Morgunblaðið - 19.12.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opið til 22.00
til jóla
...
er
m
eð
a
llt
f
yr
ir
jó
lin
Jóladagskrá í dag
Jazzdúettinn Desmin kl. 16.00
leikur þægilegan jólajazz.
Jólaskemmtun í dag kl. 17.00
Sigga Beinteins, Grétar Örvars
og 3 jólasveinar á torginu á 1. hæð.
Jazzdúettinn Augnablik kl. 20.00
leikur skemmtilegan jólajazz.
SÍGRÆN jólatré, málning, girð-
ingarefni, sokkabuxur og leg-
steinar var meðal þess sem beið
flutnings eitthvert á landinu auk
jólapakkana þegar Morgunblaðið
leit inn á vöruflutningamiðstöð
Landflutninga í Reykjavík í gær.
Starfsmenn voru í óða önn að
ferma bíla með alls kyns varningi,
á leið norður yfir heiðar, bílarnir
á leið vestur og austur frá höf-
uðborginni nýfarnir úr hlaði.
Ólafur Þorláksson, bílstjóri hjá
Landflutningum, hefur ekið milli
Reykjavíkur og Akureyrar allt frá
árinu 1993. Hann er mjög ánægð-
ur með hversu gott veðrið og
færðin hefur verið að undanförnu.
„Þetta er mjög fínt, sparar manni
mikið og léttir keyrsluna,“ segir
hann.
Ólafur ætlaði með vörubíl og
tengivagn norður, en alls má hann
aka 49 tonna þungum bíl. „Það er
nóg að flytja alla daga,“ segir
Ólafur þegar hann er inntur eftir
því hvort það sé ekki mikið að
gera nú fyrir jólin. Jólapökkunum
fari fjölgandi síðustu dagana fyrir
jól en hann flytji allt frá A til Ö.
Þó hann hafi þann starfa að
koma jólapökkunum milli lands-
hluta segir Ólafur ekki upplifa sig
sem jólasvein. „Þetta eru allt
meira og minna jólasveinar
hérna,“ segir hann kerskur. Sam-
starfsmaður hans hváir og spyr
hverju hann sé nú að ljúga að
blaðamanni. „Þetta eru allt hressir
strákar,“ bætir hann við.
Leiðin batnar í hvert sinn
Einar Guðmundsson var að
leggja í hann til Sauðárkróks, en
hann hefur verið bílstjóri í 26 ár
og ekið oft milli Skagafjarðar og
Reykjavíkur. Er hann sammála
Ólafi um að tíðafarið hafi verið
frábært að undanförnu. „Það hef-
ur sjaldan verið betra,“ segir
hann.
Spurður hvort það geti ekki ver-
ið leiðigjarnt að fara alltaf sömu
leiðina segir Einar glettinn að
leiðin batni í hvert sinn sem hann
fari hana. „Það er alltaf gaman að
koma niður í Skagafjörðinn, að
koma heim,“ sagði Einar. Bílstjór-
astarfið sé alls ekki einmanalegt
starf, hann segist hlusta á útvarp-
ið til að stytta sér stundir en þver-
tekur fyrir að hann taki undir með
jólalögunum þó enginn heyri.
Hefur ekið 1,5 milljónir
kílómetra á 17 árum
Gunnlaugur Sveinbjörnsson bíl-
stjóri hjá Alla Geira hf. á Húsavík
hafði viðkomu á Akureyri á leið
sinni frá Reykjavík til Húsavíkur.
Gunnlaugur hefur verið flutn-
ingabílstjóri í 17 ár og ekið um 1,5
milljónir kílómetra á því tímabili.
Hann þekkir því mismunandi að-
stæður á vegum landsins og sagði
að mikil ísing hefði verið á vegum
að undanförnu. Slíkar aðstæður
gætu reynst ökumönnum hættu-
legar. Gunnlaugur gagnrýndi
Vegagerðina og sagði að þar á bæ
hefðu menn verið seinir að taka
við sér, þegar mikil ísing var í Ból-
staðarhlíðarbrekkunni í Húna-
vatnssýslu í síðustu viku. Hins
vegar væri til fyrirmyndar hvern-
ig hugsað væri um Öxnadalsheið-
ina.
Gunnlaugur sagði að veðrið á
landinu væri að breytast og hlýna.
„Við erum ekki að glíma við snjó í
dag, heldur miklu frekar ísingu og
rok. Snjóalög eru að minnka og
snjómokstur hefur aukist. Áður
fyrr var aðeins mokað tvisvar í
viku milli Húsavíkur og Akureyr-
ar og þrisvar í viku milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur. En það hefur
ekki orðið ófært í vetur vegna
snjóa.“ Það hefur komið fyrir að
Gunnlaugur hafi verið fjóra daga
á leiðinni milli Húsavíkur og
Reykjavíkur og þá hefur hann á
sínum ökumannsferli orðið veð-
urtepptur fyrsta vetrardag og
þurft að setja keðjur undir á Jóns-
messunni. Þá hefur hann gist á
ótal stöðum á leiðinni í vondum
veðrum.
Gunnlaugur sagði að Vík-
urskarðið hefði oft reynst bíl-
stjórum farartálmi og væri
ástandið jafnan verra að vest-
anverðu. Nú hefur Gunnlaugur
fengið nýjan fjallveg til að glíma
við á leiðinni suður, því vegna þess
að brúin yfir Skjálfandafljót í
Köldukinn er orðin svo léleg þurfa
stórir og þungir bílar að aka yfir
Fljótsheiði. Fjallvegirnir eru því
orðnir fimm. Gunnlaugur sagði að
þeir bílar sem Alli Geira gerði út
væru ávallt mjög vel búnir og það
skipti miklu máli.
Morgunblaðið/Golli
Einar Guðmundsson gengur frá
pökkum og pinklum sem eiga
örugglega eftir að gleðja
einhvern í Skagafirði um jólin.
Vörubílstjórar ánægðir
með gott tíðarfar og færð
Morgunblaðið/Golli
Það er í mörg horn að líta áður en lagt er í hann og best að gleyma engu.
Ólafur Þorláksson við farm sem var á leiðinni til Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
Gunnlaugur Sveinbjörnsson, flutningabílstjóri frá Húsavík, við bíl sinn fyr-
ir utan Flytjanda á Akureyri áður en hann hélt áfram suðurferðinni.
HÆTT verður frá og með næstu áramótum að
greiða læknum á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
sérstaklega fyrir ferliverkaþjónustu sem veitt er á
göngudeildum sjúkrahússins. Stjórnarnefnd LSH
ákvað á fundi sl. þriðjudag að samningar um ferli-
verkagreiðslur verði ekki endurnýjaðir um ára-
mótin en stjórnarnefndin ákvað fyrir ári að leggja
þetta kerfi af um næstu áramót.
Samkvæmt upplýsingum Jóhannesar M. Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra lækninga á LSH,
hefur sérstök ferliverkanefnd verið að störfum
undanfarna mánuði en henni var falið að leita
nýrra leiða svo eftir sem áður yrði til staðar ein-
hvers konar hvatning á göngudeildarþjónustu
spítalans í stað ferliverkakerfisins. Nefndin komst
að þeirri niðurstöðu að mögulegt væri að búa til
bónuskerfi til viðbótar fastlaunakerfi spítalans að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum sem fæli m.a. í
sér að greiðslur dreifðust ekki eingöngu til lækna
fyrir læknisverk heldur til fleiri starfstétta, sem
bera ábyrgð á þjónustu við ferliverkasjúklinga á
göngudeildum.
Hugmyndir ferliverka-
nefndar settar til hliðar
Nefndin gerði grein fyrir stöðu málsins á stjórn-
arnefndarfundi í seinustu viku en á fundinum sl.
þriðjudag hafði nefndin snúið við blaðinu, sk. upp-
lýsingum Jóhannesar, þar sem ljóst þótti að ýmsir
erfiðleikar yrðu á útfærslu þessara hugmynda.
Var ákveðið að leggja þessar hugmyndir til hliðar
og að frá og með næstu ármótum yrði eingöngu í
gildi fastlaunakerfi sjúkrahússins. Að sögn hans
gera kjarasamningar lækna þó ráð fyrir þeim
möguleika að umbunað verði svolítið fyrir sérstök
tilgreind verk og gerir hann ráð fyrir að stjórn-
endur spítalans muni notfæra sér þá möguleika.
„Að öðru leyti verða þessi beinu tengsl við afköstin
rofin,“ segir hann.
Mun væntanlega valda ókyrrð
Spurður álits hvaða afleiðingar þessi ákvörðun
muni hafa sagði Jóhannes að hún muni væntan-
lega valda ókyrrð hjá hluta lækna sem starfa við
spítalann, „og það mun ugglaust verða til þess að
einhverjir vilja flytja starfsemi sem þeir hafa haft
hér innanhúss út fyrir húsið og það munu áreið-
anlega rísa einhverjir úfar út af því,“ svaraði hann.
LSH fellir niður um áramót tvöfalt launakerfi vegna vinnu lækna á spítalanum
Læknum ekki greitt sér-
staklega fyrir ferliverk AÐ UNDANFÖRNU hefur veriðunnið af miklum krafti við nýjanbarnaspítala Hringsins við Hring-braut í Reykjavík og verður hann
vígður á 99 ára afmæli Kvenfélagsins
Hringsins 26. janúar.
Ásgeir Haraldsson, prófessor og
forstöðumaður á barnaspítala
Hringsins, segir að verktakarnir séu
á lokasprettinum, en allt upp í 80
manns hafi unnið langan vinnudag í
byggingunni að undanförnu. Í janúar
taki síðan við uppsetning tækja, still-
ingar á tækjum og ýmis frágangur.
Ásgeir segir að aukið rými, m.a.
eigin göngudeild og eigin bráðamót-
taka, kalli á meiri tækjaþörf. Tals-
verður hluti tækja sem séu í notkun
verði fluttur í nýja spítalann eftir
vígsluna, en ný tæki, rúm og fleira,
verði sett upp fyrir vígsluna.
Barnaspít-
alinn vígður
26. janúar
BÚIÐ er að safna fyrir 116
brunnum í jólasöfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar fyrir hreinu
vatni í Afríku, en takmarkið er
að ná inn fyrir 34 brunnum til
viðbótar.
Hver brunnur dugar 1.000
manna þorpi í áratugi og sam-
kvæmt upplýsingum frá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar hefur fjöldi
fólks óskað eftir að greiða hærri
framlög en á útsendum gíró-
seðlum og sumir greiði jafnvel
fyrir heilan brunn. Gjafir hafi
borist frá nemendum og kenn-
urum ýmissa skóla sem hafi
safnað fé fyrir vatni í stað þess
að gefa hver öðrum gjafir eða
látið andvirði farsímanotkunar í
einn dag renna til vatnsverk-
efna.
Samstarf Hjálparstarfs
kirkjunnar og fólksins sem fær
vatnið forðar íbúunum frá ýms-
um sjúkdómum sem smitast
með óhreinu vatni. Hjálparstarf
kirkjunnar leggur líka áherslu á
að þegar brunnur er kominn í
þorp þurfa konur og stúlkur,
sem sækja vatn í hefðbundin
vatnsból, ekki lengur að ganga
margra kílómetra leið eftir
vatni og hafa fyrir vikið tíma til
að sækja skóla eða sinna betur
börnum og öðrum verkum.
Jólasöfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar
Búið að
safna
fyrir 116
brunnum