Morgunblaðið - 24.01.2007, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 15
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
FAST var lagt að Moshe Katsav, forseta Ísraels, að
segja af sér í gær eftir að ríkissaksóknarinn Men-
achem Mazuz ákvað að ákæra hann fyrir nauðgun,
kynferðislega áreitni, trúnaðarbrot og mútuþægni.
Ríkissaksóknarinn skýrði forsetanum frá því að
hann hygðist ákæra hann fyrir að nauðga fyrrver-
andi starfskonu ferðamálaráðuneytis Ísraels seint
á síðasta áratug þegar hann var þar ráðherra og
fyrir að áreita kynferðislega þrjár konur sem unnu
í embættisbústað forsetans.
Katsav fær tækifæri til að svara þessum ásök-
unum á fundi með Mazuz í dag og ríkissaksókn-
arinn tekur síðan lokaákvörðun um ákæru.
Lögfræðingur Katsavs sagði síðdegis í gær að
forsetinn héldi fram sakleysi sínu. „Forsetinn er
sannfærður um að hann sé fórnarlamb rangra
ásakana og tilrauna til að bola honum úr embætti
og ætlar að berjast til að sanna sakleysi sitt.“
Katsav er 61 árs, fæddist í Íran og var blaðamað-
ur þar til hann bauð sig fram fyrir Likud-flokkinn
árið 1977. Hann var kjörinn forseti árið 2000 og
varð fyrsti félaginn í hægriflokki til að gegna emb-
ættinu. Völd forsetans eru takmörkuð en embættið
nýtur mikillar virðingar.
Þingmenn í Ísrael, þeirra á meðal nokkrir hægri-
menn, hvöttu Katsav til að segja af sér. Meretz-
flokkurinn kvaðst ætla að leggja fram tillögu um að
Katsav yrði sviptur forsetaembættinu ef hann
segði ekki af sér.
Katsav sagði í desember að hann myndi láta af
embætti um stundarsakir ef ákæra yrði gefin út á
hendur honum.
Þingið getur svipt hann embættinu
Forsetinn nýtur friðhelgi frá ákæru meðan hann
gegnir embættinu og ekki er hægt að sækja hann
til saka nema hann segi af sér, verði sviptur emb-
ættinu eða eftir að kjörtímabili hans lýkur.
Þingið getur svipt forsetann embættinu en til
þess þurfa þrír fjórðu þingmanna að samþykkja
ályktun þess efnis.
Verði Katsav saksóttur verður hann fyrsti sitj-
andi forseti Ísraels til að verða ákærður fyrir glæp.
Forveri Katsavs í embættinu, Ezer Weizman,
sagði af sér árið 2000, skömmu áður en kjörtímabili
hans lauk, eftir að ríkissaksóknarinn komst að
þeirri niðurstöðu að hann hefði brotið lög með því
að þiggja gjafir að andvirði rúmra 30 milljóna
króna frá franska auðkýfingnum Edouard Saroussi
á níunda áratug aldarinnar sem leið.
Ríkissaksóknari Ísraels tilkynnti fyrir tæpri
viku að hann hefði hafið rannsókn á ásökunum um
að Ehud Olmert forsætisráðherra hefði misnotað
áhrif sín þegar næststærsti banki landsins var
einkavæddur fyrir tveimur árum.
Ríkissaksóknari Ísraels hyggst ákæra forseta landsins fyrir nauðgun
Þingmenn leggja fast að
Katsav að segja af sér
AP
Borinn þungum sökum Moshe Katsav og kona
hans Gila (t.h.) með kvenhermanni í Jerúsalem.
London. AFP. | Til sölu: ein af
minnstu íbúðum Bretlands, á frá-
bærum stað í miðborg London,
frægir nágrannar – og ásett verð er
170.000 pund, sem nemur rúmum
23 milljónum króna.
Stærð íbúðarinnar er aðeins um
þrettán fermetrar. Fasteignasalinn
Andrew Scott hefur samt fengið
þrjú tilboð í íbúðina frá því hún var
sett á markaðinn fyrir þremur dög-
um.
Svo virðist sem kaupendur á fast-
eignamarkaðinum í London séu til-
búnir að fórna næstum öllu til að
geta búið nálægt Harrods-
stórversluninni og geta sagt að
frægt fólk á borð við Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra, sé á meðal nágranna þess.
„Margir skoða íbúðina og spyrja:
Á hvaða lyfjum ertu?“ sagði Scott.
„Fólk þarf að skilja að þetta er eitt
af dýrustu svæðunum í Bretlandi,
ef ekki heiminum. Þessi íbúð er
ekki dýrari á hvern fermetra en
aðrar eignir á þessu svæði.“
Scott bætti við að fasteignir á
svæðinu, sem nefnist Cadogan
Place, seldust oft á allt að 12 millj-
ónir punda, jafnvirði 1,6 milljarða
króna.
Íbúðin er í byggingu frá 1850
sem hefur verið skipt upp í átta
íbúðir.
Þrettán fm á
23 milljónir
ÞÚSUNDIR manna fylgdu blaða-
manninum Hrant Dink til grafar í
Istanbúl í Tyrklandi í gær en Dink
var skotinn til bana í borginni sl.
föstudag. Mikil öryggisvarsla var í
tengslum við útför Dinks, hundruð
lögreglumanna voru að störfum og
leitað var á fólki. Leyniskyttur höfðu
einnig komið sér fyrir á húsþökum
þar sem jarðarför Dinks fór fram.
Dink var af armensku bergi brot-
inn og tyrkneskir þjóðernissinnar
höfðu ítrekað fordæmt skrif hans og
skoðanir varðandi fjöldamorð á
Armenum í Tyrklandi, 1915–1917.
Hann hafði vísað til þeirra sem þjóð-
armorðs og í fyrra var hann dæmdur
til sex mánaða skilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir að hafa „móðg-
að tyrkneska þjóðarvitund“. Dink
naut því lítilla vinsælda hjá þjóðern-
issinnum.
Margir báru þó virðingu fyrir
honum, en hann beitti sér mjög fyrir
sáttum milli Tyrkja og Armena og
hann var mikill málsvari máfrelsis.
„Við erum öll Hrant Dink,“ stóð á
spjöldum sem haldið var á lofti við
útförina í gær og „Við erum öll Ar-
menar í dag, öllsömul.“
Sjö manns eru í haldi lögreglu
vegna morðsins á Dink en þar af er
einn, 17 ára piltur, Ogun Samast,
sagður hafa játað að hafa skotið
Dink til bana. AP
Þúsundir
manna
við útför
Hrants Dink
BRESKA lögreglan hefur yfir-
heyrt oddvita heimastjórnarinnar í
Skotlandi, Jack McConnell, í
tengslum við rannsókn lögreglunn-
ar á meintri fjármálaspillingu inn-
an flokks Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands. McConnell
mun hafa verið yfirheyrður í um
fimmtán mínútur 15. desember sl.
og hafði stöðu vitnis, að því er
heimildarmenn AFP-fréttastof-
unnar fullyrtu.
Verkamannaflokkurinn hefur
verið sakaður um að láta aðals-
tignir í staðinn fyrir fé í kosn-
ingasjóði flokksins. Hófst rann-
sókn lögregl-
unnar eftir að í
ljós kom að
flokkurinn hafði
þegið háar
„lánagreiðslur“
frá fjársterkum
aðilum fyrir
þingkosningarn-
ar 2005 og að
mörgum þessara
aðila hefði verið
veitt aðalstign.
Rannsóknin hefur síðan tengt
anga sína um breska stjórnkerfið
og allir helstu flokkarnir flækst í
málið með einum eða öðrum hætti.
Alls hefur breska lögreglan yfir-
heyrt um 90 manns í tengslum við
málið sem vindur sífellt upp á sig.
Fyrir helgi var Ruth Turner,
mikilvægur tengiliður bresku
stjórnarinnar við Verkamanna-
flokkinn, handtekin. Hún var síðar
látin laus gegn tryggingu en mun
þurfa að mæta aftur til yfir-
heyrslna.
Jack McConnell mun hafa verið
spurður út í hvernig það kom til að
hann tilnefndi Colin Boyd, fyrrver-
andi lögreglustjóra í Skotlandi, í
lávarðadeildina árið 2004.
McConnell yfirheyrður
Jack
McConnell
STUNDUM er sagt að hundaeig-
endur bindist ferfætlingunum
óvenjusterkum böndum, þeir verði
nánast eins og þeirra eigin afkvæmi.
Hundarnir veita húsbændum sínum
ekki aðeins góðan félagsskap og
nærveru, því þeir hjálpa nútíma-
manninum að slaka á í hröðum erli
lífsgæðakapphlaupsins, að því er
haldið er fram í nýrri rannsókn.
Vísindakonan dr. Deborah Wells
við Queens-háskóla í Belfast fann
þannig út að hundaeigendur hefðu
minna magn kólesteróls í blóðinu,
lægri blóðþrýsting og væru ólík-
legri en aðrir til að þróa með sér al-
varlega geðsjúkdóma, að því er
breska dagblaðið The Daily Tele-
graph skýrði frá á vefsíðu sinni í
gær.
Wells veltir því jafnframt fyrir sér
í skýrslu sinni um rannsóknina
hvort aukin hreyfing og samskipti
við annað fólk í gegnum hundana
kunni að vera orsakavaldar. Meg-
inniðurstaða hennar er hins vegar
sú, að fólk sem tók að sér hunda eða
ketti, sem höfðu verið yfirgefnir,
var hraustara en aðrir. Heilsubótin
af köttum entist út fyrsta mánuðinn
en var langvarandi af hundahald-
inu.
Hollt að eiga hund
Kvenréttindafélag Íslands
fagnar aldarafmæli og býður til hátíðardagskrár í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur laugardaginn 27. janúar frá kl. 14:00-17:00.
Þér er boðið í 100 ára afmæli Kvenréttindafélags Íslands.
Að dagskrá lokinni býður Reykjavíkurborg til móttöku í Tjarnarsalnum.
ALLIR VELKOMNIR