Morgunblaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 23
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
Oddafjölnotapappír A4
500 blöð í pk.
www.oddi.is
39%afsláttur
349kr
Verð áður
575kr
Fyrir allt sem þú prentar!
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
www.oddi.is
Trúnaðarmál?
50%afsláttur
3.745kr
Verð áður
7.490kr
Pappírstætari
Lítill og handhægur
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
www.oddi.is
20%afsláttur
6.389kr
Verð áður
7.990kr
Klár í ugið ?
Pilot taska
46 x 35,5 x 24,5 sm
Þ E T T A E R B A L L S E M E N G I N N M Á M I S S A A F !
LAUGARDAGINN 14. MAÍ • MIÐAVERÐ 2200.- • 18 ÁRA ALDURSTAKMARK
STÓRDANSLEIKUR MEÐ STUÐMÖNNUM
ÁSAMT HILDI VÖLU
FORSALA FIMMTUD. OG FÖSTUD. Í VALHÖLL ESKIFIRÐI OG
FÉLAGSLUNDI REYÐARFIRÐI. MÆTIÐ SNEMMA TIL AÐ FORÐAST RÖÐ!! Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Granít borðplötur og flísar
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
Ís ársins
Kjörís ehf. hefur
hafið framleiðslu á Ís
ársins 2005. Bragð-
tegund ársins er van-
illuís með karamell-
um og kexkúlum. Í
fréttatilkynningu frá
Kjörís kemur fram að hugmyndin sé að hafa
þennan ís aðeins á boðstólum á þessu ári og
skipta honum svo út fyrir Ís ársins 2006.
Nýjar tegundir af Ben & Jerry’s-ís
Kjörís hefur flutt
inn Ben & Jerry’s-
ísinn frá árinu 2000.
Nú eru fáanlegar
tvær nýjar bragðteg-
undir, jarðarberja-
og ostakökuís með
jarðarberjum og Graham-kexi eða Primary
Berry Graham og piparmyntuís með Oxford
Creme-kexkökum eða Mint Chocolate Cookie.
Fyrir voru fáanlegar átta bragðtegundir hér á
landi.
Nýr sykurlaus gosdrykkur
7up Free er nýr sykurlaus gos-
drykkur sem Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson flytur inn til landsins og er
laus við örvandi efni og litarefni. Auk
þess að vera sykurlaus er nýi drykk-
urinn koffein- og kolvetnafrír, og í
honum eru engar kaloríur. 7up Free
er komið í verslanir og er fáanlegt í
0,5 l og 2 l flöskum.
Mountain Dew-orkuskot í gleri
Nú er fáanlegt Mountain Dew-
orkuskot í 25 cl glerflöskum þegar
þarf að kæla sig niður í sumarhit-
anum. Í fréttatilkynningu frá Ölgerð
Egils Skallagrímssonar kemur fram
að glerflöskurnar fáist í öllum betri
verslunum og verði einungis fáan-
legar í sumar.
NÝTT
TIL að njóta þess að sitja úti á svölum vorkvöldum
hafa margir keypt sér gaslampa til að halda á sér
hita úti á verönd eða palli. En það er aldrei of var-
lega farið með gastæki og er það einnig svo með
þessa lampa.
Ef lamparnir eru keyptir hérlendis eiga þeir að
vera löglegir og merktir CE, sem þýðir að varan
uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til öryggis,
heilsu og umhverfis og er til staðfestingar þess að
þeir uppfylli ákvæði í staðli um tæki sem brenna
gasi.
Íslenskur leiðbeiningarbæklingur
Einnig á að fylgja með þeim íslenskur leiðbein-
ingarbæklingur um meðhöndlun þeirra. Ef gas-
lampinn er keyptur ósamsettur er nauðsynlegt að
lesa leiðbeiningarnar mjög vel áður en hafist er
handa við að setja hann saman. Þetta eru gastæki
og því skiptir miklu máli að þeir séu rétt tengdir við
gaskútinn.
Á að sápubera samskeytin
Þegar skipt er um kúta á gastækjum á að sápu-
bera samskeytin með uppþvottasápu því ef gas lek-
ur þá koma sápukúlur í ljós. Ef að leki kemur í ljós
þarf að athuga hvort herða þurfi samskeytin betur
og hvort ekki sé verið með rétt samskeyti. Algeng-
ast er þó að gasleki sé vegna þess að gúmmíið í sam-
skeytunum er farið að gefa sig, þá þarf að skipta um
það. Svo þarf að athuga að líftími slangna í gastækj-
um er aðeins um fimm ár.
Gaslampar eru misstórir og sumir hverjir eru
með liðamótum til þess að ná betur yfir svalir eða
matarborð. Ýmislegt ber að hafa í huga þegar
kaupa á gaslampa.
Þegar gaslampi er valinn
og keyptur er mikilvægt
að hafa í huga hvar hann
á að vera staðsettur og
velja lampa sem passar
vel í það pláss.
Oftast er um að ræða
timburverönd með timb-
urskyggni og því ekki
æskilegt að efsti hlutinn
nái of hátt upp í skyggnið.
Mikilvægt er að gaslamp-
inn standi á stöðugu
undirlagi og í engum til-
fellum má hann standa of
nærri eldi.
Gaslamparnir eru aðeins
til notkunar utandyra eða
í vel loftræstum rýmum.
Margir geyma lampana
inni í bílskúr þegar þeir
eru ekki í notkun og þá
verður að passa vel að
það sé skrúfað fyrir gas-
ið.
Réttast er að aftengja
gaskútinn gaslampanum
yfir veturinn.
Þurfa að vera CE-merktir
og rétt tengdir við
gaskútinn
GASLAMPAR
Þegar skipt er um
gaskút á að sápubera
samskeytin.
Á VEF Lýðheilsustöðvar www.lyd-
heilsustod.is er að finna ýmsar ráð-
leggingar um hollt mataræði. Þar
kemur m.a. fram að æskilegt sé fyrir
fullorðið fólk að borða:
500 grömm af grænmeti, ávöxt-
um og safa á dag fyrir fullorðna,
þar af a.m.k. 200 g af grænmeti
og 200 g af ávöxtum, auk kart-
aflna.
Tvö glös, diska eða dósir af mjólk
eða mjólkurmat á dag. Best er að
velja fitulitlar og lítið sykraðar
vörur. Ostur getur komið í stað
mjólkurvara að hluta til. Tuttugu
og fimm grömm af osti jafngilda
einu glasi eða diski af mjólkur-
vörum. Þeir sem ekki velja mjólk
geta valið kalkbætta sojamjólk og
aðrar kalkbættar vörur eða tekið
kalktöflur.
Fiskmáltíð a.m.k. tvisvar í viku,
fyrir utan álegg eða salöt úr fiski.
Fita og feitar matvörur í hófi og
fremur valin olía eða mjúk fita en
hörð fita á borð við smjörlíki eða
smjör.
Sykur, kökur, sætindi, ís, áfengi
og gosdrykkir er eitthvað sem
fólk á að neyta í hófi.
Hálft kíló af
grænmeti og
ávöxtum á dag
MATUR