástæða til að láta lífið
líða hjá án þess að hafa út úr því það
besta sem það bauð upp á. Það var
hans lífsviðhorf og því fylgdi hann
allt fram á síðasta dag.
Við bræðurnir ólumst upp í næsta
húsi við Möggu og Sigga og er ekki
ofsögum sagt að það hafi verið
ákveðin forréttindi. Forréttindi sem
höfðu góð áhrif á okkar samskipti og
vináttu alla tíð síðan. Einna minni-
stæðast frá þeim tíma er hversu mik-
il lífsgleði og spaug fylgdi þeim sem
þar bjuggu. Siggi var sjálfur
meinstríðinn og mikill húmoristi sem
auðvelt var að lynda við. Oft dvöld-
um við, ásamt foreldrum okkar, hjá
þeim um áramót. Siggi átti ávallt til
einhver ráð í pokahorninu þegar
vandi steðjaði að og var þá alveg
sama hvert vandamálið var. Okkur
eru sérstaklega minnisstæð áramót-
in þegar Val vantaði ekki nema ein-
hverjar mínútur upp á það markmið
sitt að geta vakað í 24 tíma samfellt.
Gekk það vel framan að en undir það
síðasta var hann alveg við að gefast
upp. Nú voru góð ráð dýr en þá var
það Siggi sem lét sér detta í hug að
útbúa vökustaura úr eldspýtum sem
notaðar voru með góðum árangri við
að halda augnlokunum opnum þann
tíma sem eftir var til að drengurinn
næði takmarki sínu. Þetta dugði og
ekki skemmdi fyrir að auðvelt var að
henda gaman að þessu samhliða
öðru því sem menn gleðjast yfir um
áramót.
Ekki er heldur hægt að láta hjá
líða að minnast þeirra samveru-
stunda sem við áttum í kringum bíla-
viðgerðir í bílskúrnum hjá Möggu og
Sigga. Hér fyrr á árum var það
nefnilega svo að „fínu“ bílarnir okkar
Jóhönnu þurftu á mjög reglubundnu
viðhaldi að halda, aldrei minna en
4–5 daga í mánuði var skúrinn hjá
Sigga upptekinn vegna þessa. Hann
var sérdeilis duglegur að aðstoða og
leggja til góð ráð þegar allt var kom-
ið í óefni. Ekki var samt nóg að njóta
aðstoðar hans í skúrnum því inni
stóð Magga vaktina við að útbúa alls
kyns góðgæti sem við gæddum okk-
ur á í hléum frá viðgerðunum. Vera
má að maður hafi verið farinn að
sinna bílaviðgerðunum meir en
nauðsyn krafði, einungis til að kom-
ast að eldhúsborðinu í Hraunbæ 87.
Að endingu er einnig gaman að
rifja upp afmælisboð Siggu nú ný-
verið þar sem Siggi var mættur, al-
veg glerfínn og strokinn eins og hans
var von og vísa. Hann talaði mikið
um það eftir á að þetta væri boð í lagi
enda var þar mikið sungið og trallað
sem var í takt við hans hugmyndir
um skemmtun. Siggi var hörkusöng-
maður og kunni mörg lög og texta,
sem hann hafði gaman af að syngja í
góðum hópi. Eiginkonur okkar hafa
einnig haft á orði að betri dansari
hafi verið vandfundninn svo segja
má að þar hafi verið á ferð maður
sem kunni að gera sér glaðan dag og
skemmta sér og gleðja aðra á góðum
degi.
Margs er enn að minnast sem ekki
gefst tækifæri til að gera skil í þess-
ari kveðju. Við bræðurnir, ásamt
fjölskyldum okkar, viljum að end-
ingu færa fjölskyldu Sigga okkar
dýpstu samúðarkveður. Við kveðjum
kæran vin og félaga til fjölda ára og
þökkum fyrir alla gleðina og um-
hyggjuna sem Siggi gaf fjölskyldum
okkar.
Guð blessi fjölskyldu þína og um-
vefji hana ljósi.
Logi, Valur og fjölskyldur.
Erfisdrykkjur
50-300 manna
Glæsilegir salir
Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu,
Engjateigi 11, sími 588 4460.
!"
#
#
$
%
! "
#"!!$ %#&! "
#"!!$ &' "
! "
" "! "
(")&*!!$
+ +',*"! "
-.&*!!$
/ /,$/ / /,#
&"
"
().0%)(1
220
+ !
&34
*"*
'
$ '
'
"
(
)
*
+
" ! !!$ 5!
'! "
5!
'" !!$ %"6&! "
" !!$
$/ / /,#
,
"
"
%+-%( 220
7 !8
6*' &*
-$
*
(
)
*
*
./
+' !$
+'
!!$
!! "
+',
*
!!$ 5!
&9 ! "
5
!!$ ( .6 &!+ ! "
6 : +' "
#
"
"
"
" (
; -9
220
)!
/34
6*' &*
-
0
1
2"1
(
06
< !!$ /', +! "
5!
&) /$
< ! "
". !!$
"
< !!$ 5!
/', "
$/ /,
=!
! "
!!$#
,
(12
! ! & !
+6*&
6*' &*
-
*
0
1
%
3
)
*
+
! "
=! &!
"('"
! "
( ('"
! "
('"
!!$
( %$('"
!!$#