Morgunblaðið - 19.12.2002, Page 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 25
FJÁRHAGSSTAÐA Hríseyjar-
hrepps er mjög erfið um þessar
mundir. „Staðan er slæm, við erum
ekki í gjörgæslu en miðað við
óbreytt ástand lifir þetta sveitarfé-
lag ekki af,“ sagði Ragnar Jörunds-
son sveitarstjóri í samtali við Morg-
unblaðið. „Sveitarfélagið er ekki
sjálfbært og það er búið að hrifsa
mikið frá því. Við erum að sækja
um byggðakvóta, sem við teljum að
Hríseyingar eigi rétt á en ef ekki
kemur eitthvað út úr því er best að
fara niður á Austurvöll og láta þá
hirða okkur.“
Ragnar sagði að Hrísey væri það
sveitarfélag sem hefði orðið hvað
verst úti af sveitarfélögum við
Eyjafjörð og á landsvísu. Hann
sagði að ekki væri að vænta svara
frá sjávarútvegsráðherra um
byggðakvóta fyrr en í byrjun næsta
árs. „Við vonumst til að tekið verði
tillit til okkar umsóknar um
byggðakvóta og við munum vinna
aflann hér í eynni, eins og ætlast er
til.“
Ragnar sagði að þótt ekki væru
margir á atvinnuleysisskrá væri at-
vinnuástandið erfitt og eitthvað um
að fólk sækti vinnu upp á fasta-
landið. „Það eru ekki margir á at-
vinnuleysisskrá, fólkið hefur flutt í
burtu og margir sitja hér uppi með
eignir.“
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu kom nokkur gagn-
rýni fram á Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar á fundi hreppsnefndar
Hríseyjarhrepps í síðasta mánuði.
Þar kom m.a. fram að þrátt fyrir
erfiða stöðu í atvinnumálum hefði
Atvinnuþróunarfélagið ekki haft
neitt frumkvæði til úrbóta. Ákveðið
var að kanna hvort ástæða væri
fyrir Hríseyjarhrepp að vera áfram
aðili að félaginu.
Gríðarleg blóðtaka að missa
starfsemi Snæfells
Ragnar sagði að komið hefðu
fram viðbrögð frá AFE og að fyr-
irhugaður væri fundur með for-
svarsmönnum félagsins í janúar þar
sem farið yrði yfir málið. Hann
sagði að ekki hefði verið tekin
ákvörðun um að hætta aðild að
AFE. „Okkur finnst við hafa verið
afskipt hér. Fólkið var í sárum eftir
að Snæfell hætti starfsemi og mér
finnst að Atvinnuþróunarfélagið
hefði átt að koma frekar að málum,
þó ekki hefði verið nema til að
hvetja fólk til dáða og sýna mór-
alskan stuðning. Ég held að fáir
hafi gert sér grein fyrir því hversu
mikil blóðtaka það var að missa
starfsemi Snæfells. Það fluttu héð-
an um 30 manns í kjölfarið, af rúm-
lega 200 manna samfélagi. Svo er
alltaf verið að bíða eftir sértækum
aðgerðum en það hefur ekkert ver-
ið gert af hálfu ríkisvaldsins. Ég
veit ekki eftir hverju er verið að
bíða, nema þá kannski að eyjan
verði auglýst til sölu og seld hæst-
bjóðanda.“
Ragnar sagði að ekki væri hægt
að kenna íbúum eyjarinnar um þá
stöðu sem er uppi. Stýring á fisk-
veiðikerfinu hefði farið svona með
sveitarfélagið ásamt öðru. „Hug-
myndafræði kvótakerfisins er góð
en kerfið hefur verið misnotað. Það
ætlaðist enginn til þess í upphafi að
þetta færi alltaf á færri hendur og
svo væru byggðarlögin svelt.“
„Sveitarfélagið
lifir ekki af
óbreytt ástand“
Erfið fjárhagsstaða Hríseyjarhrepps
30 ár
á Íslandi
1972 - 2002
17.900,00
MODEL HR2440
SDS+ - 780 WÖTT
Norðlenskt hangikjöt!
895-pr.kg.
HANGIFRAMPARTUR
úrbeinaður
pr.kg.1395-
HANGILÆRI
úrbeinað
LIFANDI JÓLATRÉ!
við verslanir EUROPRIS
HVERGI BETRA VERÐ!
1.flokks Normannsþinur
og grenibúnt
LYNGHÁLSI 4 OG SKÚTUVOGI 2 Ódýrt fyrir alla!
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Ódýrt fyrir alla! Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla!
Í Europris bjóðum við
eingöngu svínakjöt
frá Síld og fisk!
Aðeins það besta!
Nýtt svínakjöt í úrvali!
Svínalundir
Nautalundir
Kalkúnn
Hátíðakjúklingur
pr.kg.699-
HAMBORGARHRYGGIR
nýreyktir 1. fl. gæði299-pr.kg.
SVÍNABÓGAR
1.fl. nýir og ófrosnir
79-
JÓLAKAFFI
250gr.
JÓLAOPNUN
10-22
ALLA DAGA
119-
ÁVEXTIR
1/1 dós
Jólaá
vextir
nir
safar
íku!
26990-
GÓLFKLUKKA 193 CM.
úr tré, m.pendúl
6900-
OLÍUMÁLVERK
Stór handmáluð
Mörg mótív
Í gylltum ramma 70 x 80 cm.
5900-
KLASSISKUR GÍTAR
6 strengja