Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 38
ATVINNUMÁL Á NORÐURLANDI VESTRA Það hefur lengi verið ljóst, að Norð-urland vestra hefur orðið útundan í þeirri miklu uppbyggingu atvinnulífs, sem staðið hefur yfir síðustu ár. Þess vegna var tímabært að taka málefni þessa landshluta sérstaklega til um- ræðu eins og gert var á málþingi á Sauðárkróki í fyrradag. Á málþinginu sagði Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, það sem rétt er að engar töfralausnir eru til í atvinnumálum þessa svæðis. Þó er nærtækt að líta svo á, að efling undirstöðuatvinnugreina svo sem sjáv- arútvegs og landbúnaðar hljóti að vera lykillinn að því að ná tökum á atvinnu- málum Norðurlands vestra. Það er ekki hægt að byggja álver alls staðar og líkurnar á því að álver á Norður- landi verði staðsett nálægt Húsavík en ekki á fyrrnefndu landsvæði eru meiri. Mestu skiptir hins vegar að vandi þessa svæðis er kominn í sviðsljósið og nauðsynlegt að halda þeim umræðum við sem nú eru hafnar og láta aðgerðir fylgja orðum. 38 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ 2. nóvember 1975: „Á næstu mánuðum verða teknar ör- lagaríkar ákvarðanir í launamálum landsmanna, sem geta ráðið miklu um, hvernig okkur tekst að ná tökum á óðaverðbólgunni, sem geisar í landinu og þeim almennu efnahagserf- iðleikum, sem við er að etja. Samningaviðræður standa nú yfir við opinbera starfs- menn, sem sett hafa kröf- una um verkfallsrétt of- arlega á blað. Samningar milli vinnuveitenda og al- mennu verkalýðsfélaganna verða lausir um áramót og gera má ráð fyrir, að verka- lýðssamtökin móti kröfur sínar á næstu vikum. Enn- fremur koma kjaramál sjó- manna til ákvörðunar. Þessar þýðingarmiklu ákvarðanir um launastefn- una í þjóðfélagi okkar á næstu misserum eru teknar á sama tíma og það hefur smátt og smátt verið að koma í ljós, að við erum nú komnir í jafnmikla kreppu og við komumst í á árabilinu 1967–1969. Þannig er talið, að þjóðarframleiðsla lands- manna muni minnka um 3½% á þessu ári og þjóð- artekjur á mann munu minnka um 9% í ár, sem er meiri samdráttur þjóð- artekna en jafnvel, þegar verst lét á árinu 1968. Á þessu ári hafa viðskipta- kjörin versnað um 16–17% og staðan í viðskiptum okk- ar við útlönd er orðin mjög slæm, svo slæm, að fjár- málaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, hefur lýst því yf- ir að Íslendingar eigi þess ekki lengur kost að taka veruleg erlend lán, nema er- lendir lánardrottnar sann- færist um, að við höfum tek- ið efnahagsvandamál okkar þeim tökum að árangur beri.“ . . . . . . . . . . 5. nóvember 1995: „Það er mikið á fólk lagt, sem þarf að setja aleigu sína að veði, til þess að tryggja, að langsjúk börn fái notið þeirrar læknisþjón- ustu sem þau þurfa á að halda. Hér í blaðinu í fyrradag var frásögn af sex mánaða stúlkubarni frá Eskifirði, sem þjáist af sjaldgæfum hjartagalla og að sögn móð- ur barnsins er eina lífsvon þess fólgin í hjartaaðgerð, sem þarf að framkvæmda af færum sérfræðingi í Boston í Bandaríkjunum. Eins og gefur að skilja, er kostnaður við aðgerð sem þessa ákaflega mikill og þess alls ekki að vænta að verkamannafjölskylda á Eskifirði sé í stakk búin að mæta slíkum útgjöldum. Mál af þessu tagi koma upp aftur og aftur nú orðið. Yf- irleitt eru viðbrögðin þau sömu: fjölmiðlar vekja at- hygli á málinu, fólk tekur höndum saman um fjár- söfnun til þess að auðvelda foreldrum eða öðrum að- standendum hinan sjúku barna að greiða kostnað við læknisaðgerðir sem þessar, sem er mjög hár, þegar allt er talið, vinnutap, ferða- og dvalarkostnaður og kostn- aður við sjálfa læknis- aðgerðina.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. J óhanna Sigurðardóttir, alþingis- maður Samfylkingar beindi þeirri fyrirspurn til Valgerðar Sverris- dóttir, viðskiptaráðherra, hvort lögbinda beri tiltekinn eignar- haldstíma verðbréfa ákveðinna starfsmanna fjármálafyrirtækja og lengja hann. Fyrirspurn þing- mannsins er augljóslega sprottin af fréttum síð- sumars þess efnis, að nokkrir lykilstjórnendur Íslandsbanka hefðu keypt hlutabréf í bankanum og selt þau þremur mánuðum síðar og haft af því mörg hundruð milljón króna hagnað. Í umræðum um þetta mál koma fram, að í marga áratugi hefðu þær reglur verið í gildi í Bandaríkjunum að eignarhaldstíminn yrði að vera mun lengri og að ef stjórnendur seldu bréf innan þess tíma gengi söluhagnaðurinn til fyr- irtækisins sjálfs. Fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur bendir til þess, að þingmenn séu að vakna af værum blundi og byrjaðir að átta sig á, að eðlilegt sé að setja strangari starfsreglur um ýmsa þætti viðskipta- lífsins, en hér hafa verið í gildi. Svar Valgerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráð- herra, bendir líka til þess, að ríkisstjórn sé að vakna upp við vondan draum og gera sér grein fyrir, að lögmál frumskógarins geta ekki lengur ráðið ferðinni í íslenzku viðskiptalífi. Ráðherrann upplýsti, að ráðuneyti hennar hefði nú til skoðunar hvort rétt væri að lögbinda tiltekinn eignarhaldstíma og eftir atvikum lengja hann en skv. leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeft- irlits er miðað við þriggja mánaða eignarhalds- tíma. Vonandi tekur viðskiptaráðuneytið sér ekki of langan tíma í að skoða málið. Æskilegt er að slík löggjöf taki gildi frá næstu áramótum og verði fyrsta skrefið í víðtækari lagasmíð og setningu reglugerða um ýmsa þætti viðskiptalífsins. Að leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits séu svo máttlaus sem raun ber vitni er því miður vís- bending um, að það hafi engan veginn náð utan um verkefni sitt en vonandi að þar verði breyting á með nýrri forystu. Grundvallaratriði varðandi starf Fjármálaeftirlitsins er hins vegar að starf- semi þess verði gagnsærri en verið hefur og að almenningur fái einhverja hugmynd um hvað sú stofnun er að gera. Nú hafa verið skapaðar for- sendur fyrir því að svo verði og þess að vænta að Fjármálaeftirlitið nýti sér það svigrúm og taki ekki of langan tíma í að nýta sér þær heimildir. Ætla verður að nú séu allar pólitískar forsend- ur fyrir því að Alþingi og stjórnvöld taki til hendi um setningu löggjafar og reglugerða til þess að koma í veg fyrir, að hér verði til einokun á mörg- um sviðum viðskiptalífsins. Einokun kemur niður á hagsmunum almennings og þess vegna ber stjórnvöldum að gera ráðstafanir til að verja al- mannahagsmuni. Einokun kemur líka niður á öðrum fyrirtækj- um, sem fá engan veginn þrifizt og þess vegna er löggjöf gegn einokun og hringamyndun, sem er nægilega sterk til þess að hún hafi einhver áhrif líka nauðsynleg aðgerð til þess að tryggja at- hafnafrelsi annarra fyrirtækja í sömu greinum. Segja má, að hér hafi lengi ríkt eins konar tví- veldi í mörgum greinum atvinnulífs, þ.e. að tvö fyrirtæki hafi ráðið ferðinni og litlir möguleikar fyrir aðra að komast að. Íslenzkur viðskiptajöfur sagði eitt sinn í einkasamtali, að þar sem tvö fyr- irtæki hefðu ráðandi stöðu á markaði mætti ganga út frá því sem vísu, að um verðsamráð væri að ræða. Það er áreiðanlega mikið til í þessu. Þannig hafa landsmenn á undanförnum mánuðum velt því fyrir sér, af hverju erfiðara væri en áður að fá farseðla keypta í millilanda- flugi á því lága verði, sem hægt var fyrir ári og tveimur árum. Svör stjórnenda flugfélaganna hafa verið skýr og skiljanleg. Þeir hafa sagt sem svo, að framboð og eftirspurn ráði verði. Um leið og sölumenn verði þess varir, að mikil eftirspurn sé eftir sætum í tiltekið flug sé ódýrum sætum fækkað og það sé skýringin á því, að þjóðin sitji heima hjá sér við tölvuna á kvöldin og leiti eftir fargjöldum á lágu verði, sem margfalt erfiðara sé að finna en fyrir einu ári eða tveimur. Þegar í ljós kemur náið viðskiptasamband á milli núverandi eigenda Icelandair og Iceland Express er ekki við öðru að búast en spurningar vakni í hugum fólks. Þetta er óþægilegt fyrir bæði flugfélögin og æskilegt að hið rétta komi fram. Það er einfalt mál fyrir flugfélögin tvö, að upplýsa almenning um hver meðaltalshækkun fargjalda t.d. á Kaupmannahafnarleiðinni hafi verið það sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra. Fátt meta landsmenn meir en að komast til annarra landa á lágum fargjöldum og vinsældir Iceland Express byggjast ekki sízt á því, að því félagi eru þökkuð þau lágu fargjöld, sem voru til staðar um skeið. En fátt mundi þjóðin taka verr upp en það ef í ljós kæmi að samráð hefði verið á milli flugfélaganna um hækkun fargjalda. Af þessum ástæðum og mörgum öðrum er tímabært að hefja alvöru umræður um það að byggja upp í kringum viðskiptalífið nákvæmari starfsreglur en hingað til hafa tíðkazt, en lengi hafa verið til staðar í öðrum löndum. Er löggiltur starfsrammi raunhæfur? Þeir eru býsna marg- ir, sem telja að fárán- legt sé að binda við- skiptalífið í viðjar löggjafar og reglu- gerðar. Athafnafrelsið verði að vera nánast óheft. Ef það sé misnotað komi að því fyrr en síðar að lögmál markaðarins leysi þann vanda. Svo eru aðrir, sem telja, að nánast engar reglur eigi að gilda um viðskipta- lífið sem slíkt, hins vegar eigi réttarkerfið að vera svo sterkt, að það taki á því, sem úrskeiðis kunni að fara. Einn af viðmælendum Morgunblaðsins hefur bent á tvö athyglisverð dæmi, sem segja má, að endurspegli tvö andstæð sjónarmið í þessum efn- um. Hið fyrra er sótt til Svíþjóðar. Hægt er að færa rök að því, að við Íslendingar göngum nú í gegn- um svipað tímabil í viðskiptalífi okkar og Svíar gerðu upp úr 1920. Þá var gífurlegur uppgangur í sænsku atvinnulífi og hin sænska útrás hófst. Til urðu stór fyrirtæki í Svíþjóð, sem hófu að kaupa upp fyrirtæki í öðrum löndum og höfðu um skeið mikil umsvif. Svo urðu utanaðkomandi áhrif í efnahagsmálum til þess að allt hrundi, fall sumra sænsku viðskiptajöfranna varð mikið en aðrir lifðu naumlega af eins og Wallenbergarnir. Frelsið réð ferðinni en markaðirnir réttu af það sem aflaga hafði farið. Hitt dæmið er frá Bandaríkjunum, þar sem frumskógarlögmálið réð ríkjum í viðskiptalífinu á síðari hluta 19. aldar og fram eftir tuttugustu öldinni. Bandaríkjamenn brugðust við með því að setja stranga löggjöf, sem að lokum varð til þess að einokunarhringarnir voru brotnir á bak aftur. Á þeim árum kom fram á sjónarsviðið vestan hafs blaðakona að nafni Ida Tarbell. Hún er af mörgum talin fyrsti alvöru rannsóknarblaðamað- urinn. Og hafði meiri áhrif en flestir aðrir á það að Standard Oil, auðhringur John D. Rockefell- ers, var leystur upp. Ida Tarbell gagnrýndi Standard Oil ekki fyrir stærð auðhringsins heldur fyrir vinnubrögð og starfshætti og fyrir að brjóta lög og reglur. Hún krafðist þess ekki, að allir auðhringir yrðu leystir upp. Hins vegar krafðist hún þess að frjáls sam- keppni yrði tryggð á markaðnum. Hún sagði sjálf, að Standard Oil væri fyrirtæki, sem væri svo vel stjórnað að þar væri nánast ekki að finna veikan punkt en einmitt af þeim sökum væri erf- itt að skilja hvers vegna stjórnendur fyrirtæk- isins hefðu ekki haldið sig innan ramma laga og reglna vegna þess, að þeir hefðu getað náð sama árangri með því í viðskiptum. Hún var í raun að segja það sama og sumir viðmælendur Morg- unblaðsins halda fram nú, að réttarkerfið eigi að duga til þess að taka á þeim, sem leiðast út af réttri braut. Ida Tarbell er af mörgum talin eitt stærsta nafnið í bandarískri sögu á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þeir sem halda því fram, að markaðurinn verði að ráða fram úr þeim vandamálum, sem upp kunna að koma á vettvangi viðskiptalífsins verða að átta sig á að Standard Oil í sinni gömlu mynd var til í meira en fjóra áratugi og hafði kverkatak á ákveðnum þáttum viðskiptalífsins í Bandaríkj- unum verulegan hluta þess tíma. Einokunarveldi Standard Oil og John D. Rockefeller var brotið á bak aftur á grundvelli löggjafar gegn einokun og hringamyndun, sem sett var í lok 19. aldarinnar og kennd er við John Shermann, öldungadeildarþingmann. Löggjöfin þótti handónýt framan af en var að lokum sá grundvöllur, sem þrír einstaklingar stóðu á í baráttu sinni fyrir því að frelsi mætti ríkja í viðskiptalífinu í Bandaríkjunum. Þetta voru Theodor Roosevelt, Bandaríkjaforseti, Ida Tarbell, sem áður hefur verið nefnd og rithöf- undurinn Upton Sinclair, sem m.a. kemur við sögu í leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Hall- dór í Hollywood, sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu, en skáldsaga hans, The Jungle, Frumskógurinn, skapaði gífurlega reiði um gervöll Bandaríkin. Athyglisverður munur á framgöngu rithöfunda í Bandaríkjunum þá og á Íslandi nú! Á þessum tíma vöknuðu spurningar í Banda- ríkjunum um það hvort réttarkerfið þar í landi réði við svona stórt mál eins og þar var á ferð. Um það segir Ron Chernow í bók sinni um John D. Rockefeller: „Málaferlin gegn Standard Oil voru prófsteinn TVÍSKINNUNGUR VESTURLANDA Hinn 8. október sl. reið jarð-skjálfti yfir Pakistan með þeimafleiðingum, að a.m.k. 73 þús- und einstaklingar misstu lífið. Forseti Pakistan, Pervez Musharraf, hefur haft orð á því, að heimsbyggðin hefði gefið minna fé til þess að hjálpa því fólki sem varð illa úti í þessum jarð- skjálfta en þegar flóðbylgjan skall á Indlandshafi og Katrina fór um suður- hluta Bandaríkjanna. Í viðtali við BBC sagði forseti Pak- istan m.a.: „En flóðbylgjan reið yfir mörg lönd og hún náði til fólks frá mörgum ríkj- um, sérstaklega Vesturlandabúa, sem voru ferðamenn. Þess vegna snart flóð- bylgjan beinlínis svo mörg lönd vegna þess, að fólk frá þessum löndum fórst og slasaðist og ég geri ráð fyrir, að það hafi haft áhrif á viðbrögð heimsbyggð- arinnar.“ Þessi orð Musharraf eru alvarlegt umhugsunarefni fyrir hinar ríku þjóðir Vesturlanda vegna þess ekki sízt að þau lýsa veruleikanum í hnotskurn. Flóðbylgjan á Indlandshafi og afleið- ingar hennar vöktu gífurlega athygli á Vesturlöndum af þeirri ástæðu, sem forseti Pakistans lýsir. Umfjöllunin í fjölmiðlum á Vesturlöndum snerist fyrst og fremst um afleiðingarnar fyrir þegna viðkomandi þjóða, þótt ekki væri hægt að horfa fram hjá því sem gerðist í lífi íbúa þessara svæða. Jarðskjálftinn í Pakistan vakti miklu minni athygli á Vesturlöndum vegna þess að á jarðskjálftasvæðunum var lít- ið um fólk frá okkar heimshluta. Í þessu felst ekki bara tvískinnungur heldur líka hræsni. Hinar auðugu þjóð- ir heims taka eftir flóðbylgjunni og fellibylnum vegna þess, að afleiðing- arnar snúa að þeim sjálfum en ekki að jarðskjálftanum vegna þess að afleið- ingar hans snúa að öðrum. Svipuð dæmi má nefna frá Afríku. Af hverju taka ríku þjóðirnar eftir hung- ursneyð á sumum svæðum Afríku en ekki öðrum? Af hverju taka þær eftir ofbeldi í sumum Afríkulöndum en ekki öðrum? Fer það eftir því hvar þær eiga hagsmuna að gæta? Þetta er ljótt en sennilega satt. Við ættum að láta orð Musharraf okkur að kenningu verða. En ástæða er til að vekja athygli á því að þótt þetta eigi við almennt eru til heiðarlegar undantekn- ingar. Má í því sambandi nefna þau merku samtök, ABC-hjálparstarf, sem starfrækt eru hér og vinna sitt verk að langmestu leyti í kyrrþey. Þau samtök hafa komið við sögu í Pakistan með myndarlegum hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.