Íslendingaþættir Tímans - 20.09.1968, Qupperneq 12
SEXTUGUR:
HALLGRÍMUR TH. BJÖRHSSOH
Það var gestkvæmt á Brekku
braut í Keflavík þegar húsbóndinn
þar, Hallgrimur Th. Björnsson yf-
irkennari átti sextugsafmæli. Hin
ir voru pó fleiri sem sendu af-
mælisbarninu hlýlegar kveðjur og
hugsanir í tilefni dagsins, en lík
lega verða þeir þó flestir sem
gleyma afmælinu en muna mann-
inn, vegna ágætra kynna sem kenn
ara, félaga og forustumanns
merkra mála og framkvæmda.
Hallgrímur er fæddur á Gauks-
mýri í Húnavatnssýslu 16. sept.
1908, árið sem fyrstu barnaskóla-
lögin gengu í gildi á landi hér. ís-
ienzk börn áttu nú að njóta svip-
aðs réttar og frændur þeirra á Norð
urlöndum höfðu lengi notið. Þjóð
féiagið gaf honum og öðrum börn-
um þessa árs dýrmæta vöggugjöf.
Sennilega þá dýrmætustu, sem al-
þingi hefur gefið íslenzkum börn
um, síðan árið 1000.
Hallgrímur ólst upp hjá foreldr
um sínum, hjónunum Birni bónda
á Gauksstöðum Jósafatssyni og
Ólöfu Sigurðardóttur Ekki er mér
kunnugt um þær ættir, eða
bernskuheimili Hallgríms og
kennslu á barnsaldri. að öðru leyti
en því, sem hann ber sjálfur með
sér svipmót og eiginleika góðra
stofna, en bregði fjórðungi til fóst-
urs, hlýtur hann að hafa alizt upp
við framtak og iðjusemi öðrum
þræði, en á hinn bóginn við fé-
lagshyggju og orðsins list í þjón-
ustu menningar og mannbóta.
Hallgrímur fór í Flensborgar-
skólann, þegar hann hafði efni á.
Ekki lauk hann þaðan burtfarar-
prófi, en gerðist barnakennari í
átthögum sinum. Fann hann þar
starf við sitt hæfi, og gekk í kenn-
araskólann með ákveðið markmið
fyrir augum. Lauk hann kennara-
próf vorið 1935.
Haustið eftir fékk hann stöðu við
barnaskólann í Keflavík. Þótti það
á þeim tima eftirsóknarverð staða.
Hyigg ég, að sú stöðuveiting hafi
orið báðum happ, Hallgrimi og
byggðarlaginu. Kefiavík var þá vax
andi fiskiþorp en er nú orðin
fjölmennur og myndarlegur kaup-
staður. Hefur Hailgrímur tekið
mjög virkan þátt í félags-
málum þessa vaxandi byggðarlags,
og notið mikils trausts á marg-
breyttum sviðum félagslífsins.
Þegar Hallgrímur kom að Kefla
víkurskóla voru húsakynni skól-
ans ekki eins vegleg og nú, hús-
búnaður ekki eins glæsilegur og
kennslutæki ekki eins fjölbreytt.
En hann lenti í góðum félagsskap
reyndra og áhugasamra kennara,
sem þekktu út í æsa-r aðstöðu til
kennslu í litlu þorpi. Kynntist
hann þar bæði festu og virðuleik
í starfi og mildri leiðsögn. Hygg
ég, að hann hafi þá, sem ungur
rnaður og lítið reyndur kennari, orð
ið fyrir varanlegum áhrifum um
kennsluhætti sína. Ekki svo að
skilja að um eftiröpun sé að ræða,
því að Hallgrímur fer sínar leiðir.
Leggur hann ekki síður stund á
siðræna framkomu og hugarfar
r.emenda sinna, en þekkingu og
þjálfun lögboðinna námsgreina.
Nýtur hann bæði virðingar og
trausts nemenda sina, starfsfé-
laga og yfirmanna.
Var honum veitt yfirkennarastað
an við skólann, þegar hún
var stofnuð 1962, og hefur hann
gegnt því embætti síðan. Þá fékk
Ha]lgrimur kennsluorlof 1961. Not
aði hann það rækilega. Kynnti
sér fyrst hvernjg máiin stóðu í
nágrenninu hér heima, en dvald-
ist síðan erlendis.
Hallgrímur hefur látið félags-
mál kennara sig miklu skipta. Er
það að vonum svo áhugasamur,
sem hann er um kennslumálin og
ósérhlífinn í félagsmálum. Hann
var fyrsti formaður Kennarafélags
Keflavíkur, um langt skeið ritari
Félags barnakennara á Reykjanesi,
og oftlega einn af fulltrúum kjör-
svæðisins á þingum S.Í.B .
En hann hefur víðar notið
trausts en hjá stéttarsystkinum
sínum. Han hefur átt sæti í
fræðsluráði Keflavíkurkaupstað
ar og fleiri föstum nefndum.
Hann hefur beitt sér verulega
fyrir bindindismálum, og gengt þar
forustustörfum bæði innan sveitar
og utan.
Hann hefur verið áhugasamur
um skógrækt, verið ritari Skóg-
ræktarfélags Suðurnesja frá stofn-
un þess og lengi síðan, og tekið
þátt í utanför Skógræktarmanna.
Hann var einn af stofnendum
Byggingarfélags verkamanna í
Keflavík og í stjórn pess um langt
skeið.
Hann hefur átt sæti í stjórn
Kaupfélags Suðurnesja frá stofn-
un þess og sem formaður síðan
1951, og fulltrúi á aðalfundum
SÍ.S.
Gegnt hefur Hallgrímur forustu
og trúnaðarstörfum i fleiri félög-
um. En þau verða ekki talin hér
enda átti þetta ekki að verða ræki-
leg starfsskýrsia, heldur afmæiis-
kveðja. Hygg ég, að hér sé samt
nóg talið til að sýna það traust,
sem Hallgrímur hefur notið meðal
samferðafólksins, og áhuga hans,
framtaksemi og ósérhlífni á marg-
breyttum sviðum félagsmála. Hygg
ég þó að ræktun lýðs og lands sé
honum mesta áhugaefnið, og
þó fyrst og fremst mannræktin. í
því sambandi vil ég minna á,
hann var upphafsmaður að stofn-
un blaðsins Faxa, oftast formaður
í blaðstjórninni, og lengst af rit-
stjóri blaðsins. En þótt Hallgrím-
ur hafi ákveðnar skoðanir í stjórn-
málum hefur honum tekizt að
12
HSLENDINGAÞÆTTIR