Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 31
okkur tókst að bjarga eiga framtíð og hver veit hvað í henni býr. Því miður getum við ekki bjarg- að öllum, hvern einasta dag þurftum við að horfa upp á börn deyja, litlu líkamarnir þeirra gáfust hreinlega upp og hjálpin kom of seint fyrir þau. Hvernig getur svona gerst? Þú kannski spyrð þig hvernig svona geti gerst? Er enginn matur til? Eru þau munaðar- laus? Svarið er að ekki eitt einasta af okkar þús- undum barna var munaðarlaust, Norður-Nígería á nógan mat … svarið er fátækt, vankunnátta og enginn aðgangur að læknisþjónustu. Flestar þær mæður sem ég talaði við voru búnar að reyna allt sem þeim stóð til boða…galdralækna sem brenndu jurtir á höfði barnanna, óvirk lyf sem þær keyptu fyrir lánsfé, svo og bæn- ir … eins og þið sjáið er ekki mikið í boði sem kemur að notum … Sumar mæðranna höfðu ekki prufað neitt, því þær vissu ekki einu sinni um að eitthvað væri að börnunum … það er van- kunnáttan. Stelpur eru leiddar í hjónaband þeg- ar þær eru 8 ára, fara aldrei í skóla og byrja að fæða börn um leið og þær eru kynþroska. Þær hafa ekki einu sinni lært að elda mat sem börnin geta borðað. Þrátt fyrir ástandið er Nígería samt með betri löndum í Afríku, þrátt fyrir mikla neyð er líka til mikið ríkidæmi. En meginmálið er að það er ekk- ert sem finnst í Nígeríu sem ekki finnst í ótal öðrum löndum í heiminum. Neyðin þekkir engin landamæri eða heimsálfur. Ég viðurkenni að þróunarstarfið í heiminum er ekki fullkomið, við getum bætt mikið þar um því enn er langt í land. Ég skil að það tekur á að heyra um stöðugar hamfarir í heiminum og að það er svo miklu léttara að loka augum og eyrum fyrir þessu öllu saman … en veltum fyrir okkur hvort það sé kannski samviska okkar sem gerir okkur svona erfitt um vik að meðtaka óþægileg- ar staðreyndir? Ef við tökum öll okkar ábyrgð og viðurkennum að þetta er óréttlátur heimur en að við Íslendingar getum lagt okkar af mörkum til að bæta stöðuna, þá batnar samviskan, þá kannski getum við horft upp á það sem við höfum bætt, þau líf sem við höfum bjargað, þær fjöl- skyldur sem við höfum aðstoðað, þau börn sem nú brosa og ganga … Ég vil ekki halda því fram að við Íslendingar séum aðgerðalausir, undanfarnar hamfarir hafa sýnt að það er mikill vilji hjá Íslendingum að að- stoða manneskjur í neyð, en ég staðhæfi að við gerum ekki nóg, hamfarir eru ekki nema mjög lítill partur af neyðinni í heiminum, það er hin stöðuga neyð sem kallar á okkar stöðugu að- stoð … Það er svo margt fleira sem við Íslend- ingar getum gert, að aðstoða aðra manneskju er ekki bara spurning um peninga, það er spurn- ing um að veita stuðning, að fylgjast með at- burðum í heiminum, að leyfa ekki þjóðum að gleyma neyðinni, að nota kunnáttu okkar og gefa öðrum tól til að þeir geti sjálfir bætt að- stöðuna. Við höfum öll svo margt að gefa, þú hefur svo margt að gefa, rödd þína, meðvitund þína, stuðning þinn og líka peninga þína. Not- aðu krónurnar sem þú sparaðir á kaffinu í Bón- us, bíddu í smátíma með að fá þér nýjan bíl og nýja eldhúsinnréttingu, slakaðu aðeins á í jóla- gjafakaupunum og líttu út fyrir landamærin, líttu bak við fréttamyndirnar og ímyndaðu þér að þetta séu þín börn, spurðu börnin þín hvort þau vilji endilega fá nýja PlayStation í jólagjöf eða hvort þau vilji nota peningana til að bjarga lífi annarra barna. Gerðu þá kröfu til ríkisstjórn- ar okkar að hún noti réttmætan part af sköttum okkar til að styðja við aðra, að hún noti rödd okk- ar til að mótmæla neyðinni sem heldur áfram á hverjum degi, gerðu kröfu til landa þinna að þeir taki ábyrgð sem eitt ríkasta land heims og að við nýtum aðstöðu okkar til góðs fyrir aðra. En kannski er mikilvægast af öllu að gleyma ekki. Neitaðu að taka þátt í gleymskunni þar sem við dag eftir dag daufheyrumst við að allt sé ekki gott og frábært í heiminum. Þetta er því miður ekki yndislegur heimur nema fyrir örfá prósent af mannkyninu … þar á meðal okkur … Ég vil ljúka þessu með smá sögu af Dennis sem er 8 ára strákur frá Úganda. Um daginn heyrði ég frásögn hans af fyrstu árum sínum. Þegar hann var 5 ára gamall rændu skæruliðar honum frá fjölskyldu sinni til þess að nota hann í borgarastríðinu, mjög venjuleg aðferð í Úganda og öðrum löndum því það er hægt að hræða börn til að gera hvað sem er. Til að herða hann var hann þvingaður til að drepa yngri bróður sinn og þar á eftir var hann látinn fá byssu og tekinn með í árásir á óbreytta borgara. Í tvö ár var hann fangi hjá skæruliðunum, þar sem hann framdi hina óhugnanlegustu glæpi. Sem betur fer tókst honum að flýja og nú sækir hann reglulega sál- fræðihjálp sem MSF býður upp á í Úganda og stæði ekki til boða ef manneskjur eins og við værum ekki tilbúnar að hjálpa. Það sérstaka er að eftir allt sem þessi blessaði drengur er búinn að upplifa … lauk hann frásögn sinni með þess- um orðum „ …og mig langar að verða flugmaður þegar ég verð stór“ … þrátt fyrir allt sem hann hefur gengið í gegnum á hann sömu drauma og aðrir litlir strákar. Tökum ábyrgð, deilum af ríkidæmi okkar með þeim sem minna hafa, skiljum að rödd okkar get- ur haft áhrif í heiminum og viðurkennum að okk- ur ber skylda til að hugsa hvert um annað, hvort sem við lifum innan sömu landamæra eða í mis- munandi heimsálfum … Horfðu nú yfir morgunverðarborðið og líttu í eigin barm, líttu á börnin þín, líttu á heimili þitt … Getur þú sagt að þú hafir ekkert að gefa, getur þú sagt að þú gerir nóg, getur þú sagt að þjóð þín geri nóg? Móðir og barn í Sokoto í Nígeríu. Í landinu deyja 20% barna fyrir fimm ára aldur. Höfundur er verkefnastjóri hjá Medecins Sans Frontieres. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 31 Opnunartími virka daga frá kl. 14.00-18.00, um helgar frá kl. 10.30-18.00 Sendum út á land - Upplýsingasími 511 1055 í Perlunni catmandoo R Ö H N I S C H AND1 Firefly Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð: Stakar íþróttabuxur 1.600 kr. 3.990 kr. NIKE stuttbuxur 1.400 kr. 3.600 kr. ADIDAS/NIKE/SPEEDO sundbolir Frá 1.000 kr. RUCANOR sokkar 3 í pakka 500 kr. ADIDAS innanhússkór STABIL 4.000 kr./7.000 kr. 7.990 kr./13.990 kr. NIKE alhliðaskór TERRA SEBEC 4.000 kr. 7.990 kr. NIKE innanhússkór MULTICOURT 2.300 kr. 4.600 kr. FIRE FLY barnaskór 1.200 kr. 3.990 kr. NIKE AIR DEFIANT körfuboltaskór 5.500 kr. 10.990 kr. NIKE anorakkar, fóðraðir 3.500 kr. 10.490 kr. NIKE gallar, stórar stærðir 3.500 kr. 11.990 kr. Adidas Fótboltavörur: Góðar jólagjafir: Nike, Adidas, Puma, Man. United og Arsenal vörur í úrvali Fótboltaskór - legghlífar - búningar - boltar, mjög mikið úrval Sundfatnaður: Nike, Adidas, Speedo Sundbolir, bikini, sundskýlur, sundbuxur (boxer), barnasundföt Gaddaskór: Nike, - áhugavert fyrir frjálsíþróttafólk Okkar takmark: 50-80% lækkun frá fullu verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.