Tíminn - 30.12.1979, Side 35
Sunnudagur 30. desember 1979
35
Hunangssæt mynd
Regnboginn
Prúöuleikararnir/The Muppet
Movie
Leikstjóri: James Frawley
Stjórnendur brúöa: Jim Hen-
son, Frank Oz, Jerry Nelson og
Dave Golez.
Flestir kannast viö prúöuleik-
arana sem stytt hafa okkur ts-
lendingum stundirnar annan
hvern föstudag og notiö hafa
mikilla vinsælda. Þetta er
fyrsta kvikmyndin f fullri lengd
sem gerö er meö þessum
skemmtilegu brúöum en ef fleiri
fylgja i kjölfariö þá held ég aö
framleiöendur ættu aö fá sér
aöra menn til aö sjá um handrit
auk þess að lita i eigin barm.
Myndin fjallar i stuttu máli
um froskinn Kermit sem situr i
feninu og dreymir um heima og
geima. Umboðsmaður frá
Hollywood villist til hans og
hvetur hann til að ferðast til
Hollywood. Kermit heldur á
stað og á leiðinni eignast hann
vini, Fossa Björn, Dr. Tönn,
Svinku, Gunsa og óvin, Doc
Hopper,sem vill fá hann til að
auglýsa djúpsteiktar froska-
lappir. Kermit kemst að lokum,
ásamt vinum sinum til Holly-
wood og brátt veröur kvik-
myndin um Prúöuleikarana aö
veruleika.
★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Agæt
★ ★ Sæmileg ★ Ekki áhugaverð
KVIKMYNDA HORNIÐ
Erfitt
siálfsmorð
Tónabfó
Þá er öllu lokið / The End
Leikstjóri Burt Reynolds
Aðalhlutverk Burt Reynolds,
Dom De Luise og Sally Field
Myndin fjallar um fasteigna-
sala Lawson (Reynolds) en
hann hefur fengið vitneskju um
það að hann eigi ekki nema 3
mánuði eftir ólifaöa og að
siöustu stundirnar muni vera
sérstaklega kvalafullar. Hann
ákveöur þvi að fremja sjálfs-
morð frekar en aö þurfa að
kveljast mikið.
Ein af sjálfsmorðstilraunum
hans endar með þvi að hann
vaknar á geðsjúkrahúsi með
einn af geðsjúklingunum
Morton (DeLuies) við
rúmstokkinn. Morton fær fljótt
áhuga á þvi að koma Lawson
inn i eilifðina en það gengur
brösótt þó ekki skorti viljann.
Eftir eina erfiða sjálfsmorðs-
tilraun sem mistekst þá kemst
Lawson i raun um það að hann
vilji i rauninni halda áfram að
lifa en það þýðir ekki að segja
Morton það.
Fyrri hluti myndarinnar fjall-
ar á léttan hátt um áhrif þau
(★ ★ ★)
sem vitneskja um nálægan
dauða hefur á menn. Reynolds
tekst ákaflega vel að fjalla um
þetta efni á léttann hátt og i
raun hefur hann, að piinu áliti,
töluverða hæfileika sem
gamanleikari.
Seinni hluti myndarinnar er
næstum hreinn farsi sérstak-
lega er DeLuise kemur til
skjalanna. Hann er hreint út
sagt frábær i hlutverki sinu sem
klofinn persónuleiki haldinn
minnimáttarkennd og nokkrum
öðrum geðsjúkdómum. Hann
nýtur mikillar hjálpar frá
handriti sem er meinfyndið á
köflum.
Allur leikur i aukahlutverkum
er góður, enda ekki við ööru að
búast þar sem fólk eins og
Joanne Woodward, Strother
Martin og Carl Reiner eru i
aukahlutverkum.
t stuttu máli sagt þá ættu þeir
sem vilja liðka hláturtaugarnar
i skammdeginu ekki að láta
þessa mynd framhjá sér fara.
Friðrik Indriöason
Gleðilegt ár
þökkum viðskiptin á síðastliðnu ári
tUJiitKi
Ánanaustum
Sími 28855
(★)
Töfrar Prúðuleikaranna i
sjónvarpinu hverfa næstum
alveg i myndinni. Myndin á að
visu sina góðu punkta en handrit
og framleiðsla eru hörmuleg.
Inn á milli skemmtilegra
„prúðuatriða” er blandað væm-
inni hunangsleðju, svo þykkri á
stundum að næstum teppir háls
manns af kligju.
Brúðurnar (prúðurnar)
standa ávallt fyrir sinu en hand-
rit og aðstandendur myndarinn-
ar gefa þeim ekki tækifæri til
þess að njóta sin þannig, að
þrátt fyrir góða spretti þá virk-
ar myndin að minu áliti i heild
leiðinleg, sérstaklega fyrir
aldurshópinn 14 ára og uppúr.
Hinsvegar hefur myndin sina
kosti fyrir yngstu áhorfendurn-
a .
Fjöldi þekktra leikara kemur
fram i myndinni og segir eina
linu eða svo fyrir utan Charles
Durning sem leikur aöalbófann
Doc Hopper en hann er hvorki
betri eða verri en slikir bófar
gerast almennt.
Friðrik Indriðason
Öllu starfsfólki okkar og viðskiptavinum
til lands og sjóvar óskum við
gleðilegs nýs árs
og farsældar á komandi ári.
Þökkum samstarfið ó órinu sem er að líða
Vinnslustöðin hf.
V estmannaey jum
Gleðilegt ár
Þökkum starfsfólki og viðskiptavinum
gott samstarf og viðskiptin á liðnum árum
Hraðfrystihús
Grundarfj arðar
Sparisjóður vélstjóra
óskar starfsmönnum sínum og viðskiptavinum
til lands og sjávar
g/eði/egs nýs árs
og þakkar samskipti og viðskipti á liðnum árum