Heimilistíminn - 08.03.1979, Blaðsíða 37

Heimilistíminn - 08.03.1979, Blaðsíða 37
Rikustu konur Framhald af 21. siðu. A árunum milli 1930 og 1940 erföi hún um 35 milljaröa króna eftir vöruhúsa- kónginn Woolworth. Stórum hluta þessa auös hefur hún eytt á sjö eiginmenn sina. Það byrjaöi meö georgiska „furstanum” Alexis Miovani. Hann skildifljótt viö hana enhafðiáður fengiö tvær milljónir dollara i brúöargjöf. Brúöargjöf hans til hennar var: — Barbara þú ert að veröa allt of feit. Þú veröur aö horast. Hún tók þetta mjög alvarlega og fór I megrunarkúr: Eftir nokkra mánuði var hún orðin svo horuö og vesöl aö hún fékk taugaáfall. Hjónabandiö entist aöeins i níu mánuöi. Næsti eiginmaöur var danski greifinn Kurt von Haugwitz-Reventiov. Þá kom kvikmyndastjarnan Cary Grant,litháiski prinsinn Igor Trpubetskoy, dóminikanski diplómatinn og „atvinnuelskhuginn” Por- firio Rubirosa og þýzki baróninn og tennisstjarnan Gottfrid von Cramm. Aö lokum var þaö svo láóski prinsinn Ray- mond Doan Vinh Na Champasack. Sá eini af þessum sjö eiginmönnum, sem ekki þáði peninga aö skilnaði var Cary Grant. Hann hafnaöi milljón dollara kveöjugjöf. Barbara Hutton náöi sér aldrei eftir þennan skelfilega megrunarkúr og i dag er hún sjúklingur. Tóbaksmilljónir Doris Duke er 65 ára gömul og banda- risk. Hún getur talizt I hópi tiu rlkustu kvenna heims. Eitt á hún sameiginlegt meö Barböru Hutton. hún hefur lika veriö gift Porfirio Rubirosa. Doris erföi miklar fjárhæðir eftir fööur sinn, tóbakskónginn james B. Duke. Er taliö aö hún hafi fengið til umráöa um 35 milljaröa króna þegar hún var 21 árs gömul. Mun hún nú vera búin aö eyöa aö minnsta kosti helm- ingi þeirrar upphæöar. Þó hefur höfuö- stóllinn ekki minnkaö enda féö vel ávaxtaö og eru eignir hennar nú um 100 milljarðar króna aö þvi er taliö er en mestur hluti auöæfanna er I formi alls konar hlutabréfa. A meöan hún var ung og skemmti sér eyddi hún dögunum I veiðiferöir, dans- leiki, kampavinsdrykkju og I félagsskap alls konar glaumgosa. Satt bezt aö segja varö hún fljótlega drykkjusjúklingur. Fyrsta hjónaband hennar fór út um þúfur eftir átta ár. Skilnaöurinn áriö 1943 kostaöi hana um tvo milljarða króna. Ariö 1947gitisthún Porfirio Rubirosa og honum tókst aö eyöa fyrir hana nokkrum milljónum svo ekki sé meira sagt á þvi eina ári sem þau voru gift. Nú heldur Doris sig fjarri glaumi lifsins og lætur sér nægja aö hugsa um trjá- garöinn sinn. — Ég verö stundum óhrein og fæ bak- verksegir hún. — En ég hef aldrei fundiö til þess fyrr aö ég sé til gagns. Hertogafrúin af Alba á meðal annars 53 hall- ir. Illmálgar manneskjur segja aö Jacque- line Kennedy-Onassis hafi alltaf dreymt um aö teljast meöal tiu rlkustu kvenna heims. Þvi miöur hefur henni ekki oröiö aö ósk sinni. Hins vegar er stjúpdóttir hennar, Christina Onassis i þessum hópi. Arfur hennar eftir skipakónginn fööur hennar er talinn vera um 140 milljaröar króna. óþekktar rikisfrúr Fáirhafa liklega heyrt um spixisku her- togafrúna af Alba, en hún ber aö minnsta kosti 45 aöalstitla á 53 hallir og um 100 milijaröa króna eignir. Ekkja AgaKhans erföi um 50 milljaröa króna eftir mann sinn. Begum er á átt- ræöis aldri og hefur ekki eytt um efni fram. Hún lifir rólegu lifi skammt fyrir utan Cannesþar sem hún á glæsihýsi mik- iö. Aö lokum er þaö svo franska frúin Madeleine Dassault, sem telja má i hópi tiu rikustu kvennaheims. Hún er gift flug- vélaframleiöandanum Marcel Dassault, sem lagöi heimanmund konu sinnar I flugvélaverksmiöju meö góöum árangri og hefur meö þvi aflaö henni milljaröa króna. Dassault er maöurinn á bak viö hinar frægu frönsku herflugvélar Mystére og Mirage. Madeleine Dassault er sögö eiga mikla peninga þó ekki séu þeir jaf- miklir og peningar sumra þeirra sem hér hafa áöur veriö taldar upp. Dassault-hjóninbúa i Paris og eru bæöi flughrædd, þótt undarlegt megi teljast. Þfb SD0 sbe Að færast undan hrósi er það sama og að biðja um að sér sé hrósað á ný. Ef eiginmaðurinn færir konu sinni bióm að ástæðu- lausu... þá er einhver ástæða fyrir því. Þeir eru allt of margir, sem alltaf eru að horfa „fram" til hinna góðu gömlu daga. Segðu ekki að þú þekkir einhvern, fyrr en þú hefur þurft að deila með honum arfi. Ef það er kaffi, sem ég fæ á kaffistofunni, þá vildi ég mega biðja um te, en sé það te, þá held ég ég vilji heldur kaffi. Það er heilbrigt að vera óánægður, svo fremi þú missir ekki allan kjark. Fegurð á yngri árum er hending, en fegurð á gam- alsaldri er list. 37

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.