Morgunblaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DIMMASTI dagur ársins nálgast
óðfluga, en á laugardag eru vetr-
arsólstöður. Ef engar væru jóla-
skreytingarnar mætti halda að
myndin hefði verið tekin á fal-
legu og aldimmu ágústkvöldi. Úti
hefur verið 10 stiga hiti, vatnið á
Reykjavíkurtjörn gárast varla og
borgarljósin speglast í vatninu.
Íslenskur vetur getur sannarlega
verið skrýtið fyrirbæri, svo mikið
er víst.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hlýja í
dimmunni
SIGURJÓN
Jónsson varði
doktorsritgerð
sína við Stan-
ford-háskóla í
Kaliforníu
hinn 30. maí
síðastliðinn.
Titill ritgerð-
arinnar er
„Líkanreikn-
ingar af hreyf-
ingum jarð-
skorpunnar á eldfjöllum og við
jarðskjálfta mældar með bylgju-
víxlmælingum frá radar gervi-
tunglum“ (e. Modeling volcano
and earthquake deformation from
satellite radar interferometric ob-
servations).
Leiðbeinendur verkefnisins voru
Howard Zebker og Paul Segall
sem báðir eru prófessorar við
Stanford-háskóla. Andmælendur
við vörnina voru prófessorarnir
David Pollard, Gregory Beroza og
Norman Sleep.
Mælingar úr gervitunglum
Úr radarmælingum frá gervi-
tunglum má vinna samfelld kort af
hæðarbreytingum sem verða á yf-
irborði jarðar með sentímetra ná-
kvæmni. Ýmsar hæðarbreytingar
geta átt sér stað sem sýnilegar
eru með radarmælingum, t.d. á
eldfjöllum og við jarðskjálfta. Í
ritgerðinni er byrjað á því að
fjalla um óvissu í radarmælingum
og sérstaklega skoðaðar skekkjur
sem orsakast af óreglulegri raka-
dreifingu í gufuhvolfinu. Þá eru
líkanreikningar af hreyfingum
sem mældust á nokkrum eld-
fjöllum á Galapagoseyjum notaðir
til þess að ákvarða hvar og hversu
mikil kvika er að safnast fyrir
undir eldfjöllunum.
Næst er sögunni vikið að lík-
anreikningum á aflögun jarðskorp-
unnar sem á sér stað í jarð-
skjálftum. Í þessum hluta voru
bylgjuvíxlmælingar af Hector
Mine-jarðskjálftanum, sem átti sér
stað í október 1999 í S-Kaliforníu,
og mælingar af Suðurlandsskjálft-
unum tveimur teknar til sér-
stakrar athugunar. Bestunarreikn-
ingar voru notaðir til þess að
ákvarða legu misgengja fyrir
þessa jarðskjálfta og til þess að
ákvarða færsludreifingu á mis-
gengjum.
Auk þessa voru bylgjuvíxlmæl-
ingar af hæðarbreytingum fyrstu
tvo mánuðina eftir Suðurlands-
skjálftana skýrðar út með breyt-
ingum á grunnvatnsþrýstingi á
svæðinu. Rannsóknirnar á Suður-
landsskjálftunum voru unnar í
samvinnu við Norrænu Eld-
fjallastöðina.
Styrkur frá NASA
Rannsóknirnar sem liggja að
baki doktorsritgerðinni voru að
mestu styrktar af bandarísku
geimvísindastofnuninni NASA,
bandaríska vísindasjóðnum NSF
(National Science Foundation) og
evrópsku geimvísindastofnuninni
ESA. Á lokaári rannsóknanna
hlaut Sigurjón sérstakan styrk
deildarformanns jarðeðlisfræði-
deildar Stanford-háskóla.
Sigurjón Jónsson lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti árið 1990, BS-prófi í
jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands
árið 1994 og MS-prófi þaðan
tveimur árum síðar. Sigurjón
starfaði sem sérfræðingur á Nor-
rænu Eldfjallastöðinni og á Land-
mælingum Íslands 1996–1997.
Samhliða doktorsnáminu lauk Sig-
urjón MS-prófi í rafmagnsverk-
fræði frá Stanford-háskóla.
Foreldrar Sigurjóns eru Jón
Sigurjónsson múrarameistari og
Ingunn Áskelsdóttir sem búsett
eru á Laugum í Suður-Þingeyj-
arsýslu. Sigurjón starfar nú við
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum
Doktor
í jarðeðlis-
fræði
GERÐUR G. Óskarsdóttir fræðslu-
stjóri í Reykjavík býst við að
Fræðsluráð muni á næstunni fjalla
um kröfur foreldra og atvinnulífsins
um samræmingu vetrarfría í grunn-
skólum Reykjavíkur og til greina
komi einnig að ræða kröfur um sam-
ræmingu samstarfsdaga kennara á
leik- og grunnskólastiginu. Hún seg-
ir kröfurnar skiljanlegar og finnst
eðlilegt að Fræðsluráð skoði þær, en
tekur fram að ráðið væri að auka
miðstýringu í skólastarfi ef ráðið
tæki ákvörðun um allsherjarsam-
ræmingu.
„Við vildum stuðla að dreifstýr-
ingu og efla sjálfstæði skólanna og
því er þetta spurning um hvort hvika
eigi frá þeirri stefnu. Ég tel það
æskilegt að leik- og grunnskólar inn-
an sama hverfis ræði hvort þeir geti
samræmt samstarfsdaga sína vegna
fjölskyldna sem eiga börn á báðum
stöðum. En ég tel þó ekki brýna þörf
á því að allir skólar borgarinnar sam-
ræmi samstarfsdaga sína. Fræðslu-
ráð hefur ákveðið að gefa skólunum
sjálfstæði í þessum efnum og um-
ræða um að breyta ákvörðun hennar
hefur ekki komið upp.“
Fræðsluráð skoði kröfur
fólks um samræmingu
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsókn-
arflokksins, segir að ákvörðun Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra um að fara í þing-
framboð fyrir Samfylkinguna muni ekki styrkja
samstarf Reykjavíkurlistans, en Framsóknar-
flokkurinn er sem kunnugt er þar í hópi með
Samfylkingunni og Vinstri grænum.
Hann segir að borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins í R-listasamstarfinu hafi gengið út frá
því sem vísu að borgarstjóri blandaði sér ekki
með beinum hætti inn í landsmálapólitíkina. Nú
hafi Ingibjörg ákveðið að gera það og það sé ekki
í samræmi við þau orð sem hún hafi áður haft.
Það sé staða sem verði rædd í dag meðal for-
Halldór Ásgrímsson um þingframboð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
Styrkir ekki samstarf R-listans
ystumanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokks-
ins.
„Því er heldur ekki að leyna að við höfum
miklar áhyggjur af fjandsamlegu tali fulltrúa
Samfylkingarinnar innan R-listans út í þær
miklu framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar í stór-
iðjumálum, sem við teljum að varði mjög hags-
muni höfuðborgarinnar. Því miður er vaxandi at-
vinnuleysi í landinu og ýmislegt nýtt þarf að
koma til ef á að reynast unnt að sporna við þeirri
þróun. Á höfuðborgarsvæðinu eru vaxandi kröfur
á sviði heilbrigðis-, mennta- og samgöngumála og
án þeirrar aukningar í þjóðartekjum sem þessar
miklu framkvæmdir koma til með að hafa, verður
erfiðleikum háð að sinna þeim málum með full-
nægjandi hætti. Við höfum af þessu vaxandi
áhyggjur,“ segir Halldór.
Hann segir borgarstjóra ekki hafa komið að
máli við sig nú. Ingibjörg verði að sjálfsögðu að
taka sínar eigin ákvarðanir og taka tillit til þess
sem hún hafi áður sagt gagnvart samstarfs-
aðilum sínum. Það hljóti samt að kalla á end-
urmat þeirra á stöðunni.
Aðspurður hvort ákvörðun Ingibjargar hafi
komið honum á óvart segir Halldór svo ekki
vera. Þetta hafi blundað með henni og Samfylk-
ingunni í langan tíma. Ingibjörg hafi þar með
breytt sinni forgangsröðun.
BJÖRN Bjarnason, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn,
segir Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra komna í öng-
stræti í stjórn borgarinnar og
framboð hennar til Alþingis, sem
tilkynnt var um gær, sé fyrsta
skref hennar út úr borgarmálun-
um. Hann segir útspil borgar-
stjóra ekki koma sér á óvart, hann
hafi margsinnis vakið máls á því í
kosningabaráttunni síðasta vor að
hún ætti eftir að hverfa á önnur
mið stjórnmálanna.
„Þetta hefur verið á döfinni í
nokkrar vikur og var síðast til um-
ræðu í borgarstjórn fyrir hálfum
mánuði. Nú er það ljóst að Ingi-
björg ætlar í framboð og engin
spurning um það. Það er gott að
komin sé niðurstaða um að hún
ætli í þetta framboð, því ekki er
hægt að velkjast í vafa um slíka
hluti. Hitt er annað mál að ég tel
ástæðurnar fyrir því að hún ætlar
í framboð m.a. þær að hún er
komin í öngstræti þegar litið er til
stjórnar borgarmálanna. Við erum
að fjalla núna um fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir árið 2003 og það
er alveg augljóst að fjármála-
stjórnin hjá Reykjavíkurborg er
mjög slök, ef hún er ekki bara
komin úr böndunum, miðað við þá
útgjaldaþenslu og skuldaaukningu
sem þar er. Ég tel að hún sé að
leita leiða til að komast hjá stjórn
borgarmálanna,“ segir Björn.
Pólitískur ferill Ingibjargar sé að
taka nýja stefnu út úr borgarmál-
unum.
„Ég vakti hins vegar oftar en
einu sinni máls á því í kosninga-
baráttunni að hún myndi hverfa á
önnur mið í stjórnmálum að kosn-
ingum loknum, og því var alltaf
neitað, þannig að þetta kemur mér
ekki á óvart,“ segir Björn. Að-
spurður sagðist hann telja að
framboð Ingibjargar og hugsanleg
þingmennska hlyti að hafa áhrif á
framvindu mála við stjórn borg-
arinnar og samstarf flokkanna
sem mynda R-listann.
Björn Bjarnason, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn
Ingibjörg komin í öng-
stræti í stjórn borgarinnar FORYSTUSVEIT Vinstrihreyfing-arinnar – græns framboðs í borginni
hyggst koma saman til samráðsfund-
ar í dag vegna þingframboðs Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur flokksins, baðst undan því að tjá
sig um framboð borgarstjóra þar til
sá samráðsfundur hefði átt sér stað. Í
kjölfar fundarins yrði send út yfirlýs-
ing. Vildi Steingrímur ekki segja ann-
að en menn gætu tekið það til marks
um að málið væri litið alvarlegum
augum að boðað væri til þessa fundar.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar og annar borgarfulltrúa
Vinstri grænna í R-listasamstarfinu,
vildi í gærkvöldi ekki tjá sig um
ákvörðun Ingibjargar að öðru leyti en
að hún hefði komið sér á óvart. Von
væri á frekari viðbrögðum í dag.
VG lítur mál-
ið alvarleg-
um augum