Morgunblaðið - 09.05.2003, Qupperneq 26
AKUREYRI
26 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Glerárós – Krossanesshagi - Móasíða - Mýravegur
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðal-
skipulagi Akureyrar 1998-2018.
1. Landfylling við Glerárós
Lagt er til að landfylling milli Gleráróss og Flotkvíar verði aukin um
ca 9.000 m² frá gildandi skipulagi. Fyllingin verði nýtt sem útilager-
svæði fyrir höfnina.
2. Iðnaðarhverfi í Krossanesshaga
Til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi B-áfanga iðn-
aðarhverfisins er gerð tillaga um fækkun iðnaðarsvæða og breytingar
á afmörkun þeirra gagnvart opnum svæðum, og breytta legu safn-
götu. Gert er ráð fyrir fullnýtingu grjótnáms í Ystaási skv. áætlun um
vinnsluna sem gerð verði skv. ákvæðum laga um náttúruvernd nr.
44/1999.
3. Móasíða, breytt landnotkun
Lagt er til að landnotkunarskilgreining lóðarinnar nr. 1 við Móasíðu
breytist úr verslunar- og þjónustusvæði í íbúðarsvæði. Tekið er fram
að auk íbúða megi vera á lóðinni starfsemi sem þjónar íbúum hverf-
isins, sbr. skilgreiningu íbúðarsvæða í skipulagsreglugerð.
4. Stækkun íbúðarsvæðis við Mýraveg
Lagt er til að íbúðarsvæði vestan Mýravegar norðan Akurgerðis
stækki til norðurs um ca 2.100 m² á kostnað opins svæðis. Stækkun-
in verði nýtt til byggingar 5 hæða fjölbýlishúss fyrir eldri borgara.
Tillögurnar munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, þ.e. til föstudagsins 20. júní 2003 svo að þeir sem þess óska geti
kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir.
Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is/ undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstil-
lögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00
föstudaginn 20. júní 2003 og skal athugasemdum skilað til Umhverf-
isdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð.
Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa
frests, telst vera henni samþykkur.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
4 tillögur að
breytingum á
aðalskipulagi
Eyjafjarðarsveit
- kjörfundur
Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis 10. maí nk.
verður í Hrafnagilsskóla frá kl. 9:00-22:00. Sími
kjörstjórnar er 463 1137.
Kjörstjórn
www.islandia.is/~heilsuhorn
Í dagsins önn
Náttúrulegt B-vítamín ásamt
magnesíum og C-vítamíni
í jurtabelgjum
PÓSTSENDUM
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Nýtt Nýtt
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin.
Stakir jakkar
Kápur
Hörfatnaður
Bolir
ÞRJÚ tilboð bárust í breytingar og
endurbætur á húsnæði fyrir Iðn-
aðarsafnið á Akureyri við Krókeyri
og voru þau öll yfir kostnaðaráætl-
un. Trésmiðja Kristjáns átti lægsta
tilboð, rúmar 12,5 milljónir króna,
eða um 106% af kostnaðaráætlun.
Þinur bauð rúmar 12,6 milljónir
króna, eða um 107% af kostnaðar-
áætlun og Jóhann og Hreiðar buðu
tæpar 15,3 milljónir króna, eða um
130% af kostnaðaráætlun verk-
kaupa, sem hljóðaði upp á rúmar
11,7 milljónir króna.
Jón S. Arnþórsson, safnstjóri
Iðnaðarsafnsins, sagði að því stefnt
að ljúka framkvæmdum við hús-
næðið hinn 1. september „og gangi
það eftir hef ég veturinn til að
koma safninu þar mjög vel fyrir.
Það væri virkilega gaman að geta
opnað safnið á sumardaginn fyrsta
á næsta ári en árið 2004 verður Iðn-
aðarmannafélag Akureyrar 100 ára,
sem er mjög merkilegur áfangi. Því
það er nú þannig að góður iðn-
aðarmaður er undanfari góðrar
verksmiðju.“
Jón sagði að þegar fólk hefð verið
að skoða Iðnaðarsafnið hefði nokk-
uð verið spurt um sögu iðnaðar-
mannsins. Hann sagði að meiningin
væri að geta sérstaklega um starf
iðnaðarmannsins á safninu, enda
væru yfir 20 iðngreinar kynntar á
safninu og yfir 60 fyrirtæki.
Jón hlaut á dögunum viðurkenn-
ingu Menningarsjóðs fyrir framlag
sitt til menningarmála í bænum.
Hann vann um árabil að stofnun
Iðnaðarsafnsins, sem var opnað 17.
júní 1998 og hefur verið safnstjóri
allar götur síðan. Safnið var fyrst til
húsa á Gleráreyrum en er nú í hús-
næði Sjafnar við Austursíðu, þar
sem hluti þess er uppsettur.
„Hlutirnir eru nú á réttri braut
og þetta nýja húsnæði hentar vel
undir safnið. Ég hef beðið eftir
þessu í 10 ár og get því alveg beðið
í 10 mánuði í viðbót,“ sagði Jón.
Þrjú tilboð bárust í endurbætur á húsnæði Iðnaðarsafns
Morgunblaðið/Kristján
Endurbótum á framtíðarhúsnæði Iðnaðarsafnsins á Akureyri á að vera lokið í haust.
Stefnt að því að opna safnið
á nýjum stað eftir eitt ár
ATVINNA mbl.is