Morgunblaðið - 24.01.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 9
FRÉTTIR
!" "#!! $" %! & $ &% &$'
# & ()! '*! + ,-- . #!&/"' %! &
0'#*& ,, + ,-1 % (20 + 0# 343 13-- + 555
67 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Allt á hálfvirði
á stórútsölunni
XSTREAM
DESIGN AN 07 01 003
Fjörður • Hafnarfirði • 565 7100
TÆPLEGA fjörutíu sóttu um starf
forstjóra Umhverfisstofnunar. Dav-
íð Egilson, núverandi forstjóri, mun
gegna því starfi þar til nýr forstjóri
hefur verið ráðinn.
Umsóknarfrestur um starfið rann
út 22. janúar. Eftirtaldir sóttu um:
1. Andri Sveinsson, lagerstjóri
2. Auður G. Sigurðardóttir,
vefumsjónarstjóri
3. Ágúst Bjarnason, fjármálastjóri
4. Áki Ármann Jónsson,
forstöðumaður
5. Árni Bragason, forstöðumaður
6. Áróra Gústafsdóttir,
framkvæmdastjóri
7. Birgir Jóhannesson, ráðgjafi
8. Dorthe Holm
9. Einar Jörundsson, sérfræðingur
10. Einar K. Haraldsson,
tæknifræðingur
11. Einar Þ. Pálsson,
framkvæmdastjóri
12. Einar Þorbjörnsson, forstjóri
13. Ellý Katrín Guðmundsdóttir,
sviðsstýra
14. Eyjólfur Sigurðsson, sölustjóri
15. Gísli Hrannar Sverrisson,
aðstoðarframkvæmdastjóri
16. Guðmundur E. Jónsson,
sölustjóri
17. Halldór Árnason,
framkvæmdastjóri
18. Hjalti Sölvason, verkefnastjóri
19. Hólmfríður Sigurðardóttir,
sviðsstjóri
20. Hrafnhildur Á. Þorvaldsdóttir,
skrifstofustjóri
21. Hrefna Ingólfsdóttir,
sérfræðingur
22. Jóhanna Arnórsdóttir,
framkvæmdastjóri
23. Jón Eggert Guðmundsson,
víðnetssérfræðingur
24. Karl Friðriksson,
framkvæmdastjóri
25. Kristín Linda Árnadóttir,
lögfræðingur
26. Kristján Geirsson, fagstjóri
27. Magnús Örn Stefánsson,
sérfræðingur og verkefnastjóri
28. Már Karlsson, fjármálastjóri
29. Óttar Rafn Ellingsen,
sérfræðingur
30. Róbert Hlöðversson,
framkvæmdastjóri
31. Sif Jónsdóttir, ráðgjafi
32. Sigrún Karlsdóttir, deildarstjóri
33. Sigurður A. Helgason,
aðstoðarframkvæmdastjóri
34. Soffía B. Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri
35. Stefán Einarsson, fagstjóri
36. Stefán H. Valsson, kennari
37. Steinn Kárason, ráðgjafi
38. Trausti Baldursson,
sérfræðingur
39. Þórey I. Guðmundsdóttir,
forstöðumaður
39 vilja í
forstjóra-
stólinn
LANDSBANKINN mun á næstu
þremur árum veita alls 3,6 milljónir
króna til tveggja fræðsluverkefna á
vegum Útflutningsráðs og var sam-
komulag þess efnis undirritað í gær.
Í fréttatilkynningu Landsbankans
kemur fram að annars vegar veitir
bankinn 1,8 milljónir króna á árun-
um 2007–9 til þróunarverkefnisins
Hagvöxtur á heimaslóð en verkefnið
snýst um að auka samstarf á milli
ferðaþjónustufyrirtækja á lands-
byggðinni. Verkefnið hafi nú þegar
gefið góða raun á Vestfjörðum, Vest-
urlandi og Norðurlandi og er ætlun-
in að færa það yfir á Suður- og Suð-
austurland.
Hins vegar styrkir bankinn verk-
efnið Útflutningsaukning og hag-
vöxtur um jafnháa upphæð á tíma-
bilinu, en verkefnið hefur verið á
dagskrá Útflutningsráðs í 17 ár og
miðar að því að þróa viðskiptahug-
myndir um útflutning á vöru og
þjónustu. Fjölmörg fyrirtæki hafa
orðið til í gegnum þetta gamalgróna
verkefni, þ. á m. stórfyrirtækin Öss-
ur og Bakkavör.
„Landsbankinn og Útflutningsráð
telja mikilvægt að við fræðslu og
ráðgjöf sé lögð áhersla á gott skipu-
lag fjármála er varðar m.a. fjár-
mögnun útflutnings, gjaldeyrisvið-
skipti og áhættustýringu. Með því að
taka höndum saman um fræðslu-
verkefnin vilja þessir aðilar fylgja
þessum áherslum eftir,“ segir þar
m.a.
Landsbanki í samstarf við Útflutningsráð
Styrkir fræðslu-
verkefni á næstu
þremur árum
Handsal Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbank-
ans, og Jón Ásbergsson, forstjóri Útflutningsráðs, handsala samninginn en
skv. honum styrkir bankinn tvö verkefni ráðsins. Guðmundur P. Davíðsson
(t.v.) forstöðumaður á fyrirtækjasviði Landsbankans og Hermann Ottósson,
forstöðumaður fræðslu- og ráðgjafarsviðs Útflutningsráðs fylgjast með.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000
LANDSVIRKJUN hefur nú á vef
sínum www.lv.is, sett upp sérstak-
an hnapp sem vísar á upplýsingar
um virkjanir í Neðri-Þjórsá. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Landsvirkj-
un er von á sérvef um þetta efni í
stíl við Kárahnjúkavefinn. Segir
Landsvirkjun að héðan í frá verði
unnt að fylgjast með því sem er að
gerast varðandi þessar virkjanir.
Á vef Landsvirkjunar undir
Þjórsárhnappnum segir að fyrir-
tækið undirbúi nú byggingu þriggja
virkjana í Þjórsá. Fyrirhugað er að
reisa þrjár virkjanir í Neðri-Þjórsá
til að nýta fallið í ánni neðan Búr-
fellsstöðvar. „Efsta virkjunin er
nefnd Hvammsvirkjun, síðan kem-
ur Holtavirkjun og neðsta virkjunin
er nefnd Urriðafossvirkjun.
Ein virkjun ofan Urriðafoss
eða tvær smærri virkjanir
Niðurstaða í mati á umhverfis-
áhrifum heimilar Landsvirkjun að
byggja hvort heldur er eina virkjun
ofan Urriðafoss eða tvær smærri,
þ.e. Hvamms- og Holtavirkjun, og
hefur Landsvirkjun ákveðið að nýta
fallið þar með byggingu tveggja afl-
stöðva fremur en einnar,“ segir
þar.
Morgunblaðið/RAX
Hnappur um virkj-
anir í Neðri-Þjórsá