Morgunblaðið - 19.12.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAINNFLYTJENDUR eru
nokkuð bjartsýnir um söluhorfur á
næsta ári eftir tvö ákaflega mögur ár.
Þannig gerir Bílgreinasambandið ráð
fyrir að sala á nýjum fólksbílum muni
aukast um 15% á næsta ári og fari í
um átta þúsund bíla en ætla má að
salan í ár verði um sjö þúsund bílar en
í fyrra voru seldir rétt tæplega 7.250
fólksbílar. Til samanburðar má nefna
að árið 2000 seldust 13.569 bílar og
15.377 árið 1999.
Erna Gísladóttir, framkvæmda-
stjóri B&L og formaður Bílgreina-
sambandsins, segist telja að botnin-
um hafi væntanlega verið náð í
apríl–maí í vor og menn séu svona
hóflega bjartsýnir. „Það er sameigin-
legt mat bæði Bílgreinasambandsins
og bankanna að markaðurinn muni
vaxa um kringum 15% á næsta ári.
Það er í raun ekki mikil aukning því
endurnýjunarþörfin er kannski í
kringum tólf þúsund bílar á ári. Það
verður t.d. mjög lítið af eins og
tveggja ára gömlum bílum á sölu á
næsta ári. Þetta er sveiflukenndur
markaður og reynsla okkar er sú að
sveiflan í sölunni sé frekar hægari
upp á við en niður á við en endurnýj-
unarþörfin er mikil og birgðir af not-
uðum bílum hjá umboðunum frekar
litlar.“
Erna segir að áætlanir um álvers-
framkvæmdir skipti einnig miklu
máli og hvenær þær fari að skila sér í
hagkerfinu ef af þeim verður. Verði
ekki af álversframkvæmdum sé vart
hægt að búast við mikilli uppsveiflu í
bílasölunni.
Aðspurð segist Erna ekki telja að
vaxtalækkanir Seðlabanka hafi skilað
sér í aukinni eftirspurn eftir bílum svo
nokkru nemi.
Júlíus Vífill Ingvarsson hjá Ingvari
Helgasyni segist horfa með nokkurri
eftirvæntingu og bjartsýni til næsta
árs. „Við höfum gert rekstraráætlanir
okkar út frá svipaðri aukningu og Bíl-
greinasambandið en við förum þar að
auki inn í nýja árið með spennandi
nýjar gerðir sem munu skila sér í auk-
inni sölu á næsta ári. Við gerum þess
vegna m.a. ráð fyrir aukningu í mark-
aðshlutdeild Ingvars Helgasonar hf.
og Bílheima ehf. “ Júlíus segir það
hafi aukið vandann að krónan veiktist
verulega samfara samdrættinum.
„Krónan hefur verið að styrkjast að
undanförnu og ýmislegt sem bendir
til þess að krónan muni halda þessari
stöðu einhvern tíma þótt gengisspár
séu einhverjar óáreiðanlegustu spár
sem hægt er að gera. Það er þegar
komin fram veruleg endurnýjunar-
þörf á bílaflotanum í landinu og efna-
hagslífið er í heild sinni sterkt og með
auknum kaupmætti og bjartsýni al-
mennings bendir allt til þess að næsta
ár verði gott ár í bílgreininni.“
Búast við hóflegri aukningu
Jón Trausti Ólafsson hjá Heklu
segir menn nokkuð bjartsýna en þó
geri menn ekki ráð fyrir mikilli sölu-
aukningu á næsta ári. „Við hjá Heklu
reiknum þó með að það verði einhver
aukning frá því sem verið hefur enda
er þetta versta árið á þessum markaði
í langan tíma þótt við höfum raunar
aukið okkar hlutdeild nokkuð á mark-
aðnum og þá sérstaklega á síðustu
mánuðum ársins. Útlitið er, tel ég,
ágætt og við stöndum vel hvað varðar
nýjar tegundir.“
Aðspurður um vaxtalækkanir segir
Jón Trausti að hjá Heklu finni menn
fyrir því að fleiri einstaklingar komi
og kaupi nýja bíla en á sama tíma í
fyrra. „Samt sem áður er það okkar
mat að vaxtalækkanir þyrftu að skila
sér enn betur til neytenda en raunin
hefur verið til þessa.“
Gert ráð fyrir að sala
nýrra bíla aukist um 15%
Bílgreinasambandið gerir ráð fyrir að sala á nýjum fólksbílum muni aukast um 15% á næsta ári. Talið er að salan í
ár verði um 7.000 bílar en endurnýjunarþörfin er áætluð um 12.000 bílar á ári.
BRESKU hljómsveitirnar
Coldplay og Ash troða upp í
Laugardagshöll í kvöld en í
gær fóru Jonny Buckland gít-
arleikari Coldplay og Guy
Berryman bassaleikari hljóm-
sveitarinnar ásamt Tim
Wheeler, söngvara Ash, í snjó-
sleðaferð á Langjökli. Þá
skoðuðu þeir einnig Gullfoss
og Geysi. Munu þeir hafa
skemmt sér mjög vel þrátt fyr-
ir leiðinlegt veður á jöklinum
og verið undrandi á því hversu
lítill snjór væri á landinu.
Björn Steinbekk, einn tón-
leikahaldara, segir að alls
komist 5.500 gestir í Laug-
ardalshöllina. Örfáir miðar
séu eftir, þeir verði seldir í
anddyri Hallarinnar frá há-
degi. Hljómsveitirnar ætli að
taka úrval af sínum bestu lög-
um, Coldplay muni líklega
taka alla nýju plötuna og
hugsanlega einhver jólalög til
að koma fólki í jólaskap.
Morgunblaðið/Palli Sveins
Jonny, Tim og Guy létu fara
vel um sig í skála uppi á Lang-
jökli eftir skemmtilega snjó-
sleðaferð á jöklinum í gær.
Coldplay og
Ash undr-
andi á snjó-
leysinu
SÍÐASTI skiladagur til að
póstleggja jólapakkana innan-
lands er í dag, fimmtudaginn
19. desember, svo þeir komist
til viðtakanda fyrir jól. Skila-
dagur jólakorta innanlands er
föstudagurinn 20. desember.
Móttökustaðir eru öll pósthús á
landinu og einnig er Íslands-
póstur með jólapósthús í
Kringlunni, Smáralind, Mjódd-
inni og Glerártorgi á Akureyri í
desember þar sem hægt er að
póstleggja jólasendingar. Þar
er opið á verslunartíma.
Morgunblaðið/Jim Smart
Skiladagar
jólapakka
og korta
innanlands
Á ÁRLEGRI ráðstefnu Ferðamála-
samtaka Evrópu, European Travel
Commission, í New York í gær kom
fram að talið er að ferðalög á milli
Evrópu og Bandaríkjanna aukist á
næstu árum og nái hámarki 2006.
Einar Gústavsson, stjórnarformaður
samtakanna og framkvæmdastjóri
skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands í
New York, segir að Bill Clinton, að-
alræðumaður, hafi meðal annars
sagt sér að á dagskrá væri að spila
golf á Íslandi.
Einar segir að um 600 manns hafi
sótt ráðstefnuna á Waldorf-Astoria
hótelinu í New York í gær og þar af
helstu forystumenn í ferðaiðn-
aðinum í Evrópu og Bandaríkj-
unum. Rætt hafi verið um vanda-
málin sem blöstu við
ferðaiðnaðinum og meðal annarra
hefði forstjóri Continental-
flugfélagsins fjallað um rekstur
flugfélaga og æðsti maður ferða-
mála í Bandaríkjunum greint frá út-
litinu í ferðaiðnaðinum á næstu ár-
um.
Ferðamálasamtök Evrópu eru um
hálfrar aldar gömul og hefur Einar
verið formaður þeirra í þrjú ár. Þau
eru ábyrg fyrir heimskynningu á
Evrópu sem áfangastað og segir
Einar að á þessu ári hafi verið eytt
sem samsvarar um 500 til 600 millj-
ónum króna í kynningu á Evrópu í
Bandaríkjunum. „Við fengum Bill
Clinton, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna, sem aðalræðumann, og í
máli hans kom fram að ferðaþjón-
ustan væri í eðli sínu hnattræn og
því væri ekki hægt að hugsa stað-
bundið og segja til dæmis að Evrópa
væri örugg fyrir hryðjuverkum.
Taka þyrfti á vandamálinu meðal
annars með því að opna heiminn fyr-
ir múslimum og nálgast þá meira en
gert hefði verið. Þetta væri verkefni
allra og enginn gæti skorast undan.“
Einar segir að Clinton hafi sagt
sér frá tveimur Íslandsferðum sín-
um á áttunda áratugnum og hann
hefði áhuga á því að heimsækja
landið og fara í golf. „Hann sagðist
hafa íhugað alvarlega heimsókn til
Íslands til að fara í golf, því hann
hefði heyrt að um 50 golfvellir væru
á landinu og margir þeirra afar fal-
legir.“
Clinton stefnir á golf á Íslandi
Ljósmynd/Maria R. Bastone
Einar Gústavsson, stjórnarformaður Ferðamálasamtaka Evrópu og fram-
kvæmdastjóri skrifstofu Ferðamálaráðs í New York, og Bill Clinton, fyrr-
verandi forseti Bandaríkjanna, á miðri mynd, á ráðstefnunni í gær.
Fyrrverandi
Bandaríkjafor-
seti á ráðstefnu
Ferðamálasam-
taka Evrópu
„Róðurinn er ein fárra æfinga sem
styrkja allan líkamann. Kostir róðr-
arvélanna eru því ótvíræðir í sam-
anburði við mörg önnur líkams-
ræktartæki,“ segir hann. Á síðasta
ári keppti Ómar á kanadíska meist-
aramótinu í Toronto og síðan í Tók-
ýó. Náði hann 5. sæti á báðum mót-
um í sínum þyngdarflokki.
Í innanhússróðri er m.a. keppt í
svokallaðri ólympískri vegalengd,
sem er 2 km og keppa bestu ræðarar
heimsins að því að ljúka róðrinum á
innan við 6 mínútum. Ómar hefur
náð tímanum 6.29 mín. með harm-
kvælum, því hann lagði svo hart að
sér að hann byrjaði að kasta upp
þegar hann stóð upp úr róðrarvél-
inni, fékk mjólkursýrur í fæturna og
í stuttu máli sagt – keyrði sig út. Þá
á hann 62. besta tímann í maraþon-
róðri eftir að hafa róið kílómetrana
42 á 2:49:45 klst. Bandaríska mótið
er mun sterkara en það japanska og
kanadíska og segist Ómar verða
sáttur við að skipa sér á bekk með
50 bestu keppendum.
ÓMAR Ingþórsson róðrarkappi, tvö-
faldur háskólameistari í innanhúss-
róðri, keppir á heimsmeistaramóti í
þessari nýstárlegu íþróttagrein í
febrúar. Mótið fer fram í Wash-
ington í Bandaríkjunum og standa
nú yfir stífar æfingar hjá Ómari, en
hann mun vera fyrsti Íslendingurinn
sem keppir á heimsmeistaramóti í
innanhússróðri. Þessi íþróttagrein
nýtur töluverðra vinsælda erlendis
en þá er keppt í sérstakri vél sem
líkir eftir venjulegum róðri á kapp-
róðrarbát. Þeir sem stunda kapp-
róður á vötnum nota vélarnar utan
keppnistímabilsins til að halda sér í
formi. Er innanhússróðurinn nú
orðinn sérstök keppnisgrein um all-
an heim. Ómar byrjaði að æfa venju-
legan kappróður í Kanada á náms-
árum sínum við Guelph-háskólann
og æfði 12 sinnum í viku. Sérhlífn-
inni var ekki fyrir að fara, enda far-
ið út á vötnin kl. hálffimm á morgn-
ana á meðan keppnistímabilið stóð
yfir og keppt á sunnudögum. Ómar
keppti þá á fjögurra og átta manna
bátum. „Þetta tók mjög á, en var
mjög heillandi. Það er ekkert eins
fallegt og að vera úti á vatni eld-
snemma morguns með vasaljós og
róa fram í birtingu. Því fylgir ein-
stök tilfinning að róa innan um hels-
ingja í algjörri kyrrð,“ segir hann.
Tvöfaldur háskólameistari
Að loknu þessu dýrðartímabili
voru róðrarvélarnar hins vegar
dregnar fram og æft innanhúss 6
sinnum í viku. Ómar keppti í innan-
hússróðrinum og varð háskóla-
meistari í greininni 2001 og 2002.
Morgunblaðið/Kristinn
Ómar Ingþórsson, 32 ára, er hálfri
mínútu frá þeim bestu í heiminum
og gekk næstum af sér dauðum í
einni keppninni.
Keppir á heims-
meistaramóti í
innanhússróðri