Morgunblaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 39
ALDARMINNING
Atvinnuauglýsingar
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóra vantar á Jónu Eðvalds SF-200
(1809). Aðalvél 2208 kw.
Skipið fer á kolmunnaveiðar.
Upplýsingar í símum 898 1265 og 892 0920.
Trésmiðir óskast
Vegna nýrra verkefna óskum við eftir að ráða
trésmiði eða starfsmenn, sem vanir eru
trésmíðum, til fjölbreyttra verkefna.
Ennfremur er óskað eftir trésmiðum til vinnu
á trésmíðaverkstæði okkar við innréttinga-
smíðar fyrir fyrirtæki og heimili.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu fyrirtækis-
ins í símum 553 3322 og 699 5487.
Fyrirtækið H.B. Harðarson ehf. er alhliða verktaki, sem tekur að sér
verkefni fyrir fyrirtæki, skip og heimili. Stofnár er árið 1999 og starfa
um 30 starfsmenn við fyrirtækið við fjölbreytt verkefni á trésmíða-
verkstæði og við almennar trésmíðar úti og inni. Með fyrirtækinu
starfar einnig vaskur hópur undirverktaka, þannig að fyrirtækið
er vel í stakk búið til að taka að sér heildarverk.
H.B.Harðarson ehf., Skógarhlíð 10,
105 Reykjavík, sími 553 3322, fax 551 2003.
Innkaupastjóri
Þekkt innflutningsfyrirtæki
í matvöru óskar eftir að ráða
innkaupastjóra.
Starfssvið:
Umsjón með innflutningi.
Vörustjórnun.
Skýrslugerð.
Tollskýrslugerð.
Menntun og hæfniskröfur:
Menntun á sviði vörustjórnunar.
Reynsla af innflutningi/tollskýrslum.
Þekking á matvörum.
Fagmennska, þjónustulund og hæfni
í mannlegum samskiptum.
Góð tök á ensku/Norðurlandamáli.
Umsóknir óskast sendar á tölvu-
tæku formi til auglýsingadeildar
Mbl., netfang: box@mbl.is, merktar:
„I — 17109.“
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
Laugarvatn
Upplýsingar
í síma 569 1116
Raðauglýsingar 569 1111
Fundir/Mannfagnaðir
Ársfundur
EFÍA verður haldinn fimmtudaginn 12. maí
2005 kl. 14.00 í fundarsal FOG á Hótel Nordica,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar kynntir.
3. Tryggingafræðileg úttekt.
4. Fjárfestingastefna.
5. Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna.
6. Val endurskoðanda.
7. Kynning á breytingum á samþykktum.
8. Kynning á aldurstengdu lífeyrissjóðskerfi.
9. Önnur mál.
Stjórn Eftirlaunasjóðs
Félags íslenskra atvinnuflugmanna.
Kennsla
Vigtarmenn
Námskeið
til löggildingar vigtar-
manna verður haldið
í Sjómannaskólanum í Reykjavík
dagana 30. maí til 1. júní nk.
Allar nánari upplýsingar og skráning
þátttakenda á Löggildingarstofu, sími
510 1100 og á heimasíðunni www.ls.is.
Skráningu lýkur 10 dögum fyrir nám-
skeið.
Löggildingarstofa.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Lækjasmári 2, 0702, þingl. eig. Hrafnhildur Þórðardóttir, gerðarbeið-
endur Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. og Ottó ehf., þriðjudaginn
17. maí 2005 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
11. maí 2005.
Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 1865127½ H.F. Lf.*
Í kvöld kl. 20.00
Lofgjörðarsamkoma.
Brigader Ingibjörg Jónsdóttir tal-
ar.
Allir velkomnir.
I.O.O.F. 5 1865127 Lf.
Fimmtudagur 12. maí
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Predikun Magnús Stefánsson.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir velkomnir.
www.samhjalp.is
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Árvellir 2, (úr landi Skrauthóla), Kjalarnes, þingl. eig. ESK ehf.,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 17. maí 2005
kl. 11:00.
Helgugrund 5, 010101 og bílskúr 010102, Reykjavík, þingl. eig. Guð-
rún Þóra Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Eftirlaunasjóður atvinnu-
flugmanna og Raflax ehf., þriðjudaginn 17. maí 2005 kl. 10:30.
Hraunbær 56, 110001, Reykjavík, þingl. eig. Kristín Hrönn Einarsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Samvinnulífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn
17. maí 2005 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
11. maí 2005.
Uppboð
rænnar samvinnu en að sama skapi mikill
andstæðingur kommúnista. Hann var öflug-
ur ræðumaður, þegar hann beitti sér, kjarn-
yrtur og hafði þungar áherslur. En fyrst og
síðast var hann maður einkaframtaks og
frjálsra viðskipta.
Sveinn kom oft til hjálpar ef einhver átti
undir högg að sækja. Og kannski kemur það
á óvart, að hann skuli hafa verið í hópi þeirra
sem stóðu vörð um rússneska drenginn þeg-
ar aðsúgur var gerður að húsi Ólafs Frið-
rikssonar, eins róttækasta foringja Alþýðu-
flokksins á þeim tíma.
Þeir voru nánir bræðurnir Sveinn og
Bjarni og töluðust oft við daglega. Bjarni
reiddi sig á Svein og hafði hann mjög í ráð-
um. Hann reyndist systrum sínum vel og
þær mátu hann mikils.
Sveinn var áhugamaður um skólamál og
var formaður skólanefndar Skóla Ísaks
Jónssonar frá því skólinn varð sjálfseignar-
stofnun 1946 þangað til hann lést. Hann
tryggði fjárhagslegan grundvöll skólans, en
hafði jafnframt vakandi áhuga á innra starfi
hans.
Fjölskyldan
Árið 1937 kvæntist Sveinn Helgu Ingi-
mundardóttur frá Kaldárholti í Holtum og
er hún enn á lífi, rúmlega níræð. Sveinn mat
hana mikils og hún bjó honum gott heimili.
Helga er ávallt hlý og með þennan fágæta
sjarma og gáfur sem einkenna Hælsfólkið.
Þau eignuðust fjögur börn Benedikt hæsta-
réttarlögmann, Ingimund arkitekt, Guðrúnu
lögfræðing og Einar framkvæmdastjóra.
Sveinn átti veiðikofa við Þingvallavatn og
fór þangað oft með föður sínum og vinum.
Þangað fór ég líka með þeim Benedikt syni
hans að Kaldárhöfða lítill drengur. Það var
áður en stíflan kom auðvitað, svo að Efra-
Sog var fullt af silungi. Sveinn átti stóran
bát með utanborðsmótor, sem hér Steinröð-
ur. Á honum var farið út í Sandey og ekki
man ég betur en móðir mín hafi fengið send
veiðibjölluegg, sem þar höfðu verið tínd. Síð-
an kom stíflan og spillti veiðinni.
Eftir að Sveinn hafði hætt síldarsöltun
byggði hann fallegt sumarhús í Lambhagan-
um í landi Ölfusvatns. Þar var mikið um
rofabörð og magur jarðvegur, svo að Sveinn
fór að planta trjám og rækta jörðina eins og
hann hafði gert með móður sinni í garðinum
við Skólavörðustíg 11. En það var sama sag-
an þá eins og fyrr. Ærnar sluppu inn fyrir
girðinguna, svo að fyrsta verkið, eftir að
maður kom í Lambhagann var ævinlega að
stugga þeim út fyrir. Lítill drengur hafði
Sveinn sannfærst um, að fé ætti ekki að vera
í bæjunum. Með aldrinum sannfærðist hann
um, að það væri líka rétt að hreinsa landnám
Ingólfs Arnarsonar af sauðfé. Og það hefur
nú gengið fram.
Halldór Blöndal.
FRÉTTIR
FULLTRÚAÞING Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga 9. og 10. maí sl. samþykkti ein-
róma að gera þrjá hjúkrunarfræðinga að
heiðursfélögum, þær Pálínu Sigurjónsdóttur,
Bergljótu Líndal og Sigþrúði Ingimund-
ardóttur. Á myndinni eru f.v. Elsa B. Frið-
finnsdóttir, formaður FÍH, ásamt nýkjörnum
heiðursfélögum, þeim Pálínu Sigurjóns-
dóttur, Bergljótu Líndal og Sigþrúði Ingi-
mundardóttur.
Hjúkrunarfræðingar gerðir
að heiðursfélögum