Morgunblaðið - 24.01.2007, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
miðvikudagur 24.
1. 2007
íþróttir mbl.is
íþróttir
Íslenska landsliðið fékk frábæran stuðning í Magdeburg >> 2
TÚNIS ER MARTRÖÐ
BENGT JOHANSSON SEGIR TÚNISLIÐIÐ HREINT
ÓÚTREIKNANLEGT, VEL ÞJÁLFAÐ OG STERKT >> 4
Eftir Ívar Benediktsson í Dortmund
iben@mbl.is
Áhuginn á íslenska landsliðinu í hand-
knattleik jókst til muna eftir sigur þess á
Frökkum í fyrrakvöld og þegar ljóst
varð að það væri á leið í milliriðlakeppn-
ina. Í Magdeburg var skotið á að rúm-
lega 400 Íslendingar hefðu verið á hverj-
um þriggja leikja liðsins. Flestir þeirra
höfðu keypt miða sína í gegnum HSÍ. Nú
er stærstur hluti þessa hóps farinn heim
til Íslands en í gær og dag eru hópar á
leiðinni til Þýskalands til þess að fylgjast
með leikjum Íslands í Dortmund og
Halle Westfalen. Um helgina mun
straumurinn þyngjast enn og er reiknað
með að ekki verði færri á leikjunum á
laugardag og sunnudag. Þá eru ótaldir
hópar sem hafa þegar orðið sér úti um
miða í næstu viku á leiki í Köln. Algjör-
lega er uppselt á úrslitahelgina í Köln,
um aðra helgi.
„Það er enn hægt að fá aðgöngumiða á
fyrstu þrjá leiki okkar, en það er alveg
uppselt á viðureignina við Þjóðverja í
Westfalen íþróttahöllinni í Dortmund á
sunnudag,“ sagði Einar í gær á milli þess
sem hann svaraði miðaóskum frá Íslandi
eftir bestu getu. „Það er alveg ljóst að
ekki verður hægt að verða við öllum ósk-
unum, en við vonumst til að hægt verði
að leysa úr málum eins margra og kostur
er.“
Einar sagði að HSÍ ætti ekki forgang
að einhverjum hluta aðgöngumiða á leik-
ina í milliriðlunum en hann væri vonsvik-
inn yfir að þýska handknattleikssam-
bandið gæti ekki útvegað því íslenska
miða á leik þjóðanna á sunnudag. „Við
erum að vinna í málinu og ég vonast til að
einhver lausn fáist og við getum þar með
útvegað einhverjum Íslendingum miða á
viðureign Íslands og Þýskalands á
sunnudagkvöldið í Dortmund.“
Vitað er að margir Íslendingar sem
koma út um næstu helgi eiga miða á leik í
Halle á sunnudag. Þeir höfðu tekið
áhættu með að panta miða á þann leik
vegna þess að þeir töldu að Ísland myndi
hafna í öðru sæti í sínum riðli og Þjóð-
verjar í sínum. Þar með hefði Íslending-
ar mætt Pólverjum í Halle á sunnudag.
En þar sem Pólverjar unnu sinn riðil og
Þjóðverjar urðu í öðru sæti, auk þess
sem íslenska landsliðið vann óvænt sinn
riðil, þá varð uppröðun leikjanna önnur
en margir höfðu talið fyrirfram. Því sitja
margir Íslendingar uppi með miða á leik
sem þeir eru máske ekkert spenntir fyrir
í Halle á sunnudag en fá í staðinn ekki
miða á lokaleik milliriðilsins, þegar Þjóð-
verjar og Íslendingar leiða saman hesta
sína í Westfalen-íþróttahöllinni í Dort-
mund á sunnudag. Ljóst er að sigur ís-
lenska landsliðsins hefur raskað dagskrá
hundraða Íslendinga sem eiga bókaða
miða á leiki næstu helgar.
Uppselt í
Dortmund
Ljósmynd/Günter Schröder
Fögnuður Markús Márni Michaelsson kom sterkur inn í leik liðsins gegn Frökkum.
„ÓSKUM um miða á leiki Íslands rign-
ir yfir mig, ætli símtölin vegna þessa
séu ekki að verða um hundrað í dag og
er hann ekki nema hálfnaður,“ sagði
Einar Þorvarðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
HSÍ fær enga miða á
Þjóðverja-leikinn á HM á sunnudag
LOGI Geirsson meiddist á ökkla í leiknum
við Frakka á HM í fyrrakvöld en ekki var
ljóst í gærkvöldi hvort hann yrði með á móti
Túnis í dag þegar liðin mætast í fyrsta
leiknum í milliriðli.
„Það skýrist betur þegar nær dregur
leiknum við Túnis hvort Logi verður með,
ef ekki kemur Arnór Atlason inn í liðið fyr-
ir hann. Ég vil gjarnan hafa Loga með í
leiknum ef nokkur kostur er þar sem hann
lék mjög vel á móti Frökkum,“ sagði Alfreð
Gíslason þjálfari í gær en hann hefur þegar
ákveðið breytingu á leikmannahópnum fyrir
leikinn í dag.
Alfreð hefur ákveðið að
kalla Roland Eradze
markvörð inn í leikinn við
Túnis. Þar af leiðandi fær
Hreiðar Levý Guðmunds-
son tækifæri til að hvíla
sig.
Annað voru þjálfararnir
ekki búnir að ákveða í
gærkvöldi.
Guðmundur Þórður
Guðmundsson, aðstoð-
arþjálfari Alfreðs, segir Túnis með sterkt
lið sem ætli sér stóra hluti í Þýskalandi.
Logi
Geirsson
Roland í hópinn og
Hreiðar Levý hvíldur
LEIKMENN landsliðs Úkra-
ínu gengu á dyr að loknum
fyrri hálfleik viðureignar Ís-
lands og Frakklands á heims-
meistaramótinu í handknatt-
leik í fyrrakvöld. Þá var
íslenska liðið með tíu marka
forskot, 18:8, og Úkraínu-
menn búnir að afskrifa
franskan sigur enda varð það
raunin. Íslenska liðið vann
leikinn og hélt áfram í milli-
riðla ásamt Frökkunum, en
Úkraínumenn sátu eftir með
sárt ennið. Kvöldið áður voru
þeir mjög brattir eftir sigur-
inn á Íslendingum og töldu sig
vera langt komna í milliriðla-
keppnina. Þegar leikmenn
úkraínska landsliðsins settust
niður í íþróttahöllinni til þess
að fylgjast með viðureign Ís-
lendinga og Frakka voru þeir
nokkuð brattir en fljótlega fór
að síga á þeim brúnin. Spurðu
Úkraínumennirnir m.a. nær-
stadda Íslendinga hvort
Frakkar hefðu verið keyptir
til þess að tapa fyrir íslenska
landsliðinu. Þegar flautað var
til hálfleiks þótt þeim nóg orð-
ið um og yfirgáfu höllina.
Lítil skemmtun
Úkraínumenn hafa fengið
það hlutverk að leika um 13.
til 20. sætið á HM og eru þeir í
riðli með Kúvæt og Argent-
ínu, sem Íslendingar hefðu
leikið við hefðu þeir ekki unn-
ið Frakka. Skemmtun þeirra
er ekki mikil.
Úkraínumenn fengu
nóg og gengu út í hálfleik
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Staksteinar 8 Bréf 25
Veður 8 Minningar 26/29
Viðskipti 12 Skák 29
Úr verinu 13 Brids 32
Erlent 14/15 Leikhús 34
Menning 16, 32/36 Af listum 35
Höfuðborgin 17 Myndasögur 36
Akureyri 17 Dagbók 37/41
Suðurnes 18 Staður og stund 38
Landið 18 Víkverji 40
Daglegt líf 19/21 Velvakandi 40
Forystugrein 22 Bíó 38/41
Umræðan 24/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Margrét Sverrisdóttir lýsti því
yfir í gærkvöldi að hún stæði við þau
áform sín að bjóða sig fram til vara-
formanns Frjálslynda flokksins á
laugardag og fara þannig gegn
Magnúsi Þór Hafsteinssyni, varafor-
manni flokksins. » Forsíða
Kópavogsbær á að greiða eig-
anda jarðarinnar Vatnsenda 2,25
milljarða króna fyrir 1. febrúar nk.
fyrir 863 hektara lands sem bærinn
tekur eignarnámi, samkvæmt sátt
sem náðst hefur í málinu. » Forsíða
Nefskatturinn sem ráðgerður er
til að fjármagna rekstur Rík-
isútvarpsins leggst aðeins á þá ein-
staklinga og lögaðila sem greiða
tekjuskatt. Þeir sem aðeins hafa
fjármagnstekjur sleppa því við nef-
skattinn samkvæmt lögum um Rík-
isútvarpið sem samþykkt voru í gær.
» Baksíða
Viðskipti
Glitnir hefur selt skuldabréf fyrir
500 milljónir evra, sem samsvarar
nær 45 milljörðum króna. Útgáfan
er þó fyrst og fremst merkileg fyrir
þær sakir að þetta er fyrsta opin-
bera skuldabréfaútgáfa Glitnis í evr-
um frá því í júní 2005 og jafnframt í
fyrsta skipti sem íslenskur banki
sækir fjármagn á Evrópumarkað
með þessum hætti eftir svipting-
arnar sem urðu á mörkuðum á fyrri
hluta síðasta árs. » 12
Erlent
Moshe Katsav, forseti Ísraels,
var hvattur til að segja af sér í gær
eftir að ríkissaksóknari landsins
ákvað að ákæra hann fyrir nauðgun,
kynferðislega áreitni, trúnaðarbrot
og mútuþægni. » 15
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, flutti stefnuræðu sína í
nótt og reyndi að snúa vörn í sókn,
en kannanir sýna að stuðningur við
forsetann er með allra minnsta móti.
Í ræðunni hvatti Bush meðal annars
til þess að Bandaríkjamenn drægju
úr notkun bensíns um 20% á tíu ár-
um. » 14
Þúsundir mótmælenda ollu
glundroða í Beirút og víðar í Líb-
anon í gær með því að setja upp veg-
artálma með brennandi hjólbörðum.
Að minnsta kosti þrír biðu bana í
átökum mótmælenda og stjórn-
arsinna. » 14
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞESSI samningur er góð staðfest-
ing á því að allur undirbúningur sem
við höfum verið að vinna að í mörg ár
er að skila árangri núna. Við höfum í
gegnum tíðina lagt mikla áherslu á að
vera opin og trúverðug í samstarfi við
erlenda aðila, en þessi samningur
skapar okkur farveg fyrir markviss-
ara samstarf en verið hefur,“ segir
Adolf Friðriksson, forstöðumaður
Fornleifastofnunar Íslands, en stofn-
unin gerði nýverið rammasamning
um vísindasamstarf við Háskólann í
Aþenu á sviði fornleifafræði.
Aðspurður segir Adolf samstarfs-
samninginn hafa verið í undirbúningi
síðan 2005. Bendir hann á að á síð-
ustu misserum hafi íslenskir og grísk-
ir vísindamenn unnið að frumathug-
unum og samanburði á áhrifum
eldgosa í löndunum tveimur á mannlíf
til forna, en eyjarnar tvær eiga það
sameiginlegt að vera eldvirk svæði.
„Við hefðum áhuga á að vinna enn
frekar að því í samstarfi við Grikki að
afla nýrra upplýsinga um menningar-
landslagið og þróun þess á eld-
fjallasvæðum. Einnig hefðum við
áhuga á samstarfi um rannsóknir á
þingminjum, en í báðum þessum
löndum eru til fornleifar sem eru leif-
ar um þinghald. Það hefur ekki verið
reynt áður að velja út einn tiltekinn
minjaflokk til rannsókna sem er sam-
eiginlegur mörgum löndum, bera
saman svæðin og reyna að læra eitt-
hvað nýtt af samanburðinum,“ segir
Adolf og bendir á að samanburður við
betur þekktar þingminjar sunnar í
álfunni muni hjálpa Íslendingum til
að skilja betur hlutverk og eðli þessa
tiltekna minjahóps.
Spurður hvaða þýðingu samning-
urinn hafi svarar Adolf: „Þetta mun
auðvelda okkur að fá til liðs við okkur
snjalla vísindamenn frá öðrum lönd-
um. Menn sem hafa tækjabúnað sem
við eigum ekki eða aðra sérþekkingu
sem við Íslendingar höfum ekki getað
komið okkur upp smæðar landsins
vegna. Auk þess býður samningurinn
upp á bæði starfsmanna- og nem-
endaskipti,“ segir Adolf og bendir á
að sl. 8–9 sumur hafi Fornleifa-
stofnun tekið við háskólanemendum
að utan til þjálfunar og kennslu.
„Þessir nemar hafa í sínu dokt-
orsnámi oft valið að vinna með ís-
lenskan efnivið til frekari rann-
sókna.“
Inntur eftir því hvað Ísland hafi
fram að færa innan fornleifarann-
sókna bendir Adolf á að miklar fram-
farir hafi orðið hérlendis á sviði forn-
leifarannsókna sl. 10 ár. „Allar
grundvallaraðferðir eins og forn-
leifauppgröftur og fornleifaskráning
eru á mjög háu gæðastigi hérlendis.
Grikkir hafa þannig mikinn áhuga á
því að fá okkur til samstarfs við að
kortleggja fornleifar, af því að við
höfum lagt mjög mikla áherslu á að
vinna fornleifaskráningu á mjög
markvissan hátt, bæði hratt og vel í
stafrænu formi.“
Rannsaka á
þingminjar
Samstarf Adolf Friðriksson og dr. Andreas Vasilopoulos ræða landbrot og
minjaeyðingu þar sem þeir eru staddir á suðurströnd Samos.
Íslendingar og Grikkir semja um
vísindasamstarf á sviði fornleifafræði
FÁIR ungar Tjarnarfugla komust á
legg á síðasta ári. Aðeins grágæsir
komu ungum sínum upp affallalítið.
Líklegar ástæður fyrir þessu eru
taldar fæðuskortur í Tjörninni og
sjónum og ásókn sílamáva. Gísli
Marteinn Baldursson, formaður um-
hverfisráðs Reykjavíkurborgar, seg-
ir að strax verið gripið til aðgerða til
að snúa þróuninni við. Umhverfisráð
hefur samþykkt aðgerðir til að bæta
stöðuna. Um málið er fjallað á vef
umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.
Gargönd, skúfönd, æður og kría á
Tjörninni í Reykjavík virðast ekki
hafa komið upp neinum ungum síð-
astliðið sumar, samkvæmt því sem
fram kemur í árlegri skýrslu sem
Ólafur K. Nielsen og Jóhann Óli
Hilmarsson hafa unnið fyrir um-
hverfissvið Reykjavíkurborgar. Or-
sakirnar eru líklega fæðuskortur og
ásókn mávs.
Kjarngott fæði, mávurinn
fældur og hvönn eytt
Aðgerðir sem umhverfisráð
Reykjavíkurborgar samþykkti á
fundi sínum á mánudag til að snúa
þessari þróun við fjalla m.a. um að
leita leiða til að gefa ungum kjarn-
gott fæði næsta vor. Einnig verður
fælingu beitt á sílamávinn, hvönn
eytt í Þorfinnshólma og reynt að
koma fyrir hreiðurskjóli fyrir kríu.
Þá verður lögð áhersla á að endur-
heimta læk sunnan Hringbrautar við
enda flugbrautar en hann rennur nú
í skurði og að nokkru í ræsi og nýtist
því ekki lengur fuglum. Möguleikar
á að hindra för gæsa með unga yfir
Hringbraut verða einnig kannaðir en
algengt er að girðing á miðeyju komi
gæsum í sjálfheldu.
Samkvæmt því sem fram kemur í
skýrslu þeirra Ólafs og Jóhanns Óla
var viðkoma Tjarnarfugla afleit á
síðasta ári annað árið í röð og hefur
ekki mælst jafnléleg frá upphafi
mælinga árið 1973. Næstlélegasta
árið var 2005. Þá kemur þar fram að
aðeins örfáir ungar stokkandar og
duggandar hafi verið á lífi á Tjörn-
inni í lok júlí á síðasta ári og að engir
ungar gargandar, skúfandar, æðar-
fugls og kríu hafi þá sést þar.
Í skýrslunni er ásókn máva í unga
nefnd sem hluti af orsökinni en einn-
ig það að vorflugur og marflær, sem
hafi verið mikilvæg fæða fyrir ung-
ana, hafi horfið. Þá hafi æti í sjó
brugðist kríunni líkt og mávinum,
sem sæki því í auknum mæli inn í
borgina.
Haft er eftir Gísla Marteini Bald-
urssyni, formanni umhverfisráðs, í
frétt sem birt er á vef umhverfissviðs
að borgaryfirvöld taki skýrsluna al-
varlega. „Því ef ekkert verður að
gert eigum við á hættu að glata því
skemmtilega fuglalífi sem hefur ver-
ið í og við Tjörnina í Reykjavík. Við
höfum af þeim sökum ákveðið að
grípa þegar í stað til aðgerða í sam-
ráði við garðyrkjustjóra og höfunda
skýrslunnar.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Yfirgangur Sílamávurinn virðist hafa yfirhöndina á Tjörninni og ungar annarra fugla láta í minni pokann.
Komu ekki upp neinum
ungum á Tjörninni
Ástæðan er fæðuskortur í tjörn og sjó og ásókn sílamáva
Í HNOTSKURN
»„Það er sem sagt and-styggilegt ástand við
Tjörnina,“ bloggaði Kristinn
Pétursson frá Bakkafirði um
fréttina þegar hún birtist á
fréttavef Morgunblaðsins í
gær, á bloggsíðunni kristinnp-
@blog.is.
»Augljóslega hafa þvífregnir af þessum góð-
borgurum Reykjavíkur, fugl-
unum á Tjörninni, slegið fólk
víða um land.