Morgunblaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FLEIRI hafernir, eða tólf fuglar,
sáust í árvissri vetrarfuglatalningu
Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ)
en nokkur sinni
áður, allt frá
Meðallandi í
austri, vestur og
norður um til
Vestfjarða. Þá
sáust óvenju-
margar súlur í
talningunni en
þær koma yfir-
leitt að landinu
síðla í janúar.
Meðal sjaldgæfra
fuglategunda má nefna hvítönd í
Meðallandi og kúfönd á Sogi en sú
síðarnefnda er sárasjaldgæfur flæk-
ingur frá Norður-Ameríku og er af-
ar lík duggönd.
Talningin fór fram helgina 6.–7.
janúar 2007 en NÍ hefur skipulagt
talningarnar frá árinu 1952. Talið
var á um 150 einstökum svæðum
um land allt og hafa niðurstöður
borist frá 132 svæðum. Um 130
manns tóku þátt í talningunni, allt
sjálfboðaliðar.
Samkvæmt fyrstu niðurstöðum
er æður langalgengust sem fyrr en
óvenju fáir snjótittlingar sáust eins
og jafnan þegar snjór er lítill, segir
í frétt Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands.
Hafa aldrei
talið fleiri
haferni frá
árinu 1952
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hefur þegið boð um að
taka sæti í þróunarráði Indlands.
Ráðinu er ætlað að móta tillögur
um á hvern hátt Indverjar geta
styrkt efnahagslíf sitt og velferð
þjóðarinnar án þess að umhverfi
bíði varanlegt tjón af eða gæðum
náttúrunnar verði stefnt í hættu.
Slíkri sjálfbærri þróun er ætlaður
forgangur í stefnumótun.
Þróunarráðið hélt sinn fyrsta
fund í Delhi á mánudag. Í frétt frá
skrifstofu forseta Íslands kemur
fram að ráðið skipa þekktir vís-
indamenn, sérfræðingar, stjórn-
endur rannsóknarstofnana og for-
ystumenn á alþjóðavettvangi
ásamt áhrifamönnum í indverskum
þjóðmálum. Meðal þeirra eru hag-
fræðingurinn Jeffrey Sachs, for-
stöðumaður Earth Institute við
Columbia-háskólann í Bandaríkj-
unum, James Speth, prófessor við
Yale-háskólann í Bandaríkjunum,
Björn Stigson, forseti Alþjóðavið-
skiptaráðsins um sjálfbæra þróun
(World Business Council for Sus-
tainable Development), dr. R.K.
Pachauri, forstjóri tækni- og vís-
indastofnunarinnar TERI, Lalit
Mansingh, fyrrum sendiherra Ind-
lands í Bandaríkjunum, og ind-
versku þingmennirnir Suresh P.
Prabhu og Jyotiraditya Scindia.
Bráðnun jökla ógnar
Meðal þeirra verkefna sem þró-
unarráðið fjallar um er vatnsbú-
skapur Indverja en bráðnun jökla
og íss í Himalayafjöllum ógnar
lífskjörum hundraða milljóna Ind-
verja vegna breytinga sem þessi
þróun hefur á vatnsmagn í meg-
infljótum Indlands.
Þróunarráðið, sem á ensku ber
heitið India Council for Sustai-
nable Development, mun skila til-
lögum sem teknar verða til um-
fjöllunar af indverskum
ráðamönnum og stofnunum á ólík-
um sviðum þjóðlífsins.
Tekur sæti í þróunarráði Indlands
Hið árlega þorrablót sjálfstæðismanna í Reykjavík verður haldið í
Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 27. janúar 2007.
Blótið hefst kl. 20.00 en húsið verður opnað kl. 19.00.
Blótstjórn verður í höndum Illuga Gunnarssonar hagfræðings
en heiðursgestur verður
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður.
Fjöldi skemmtiatriða, meðal annars:
Minni karla og kvenna, fjöldasöngur,
veglegir happadrættisvinningar,
Fóstbræður syngja nokkur þorralög o.fl. o.fl.
Miðasala í Valhöll, sími 5151700
Miðaverð kr. 4.900 kr.
Hittumst hress í góðra vina hópi.
Þorrablótsnefndin.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
Þorrablót
VEÐUR
Áhugamenn um stjórnmál veltamjög fyrir sér stöðu Valgerðar
Sverrisdóttur um þessar mundir.
Það er eins og hún sé laus úr álög-
um.
Frammistaða hennar í embætti ut-anríkisráðherra er til fyr-
irmyndar. Hún breytti stefnu Ís-
lendinga í friðargæzlumálum og
beindi henni í réttan farveg.
Hún hefur vakið athygli fyrir að
svipta hulu leyndardómsins af
gömlum skjölum. Hún hefur gert
flest rétt frá al-
mannasjónarmiði
séð frá því að hún
tók við hinu nýja
ráðherraemb-
ætti.
Hvað er að ger-ast?
Sumir telja aðValgerður sé markvisst og út-
hugsað að skapa sér sérstöðu. Hún
geri ráð fyrir því að Framsókn-
arflokkurinn verði í stjórnarand-
stöðu eftir kosningar og vilji gjarn-
an að flokkurinn endurnýist
þannig.
Hún telji að Jón Sigurðsson verðiekki langlífur sem formaður
Framsóknarflokksins ef fram fer
sem horfir og til hennar verði leit-
að.
Öll háttsemi hennar um þessarmundir beinist að því að und-
irbúa jarðveginn.
Það kann vel að vera að sitthvaðsé til í þessum vangaveltum
áhugamanna um stjórnmál. Og það
kann vel að vera, að frammistaða
Valgerðar Sverrisdóttur í embætti
utanríkisráðherra geri það að verk-
um, að til hennar verði leitað um að
taka við forystu Framsóknarflokks-
ins. Vorið og sumarið 2006 var það
óhugsandi. Nú er þetta vel hugs-
anlegt.
Vegna þess að Valgerður er lausúr álögum.
STAKSTEINAR
Valgerður
Sverrisdóttir
Laus úr álögum
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
--
.
/
-0
-'
-1
+-1
+.
0
+2
-/
3!
4 3!
4 3!
4 3!
3!
3!
3!
3!
3!
3!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
+2
+(
0
1
'
-
-
+0
+2
5
+/
!4
! 6 4 3!
4 3!
3!
)
%
4 3!
3!
6*%
!4
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
0
1
.
2
1
+-0
+-
5
'
+/
-
6 3!
3!
3!
3!
! 3!
)*3!
4 3!
4 3!
3!
9! :
;
!"
#
$%
&
!
' ( ) # : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
78
;=
2!>
/
:!
%
*
9
:
; 5 .
<6
(:-079
; ) 5 1
; <
)
< = * 9-5:-(7"
;
9
<
%
>; *3
*=
"3(4?
?<4@"AB"
C./B<4@"AB"
,4D0C*.B"
02(
11-
51/
591
59'
59-
-550
--1/
''1
?-0
-.''
-(05
(-0
-0'?
''0'
-220
-/05
-500
-51(
-52'
-55?
-.2(
-.0'
-.-2
-.-'
'52.
09/
'9-
-9-
'95
591
59-
59-
59'
09.
-9'
-9/
595
FRÉTTIR
VOTVIÐRASAMT var í höfuðborginni í gær og því
drungalegt yfir að líta. Snjórinn lét undan síga en von-
andi verður þó ekki „allt að klessu“ eins og segir í
kvæðinu. Um tíma í gær var þéttur rigningarúði og
skyggni því lítið. Ökumenn tóku mið af því og umferðin
gekk hægt, en þó yfirleitt örugglega, fyrir sig.
Morgunblaðið/Golli
Verður allt að klessu?