Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ljósafossskóli Um er að ræða mannvirki að Ljósafossi í Grímsnes- og Grafningshreppi, þ.e. Ljósafossskóla; skólahúsnæði og íþróttahús, auk þriggja einbýlishúsa. Eignirnar eru staðsettar á um 8 hektara lóð. Skólahúsið er þriggja hæða, samtals 700 fermetrar að stærð, og íþróttahús, byggt 1994, samtals 557 fermetrar að stærð. Skólahúsnæðið er tengt við íþróttahúsið með viðbyggingu. Auðvelt er að koma við breytingum á innra skipulagi. Eigninni hefur verið vel viðhaldið og lítur vel út. Íþróttahúsið skiptist í íþróttasal, áhaldageymslu, tvo búningsklefa og salerni, ásamt ræstikompu sem og skrifstofu. Á efri hæð er fullbúið mötuneyti með tækjum ásamt matsal. Á lóð eru leiktæki og sparkvöllur. Upplýsingar um verð og greiðslukjör á skrifstofu. Austurvegi 38 • 800 Selfossi Sími 482 4800 • Fax 482 4848 arborgir@arborgir.is - www.arborgir.is Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali ÆGÍSÍÐA - GLÆSILEG EIGN. Glæsilegt 304,1 fm einbýlishús með aukaíbúð á frábærum útsýnisstað við Ægisíðu í Reykja- vík. Á aðalhæðinni eru stórar glæsilegar stofur með arni, bókaherbergi og eldhúsi. Á efri hæðinni eru 5 svefnherbergi, hol og baðher- bergi. Í kjallara er ósamþykkt 2ja herbergja íbúð auk þvottahúss, geymslna o.fl. Bygging- arréttur. Frábær staðsetning. V. 85 m. 5403 BAUGANES - FRÁBÆR STAÐSETNING Virðulegt, vel skipulagt 252 fm einbýlishús á eftirsóttum og rólegum stað. Á aðalhæðinni er forstofa, gangur, 3 svefnherbergi (4 skv. teikn- ingu), baðherbergi, snyrting, stórar stofur (dagstofa, arinstofa og borðstofa) og eldhús. Í kjallara er séríbúðaraðstaða. Ákv. sala. Tilboð JÖKULGRUNN - FYRIR ELDRI BORGARA Fallegt 112 fm raðhús á einni hæð með inn- byggðum bílskúr við Jökulgrunn hjá Hrafnistu í Reykjavík. Eignin er öll í góðu ástandi en hún skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, herbergi og baðherbergi. Þvottahús í íbúð. Innangengt í bílskúr. Hellulögð verönd og garður við húsið. V. 32 m. 5435 KLAPPARHLÍÐ Gullfalleg íbúð á 1. hæð með sérinngangi (hús á efri lóð). Íbúðin skiptist í forstofu, tvö stór svefnherbergi, baðherbergi með þvottaher- bergi innaf, stofur og eldhús. REIÐVAÐ - LAUS STRAX Vönduð fullbúin 3ja herb. 83 fm íbúð í fallegu og vel staðsettu nýju fjölbýlishúsi á glæsilegum útsýnisstað í Norðlingaholti, rétt austan Elliða- vatns. Sérbílstæði í upphitaðri bílageymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í stofu, 2 svefnherb., eldhús, baðherb. og sérþvottahús. Sérinn- gangur er af svölum. V. 20,7 m. 5398 LAUGATEIGUR - NEÐRI SÉRHÆÐ Falleg u.þ.b. 130 fm neðri sérhæð í botnlanga við Laugateig í Reykjavík auk 38,0 fm stórs bílskúrs. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvær stofur, eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Sérinngangur. Rúmgóður og góður bílskúr með gryfju. V. 29,9 m. FRAMNESVEGUR - 107 REYKJAVÍK. 3ja-4ra herbergja falleg101 fm íbúð á 2. hæð í steinhúsi á horni Framnesvegs og Granda- vegs. Íbúðin skiptist í gang, hol, stofu, borð- stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eld- hús. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og sam- eiginlegt þvottahús o.fl. Allt parket á íbúðinni er nýlegt, gler er nýlegt og baðherbergið er ný- standsett. Húsið var steypuviðgert og málað fyrir þremur árum síðan auk þess sem svalir voru lagfærðar og skipt um klóaklagnir undir húsinu. V. 20,3 m. 5408 HÁTEIGSVEGUR - MIKIÐ ENDURNÝJUÐ Glæsileg íbúð í kjallara með sérinngangi. Íbúðin skiptist í anddyri, hol, eldhús, geymslu/þvottahús, baðherbergi, stofu og borðstofu sem áður var svefnherbergi. Stutt í alla þjónustu. Íbúðin er mjög rúmgóð og nýtast stofurnar sérstaklega vel. KÚRLAND - RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM Vel staðsett 284 fm raðhús fyrir neðan götu, ásamt 26 fm bílskúr á þessum mjög svo eftir- sótta stað í Fossvogsdalnum. Húsið er á tveimur heilum hæðum sem eru 140 fm hvor. Efri hæðin skiptist í stofu, borðstofu, sólstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og snyrtingu. Á neðri hæð er svefnherbergi, fjölskylduherbergi, geymslur, þvottahús og baðherbergi. FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali Virkilega falleg og björt hæð í fjórbýlishúsi. Hæðin var öll tekin í gegn fyrir tæpu ári síðan, m.a. ný gólfefni, ný eldhúsinnrétting og tæki, nýtt baðherbergi, nýir ofnar, ný rafmagnstafla og nýídregið rafmagn. Skipt- ing eignar: Forstofuherbergi, góð stofa og borðstofa, eldhús opið að hluta í borð- stofu, mjög fallegt baðherbergi og 2 svefn- herbergi með miklu skápaplássi í öðru. Verð 23,4 m. Opið hús verður í dag milli kl. 15 og 16, (miðbjalla), Ellert Bragi, s. 661 1121. Sölumaður á Gimli verður á staðnum. SUNDLAUGAVEGUR 22 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Vorum að fá í sölu góða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð (jarðhæð) í góðu og nýl. við- gerðu fjölbýli. Íbúðin skiptist í anddyri, hol, vinnuherbergi, rúmgott svefnherbergi, góða stofu og baðherbergi. Gólfefni eru flísar, parket og teppi. Útg. úr stofu á hellulagða afgirta verönd. Íbúðin getur verið laus fljótlega. Verð 15,3 millj. Opið hús verður í dag milli kl. 17 og 19, Þór á bjöllu. FLYÐRUGRANDI 8 Í GREIN sem ég ritaði í Morg- unblaðið fyrir nokkru fjallaði ég m.a. um stöðu mála í dag varðandi börn sem verða fyrir ofbeldi eða eru van- rækt og fjallaði um helstu afleiðingar slíks misbrests í aðbún- aði þeirra. En hvað er til ráða? Í fyrsta lagi hafa rannsóknir sýnt, bæði hérlendis og er- lendis, að fátækt eykur líkur verulega á því að börn verði fyrir ofbeldi eða séu vanrækt. Því er mjög mikilvægt að finna leiðir til þess að koma í veg fyrir að fjöl- skyldur búi við fátækt. Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem vinna almenna barnavernd- arvinnu hafi lokið við- eigandi menntun. Meðal þeirra mála- flokka sem félagsráðgjafar eru sérfræðingar í er barnavernd. Fé- lagsráðgjöf er eina greinin hér á landi og víðast hvar erlendis sem undirbýr verðandi félagsráðgjafa markvisst til þess að starfa í þessum málaflokki. Verðandi félagsráðgjafar læra um þroskaskeið barna, öðlast þekkingu og færni í að greina áhættuþætti hinna ýmsu gerða of- beldis og vanrækslu barna, mismun- andi birtingarmyndir þess og hinar ýmsu afleiðingar sem slíkur aðbún- aður getur haft. Jafnframt öðlast verðandi félagsráðgjafar m.a. þekk- ingu á félagsmálalöggjöf, þ.á m. barnaverndarlöggjöfinni og öðlast einnig færni í viðtalstækni, þ.á m. viðtalstækni við börn, greiningu geð- rænna vandkvæða og fjölskyldu- meðferð. Því er eðlilegt að gerð sé krafa um að félagsráðgjafar sinni al- mennri barnaverndarvinnu. Hverj- um mundi ekki bregða í brún ef þeir kæmust að því að „læknirinn“ sem þeir hefðu leitað til hefði ekki læknisfræði- próf heldur próf í sjúkraþjálfun eða öf- ugt! Jafnframt ber að tryggja það að barna- verndarstarfsmenn séu ekki með fleiri mál en viðmið segja til um, svo gæði þjónustunnar séu viðunandi. Þar sem fé- lagsráðgjafar einir búa yfir sértækri þekkingu á þessu sviði, ættu að vera félagsráðgjafar í öllum skólum og leik- skólum. Smærri skólar og leikskólar gætu sameinast um stöður fé- lagsráðgjafa. Þannig gætu kennarar leitað til félagsráðgjafans með mál nemenda sem þeir hefðu áhyggjur af og börn gætu einnig sjálf leitað til fé- lagsráðgjafans með mál sín. Auk þess er nauðsynlegt að tryggja að þeir aðilar sem koma að vinnu með börnum á einhvern hátt, hafi fengið fræðslu um að þeim ber skylda til að tilkynna mál til barna- verndaryfirvalda ef þeir telja að mis- brestur sé í aðbúnaði barns. Jafn- framt þyrftu slíkir aðilar að fá fræðslu um helstu birtingarmyndir misbrests í uppeldi og helstu afleið- ingar eða einkenni barna. Eins og er fá mjög fáar stéttir slíka fræðslu, t.d. fá grunnskólakennarar ekki slíka fræðslu í námi sínu. Einnig er brýnt að efla rannsóknir á sviði ofbeldis og vanrækslu barna og innan barnaverndar. Jafnframt að kanna árangur þeirra úrræða sem í boði eru innan barnaverndar og þróa fleiri úrræði sem tengjast sértækum vanda, eins og t.d. viðeigandi með- ferð fyrir börn sem hafa orðið vitni að ofbeldi milli foreldra, svo dæmi sé tekið. Aðgerðir sem þessar geta kannski ekki fyrirbyggt allt ofbeldi gagnvart börnum eða vanrækslu þeirra en þær mundu tvímælalaust draga verulega úr líkum þess að hin ýmsu brot gegn börnum geti við- gengist óáreitt. Auk þess sem slíkar aðgerðir mundu tryggja að ákveðið viðbragðskerfi færi í gang þegar virðist hafa verið brotið á barni. Slík- ar aðgerðir geta jafnvel borgað sig einnig fjárhagslega fyrir samfélagið þegar til lengri tíma er litið. Börn sem verða fyrir ofbeldi og/eða vanrækslu Freydís Jóna Freysteinsdóttir bendir á hugmyndir að úrbót- um í barnaverndarmálum ’… að efla rannsóknir ásviði ofbeldis og van- rækslu barna og innan barnaverndar. Jafn- framt að kanna árangur þeirra úrræða sem í boði eru innan barna- verndar …‘ Freydís Jóna Freysteinsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi og lektor í félagsráðgjöf við HÍ. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is VIÐ skulum vera sterk og viðbúin þegar okkur er boðið áfengi, tóbak og önnur vímuefni. Við skulum vera bú- in að taka ákvörðun um að fresta því að byrja. Við skulum fá aðstoð for- eldra okkar og fullorðinna til að hjálpa okkur við að mynda okkur sjálfstæða skoðun um að fresta byrj- unaraldrinum. Við skulum ræða við fullorðna til að fá nákvæmari upplýs- ingar um áhættuna sem felst í því að byrja áður en við höfum tekið út full- an þroska, líkamlegan og andlegan. Ekki trúa bara þeim upplýsingum sem koma frá þeim sem eru að bjóða okkur vímuefnin. Þeir bera ekki um- hyggju fyrir okkur. Þeir vilja að við verðum háð þeim og þess vegna leggja þeir svo mikla áherslu á að hvetja okkur til að byrja. Ekki hlaupa á eftir gylliboðum þeirra. Það þekkja allir til hversu skelfilegar af- leiðingar það getur haft. Það er orðið alvarlegt skeyting- arleysi ansi margra sem taka þátt í að hvetja til áfengisneyslu í dag með- vitað og ómeðvitað. Leiðir umbjóð- endanna eru ósvífnari með hverjum degi. Fyrirmyndir margra í tónlist- argeiranum eru misnotaðar til að auglýsa áfengi í tengslum við uppá- komur. Við skulum passa okkur á því að láta engan nota okkar nafn á nokkurn hátt sem getur hvatt aðra til áfengisneyslu. Forseti Íslands, Ólaf- ur Ragnar Gíslason kynnti flott for- varnarverkefni í Kastljósi og talaði mjög skýrt um að fresta þyrfti byrj- unaraldrinum sem lengst á meðan við erum óþroskuð. Um leið og erindi forsetans lauk voru birtar áfeng- isauglýsingar. Við sjáum fáránleik- ann, hvernig hans framkoma er nýtt til að koma hvetjandi áfengisauglýs- ingum á framfæri. Algjört hugs- unarleysi miðilsins og ábyrgð- armanna þar á bæ er okkur efst í huga og hvetjum við alla til að hugsa hvaða hlutverki þeir gegna í að hvetja til neyslu og hvort þeir vilji taka þátt í því. Það er tímabært að við leiðréttum þá mýtu að allir þurfi að reykja, drekka áfengi og nota vímuefni. Við skulum bíða þar til við höfum þroska til, þá sjáum við kannski tilgangs- leysið í að byrja. AÐALSTEINN GUNNARSSON, formaður Barnahreyfingar IOGT á Íslandi. Við skulum vera sterk og viðbúin Frá Aðalsteini Gunnarssyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.