Morgunblaðið - 09.07.2002, Page 48
MEN in Black II, önnur myndin
um svartklæddu geimverubanana,
var langvinsælasta mynd banda-
rískra bíóhúsa yfir helgina og dró
að fleiri gesti en næstu þrjár mynd-
ir til samans.
Myndin var frumsýnd á þjóðhá-
tíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí og í
fræðum bíóaðsóknar telst helgin því
til hinna löngu helga. The Indep-
endence Day á enn metið yfir þessa
löngu helgi en engin mynd í sög-
unni hefur hlotið eins mikla aðsókn
yfir hina hefðbundnu þriggja daga
helgi frá föstudegi til sunnudags.
Svo skemmtilega vill til að fyrri
Men in Black-myndin sló þetta
sama met er hún var frumsýnd
sömu helgi 1997 og hafði haldið því
fram að þessu. Glöggir höggva
væntanlega eftir því að leikari
nokkur virðist vera orðinn sannkall-
aður þjóðhátíðarleikari en Will
Smith leikur aðalhlutverkið í öllum
þessum vinsælustu myndum
þjóðhátíðarhelgarinnar.
Þar með féll Mr. Deeds með
Adam Sandler niður í annað sæti.
Aðrar myndir sem frumsýndar
voru fyrir helgi voru krakkakörfu-
boltamyndin Like Mike og teikni-
myndin The Powerpuff Girls Movie.
Fyrrnefnda er með guttunum Jon-
athan Lipnicki úr Stúart Litla,
rapparanum Lil’Bow Wow og hell-
ing af frægum körfuboltastjörnum
á borð við Jason Kidd, Allen Iver-
son, Gary Payton, Chris Webber og
Alonzo Mourning en síðarnefnda er
byggð á teiknimyndaflokki sem
sýndur er m.a. á Cartoon Network.
Framleiðendur Men in Black II
Columbia eru að vonum sáttir við
gengi myndarinnar og hafa þeir nú
lofað því að enn fleiri myndir um
svartklæddu mennina muni fylgja.
Columbia framleiddi einnig vinsæl-
ustu mynd ársins til þessa,
Köngulóarmanninn, og þarf því
vart að koma á óvart að allt stefni í
að þetta verði metár hjá fyrirtæk-
inu.
Viðbrögð gagnrýnenda við Men
in Black II hafa verið blendin en
sýnu fleiri eru neikvæðir í garð
hennar og segja hana of mikla end-
urtekningu á fyrri myndinni til að
hægt sé að hafa gaman af. Aðrir
líta þó á það sem kost og segja leik-
stjórann Sonnenfeld hafa fært unn-
endum fyrri myndarinnar nákvæm-
lega það sem þeir vildu, meira af
því sama.
!
! "#$ %
" &'("
%") &
$""*&""
%$)"+,
%-".()++/ "0
0 $ "+ %121
Svartklæddir á
degi sjálfstæðis
skarpi@mbl.is
Men in Black II mynd þjóðhátíðarhelgarinnar vestanhafs
Will Smith: Hinn eini sanni
þjóðhátíðarleikari, nokkurs kon-
ar fjallkarl þeirra Kana.
FÓLK Í FRÉTTUM
48 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
! "#
"$%&'
()( )$$$
eva
ÚTSALAN
hefst á morgun kl. 10.00
Laugavegi, (2. hæð)
s. 562 0625
(sjá auglýsingu á morgun)
ÚTSALAN
hefst á morgun kl. 10.00
Laugavegi, s. 511 1720 Kringlunni s. 568 9017
(sjá auglýsingu á morgun)
KOKKURINN við kabyssuna
hérna er enginn annar en Flosi Þor-
geirsson, sá mikli meistari sem lék í
eina tíð með hinni sálugu sveit Ham.
Hann hefur undanfarin ár alið mann-
inn í kóngsins Köben og fór hann
fljótlega að klæja í rokkfingurna er út
var komið, enda ómögulegt að kenna
gömlum rokkhundi
að sitja. Hann setti
því hljómsveitina
Drep á stofn og af
þessari plötu að
dæma er sannar-
lega ekki drepleið-
inlegt að vera í henni. Frá 1997 hefur
hún verið eins konar rokk-félagsmið-
stöð Íslendinga sem búa í Baunalandi
og listinn yfir þá sem hafa runnið í
gegnum raðir hennar og eru nú starf-
andi með henni er einkar tilkomumik-
ill. Stofnendur voru Flosi, Grímur
Atlason (fyrrum Rosebudlimur),
Kikkó (sem var í Akureyrarsveitinni
Hún andar) Boggi bassi úr Húsavík-
ursveitinni Rotþró (hver man ekki
eftir snældunni Haltu kjafti, éttu skít,
boraðu gat á Reykjavík?) og Rúnar
Magnússon, Vindva Mei-limur. Síðar
bættist Gunni, fyrrum trymbill hinn-
ar mögnuðu og vanmetnu sveitar
I.N.R.I., í hópinn og einnig Pétur
Þórðarson (Dýrið gengur laust,
Bless). Svo hafa meðlimir verið að tín-
ast úr hópnum og aðrir bæst við, eins
og gengur og gerist í þessum bransa.
Nýjasta viðbótin er enginn annar en
Karl Guðmundsson sem lék í Sorori-
cide og Bellatrix hér í eina tíð.
Ham hittir Jesus Lizard úti á götu
og sveitirnar taka spjall saman.
Ákveða að hittast um kvöldið og
djamma saman. Útkoman birtist svo
á disknum Doctor E.P., þar sem sveit-
irnar spila undir dulnefninu Drep.
Svona er a.m.k. myndin í huga mínum
þegar rennt er yfir þessa fjögurra
laga stuttskífu. Þessi lýsing er ekki
meint sem niðrandi athugasemd því
platan rokkar feitt, það má hún eiga.
En þessir tveir áhrifavaldar standa
bara svona ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum. Sigurjón Kjartansson og Ótt-
ar Proppé, fyrrum söngspírur áður-
nefndrar Ham, endurfæðast t.a.m. í
rödd Flosa og Kikkos.
Annars er þetta hörkurokk, þó
frumleikanum sé ekki fyrir að fara.
Það er svo greinilegt að hér fara
hungraðir rokkhundar sem muna
tímana tvenna, og það virðist skila
sér, bæði í þéttleika og öryggi. Hljóm-
urinn er feitur og góður og þegar best
lætur er þetta groddarokk á heims-
mælikvarða. „Ja, ja, det er nu meget
godt.“
Tónlist
Groddarokk
frá Kaupinhafn
Drep
Doctor E.P.
Alternate
Doctor E.P., stuttskífa Dreps. Sveitin er
skipuð þeim Flosa (gítar, raddir), Kikko
(rödd), Pétri (gítar), Bogga (bassi) og
Gunna (trommur). Lög og textar eftir
Flosa, Grím, Pétur og Kikko. Stjórn upp-
töku var í höndum Marc Alexanders.
Arnar Eggert Thoroddsen
Drep á hljómleikum.
BANDARÍSKI kvikmyndaleik-
stjórinn John Frankenheimer lést
á laugardaginn 72 ára að aldri.
Banamein hans var hjartaáfall.
Ferill Frankenheimers spann-
aði nær 5 áratugi og var hann
m.a. tilnefndur til 14 Emmyverð-
launa. Var hann kannski fræg-
astur fyrir samsærismyndir sínar
á borð við The Manchurian
Candidate með Frank Sinatra og
Birdman of Alcatraz með Burt
Lancaster sem báðar eru frá
1962.
Ferillinn hófst 1953 þegar hann
gekk til liðs við CBS sjónvarps-
stöðina og vann þar meira og
minna allan 6. og 7. áratuginn.
Hann vakti fyrst athygli 1961
með mynd sinni The Young Sav-
ages sem skartaði Burt Lancaster
í aðalhlutverki. Ferli hans hnign-
aði nokkuð á 8. og 9. áratugnum
en eftir að hann hafði snúið sér
að sjónvarpsmyndagerð með góð-
um árangri fyrir áratug fékk
hann orðið fleiri tækifæri til að
gera bíómyndir og meðal síðustu
mynda sem hann gerði voru Ron-
in og Reindeer Games.
John Frankenheimer
Frankenheimer allur
Reuters