Morgunblaðið - 19.12.2002, Qupperneq 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Mána-
foss, Perla og Faxi koma
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Brú-
arfoss fór til Reykjavík-
ur í gær. Rán kemur í
dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er fimmtudagsins 19.
des. er 91010.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13 bókband, kl.
14–15 dans. Aðventu-
messa með sr. Kristínu
Pálsdóttur á morgun kl.
10.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9.30 danskennsla, kl. 14.
söngstund, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–16.45
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14, kl. 15.15 línu-
dans og fl., kl. 15.15
danskennsla. Söngtími
kl. 13.30. Kynslóðirnar
mætast á jólaballi kl. 14.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerð, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 13 föndur og
handavinna. Bingó kl. 15.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel verður
lokað til mánudagsins 6.
janúar. Áramóta-
dansleikur verður mánu-
daginn 30. des. kl. 20.30,
happdrætti og ásadans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Frá hádegi spilasalur og
vinnustofur opnar. Kl. 14
jólahelgistund, fjölbreytt
dagskrá. Prestar sr.
Guðmundur Karl
Ágústsson og sr. Miyako
Þórðarson. Túlkur frá
samskiptamiðstöð. Á
morgun kl. 9–16 30
vinnustofur opnar frá há-
degi spilasalur opinn, á
Þorláksmessu er opið frá
kl. 9–16.30. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13 virka daga.
Morgunkaffi, blöðin og
matur í hádegi. Fimmtu-
dagur: Brids kl. 13. Brids
fyrir byrjendur kl. 19.30.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími.
588 2111.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 9.30 keramik og leir-
mótun, gler og postulíns-
málun, kl. 10–12 verður
Jón Björgsinsson með
sýnikennslu í lifandi jóla-
skreytingum. Jón verður
með jólaskreytingar til
sölu kl. 13–16. kl. 17
myndlist, kl. 16. 15 kín-
versk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Jólahlaðborð
kl. 12. Skötuveislan verð-
ur á Þorláksmessu kl.
11.40, vinsamlega pantið
tímanlega.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Opið frá kl. 17 heitt á
könnunni. Jóla- og að-
ventuskreytingar. Jón
Björgvinsson, fyrrum
eigandi Blómahall-
arinnar í Kópavogi, verð-
ur með sýnikennslu og
sölu á jóla- og aðventu-
skreytingum í Félags-
heimilinu Gullsmára,
Gullsmára 13, föstudag-
inn 20. des. kl. 13. Allir
velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur, kl.
10 boccia, kl.13 handa-
vinna, 13.30 félagsvist.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi. Síðasti
keilutími Korpúlfanna, á
þessu ári verður kl. 14.
Athugið breytta tíma-
setningu. Upplýsingar
gefur Þráinn í síma
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga, kl.
14–15 jóga. Jólagleði
verður í dag og hefst kl.
14.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl.13–16
kóræfing og mósaik.
Jólahugvekja kl.10.30.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og spil-
að.
Gullsmárabrids - Brids-
deild FEBK Gullsmára
er komin í jóla- og ára-
mótafrí. Árnum öllum
bridsurum og fjöl-
skyldum þeirra gleði-
legrar hátíðar. Hittumst
hress á nýju bridsári
(fimmtudaginn 9. janúar
kl. 12,45 á hádegi).
Minningarkort
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu ABC-
hjálparstarfs í Sóltúni 3,
Reykjavík í síma 561-
6117. Minningargjafir
greiðast með gíróseðli
eða greiðslukorti.
Allur ágóði fer til hjálpar
nauðstöddum börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Laugavegi
7 eða í síma 561-0545.
Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hringsins
í síma 551-4080. Kortin
fást í flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar og vina-
félag. Minningarkort til
stuðnings orlofsvikna
fyrir krabbameinssjúka
og langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyrir
hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu gíró-
seðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru til
sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551-3509.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og víð-
ar. Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á Nýja
testamentum sem gefin
verða 10 ára skólabörn-
um eða komið fyrir á
sjúkrahúsum, hjúkr-
unarheimilum, hótelum,
fangelsum og víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambandsins
frást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gengt
Langholtsskóla) sími
588-8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til sölu í
kirkjunni í síma 587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu, Laugavegi
31, Reykjavík.
Líknasjóður Dómkirkj-
unnar, minningaspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði
fást í Bókabúð Böðvars,
Pennanum í Hafnarfirði
og Blómabúðinni
Burkna.
Í dag er fimmtudagur 19. desem-
ber, 353. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Og ég veit að boðorð hans er
eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég
því eins og faðirinn hefur sagt mér.
(Jóh. 12, 50.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 haldin losta, 8 blettum,
9 sjá aumur á, 10 reið, 11
greftrun, 13 svarar, 15
slota, 18 dreng, 21 sé, 22
dúr, 23 mikið að gera, 24
óslitinn.
LÓÐRÉTT:
2 leyfi, 3 fær af sér, 4
slátra, 5 hárlepps, 6
ódrukkinn, 7 at, 12 um-
hyggja, 14 gagnleg, 15
gangur, 16 suði, 17 bár-
an, 18 staut, 19 hlupu, 20
landabréf.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 negri, 4 bókum, 7 staga, 8 lofar, 9 núa, 11 atti,
13 fríð, 14 nafar, 15 senn, 17 átel, 20 óma, 22 gátur, 23
loðin, 24 iðrar, 25 aumur.
Lóðrétt: 1 níska, 2 graut, 3 iðan, 4 bíla, 5 kúfur, 6 mærið,
10 úlfum, 12 inn, 13 frá, 15 saggi, 16 notar, 18 tíðum, 19
lænur, 20 órór, 21 alfa.
Víkverji skrifar...
MERKILEGT hvað yfirvarar-skegg á lítið upp á pallborðið
hjá Íslendingum. Aðeins örfáir menn
sjást með slíkt en á móti kemur að
undantekningarlaust prýðir skeggið
þá vel. Nægir hér að nefna þá Frið-
rik Þór Friðriksson kvikmyndaleik-
stjóra og prófessorinn Jón Steinar
Gunnlaugsson. Víkverji kann ekki
skýringuna á því hvers vegna yfir-
vararskegg nýtur svo lítillar hylli
sem raun ber vitni. Hann veit nefni-
lega til þess að í mörgum Evrópu-
löndum þykir yfirvararskegg hin
mesta andlitsprýði, t.d. í Færeyjum,
Svíþjóð og Þýskalandi. Reyndar var
yfirvarraskegg vinsælt hér á landi í
eina tíð. Þannig skartaði t.d. glæsi-
mennið Hannes Hafstein vöxtulegu
yfirvararskeggi og hið sama má
segja um athafnamanninn og skáldið
Einar Benediktsson. Síðan þá hefur
vegur yfirvararskeggsins farið
minnkandi þó að margir hafi reynt
að spyrna við fótum. Hluti af skýr-
ingunni er e.t.v. sá vægðarlausi áróð-
ur sem sumir reka gegn þessari
skeggtísku. Yfirvaraskegg er af
þessum einstaklingum kallað ýmsum
illum nöfnum og því m.a. haldið fram
að allskyns óþrifnaður fylgi skeggi af
þessari gerð. Sömu einstaklingar
hafa sjaldnast nokkuð við það að at-
huga að menn láti sér vaxa alskegg
eins undarlegt og það nú er því auð-
vitað hlýtur hinn meinti sóðaskapur
að vera meiri eftir því sem skeggið
er meira. Yfirvararskeggið er hrein-
lega lagt í einelti og mál að því linni.
x x x
EINKUM virðast konur vera for-dómafullar gagnvart slíkum
skeggvexti. Það fékk Víkverji sjálfur
að reyna í sumar þegar hann í fáar
vikur skartaði yfirvararskeggi. Hans
betri helmingur tók þessu reyndar
með stóískri ró, a.m.k. á yfirborðinu,
og þóttist viss um að skeggið yrði
ekki langlíft. Aðrar konur sem Vík-
verji þekkir fundu sig á hinn bóginn
knúnar til að gagnrýna skeggvöxtinn
og lýsa því yfir að þetta væri ferlega
ljótt og „púkó“. Það er rétt að taka
það fram að aldrei hafði Víkverji lát-
ið slík orð falla um útlit kvennanna,
heldur miklu fremur hrósað þeim
fyrir smekklegt fataval og hversu
unglegar þær væru. Á endanum fór
það svo að Víkverji rakaði skeggið
af. Ástæðan var reyndar aðallega sú
að skeggið var ekki eins glæsilegt og
vonir stóðu til – ekki ómakleg gagn-
rýni kvenna.
x x x
ANNARS er skeggvöxtur karl-manna merkilegt fyrirbæri í
sjálfu sér. Sem og sú staðreynd að
karlmönnum vex bringuhár en ekki
konum. Vinnufélagar Víkverja
ræddu þetta í vikunni og sýndist sitt
hverjum um ástæður. Einn hélt því
fram að konur væru lengra komnar á
þróunarbrautinni en sú skýring þótti
fjarstæðukennd með öllu og fékk
engar undirtektir. Annar taldi skýr-
inguna vera þá að formæður manns-
ins hefðu rekið karlana út til að veiða
en sjálfar notið ylsins frá eldinum.
Karlarnir hefðu því þurft á loðfeld-
inum að halda lengur en konur. Ef
þessi skýring er rétt má gera ráð
fyrir að smám saman dragi úr hár-
vexti á bringu enda þurfa fæstir að
halda á sér hita með hárvexti. Þá
mætti líka gera ráð fyrir að hárið léti
undan síga á höfðinu líka. Sjást
kannski merki um þessa þróun nú
þegar? Ekki hjá Víkverja!
Þjónustuólund
ÉG vildi bara benda kon-
unni sem varð fyrir því að
geta ekki skilað pelsinum
sínum að kannski átti hún
að máta í búðinni áður en
hún óð heim með pelsinn og
áttaði sig á því að hann
passaði ekki. Það eru marg-
ir sem hafa unnið í verslun-
um og kannast við svona
viðskiptavini sem eru alltaf
að skila og skipta og virðast
aldrei ánægðir, þeir ættu að
setja sig í spor afgreiðslu-
fólksins sem þarf að glíma
við svona fólk alla daga. Í
dag tíðkast ekki að farið sé
með flíkur heim trekk í
trekk og koma svo og ætla
að skila, skipta eða hvað
annað. Þá getur hún alveg
eins verið búin að nota hana
og ætlar svo að skila, þetta
er ekki hægt. En hvað um
alla hina sem ætluðu
kannski að kaupa pelsinn og
hann var bara heima hjá
einhverri konu sem ekki
passaði í hann? Það á bara
að máta og kaupa það sem
passar, til þess eru mátun-
arklefar.
Kolla.
Tapað/fundið
Gleraugun fundin
KONAN sem kom í Lands-
bankann á Laugavegi 77 að
leita að gleraugum sem hún
týndi er beðin að hafa sam-
band við gjaldkera eða
koma aftur.
Sjalið er fundið
Í GÆR, mán. 16. des. kom
kona til okkar í Upplýsinga-
þjónustu Ráðhúss Reykja-
víkur og spurði hvort fund-
ist hefði sjal. Því miður
vorum við ekki með neitt þá.
En í morgun 17. des. fannst
sjal í götunni hérna úti, og
nú vildum við gjarnan geta
komið því í réttar hendur.
Gleraugu týndust
GLERAUGU, fíngerð og í
blárri umgjörð, týndust sl.
föstudag 13. des. við Perl-
una í Öskjuhlíð. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
694 3096.
Giftingarhringur
týndist
GIFTINGARHRINGUR
týndist föstudaginn 6. des-
ember, líklega á milli Rauð-
arárstígs og Skúlagötu.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 899 1954.
GSM-sími í óskilum
GSM-sími fannst nálægt
miðbæ Reykjavíkur. Upp-
lýsingar í síma 552 1509.
Armbandsúr týndist
ARMBANDSÚR týndist 5.
desember sl. á leiðinni frá
Hjartavernd að Síðumúla
39. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 553 8438.
Dýrahald
Lady er týnd
LADY er 3ja ára poodle/
terrierblanda, svört og
krullhærð. Hún er hölt,
jafnvel fótbrotin eftir að
hafa hlaupið fyrir bíl sl.
sunnudag en hún hljóp
burtu af slysstað. Hún hefur
sést á Laugarnestanga og
sjávarmegin hjá Heimilis-
tækjum. Þeir sem vita um
Lady eru beðnir að láta vita
í síma 824 1879 eða láta lög-
regluna vita.
Persnesk læða týndist
PERSNESK læða týndist
frá Austurströnd 10 á Sel-
tjarnarnesi sl. helgi. Hún er
gráyrjótt, mjög loðin og
ómerkt. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í
síma 863 9500.
Týndur hvolpur
SVÖRT, fjögurra mánaða
tík með hvíta bringu og
loppur týndist á Seltjarnar-
nesi á þriðjudag. Hennar er
sárt saknað. Vinsamlegast
hringið í síma 868 0895 ef
þið hafið einhverjar upplýs-
ingar um ferðir hennar.
Kanínur fást gefins
TVÆR karlkynskanínur
fást gefins. Upplýsingar í
síma 554 2602.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Í BYRJUN maí sl. keypti
ég mér fartölvu hjá BT í
skeifunni og átti hún að
geta gert ákveðna hluti
sem hún gat svo ekki.
Í mínum trassaskap
gerði ég ekkert í málinu
fyrr en nú í desember, 7
mánuðum síðar, er ég
hafði samband við þjón-
ustustjórann Kjartan
Haraldsson og sagði mín-
ar farir ekki sléttar í
tölvumálunum og er
skemmst frá því að segja
að nú er ég kominn með í
hendurnar aðra fartölvu
sem getur allt sem hin
átti að gera og það sem
meira er að þessi nýja er
töluvert dýrari en ég
þurfti ekki að borga
krónu á milli. Ég er hæst-
ánægður og mér finnst
að svona góða þjónustu
ættu önnur fyrirtæki til-
einka sér. Nú er BT í
Skeifunni búið að skapa
sér viðskiptavin sem er
ákveðinn í því að kaupa
tölvuvörur hvergi annars
staðar.
Friðleifur Kristjánsson.
Góð þjónusta hjá BT-tölvum