Morgunblaðið - 19.12.2002, Page 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM nokkurt skeið hefur farið
fram umræða um arðsemi vatns-
aflsvirkjana á Íslandi og mismun-
andi aðferðir til þess að nálgast nið-
urstöðu sem hægt er að leggja til
grundvallar þegar ákvörðun er tek-
in um að ráðast í nýja virkjun. Í því
samhengi getur verið gott að líta til
baka og sjá hvernig til hefur tekist
með hinar fyrri ákvarðanir Lands-
virkjunar. Við höfum bæði hin eldri
dæmi sem lögðu grunninn að fyr-
irtækinu og svo síðustu sjö árin þar
sem raforkuframleiðslan hefur auk-
ist um tæp 60%. Fyrst og fremst
með aukinni sölu til stóriðju.
Orkusamningar
skila auknu eigin fé
Við allar fyrri framkvæmdir hafa
komið fram einstaklingar, leikir og
lærðir, sem hafa haldið því fram að
tap verði á framkvæmdinni. En
hvað segir reynslan okkur? Er það
svo að þessar framkvæmdir hafi ét-
ið upp eigin fé fyrirtækisins? Nei,
þvert á móti hafa byggst upp eigin
fé sem í dag er bókfært upp á 40
milljarða.
Ef núverandi sjóðstreymi væri
nýtt að fullu til að borga niður
skuldir Landsvirkjunar þá væri
fyrirtækið skuldlaust eftir um það
bil 15 ár. En við þær aðstæður væri
um að ræða skuldlausa eign upp á
um 120 milljarða á núgildandi verð-
lagi í lok tímabilsins og með sjóð-
steymi upp á rúmlega 10 milljarða
á ári til þess að ávaxta þá eign. Með
þetta í huga er ekki óeðlilegt að
álykta sem svo að virði fyrirtæk-
isins sé nokkru meira en 40 millj-
arðar í dag.
Það er full ástæða til að fjalla um
þær tölur um tap á Kárahnjúka-
virkjun sem settar hafa verið fram í
hinn almennu umræðu um arðsemi
framkvæmdarinnar. Við höfum séð
tölur um allt að 50 milljarða núvirt
tap á framkvæmdinni. Við skulum
aðeins átta okkur á því hvernig
þessi tala er fundin með sérstakri
áherslu á arðsemiskröfu á heildar-
fjármagn.
Ef við hugsum okkur dæmi um
að Jón Jónsson eignist 10 milljónir
króna. Jón ákveður að leggja alla
upphæðina fyrir í 25 ár. Fjármála-
ráðgjafar Jóns segja honum að með
ákveðinni áhættudreifingu sé raun-
hæft að setja sér markmið um 7%
raunávöxtun. Náist markmiðið á
Jón í sjóði 54 milljónir í lok tíma-
bilsins. Nú gerist það að markmiðin
nást ekki og Jón á „einungis“ 44
milljónir. Miðað við 7% kröfuna er
núvirt tap hans á fjárfestingunni 10
milljónir. Ef Jón hefði hins vegar
ákveðið að kaupa ríkisskuldabréf
fyrir alla upphæðina gæti hann í
dag tryggt sér 5% raunávöxtun og
þá ætti hann 34 milljónir eftir 25 ár
og hefði samkvæmt því grætt 10
milljónir á upphaflega dæminu.
Þetta set ég fram til þess að sýna
hvað hagfræðistærðir geta verið
varhugaverðar í almennri umræðu
án frekari útskýringa. En 10 millj-
óna króna tap Jóns í dæminu er
sett fram með sömu hugmynda-
fræði og útreiknað tap af Kára-
hnjúkavirkjun. Menn gætu freist-
ast til þess að álykta sem svo að til
viðbótar við um 100 milljarða fjár-
festingu þurfi að leggja fram allt að
50 milljarða til þess að mæta tapi.
Það þarf ekki endilega frekar en í
dæmi Jóns hér að framan. Um er
að ræða að ekki næst sá gróði sem
að var stefnt.
Skuldlaus eign þrátt fyrir
40 milljarða reiknað tap!
Til þess að átta sig á hvað næmn-
in er mikil varðandi útreikninga á
arðsemi Kárahnjúkavirkjunar þá
þýðir eitt prósentustig í hækkaðri
ávöxtunarkröfu um 11–12 milljarð-
ar í núvirtri afkomu. Þannig að þau
3–4 prósentustig sem skilja á milli
þeirrar kröfu sem t.d. Þorsteinn
Siglaugsson setur fram og þeirra
raunvaxta sem Landsvirkjun þyrfti
að borga þýða um 40 milljarða í nú-
virtri afkomu miðað við 50 ára end-
urgreiðslutíma. Miðað er við að allt
verkið sé fjármagnað með lánsfé.
Með öðrum orðum að miðað við
ávöxtunarkröfuna 7,25% á heildar-
fjármagn, sem liggur á miðju því
bili sem Þorsteinn telur eðlilegt,
mætti vera um 40 milljarða núvirt
tap en engu að síður væru öll lán
borguð niður og allir vextir greidd-
ir og eftir stæði skuldlaus eign sem
ætti eftir í það minnsta helming af
líftíma sínum.
Þetta set ég einungis fram til
þess að draga fram hvað það getur
verið varasant að alhæfa út frá
gefnum forsendum. Ég hefði til við-
bótar getað reiknað út hvað það
þýðir að nota mismunandi álverð og
sömuleiðis hvað varðar mismunandi
spár um vexti og gengi. Það er
hægt að sýna fram á mismun sem
nemur heildarfjárfestingunni í
Kárahnjúkum í núvirtum hagnaði
með því að stilla upp þessum for-
sendum í öllum framangreindum
tilfellum annars vegar m.v. lægsta
gildi og hins vegar því hæsta.
Ákvörðun sem byggist
á þekkingu og reynslu
Hver er þá niðurstaðan? Samn-
ingur um orkuverð liggur fyrir og
heildarfjárfestingu er hægt að
áætla út frá þeim tilboðum sem
hafa verið opnuð. Aðra þætti verð-
ur að meta út frá þeirri þekkingu
og reynslu sem Landsvirkjun ræð-
ur yfir. Sömuleiðis er tekið mið af
fyrri samningum, sem voru unnir á
sama hátt og hafa staðið undir arði
sem hefur gert Landsvirkjun að því
sem fyrirtækið er í dag. Í því sam-
hengi er vert að geta þess að allir
samningar fara í gegnum næmn-
isgreiningu þar sem öllum þekktum
aðstæðum er velt upp. Þessar
kannanir hafa í öllum tilfellum sýnt
að yfirgnæfandi líkur eru á því að
markmið um ávöxtun náist og nán-
ast engar líkur á því að ekki takist
að greiða lán og vexti.
Vinna við Kárahnjúkaverkefnið
hefur staðið yfir í nokkra mánuði,
m.a. við mat á arðsemi. Nú er verið
að vinna að lokayfirferð út frá þeim
upplýsingum sem liggja fyrir og því
ótímabært að gefa neinar endanleg-
ar yfirlýsingar um arðsemi fyrr en
öll kurl eru komin til grafar.
Um arðsemi virkjana
Eftir Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
„Til þess að
átta sig á
hvað næmn-
in er mikil
varðandi út-
reikninga á arðsemi
Kárahnjúkavirkjunar þá
þýðir eitt prósentustig í
hækkaðri ávöxtunar-
kröfu um 11–12 millj-
arðar í núvirtri afkomu.“
Höfundur er stjórnarformaður
Landsvirkjunar.
KEPPENDALISTI fyrsta Jóla-
skákmóts Búnaðarbankans hlýtur að
fá hjörtu íslenskra skákáhugamanna
til að slá hraðar. Allir íslensku stór-
meistararnir, utan einn, hafa staðfest
þátttöku og alls taka 14 af sterkustu
skákmönnum landsins þátt í mótinu.
Meðal þátttakenda verður Friðrik
Ólafsson, sem enn hrellir sterkustu
skákmenn heims eins og nýlegur sig-
ur hans gegn Ivan Sokolov sýndi og
sannaði. Sokolov var miður sín eftir
tapið og ekki bætti úr skák þegar
Helgi Ólafsson sigraði hann glæsi-
lega á Mjólkurskákmótinu á Selfossi.
Helgi verður einnig meðal þátttak-
enda ásamt félögum sínum úr „fjór-
menningaklíkunni“, þeim Jóhanni
Hjartarsyni, Margeiri Péturssyni og
Jóni L. Árnasyni. Enn þann dag í
dag, löngu eftir að þeir eru hættir at-
vinnumennsku í skák, halda þeir
styrkleika sínum ótrúlega vel. Sjálfur
Íslandsmeistarinn og okkar virkasti
stórmeistari, Hannes Hlífar Stefáns-
son, verður einnig meðal keppenda.
Þá mun Helgi Áss Grétarsson nýta
sér jólafríið í lögfræðináminu og setj-
ast að taflborðinu og sömuleiðis
Þröstur Þórhallsson, sem í vaxandi
mæli hefur snúið sér að fasteignavið-
skiptum. Alþjóðlegi meistarinn Karl
Þorsteins sést allt of sjaldan við
skákborðið, en að þessu sinni lét
hann freistast og teflir með á mótinu.
Einnig verða sumir okkar efnileg-
ustu og virkustu skákmanna með á
mótinu. Þótt ótrúlegt sé hafa sumir
þeirra ekki áður teflt við alla þessa
stórmeistara og væntanlega er þeim í
mun að sýna að þeir eigi fullt erindi á
þetta mót, ekki síður en þessi stór-
menni íslenskrar skáksögu.
Mótið fer fram laugardaginn 21.
desember í aðalútibúi Búnaðarbank-
ans, Austurstræti 5. Það hefst kl. 15
og stendur til um kl. 18. Áhorfendur
eru velkomnir og verður góð aðstaða
til að sjá meistarana að tafli. Kepp-
endur verða:
1. SM Jóhann Hjartarson 2.635
2. SM Hannes Hlífar Stefánss.
2.635
3. SM Margeir Pétursson 2.605
4. SM Jón L. Árnason 2.535
5. SM Helgi Áss Grétarss. 2.535
6. SM Helgi Ólafsson 2.520
7. SM Friðrik Ólafsson 2.510
8. AM Karl Þorsteins 2.500
9. SM Þröstur Þórhallsson 2.460
10. FM Bragi Þorfinnsson 2.405
11. FM Sigurður D. Sigfúss. 2.400
12. AM Jón Viktor Gunnarss. 2.390
13. FM Björn Þorfinnsson 2.305
14. FM Þröstur Árnason 2.255
Davíð sigraði í 10. umferð
á HM unglinga
Davíð Kjartansson sigraði Ind-
verjann Phukan Pranjal (2.059) í 10.
umferð Heimsmeistaramóts ung-
linga, 20 ára og yngri, sem nú stend-
ur yfir í Goa á Indlandi. Stefán Krist-
jánsson tapaði hins vegar fyrir Mark
Paragua (2.476) frá Filippseyjum og
hefur 5½ vinning. Hann er nú í 27.–
37. sæti, en Davíð er með 5 vinninga í
38.–54. sæti.
Stefán gerði jafntefli við íranska
stórmeistarann Ehsan Ghaem
Maghami (2.511) í 9. umferð, en Dav-
íð tapaði hins vegar fyrir indverska
alþjóðlega meistaranum J. Deepan
Chakravarthy (2.355).
Enski stórmeistarinn Luke
McShane er efstur á mótinu með 7½
vinning.
Jólapakkamót Hellis í
Borgarleikhúsinu á laugardag
Kringlan og Taflfélagið Hellir
munu standa að skákmóti fyrir alla
krakka á grunnskólaaldri laugardag-
inn 21. desember. Aðgangur er
ókeypis. Mót þetta verður haldið í
anddyri Borgarleikhússins, Lista-
braut 3, 103 Reykjavík. Miðað við
þátttöku á fyrri Jólapakkamótum
Hellis má búast við að 100–200
krakkar verði með á mótinu.
Keppt verður í 4 aldursflokkum,
flokki fæddra 1987–1989, flokki
fæddra 1990–91, flokki fæddra 1992–
93 og flokki fæddra 1994 og síðar.
Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3
efstu sætin í hverjum aldursflokki
fyrir sig, bæði fyrir drengi og stúlkur.
Auk þess verður happdrætti um 3
jólapakka í hverjum aldursflokki fyr-
ir sig. Þátttaka er ókeypis. Mótið
byrjar kl. 11 og tekur u.þ.b. 3 klst.
Varðandi frekari upplýsingar og
skráningu á mótið er hægt að senda
félaginu tölvupóst (hellir@simnet.is)
eða skoða heimasíðu félagsins á Net-
inu: http://www.hellir.is. Skráningu
þarf auk nafns að fylgja fæðingarár
og skóli. Verði þátttaka mikil er hugs-
anlegt að takmarka þurfi fjölda kepp-
enda.
Verðlaun gefa m.a. Bókabúð Máls
og menningar og Edda-Miðlun. Í lok
mótsins verður dregin út skáktölva
sem einn keppendi fær óháð árangri.
Átta íslenskir stórmeistarar
á jólamóti Búnaðarbankans
Þröstur
Þórhallsson
Jóhann
Hjartarson
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Friðrik
Ólafsson
Helgi
Ólafsson
Helgi Áss
Grétarsson
Jón L.
Árnason
Margeir
Pétursson
Hannes Hlífar
Stefánsson
SKÁK
Búnaðarbankinn, Austurstræti
JÓLASKÁKMÓT BÚNAÐARBANKANS
21 des. 2002
Í ÁR styrkir Hugur hf. Styrkt-
arfélag krabbameinssjúkra
barna.
Styrkurinn er í formi tölvu-
búnaðar og aðstoðar við að
koma honum í gagnið. Um er
að ræða tvær Dell-tölvur frá
EJS, systurfélagi Hugar.
Tölvubúnaðurinn er að and-
virði kr. 200.000.
Hugur hf. hefur í gegnum
árin styrkt góðgerðar- og líkn-
armálefni með ýmsum hætti.
Fyrir þremur árum breytti
Hugur fyrirkomulagi styrk-
veitinga, þannig að í stað
margra smárra styrkja kemur
einn styrkur í lok hvers árs,
segir í fréttatilkynningu.
INNLENT
Hugur styrkir
Styrktarfélag
krabbameins-
sjúkra barna
Páll Freysteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hugar, afhendir
Gunnari Ragnarssyni, fram-
kvæmdastjóra SKB, styrkinn.
SPARISJÓÐUR Kópavogs
bauð gulldebetkorthöfum sín-
um til tónleika í Salnum, tón-
listarhúsi Kópavogs, fimmtu-
daginn 5. desember sl. Jónas
Ingimundarson píanóleikari og
Kristinn Sigmundsson söngv-
ari höfðu veg og vanda af tón-
leikunum og var margt um
manninn í Salnum. Á myndinni
má sjá þá Jónas og Kristin í lok
tónleikanna.
Menningarhátíð SPK.
SPK bauð
til menning-
arveislu
SVEITARSTJÓRN Skaga-
fjarðar samþykkti svohljóðandi
yfirlýsingu til landbúnaðarráð-
herra, Guðna Ágústssonar, á
fundi sínum 17. desember sl.:
„Sveitarstjórn Skagafjarðar
lýsir ánægju sinni með þá upp-
byggingu, sem fram hefur farið
á reiðkennsluaðstöðu við Hóla-
skóla og þátt landbúnaðarráð-
herra í því máli. Jafnframt lýsir
sveitarstjórn yfir sérstökum
stuðningi og ánægju með
ákvörðun landbúnaðarráðherra
um að gera Hólaskóla að há-
skólastofnun sem útskrifar
nemendur með viðurkennt há-
skólapróf.“
Ánægja með
uppbyggingu
á Hólum