Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 301. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fordómar og sinnuleysi? Fréttaskýring Söru Kolka um óeirð- irnar í úthverfum Parísar | 20 Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Skáldatími Steinunnar Ólínu  Rúnturinn er nútímadans  Tónlistin leiðir herratískuna  Saga kreditkortanna Atvinna | 56 þúsund ný störf í Bandaríkjunum  Vímuefnapróf stuðla að öryggi 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 ASÍURÍKIÐ Laos líður enn fyrir gríðarlegt magn sprengna sem kast- að var úr lofti í Víetnamstríðinu fyrir meira en 30 árum en sprungu ekki og liggja nú grafnar í jörðu. Heimamenn vísa reyndar til um- rædds stríðs sem Bandaríkjastríðs- ins. „Voru það ekki Bandaríkjamenn sem mættu á svæðið og fóru í stríð?“ spyr einn heimamanna í grein Sig- ríðar Víðis Jónsdóttur í Morgun- blaðinu í dag en hún var þar á ferð nýverið. Í greininni kemur fram að 200 Laosbúar deyja að jafnaði á hverju ári af völdum sprengnanna og margir ganga hungraðir til hvílu vegna skorts á sprengjuhreinsuðu svæði til akuryrkju. „Flestir sem lenda í þessu eru bara venjulegt fólk eins og ég og þú. Það kemst í snert- ingu við sprengjur eða sprengjubrot þegar það ræktar landið eða leitar til dæmis að eldiviði. Stór hluti fórnar- lamba er líka börn sem vita ekki að sprengjurnar eru hættulegar,“ segir einn starfsmanna ríkissamtaka sem vinna að því að hreinsa Laos af sprengjum. Gamlar sprengjur enn mikil ógn  30 ára gamlar | 10 ÁÆTLAÐUR kostnaður við að koma upp viðun- andi rannsóknaraðstöðu til að greina smitsjúk- dóma í dýrum, öryggisrannsóknarstofu, er á bilinu 90 til 130 milljónir króna. Stjórn Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hefur síðastliðin sex ár sótt um fjárveitingu frá mennta- málaráðuneyti til að koma upp slíkri öryggisrann- sóknarstofu, en án árangurs. Öryggisrannsóknarstofur eru flokkaðar eftir svonefndum P-stöðlum og er sá hæsti P-4. „Við slögum upp í P-2,“ segir Sigurður Ingvarsson, for- stöðumaður Tilraunastöðvarinnar, en horft sé til þess að ná P-3 aðstöðu á Tilraunastöðinni. „Spá um að farfuglar muni bera fuglaflensuveir- una hingað til lands strax næsta vor hristi upp í mönnum,“ sagði Sigurður. Viðbragðsáætlun væri til staðar og hún væri í stöðugri endurskoðun, enda nýjar upplýsingar sí- fellt að berast. Hann sagði mikilvægt að skoða ís- lenska fugla, bæði villta og alifugla, til að kort- leggja hvaða veirur væru í gangi núna, svo það myndi ekki trufla matið þegar og ef fuglaflensa bærist til landsins. Áætlanir um slíka kortlagn- ingu væru til staðar en hægt gengi að fá fjármuni til að hrinda þeim í framkvæmd. Ekki betur nú en áður Eggert Gunnarsson, yfirmaður sýkla-, sníkju- dýra- og meinafræðideildar Tilraunastöðvar HÍ að Keldum, sagði stofnunina ekki búa við þau skil- yrði nú að þar væri hægt að vinna með hættuleg smitefni á borð við fuglaflensuveiruna. Reglur banni að unnið sé með inflúensuveirur úr dýrum og mönnum undir sama þaki, enda blasi þá við hættan á að veiran geti breyst í farsótt í mönnum. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir sagði að beiðni frá stjórn Keldna, þar sem hann á sæti, hefði legið fyrir lengi um að komið verði upp svo- kallaðri P-3 aðstöðu, til að hægt verði að stunda rannsóknarvinnu við hættulega dýrasmitsjúk- dóma. „Þetta hefur verið í fjárlagabeiðni Keldna undanfarin ár en ekki hefur verið orðið við henni af hálfu menntamálaráðuneytisins. Þetta er al- gjörlega óviðunandi ástand og er búið að vera það lengi og mér er ekki kunnugt um að það hafi verið tekið neitt betur í þessa beiðni nú en áður.“ Líkur taldar á að farfuglar beri fuglaflensuveiruna hingað til lands á vori komanda Ekki fjárveiting til örygg- isrannsóknarstofu í sex ár  Skortur | 8 Washington. AFP. | Endurskoðunarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur lagt til að bandarísk stjórnvöld endurgreiði Írak allt að 208 milljónir dollara, sem samsvarar 12,5 milljörðum króna, vegna samninga við Kellogg, Brown & Root, dótturfyrirtæki Halliburton, að sögn The New York Times í gær. Ágóði af sölu íraskrar olíu var notaður til að greiða fyrir þjónustu fyrirtækisins á ár- unum 2003–2004. Endurskoðunarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að endurgreiða bæri að minnsta kosti hluta fjárins vegna þess að fyrirtækið setti upp allt of hátt verð fyrir þjónustuna eða innti hana illa af hendi. Halliburton var eitt sinn undir stjórn Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna, og hann hefur neitað ásökunum um að banda- rísk stjórnvöld hafi hyglað fyrirtækinu. Bandaríkin endurgreiði Írökum TIL átaka kom milli lögreglu og yfir þúsund mót- mælenda á götum Mar del Plata í Argentínu á föstudagskvöld og í fyrrinótt eftir að leiðtoga- fundur Ameríkuríkja hófst í borginni. Óeirða- lögreglan beitti táragasi gegn mótmælendum sem köstuðu bensínsprengjum, kveiktu elda í banka og nálægum verslunum og brutu rúður um 600 metra frá hóteli þar sem leiðtogafundurinn fór fram. Lögreglan sagði að 64 hefðu verið handteknir. Áður höfðu um 40.000 manns tekið þátt í frið- samlegum mótmælum gegn stefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta og áformum um stofnun Fríverslunarsvæðis Ameríkuríkja (FTAA). Hugo Chavez, forseti Venesúela, ávarpaði mótmælendur og hét því að koma í veg fyrir að áformunum yrði hrint í framkvæmd. Vicente Fox, forseti Mexíkó, sagði hins vegar að staðið yrði við áformin og leið- togar 29 landa af 34, sem tóku þátt í fundinum, íhuguðu að stofna fríverslunarsvæði án Venesúela, Brasilíu, Argentínu, Paragvæ og Úrúgvæ. Reuters Óeirðir vegna leiðtoga- fundar Ameríkuríkja Colombo. AP. | Auðkýfingur, sem sækist eftir embætti forseta Sri Lanka, hefur lofað að nota auðæfi sín til að kaupa kú á hvert heimili í landinu verði hann kjörinn forseti. „Sérhvert heimili fær nytháa kú frá [indverska sambandsríkinu] Kerala sem búast má við að gefi af sér 10–16 lítra af mjólk á hverjum degi,“ hafði dagblaðið The Island eftir forsetaefninu Victor Hettigoda. „Jafnvel fjölskyldur, sem búa í fjölbýlishúsum og hafa einhver ráð með að annast kú, fá mjólkurkú að gjöf.“ Hettigoda er einn af þrettán fram- bjóðendum í forsetakosningum sem fram fara 17. þessa mánaðar. Hann segir að mjólkurkýrnar verði mikilvægur liður í baráttu hans gegn vannæringu í land- inu, auk þess sem þær geti stuðlað að hagsæld þar eð fólk geti notað afgangs- mjólk til að búa til osta og smjör eða selt hana til útlanda. Lofar kú á hvert heimili ♦♦♦ London. AP. | Þúsundir manna, sem misstu heimili sín í landskjálftanum í Pakistan 8. október, eiga á hættu að deyja úr sjúkdómum við slæmar að- stæður í tjaldbúðum, að sögn bresku hjálparsamtakanna Oxfam í gær. Tugir þúsunda manna hafa leitað skjóls í tjaldbúðum þar sem skortur er á drykkjarvatni og hreinlætisað- staða er ófullnægjandi. „Þúsundir manna sem búa í afskekktum þorp- um eru í alvarlegri hættu en neyð þeirra sem hafast við í tjaldbúðunum hefur ekki fengið sömu athygli,“ sagði Oxfam. Þúsundir í hættu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.