Tíminn - 30.12.1979, Page 8
Sunnudagur 30. desember 1979
8
Erlent yfirlit
Byltingar er að vænta í orkumálum
Jóhannes Páll páfi
fremur unnið a6 þvi aö styrkja
þann grunn, sem fyrir er og
hann telur traustan og gtíöan.
Þaö má á vissan hátt segja um
hann, aö hann sé boöberihinna
fornu dyggöa. Sennilega þarfri-
ast katólska kirkjan slíks leiö-
toga i þvi rtítleysi og ringulreiö,
sem nú gengur yfir heiminn.
Margt bendir til, aö katólska
kirkjan geti oröiö traustari og
styrkari stofnun undir forystu
hans.
Súsaga erfræg, aöStalinhafi
eitt sinn spurt á heimsstyrjald-
arárunum, þegar rætt var um
aö leita stuönings páfans: Hvaö
mörg herfylki hefur páfinn?
Páfinn getur ekki beitt her eöa
lögreglu einsog Khomeini, en á-
hrif hans og katólsku kirkjunnar
geta veriö mikil á almennings-
álitiö i heiminum, ef þeim er
hyggilega beitt.
ORKUMALIN eru nú mesta
vandamál rikja, sem ekki ráöa
yfir auöugum orkulindum. Þau
hafa þvi mjög sett mark sitt á
efnahagsþróunina i heiminum á
árinu, sem er aö liöa.
Mörg riki reyna nú aö auka
orkusparnaö og eru Bandarikin
i hópi þeirra. Orkuþörfin fer
jafnframt vaxandi, svo aö
aldrei veröur náö langt meö
orkusparnaöi einum til aö leysa
orkuvandann.
Meginúrræöiö hlýtur aö veröa
þaö aö finna nýja orkugjafa.
Margt bendir til, aö þetta veröi
meginverkefni visindamanna
og tæknimanna á komandi ár-
um. Sumirspá þvi, aö á árunum
fram aö aldamótum, muni
veröa mesta bylting á sviöi vis-
inda og tækniþróunar, sem
mannkyniö hefur lifaö til þessa.
Sú bylting veröi tengd nýjum
orkugjöfum, sem þá komi til
sögunnar.
t LOK ársins 1979 vakna óvenju
margar spurningar um fram-
vinduna á næsta ári, sem menn
gera sér vonir um að fá svarað
þá. Hver veröa t.d. afdrif
Salt-2-samningsins, en sambúö
1 austurs og vesturs getur
mjög oltiö á þvi? Hver verða
endalokin á viöræöum Egypta
og Israelsmanna um framtiö
Vesturbakkans svonefnda og
Gazasvæðisins, en þeim á aö
ljúka á næsta ári? Hver veröur
árangurinn eöa árangursleysiö
af viöræöum Rússa og Kínverja,
sem hófustá þessu ári? Þannig
væri hægt aö halda áfram aö
spyrja. Margt gæti bent til, aö
næsta ár yröi örlagarikt.
Sú spurning er einnig veiga-
mikil, hvort sú von rætist, aö
hafréttarráöstefnan nái á næsta
ári samkomulagi um nýjan viö-
tækan hafréttarsáttmála, sem
meöalannarsleggi grundvöll aö
sameiginlegri nýtingu þjóöanna
á botnauðæfum úthafsins. Ef
slikt samkomulag næðist, væri
þaö eitt stærsta og þýöingar-
mesta sporiö til viötækrar al-
þjóölegrar samvinnu, sem stig-
ið hefur veriö til þessa dags. Ef
þaö heppnaöist, gætu fleiri góöir
hlutir fylgt I kjölfariö. Leiö al-
þjóölegrar samvinnu er oftast
torfær, en hún er eina leiöin til
aö t ryggj a f riö og örygg i I heim -
inum og þvi mega menn ekki
missa vonina, þótt hægt gangi
oft og tiðum.
Þ.Þ.
TRÚMAL meira en stjórnmál,
trúarhreyfingar meira en
stjórnmálaflokkar settu svipinn
á atburöi ársins 1979. Tveir trú-
arleiötogar, þótt ólikir séu,
keppa um þaö aö teljast maöur
ársins, en þaö eru þeir Khom-
eini og Jóhannes Páll páfi.
íranska byltingin veröur aö
teljast stærsti atburöur ársins.
Þótt afleiðingar hennar séu
hvergi nærrikomnar allar I ljós,
bendir flest til þess, aö hún eigi
eftir að valda meira raski I vest-
anverðri Asiu en nokkur annar
atburður, sem hefur gerzt þar
um langt skeið. Jafnvel þótt hUn
veröi ekki til þess aö steypa
oliufurstunum viö Persaflóa og I
Saudi-Arabiu af stóli, lætur hún
hrikta svo mjög i stólum þeirra,
að þeir veröa aö breyta mikiö
um stefnu og starfshætti, ef þeir
eiga að halda velli. Þetta getur
haft hinar örlagarikustu afleiö-
ingar fyrir sambúö þeirra viö
vestræn riki.
En þaö eru ekki vestræn riki
ein, sem hafa ástæðu til aö ótt-
ast hina islömsku hreyfingu,
sem bylting Khomeinis hefur
hrundið af stokkunum. Hún get-
ur einnig ógnaö hinum komm-
únistiska heimi. Sitthvað bendir
tíl, aö hún geti átt eftir aö valda
RUssum miklum vanda i
Afghanistan og jafnvel innan
landamæra Sovétrikjanna.
Enn er hin Islamska hreyfing
svo skammt á veg komin, aö
menn veröa að láta sér nægja
ágizkanirog spádóma um fram-
tiöina. Til eru lika þeir, sem
vona, aö hUn eigi eftir aö renna
út i sandinn. Sú spá er þó ekki
likleg. En jafnvel þótt svo færi,
veröur Vestur-Asia aldrei aftur
þaö, sem hún var fyrir Irönsku
byltinguna.
JOHANNES Páll páfi er ekki
byltingarmaöur eins og Khom-
eini. En hann er ekki minni
áróðursmaöur. Feröalög hans
viöa um lönd, en þó einkum
heimsókn hans til Póllands,
hafa veriö engu minni heims-
fréttir en atburöirnir i tran.
Páfinnhefur ekkiboöaö nýjung-
ar eöa breytingar, heldur miklu
Khomeini
Trúarleiðtogar settu
svipinn á áríð 1979
ÍJtgcfandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulitrúi:
Oddur Óiafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15 sími
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr.
4000ámánuöi. Blaöaprent.
Óvissan um áramótín
Það mun valda ugg ýmissa nú við áramótin, að
rikisstjórnin, sem situr að völdum, er bráðabirgða-
stjórn, sem búin er að biðjast lausnar, en stárfar
vegna tilmæla forseta Islands þangað til ný rikis-
stjórn hefur verið mynduð. í raun réttri má segja,
að rikið sé forustulaust. Ástand efnahagsmála og
þjóðmála er hins vegar þannig ástatt, að meiri þörf
er fyrir starfhæfa og röska rikisstjórn en oft áður.
Það var von margra, að eftir kosningar yrði
mynduð vinstri stjórn, enda hnigu úrslit þeirra ein-
dregið i þá átt. 1 samræmi við það fól forseti íslands
Steingrimi Hermannssyni, formanni Framsóknar-
flokksins, að gera tilraun til stjórnarmyndunar. Sú
tilraun bar ekki árangur að þessu sinni og verður
ekki reynd aftur, nema aðrar tilraunir hafi mistek-
izt. Áreiðanlega er það mörgum mikil vonbrigði, að
þessi tilraun skyldi ekki heppnast. Ein ástæðan til
þess er sú, að kosningabaráttan hefur skapað ýmis
pólitisk sárindi, sem tekur sinn tima að læknast. Af
þessu er ljóst, að kosningabaráttan hefur ekki bætt
andrúmsloftið, en vænta verður þess að það batni
aftur, þegar frá liður.
Forseti Islands hefur nú falið Geir Hallgrimssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, að gera tilraun til
myndunar meirihlutastjórnar og hefur hann tekizt
það verk á hendur. Haldi Geir Hallgrimsson fast við
leiftursóknina, mun stjórnarmyndunartilraun hans
mistakast. Morgunblaðið hefur gefið i skyn, að
Sjálfstæðisflokkurinn telji sig ekki bundinn af henni
lengur, þvi að hún hafi beðið ósigur i kosningunum.
Mbl. hefur mælt með þvi, að Sjálfstæðisflokkurinn
tæki upp samstarf við Alþýðubandalagið og hefur sú
hugmynd fundið vissan hljómgrunn hjá þvi.
1 frásögn Morgunblaðsins af fundi þingflokks og
flokksstjórnar Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn
var siðastliðinn fimmtudag, er sagt, að „lítill
minnihluti hafi viljað útiloka samstarf við Alþýðu-
bandalagið” og má af þvi ráða, að mikill meirihluti
hafi verið samstarfinu fylgjandi. Jafnframt segir
Mbl. að „meirihluta fundarmanna mun hafa þótt
litið til samstjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks koma.” Þetta orðalag verður vart
skilið á annan veg en meirihlutinn hafi verið slíku
samstarfi andvigur og kemur það ekki á óvart, þar
sem ihaldsstefna Sjálfstæðisflokksins og umbóta-
stefna Framsóknarflokksins eru meginandstæð-
urnar i islenzkum stjórnmálum.
Þannig er þá staðan i stjórnmálunum um áramót-
in. Þótt ýmsir forustumenn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðubandalagsins hafi löngun til samstarfs, er
ekki liklegt, að það muni takast. Þá munu taka við
tilraunir til myndunar minnihlutastjórnar, en mis-
' heppnist þær tilraunir, virðast horfur á utanþings-
stjórn.
Hér verður engu spáð um hver útkoman verður.
Fyrir Framsóknarflokkinn gildir mest i þessum
hráskinnsleik að halda réttum áttum i samræmi við
þau fyrirheit, sem hann gaf kjósendum og hlaut
stuðning þeirra i kosningunum. Slik vinnubrögð eru
heiðarlegust og heilladrýgst, þegar til lengdar læt-
ur.
Þrátt fyrir óvissuna, er ekki ástæða til kviða.
Ýmsir þurfa tima til að jafna sig eftir kosningar og
viðhorfin breytast, þegar málin skýrast betur.
Landið er gott og þjóðin dugandi og getur þvi átt
góða framtið, ef hún gætir að sér i tima. Þvi er á-
stæða til að vona, að árið 1980 reynist Islendingum
gott ár.
Þ.Þ.