Tíminn - 30.12.1979, Blaðsíða 13
Sunnudagur 30. desember 1979
13
Minnisstæðustu atburðir ársins .... Minnisstæðustu ....
Guðlaugur
Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar
,Kaldhæðnis-
legt að
dragaúr
framleiðslu’
Þaö vill nú einu sinni vera
þannig að þeir atburðir sem
tengjast starfinu standa manni
skýrast og lengst fyrir hugskots-
sjónum, sagði Guðlaugur Björg-
vinsson, forstjóri Mjólkursamsöl-
unnar.
Af innlendum vettvangi kemur
mér strax í hug ástand og horfur i
landbúnaðarmálum sem sköpuð-
ust s.l. vor og sumar. Leit lengi
vel út fyrir, að framleiðsla á land-
búnaðarvörum myndi dragast
stórlega saman vegna lélegs
tiðarfars. Töldu sumir, að þar
með hefði óvænt ,,lausn” borist á
offramleiðsluvandamálum land-
búnaðarins. Það virtist gjörsam-
lega gleymast að slik „lausn”
kemur þyngst niður á þeim sem
minnst mega sin. Auðvitað
verður að leysa þessi mál með
öðrum hætti. Hinsvegar finnst
mér og ugglaust fleirum sem
störfum i tengslum við íslenska
matvælaframleiðslu, það vera
allt að þvi kaldhæönislegt að hér
uppi á tslandi skuli menn eyða
ómældri orku i að finna leiðir til
að draga úr íramleiöslu á þeim
bestu og hollustu matvælum sem
völ er á, á meðan fólk hrynur úr
hungri svo að segja allt í kringum
okkur. Er ekki hugsanlegt að á
þessum málum geti orðið snögg
og óvænt breyting. Hverjum heföi
dottið i hug að á örskömmum
tima gæti komið upp núverandi
staða i oliumálum? Gæti ekki
orðið stutt i það, að gæfa og vel-
gengni þjóðar byggðist fyrst og
fremst á þvi hve mikið hún á og
getur framleitt af orku og mat-
vælum. Hvoru tveggja er mann-
kyninu jafn nauðsynlegt.
Ég minnist ekki siöasta árs sem
árs stórra atburða. Miklu frekar
árs vonbrigða á stjórnmála- og
efnahagssviðinu. Reynslan sem
fékkst á árinu undirstrikar nauð-
syn á einingu, ekki aðeins meðal
stjórnmálamanna og flokka
heldur þjóðarinnar allrar ef ráða
á við meiri háttar vandamál, eins
og t.d. verðbólguna.
Af erlendum vettvangi er mér
minnisstæðust þróun málai Iran
meö öllum þeim beinu og óbeinu
áhrifum sem hún hefur haft.
Óttarr Möller fyrrv.
forstjóri
„Bjartsýnn á
framtíðina”
— takistað vernda
lýðræðið”
„Taka gislanna i tran. En fyrir
mig persónulega má segja aö
fjórar ferðir marki liðið ár, sagði
Óttarr Möller fyrrv. forstjóri
Eimskipafélags tsiands”.
„Ber fyrst að telja ferð, sem
lauk á sl. ári hjá Eimskipafélagi
Islands og hófst fyrir 40 árum.
Ferð i kringum landiö, þar sem
ég I hálfan mánuö fékk tækifæri
til aö kynnast enn einu sinni stór-
fengleika og fegurö okkar kalda
lands. Þetta var hálfs mánaðar
ferðalag og bjart veður alla daga
nema einn. Og á móti, ferð til
Filippseyja, þar sem ég kynntist
góðu fólki, en flestir voru fátækir.
Rlkidæmiðsafnastá fárramanna
hendur, enda er þarna einræði.
Mér telst svo til, að meðallaun
séu 18 sinnum hærrihér en í þessu
landi eilifs sumars. Fjórða ferðin
er „Feröin, sem aldrei var far-
in”, eftir Sigurð Nordal. Þrosk-
andi lestur. Ég las ekki þetta
listaverk fyrr en á sl. hausti.
Um framtíðina þetta: Ég er
bjartsýnn. Ég trúi þvi að ís-
lendingar vakni af þungum
Þyrnirósarsvefni. Kveði niður
verðbólgudrauginn, sem er verst-
ur þeim, sem minnst mega sin.
Takist að vernda lýðræðið sem nú
er í hættu vegna þrýstihópa og
upplausnar i þjóöfélaginu. Égtrúi
þvi, að markvisst veröi unnið að
verndun og uppbyggingu gjöfulla
fiskimiða og óbeisluö orka verði
nýtt. Einnig að fyrirtæki i landinu
verði byggð upp.
Ég trúi þvi aö Islendingar losi
sig við áhrifavald „prófessora” i
lýðskrumi og þrætubókalist, en
taki til við að fara að góðu for-
dæmi manna eins og t.d. athafna-
mannsins Einars Guðfinnssonar i
Bolungarvik. Églasævisögu hans
nýlega og þykir hún frábær. Ein-
ar hugsar fyrst og fremst um hag
fyrirtækja sinna og þar með
fólksins i þorpinu, sem hann hefur
átt rikastan þátt i að byggja upp.
Ef íslendingar velja sér slika
menn til forystu og lýðræðissinn-
ar I landinu læra af orðum skálds-
ins „Litla þjóð, sem átt i vök að
verjast/ Vertu ei við sjálfa þig að
berjast”, þá er sannarlega
ástæða til að vera bjartsýnn.
Kristinn Finnbogason,
Framkvæmdastjóri
Iscargo
„Vænti mikils
á þeim ára-
tug sem nú
fer í hönd”
„Það eru einkum tvö atvik sem
mér eru minnisstæö á þessu ári”,
sagði Kristinn Finnbogason,
fram'kvæmdastjóri Iscargo. er
hann var beðinn að minnast árs-
ins sem nú er að liða.
„í fyrsta lagi er mér minnis-
stætt að ég lét af störfum á>-Tim-
anum á árinu og tók við þessu
starfi hér hjá Iscargo, sem ég
kann mjög vel viö og hins vegar
er það sem vakti mesta ánægju
mina á árinu, en það eru úrslit
siðustu alþingiskosninga. Það var
greinilegt á úrslitum kosning-
anna að almenningur i landinu
haföi áttað sig á,að sá lygaáróöur
sem var viðhafður fyrir kosning-
arnar 1978 var ekkert nema moð-
reykur og sjónhverfingar og enn-
fremur var greinilegt að menn
höfðu áttað sig á þvi, að Fram-
sóknarflokkurinn er það afl i is-
lensku þjóðfélagi sem þarf að efla
ef fólki á að liöa vel hér og landið
á að vera byggilegt.
Um framtiðina er það að segja,
aö ég sem framkvæmdastjóri Is-
cargo vænti mikils á þessum
áratug sem nú fer i hönd. Við fá-
um nú strax eftir áramótin nýja
flugvél, sem mun ábyggilega
valda straumhvörfum i vöru-
flutningum og þeim flutningum
sem Iscargo hefur stundað und-
anfarinn áratug.
Ég geri mér líka grein fyrir þvi
að þessi niundi tugur aldarinnar
mun lfklega verða áratugur tölv-
unnar. Það er kunnara en frá
þurfi aö segja að tölvurnar eru i æ
rikari mæli aö gripa inn i alla
þætti hins mannlega lifs og það er
þvi meðnokkrum kviöa sem ég lit
fram á veginn, þó aö sá kviði sé
aö sjálfsögðu blandinn eftirvænt-
ingu. Ég óttast að þessi skelfilega
tölvunotkun sem alls staðar er að
koma til — eiginlega frá vöggu til
grafar, ef svo má að orði komast,
aö hún brjóti niður hinn mannlega
þátt sem aðaláherslan hefur veriö
lögð á hingaö til. Ég vil hvetja
menn til að íhuga þennan þátt vel,
þannig að manngildið og hinn
mannlegi þáttur veröi ekki fótum
troðinn. Ég vil að lokum nota
þetta tækifæri til þess að óska
Timanum og starfsfólki hans alls
hins besta i framtiðinni”, sagði
Kristinn Finnbogason að lokum.
Oskum öllum viðskiptavinum
okkar
árs og friðar
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
A WZX-íSLEkZKA HI
Óskum öllu starfsfólki okkar og viðskiptavinum
um land allt
farsæ/dar á nýja árínu
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Oliufélagið h.f.
Óskum öllu starfsfólki okkar
og viðskiptavinum til lands og sjávar
farsældar á nýja árinu.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða
Eyjafiskur sf.
Kirkjuvegi 12 Box 131
Vestmannaeyjum