Tíminn - 30.12.1979, Qupperneq 4
4
Sunnudagur 30. desember 1979
í spegli tímans
bridge
Gerðist
kraftaverk?
Einn af bandarisku heimsmeisturun-
um, Edwin Kantar, hefur i mörgárskrifaö
þátt i ameriska timaritiB The Bridge
World, um varnarspilamennsku. Hann
virðist hafa haft gott af þeim skrifum,
eftir spilinu hér að neöan aö dæma, þar
sem hann sat i austur. Spilið kom fyrir I
„dollara” tvimenning i Monte Carlo og
sagnhafi var Evrópumeistarinn i kvenna-
flokki: Nicola Gardener.
Noröur.
S. DG1094
H. D753
T. G4
L. K6
Vestur.
S. AK53
H. K
T. 75
L. A108432
Suður.
S. 2
H. AG1064
T. KD10863
L. 5
Vestur. Norður. Austur. Suður
1 tigull
2 lauf 2 spaðar 3 lauf 3 hjörtu
4 lauf 4 hjörtu allirpass
Austur.
S. 876
H. 982
T. A92
L. DG97
Lokasamningurinn var sá sami á
flestum borðum og útspilið var venjulega
spaðakóngur. Siöan tók vestur á laufás og
spilaði spaðaás, sem sagnhafi trompaði.
Svona gekk vörnin hjá Nicolu og hún spil-
aði nú, eins og flestir aðrir, litlum tigli á
gosann, i þeirri von að fá innkomu i blind-
an , til að geta siðan svinað trompinu.
Kantar sá strax hvers vegna sagnhafi var
að ómaka sig til að spila tigli og i stað þess
að taka á tigulásinn, fylgdi hann i slaginn
með tvistinum. Og Nicola var ekki seinn á
sér að taka trompsvininguna. Þetta virð-
ist e .t.v. ekki vera neinn sérstakur galdur,
sem Kantar framkvæmdi þarna, en það
segir sina sögu, að spilafélagi hans var
eini spilarinn i salnum, sem fékk á hjarta-
kónginn.
Litla stúlkan á myndinni og fjölskylda hennar
halda því fram að stórfurðuleg fyrirbrigði hafi
gerst á heimili þeirra# sem sé ekki hægt að kalla
annað en kraftaverk. Jenny McAlevy, sem er 10
ára, á heima i Brentwood á Long Island við New
York. Hún hafði áhuga á jurtasöfnun og m.a. tók
hún haustið 1978 stórt og fallegt laufblað af tré í
garðinum heima hjá sér til þess að þurrka það i
bók. Bókin sem fyrir valinu varð var Líf Jesú
Krists, sem henni hafði verið gefin. Síðan
gleymdist blaðið í bókinni, en um það bil ári
seinna mundi telpan eftir þvi og fór að gá hvort
tekist hefði vel að þurra blaðið. Viti menn, þegar
bókin var opnuð kom blaðið í Ijós, fallegt og
ófölnað, en á því var greinileg mynd, sem telpan
og móðir hennar segja að sé mynd af Jesú.
Það varð uppi fótur og fit á heimilinu, sumir
reyndu að útskýra þetta furðuverk með því
að myndin hefði orðið til eftir mynd i bókinni,
en í henni var engin slík mynd. Ekki hefur enn
fengist nein skýring á fyrirbærinu. Sóknar-
prestur fjölskyIdunnar fékk Gerald Ryan
biskup til þess að koma og fylgjast með
málinu, en hann sagði aðeins: — Þetta er
fallegur viðburður og blessun fyrir telp-
una að trúa á þetta, en sérfræðingar verða að
rannsaka þetta nánar áður en við kirkjunnar
menn þorum að lýsa yfir að hér hafi kraftaverk
gerst, en sattað segja er engu líkara en svo hafi
verið.
Fjölskyldunni hefur verið boðið of fjár fyrir
myndina á laufblaðinu, en allir á heimilinu eru
sammála um að ekki komi til greina að selja dýr-
gripinn.
krossgata
3189.
Lárétt
1) Magi. -6) Eins,- 8) Tal. - 10) Hvitiand-
liti. -12) Nafar. -13) Guö. -14) Aria. - 16)
Fersk. - 17) Fiskur - 19) Sæti. -
Lóðrétt
2) Sjávardýr i þolfalli. - 3) Drykkur. - 4)
Skolla. - 5) Fjárhirðir. - 7) Fáni. - 9)
Fiska. -11) Fugl. -15) Aðgæzia. -16) Hár.
- 18) Kusk. -
Ráðning á gátu No. 3188
Lárétt
1) Yggli. - 6) Nái. - 8) Sný. -10) Tem. - 12)
Ná -13) Tá. -14) Uss. -16) Pan. -17) Efa. -
19) Glatt. -
Lóðrétt
2) Gný. - 3) Gá. - 4) Lit. - 5) ösnur. - 7)
Smána. - 9) Nás.- 11) Eta. - 15) Sel. - 16)
Pat. - 18) Fa. -
/Ksfú
rc.t ;s'y
með morgunkaffinu
1 11 /d! m:y
skák
Héreigast við tveir „áhugasérfræðing-
ar” og það er hvitur sem á leik og vinnur.
N.N.
N.N.
hxg7 Gefiö
Ekkert fær borgiö þvi að svartur verði
mát i næsta leik eða þarnæsta.
— Til þess að grennast þarftu
meiri hreyfingu, t.d. að hreyfa
höfuðið frá hægri til vinstri þeg-
ar þér er boðið aftur á diskinn.
'í l"'| '
— Þú skalt aldrei þiggja far
með fljúgandi diski Matthildur.