Tíminn - 30.12.1979, Page 15
Sunnudagur 30. desember 1979
15
Minnisstæðustu atburðir ársins .... Minnisstæðustu ....
Guðlaugur Þorvalds-
son, ríkissáttasemjari
,JStaesti ára-
tugur vekur
mér bæði
óhug og von”
Óvissan i stjórnmálum Islend-
inga er mér mjög ofarlega i huga
og svo mun áreiðanlega vera hjá
þorra landsmanna. Það væri góö
nýársgjöf, ef forystumönnum
þjóðarinnar tækist að stýra skiit-
unni okkar framhjá skerjum og
boðum og sigla henni heilli i höfn
með hækkandi sól, sagði
Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari rikisins.
Persónuleg málefni eru mér
þó efst i huga um þessi áramót.
Sárastur er sonarmissir sem
leiðir hugann óneitanlega á ýms-
anhátt inn á nýjar brautir. Einn-
ig skipti ég um starf á árinu. Ég
hvarf frá Háskóla tslands til að
taka viö embætti rfldssáttasemj-
ara. Mikil umskipti á margan
hátt, sem ég mun ekki veratalinn
öfundsverður af með þeirri óvissu
i kjaramálum, sem framundan
er. Ég kveð háskólann með þakk-
læti i huga og góðar minningar og
áþáósksjálfummértil handa, að
mér auönist að verða að ein-
hverjugagni á vinnumarkaðnum.
Aerlendum vettvangi ber hæst
fall ýmissa einræðisherra og
harðstjóra með afleiðingum, sem
koma á einhvern hátt við flesta
menn hvar sem þeir búa. Þeirri
spurningu er þó ennþá ósvarað að
mestu hvort grimmdin þoki úr
valdastóli með nýjum herrum.
Næsti áratugur vekur mér bæði
óhug og von. óhug að þvi leyti að
grimmd og vaxandi átök lít af
misskiptum efnislegum gæðum
i heiminum, ólikri trú, stjórn-
málaskoðunum eða siðum geti
leitt mannkynið út I tortimingar-
styrjöld. Von að þvi leyti, að mér
finnst þeim öflum vaxa ásmegin,
ekki sist meðal margs ungs fólks,
sem sækjast eftir félagslegum og
andlegum verðmætum til lifsfyll-
ingar. Þetta fólk veit, að efnisleg
gæði eru ekki óþrjótandi i heimin-
um. Það hefur þvi óbeit á bruðl-
inuokkar siðustu áratugina, en er
jafnframt ljóst, að án efnislegra
gæða getum við ekki verið. Það
verður hins vegar að fara betur
með þau en við höfum gert.
Theódór A. Jónsson
formaður Sjálfebjargar
„Árið 1980
vekur for-
ráðamenn til
umhugsunar
og aðgerða”
„Undirtektir við söfnun til
sundlaugar Sjálfsbjargar eru
mér mjög minnisstæðar frá ár-
inu,semnúerað liða.sagði Theó-
dór A. Jónsson formaður Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra.
Söfnunarféð er undirstaðan undir
það að sundlaugin er nú að verða
fokheld. Safnast hefur á sjöunda
tug milljóna. Jafnframt gekk i
gildi á sl. sumri ný bygginga-
reglugerð, þar sem i fyrsta sinn
erlögskipað að taka tiUit til fatl-
aðra við gerð húsa. Af öörum
málum vil ég nefna óvænt úrslit
Alþingiskosninganna.
Ef við litum til næsta áratugs
með hag fatlaöra fyrir augum, þá
býstégviðað verulegar framfar-
ir muni eiga sér stað á þvi' sviði.
Við erum alltaf þó nokkrum ár-
um á eftir Noröurlöndunum i
tryggingamálum. En þar er það
núsvo og hefur verið i allmörg ár,
að fólk getur lifað á örorkulífeyri
einum saman. Ég held lika, að
þær spurningar sem Sjálfsbjörg
og Blindrafélagið sendu fulltrú-
um stjórnmálaflokkanna og sá
undirbúningur, sem veröur árið
1980fyrir Alþjóðaár fatlaðra 1981,
komi til með að vekja forráða-
menn til umhugsunar og að-
gerða um þann mikla vanda, sem
rikir i málefnum fatlaðra — og i
hjúkrunarmálum aldraðs fólks.
Ég held lika, að blessaðir
stjórnmálamennirnir komist að
þvi að það er bjartara yfir, en
þeirreyna aö mála á veggina nú.
Þeir tala um hækkandi oliuverð,
en gleyma þvi, að stærsti út-
gjaldaliður þjóðanna er til her-
mála. Þeim lið höfum við til þessa
getað sleppt."
„Ég er
bjartsýnn á
framtíðina
þrátt fyrir
kreppu-
ástand”
— segir Egill Ólafeson
tónlistarmaður og
formaður S.A.T.T.
„Það hlýtur að vera ferðalagið
mikla. Ferðalag Þursaflokksins
með hrynþursaharkið um Norð-
urlöndin, Luxemborg, Holiand og
Frísland og svo stofnun Samtak-
anna”, sagði Egill Ólafsson tón-
listarmaður og formaður Sam-
taka alþýöutónskálda og — tón-
listarmanna er við báðum hann
um aö staldra við um áramót, IIta
um öxl og minnast þess sem hon-
um þótti markverðast á árinu.
,,Er við komum heim Ur þessu
ferðalagi, þá stóð hér yfir stjórn-
arkreppa, sem stendur reyndar
ennog ætlihún standi ekkia.m.k.
út næsta ár. Þessistjórnarkreppa
og sú peningakreppa sem nú rik-
ir, er það sem mér er minnisstæð-
ast úr þjóðlifinu. Ég er þó ekki
svartsýnn á framtiðina. Þvert á
móti er ég nokkuð bjartsýnn fyrir
mina hönd og minna félaga, þvi
að það er margsannað mál að
kreppuástand er lyftistönd fyrir
dægurmenninguna. Eftir þvi sem
streitan eykst, þá eykst þörf fólks
fyrir að lyfta sér upp, þannig aö
bjart ætti að vera framundan
hjá leikhúsum og tónlistarmönn-
um.
Bragi Amason,
prófessor
„Taka verður
ákvörðun í
orkumálum
sem fyrst”
„Ætli ég verði ekki að segja, að
af innlendum atburðum, þá séu
það stjórnarslitin i haust og kosn-
ingarnar sem fylgdu á eftir, sem
eru mér minnisstæðastar.”
Um niunda áratuginn hafði
Bragi þetta að segja: „Ef ég
skoða næsta áratug frá sjónarhóli
Islendinga eingöngu, þá leggst
hann heldur vel i mig. Að visu
hygg ég að vaxandi sviptingar i
orkumálum heimsins muni verða
eitt af einkennum áratugsins.
Olia verður að öllum likindum
öllu vandfengnari og þá jafn-
framt dýrari eftir þvi sem á
liður, en hækkun oliuverðs
hlýtur óneitanlega að koma illa
við pyngju tslendinga svo mjög
sem þeir eru háðir innflutningi
oliu. Ef við höldum skynsamlega
á málunum ætti hækkandi oliu-
verð ekki að þurfa að koma illa
við landsmenn þegar til lengdar
lætur. Gagnstætt þvi sem er um
flestar aðrar þjóðir þá erum við
svo lánsamir að eiga gnægð af
ónýttum orkulindum sem tiltölu-
lega auðvelt er að virkja. Við
eigum t.d. næga vatnsorku til að
fullnægja allri orkuþörf lands-
manna um langa framtið. Ég held
að ekki sé ofmælt, að vatnsorkan
sé verðmætasta orkan sem völ er
á Iheiminum i dag, en auk þess er
þessi orkulind okkar ótæmandi
þ.e.a.s. hún eyðist ekki þó af sé
tekið likt og olian. Þá er enn ónýtt
mest öll varmaorka landsins, en
hún er að öllum likindum tvöfalt
meiri en vatnsorkan. Miðað við
höfðatölu, þá held ég að við getum
talið okkur með orkuauðugri
þjóðum heims og eigum i dag
margra kosta völ i orkumálum.
Við gætum t.a.m. notað orku-
lindir okkar til þess að framleiða
eldsneyti sem kæmi I stað þess
sem við ný flytjum til landsins,
eða við gætum notað þær til þess
að framleiða margvislegar verð-
mætar afurðir, sem við gætum
selt á erlendum mörkuðum.
Hvaða leið er skynsamlegt og
þjóðhagslega hagkvæmt að fara i
þessum efnum? Um það verðum
við að taka ákvörðun sem fyrst.
E.t.v. verður þetta ein þýðingar-
mesta ákvörðun næsta áratugs og
ef við vöndum vel til hennar, þá
held ég að við getum litið fram-
tiðina björtum augum”, sagði
Bragi Arnason að lokum.
Guðríður
Þorsteinsdóttir
„Stjómarslit
ogkosningar”
,,A innlendum vettvangi held ég
að stjórnarslitin og desember-
kosningarnar veröi mér einna
minnisstæðastar. Þá verður árs-
ins 1979 sjálfsagt einnig minnst
sem verðbólguárs.
Af erlendum viðburöum hygg
ég, að atburöirnir i íran muni
skyggja á allt annaö á liðnu ári. —
Af atburðum, sem snerta starf
mitt, held ég, að mér veröi einna
minnisstæðastur úrskurður
kjaradóms um afnám þaks ávisi-
tölubætur, en það hefur sem
kunnugt er veriö eitt af helstu
baráttumálum BHM, aö um-
sömdum launahlutföllum sé ekki
raskað á samningatimabili meö
skerðingu veröbóta. Þá er mér
einnig ofarlega i huga, aö ég var
nýlega skipuð formaður Jafnrétt-
isráðs og geri ég mér ljóst, aö ég
hef tekist á hendur erfitt verkefni,
en jafnframt mjög áhugavert.
Um framtíöina vil ég segja, að
ég er að eðlisfari bjartsýn og
þrátt fyrir slæmt ástand I efna-
hagsmálum og stjórnmálum, lit
ég björtum augum til næsta ára-
tugs. Það kann að vera, aö viö
þurfum að leggja eitthvað á
okkur, nú á næstunni, til að draga
úr þeirri geigvænlegu verðbólgu,
sem hér hefur geisað undanfariö.
En ég trúi þvi, aö lifskjör eigi
eftir að batna að nýju og veröa
a.m.k. jafngóð og þau voru best á
siðasta áratug.
Hvað varðar jafnréttismálin,
tel ég, að þráttfyrir allt hafi mik-
iö áunnist á siðasta áratug. T.d.
hefur hlutfall þeirra kvenna, sem
ljúka langskólanámi hækkað
mjög, en ég tel, að það sé ein
meginforsenda fyrir jafnrétti
kynjanna, aö konur afli sér
menntunar til jafns viö karla”.
Meitillinn, Þorlákshöfn
Óskar starfsfólki sínu til lands og sjávar
svo og viðskiptavinum öllum
Gleðilegs nýárs
Með þökk fyrir samstarf og viðskipti ó liðnum árum
Fiskvinnslan Bíldudal
Oskar starfsmönnum sínum og viðskiptavinum
Gleðilegs nýs árs,
og þakkar samskiptin ó liðnu óri