Morgunblaðið - 19.12.2002, Side 44
MINNINGAR
44 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Góður og kær félagi
og vinur Jóhannes
Guðmundsson er lát-
inn. Jóhannes, eða Jói
eins og hann var alltaf kallaður
meðal vina og vinnufélaga, lést 6.
desember sl.
Við undirritaðir vorum svo lán-
samir að kynnast Jóhannesi í gegn-
um störf okkar hjá véladeild Sam-
bandsins, þar sem við vorum
vinnufélagar í áratugi.
Jóhannes hóf störf hjá véladeild
Sambandsins vestast við Hring-
brautina í Reykjavík fljótlega eftir
1950, en upp úr 1960 var flutt í Ár-
múla 3.
Þetta voru skemmtileg ár í véla-
deildinni, samstarfið við Jóhannes
var ætíð gott og hann vinsæll meðal
JÓHANNES
GUÐMUNDSSON
✝ Jóhannes Guð-mundsson fædd-
ist í Hafnarfirði 1.
júlí 1928. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítala við
Hringbraut 6. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 13.
desember.
okkar samstarfsfélaga
sinna. Það voru marg-
ar góðar stundir sem
við áttum saman í
störfum okkar og frí-
tíma, heima og erlend-
is. Jóhannes var
traustur og góður fé-
lagi sem gott var að
umgangast, ljúfur og
jákvæður og ávallt
tilbúinn að rétta hjálp-
arhönd.
Jóhannes var lengi
verslunarstjóri í vara-
hlutaverslun véladeild-
ar fyrir landbúnaðar-
tæki og vinnuvélar og seinna
deildarstjóri vélasöludeildar. Hann
naut virðingar og var mjög vel lið-
inn hjá viðskiptavinum véladeildar,
sem að stórum hluta voru bændur
landsins og eigendur stórvirkra
vinnuvéla. Hann var með góða
þjónustulund og vildi leysa hvers
manns vanda og var ávallt tilbúinn
að gefa af sjálfum sér og þá skipti
ekki máli hvort það var á vinnudegi
eða í hans eigin frítíma eftir langan
vinnudag.
Starfsþrek Jóhannesar var mikið
og nutum við þess og kunnáttu
hans. Þrátt fyrir að störfin væru
mest bókleg og innanhúss, hlífði
hann sér hvergi á vettvangi starfs-
ins og fór í erfið ferðalög inn á há-
lendið eða út um annes þar sem
málin voru leyst. Þá hafði Jóhannes
mikil samskipti við erlenda birgja
og vann sér traust og virðingu
þeirra – bæði þegar þeir komu
hingað til lands í viðskiptaerindum
og þegar þeir voru heimsóttir á
vélasýningar eða í verksmiðjur.
Sumir þessara aðila héldu sambandi
við Jóhannes fram undir það síð-
asta.
Árið 1982 fékk Jóhannes alvar-
legt hjartaáfall. Þótt hann hefði á
löngum tíma náð sér sæmilega,
varð hann aldrei samur, en það var
aðdáunarvert hve duglegur hann
var eftir að hann kom til starfa á
ný.
Seinustu árin vann Jóhannes í
varahlutadeild Jötuns hf. og nokkur
ár hjá Ingvari Helgasyni hf., eða
þar til hann hætti störfum árið 1996
til að sinna konu sinni Mörtu í erf-
iðum veikindum hennar en hún lést
árið 2000.
Við minnumst góðs vinar og
starfsfélaga með virðingu og þökk
fyrir samfylgdina og teljum okkur
þar mæla fyrir hönd þeirra mörgu
sem störfuðu með honum.
Við sendum börnum og fjölskyldu
Jóhannesar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning um góðan
dreng.
Gunnar Gunnarsson,
Agnar Þór Hjartar.
Guðlaugur Guð-
mundsson er mér eft-
irminnilegur maður.
Fyrstu kynni okkar
voru á 7. áratugnum. Þá var Guð-
laugur leigubílstjóri á Hreyfli og
jafnframt einn af forustumönnum
skákfélags Hreyfils. Mér líður
seint úr minni gagnkvæmar skák-
GUÐLAUGUR
GUÐMUNDSSON
✝ Guðlaugur Guð-mundsson fædd-
ist í Sunnuhlíð í
Vatnsdal 21. júlí
1914. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum
25. nóvember síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Há-
teigskirkju 9. desem-
ber.
keppnir Hreyfils og
Landsbanka Íslands,
þar sem Guðlaugur
fór jafnan fyrir þeim
Hreyfilsmönnum.
Þetta voru skákhátíð-
ir þar sem saman fór
kaffisamsæti, ræðu-
mennska og skák-
keppnir.
Athygli vakti
hversu orðhagur,
menningarlegur og
skemmtilegur Guð-
laugur var.
Næst lágu leiðir
okkar Guðlaugs sam-
an árið 1968, þegar við vorum
kjörnir í stjórn Skáksambands Ís-
lands. Þrátt fyrir annasamt lífs-
hlaup Guðlaugs sem leigubílstjóra,
rithöfundar og kaupmanns, full-
yrði ég að þau ár sem í hönd fóru
voru viðburðaríkustu ár í lífi Guð-
laugs sem og annarra sem störf-
uðu í skáksambandsstjórninni. Ég
minnist atviks í undirbúningi
Heimsmeistaraeinvígisins í skák
sumarið 1972 milli Spassky og Fis-
hers. Skáksambandsstjórnin bauð
öllum til fundar við sig sem höfðu
fjáröflunarhugmyndir fyrir einvíg-
ið sem þá var loksins að verða að
veruleika. Meðal annarra sem
mættu þar var Bárður heitinn Jó-
hannesson sem kvaðst geta fram-
leitt minnispeninga um einvígið.
Þar sem undirritaður var gjaldkeri
Heimsmeistaraeinvígisins gladdist
ég hve Guðlaugur tók sérstaklega
vel í að hrinda þessari hugmynd í
framkvæmd. Guðlaugur var ásamt
fleirum mjög atkvæðamikill í sölu
minjagripanna, svo mjög, að lítið
fjárvana skáksamband gat á
skömmum tíma fjármagnað allan
kostnað einvígisins. Til þess að
gera sér grein fyrir umræddri
fjármögnum skal þess getið að
velta einvígisins var um 230 millj-
ónir m.v. núverandi verðlag.
Það er sérstök gæfa að hafa
kynnst og starfað með Guðlaugi
Guðmundssyni og öðrum stjórn-
armönnum á þessum ógleyman-
legu tímum. En lífið hélt áfram og
margoft hef ég heimsótt Guðlaug
og Kristínu konu hans á þeirra að-
laðandi heimili í Barmahlíð 54. Þar
ræddum við um allt milli himins og
jarðar en við Guðlaugur enduðum
alltaf á því að taka nokkrar skákir.
Þar komu eiginleikar Guðlaugs vel
fram, en hann var bæði gætinn og
nákvæmur en nýtti sér jafnan vel
þá möguleika sem voru í stöðunni
hverju sinni. Að endingu sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur
til Kristínar og fjölskyldu.
Hilmar Viggósson.
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, vinar, afa og
langafa,
ÁRNA J. HARALDSSONAR,
Víðimýri 3,
Akureyri.
Einnig þökkum við þeim sem heiðruðu minn-
ingu hans með blómum og minningargjöfum.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.
Ólafur Árnason, Fjóla Margrét Björgvinsdóttir,
Eygló Árnadóttir, Sigurður Pálmason,
Gylfi Árnason, Marilou Dequino,
Rósfríður Eiðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
GUÐLAUGS GUÐMUNDSSONAR
kaupmanns,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Droplaugastaða fyrir góða umönnun.
Kristín Þorsteinsdóttir,
Margrét Guðlaugsdóttir, Friðgeir Björnsson,
Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnarsson,
Guðmunda Hrönn Guðlaugsdóttir,
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför hjartkærrar móður
okkar og tengdamóður,
SIGRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR
frá Seyðisfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu
Reykjavík. Guð blessi ykkur öll.
Sigurjón Hannesson, Björg Jónsdóttir,
Elín Hrefna Hannesdóttir, Árni Sigurbergsson,
Sigrún Klara Hannesdóttir,
Sveinn Hannesson, Áslaug Sigurðardóttir
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát okkar
elskulegu eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
ELÍSABETAR ÁSTU MAGNÚSDÓTTUR,
Skólagerði 9,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknarde-
ildar Landspítalans í Kópavogi.
Jens Línberg Gústafsson
og fjölskylda.
Minningin lifir, líkt og sólin sem gengur niður
en heldur alltaf áfram að lýsa.
Við þökkum vinarþel, hlýhug og samúð okkur
sýnda við andlát og útför móður okkar, ömmu,
langömmu og tengdamóður,
STEINUNNAR SVEINSDÓTTUR,
Vesturgötu 50,
Reykjavík.
Steingerður Þórisdóttir, Jón Þ. Hallgrímsson,
Sveindís Steinunn Þórisdóttir,
Sveinn Guðmundsson, Aðalheiður Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
KRISTJÁNS JÓHANNS AGNARSSONAR,
Hegranesi 19,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
11-E Landspítala, Hringbraut, fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Andrea G. Guðnadóttir,
Sigríður Kristjánsdóttir, Sigríkur Jónsson,
Unnur Helga Kristjánsdóttir, Sigurður G. Gunnarsson,
Kristján Jóhann Kristjánsson, Gemma Garcia Llorente,
Þorvaldur Símon Kristjánsson,
Margrét Sesselja Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN ÁRMANN KRISTJÁNSSON,
Sólhlíð 19,
Vestmannaeyjum,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
föstudaginn 6. desember, verður jarðsunginn
frá Aðventkirkjunni í Vestmannaeyjum föstu-
daginn 20. desember kl. 14.00.
Elín Guðlaugsdóttir,
Guðlaugur Jóhannsson, Margrét Gunnarsdóttir,
Ragna Boklund, Jørn Boklund,
Guðný Kristín Jóhannsdóttir,
Jóhann Ellert Jóhannsson, Solveig Krúshólm,
barnabörn og barnabarnabörn.