Morgunblaðið - 24.01.2007, Side 21
menntun
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 21
SIGLINGASTOFNUN
Stefnumótun í samgöngum
Samgönguráð efnir til fundaraðar um samgöngumál. Fundirnir
verða haldnir mánaðarlega næstu mánuði. Á fyrsta fundi verður
fjallað um efnið:
Ferðir, búseta og samgöngukerfi
Áhrifasvið höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlis-
staða. Kynning á niðurstöðum rannsókna
Dr. Bjarni Reynarsson Land - ráði sf
Áhrif umbóta á samgöngukerfi á byggð
Vífill Karlsson dósent við Háskólann á Bifröst
Breyting á umferð og búsetu 2000-2005
Dr. Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Vegagerðarinnar
Umræður og fyrirspurnir
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar 2007
kl. 15-17 á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og
öllum er heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru
vinsamlega beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is
eigi síðar en klukkan 12:00 þann 25. janúar nk.
Næstu fundir í fundaröðinni: Öryggi vega, Fjármögnun samgöngumannvirkja og
Umhverfislega sjálfbærar samgöngur.
Samgönguráð:
Flugmálastjórn Íslands - Flugstoðir ohf. - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin
Samgönguráðuneytið.
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
Hvort sem þú ert í skóla lífsins eðaformlegu námi er vert að minna álandsaðgang þinn að rafrænumgagnasöfnum og tímaritum á
vefnum hvar.is. „Þetta er helst nýtt af há-
skólafólki eða þeim sem eru í rannsóknum,
því þarna er mikið um vísindalegar upplýs-
ingar en líka gögn fyrir hvern sem er. Að-
gangurinn nýtist fyrir öll skólastig þar sem
nemendur eru farnir að lesa ensku og reynd-
ar líka mikið af íslensku efni,“ segir Sveinn
Ólafsson, umsjónarmaður landsaðgangsins.
Um áramótin bættist við aðgangur að
tímaritasöfnum og gagnasöfnum frá Sage og
Ebsco Host sem eru öll á sviðum vísinda,
fræða og lista. „Í Ebsco Host og ProQuest
5000 er efni af öllu tagi og á að þjóna öllu fróð-
leiksfúsu fólki. Til dæmis er þar mikið efni
fyrir fólk í viðskiptanámi og efni úr almenn-
um fréttablöðum. Fólk á landinu sem tengist í
gegnum tölvu með íslenska netveitu hefur nú
aðgang að 14 þúsund tímaritum með fullum
texta. Með þessum viðbótum værum við búin
að fylla tvær Þjóðarbókhlöður ef við ættum
að vera með þetta allt á prenti. Auðvitað er
skemmtilegt að fletta blöðum en hvað gerir
þú ef ég rétti þér tvær Þjóðarbókhlöður í
fangið? Styrkurinn liggur í því hve fljótlegt er
að finna efnið. Tímasparnaður er helsti kost-
urinn fyrir vísindafólkið, bæði fyrir há-
skólanema en sérstaklega sérfræðingana sem
þurfa að finna greinarnar fljótt og örugglega.
Fólk telur sig spara um hálftíma á hverja
grein. Rafræni aðgangurinn sparar margar
smáferðir, við erum sem sagt umhverfisvæn.“
Sveinn segir þó vitað að margir nemendur
noti enn nær eingöngu leitarsíðuna google.-
com en segir hana gefa takmarkaðar niður-
stöður úr umræddum gagnasöfnum, þó hafi
t.d. scholar.google.com unnið á. „Sá sem
„googlar“ veit ekki af því sem hann finnur
ekki, margt er ósýnilegt.“ Hann nefnir líka að
allir notendur landsaðgangsins geti skráð sig
í Web of Science og fengið aðgang að ókeypis
heimildaskráningarforritinu EndNote Web.
„Við reynum að ná til þeirra sem eru að byrja
að leita, t.d. framhaldsskólanema, og þá
leggjum við sérstaka áherslu á áskrift-
araðgang okkar að Britannicu en margir gera
þau mistök að fara beint á Britannica.com
sem er mun takmarkaðri aðgangur en á
hvar.is. Myndræn leit í gagnasöfnum Ebsco
Host er eftirtektarverður valkostur en þar er
m.a. Business Source Premier, umfangsmikið
gagnasafn um stjórnun, viðskipti og rekstur.
Það er forvitnilegt að slá inn „Iceland“ á Pro-
Quest eða Ebsco til að sjá hvað er skrifað um
landið í heimspressunni, t.a.m. er New York
Times komið inn samdægurs. Auk þess eru
þarna merkileg gagnasöfn á sviði sjónlista og
tónlistar, Grove Art og Grove Music.“
Alþýðublaðið, Þjóðviljinn,
Tíminn og Dagur á vef
Landsbókasafn hefur verið að skanna inn
eldri íslensk tímarit undir nafninu Tímarit.is
og þar er t.d. leitarhæft Morgunblaðið frá 20.
öld. Að sögn Sveins stendur til að mynda Al-
þýðublaðið, Þjóðviljann, Tímann og Dag á
Akureyri og verða þau aðgengileg á vef á
sama hátt.
Ríkið leggur fram tæpan þriðjung kostn-
aðar vegna landsaðgangsins og bókasöfnin í
landinu auk örfárra fyrirtækja afganginn.
Áskriftirnar kosta yfir 100 milljónir á þessu
ári en auk þess er vísað á ýmis gagnasöfn í
opnum aðgangi á hvar.is. Í fyrra voru gestir
þar tæplega 80 þúsund. Aðgangurinn er
kynntur með bæklingum í bókasöfnum, heim-
sóknum í skóla og aðrar stofnanir. Frekari
upplýsingar, leiðbeiningar og kynningar um
gagnasöfnin eru að auki á hvar.is.
Með tvær Þjóðar-
bókhlöður í fanginu
Morgunblaðið/Eyþór
Viskubrunnur Landsaðgangurinn hvar.is veitir öllum þeim sem tengjast í gegnum tölvu
með íslenska netveitu ókeypis aðgang að 14 þúsund tímaritum með fullum texta.
„ÉG sæki í raun og veru mjög stóran hluta af mín-
um heimildum í gegnum hvar.is,“ segir Rán Þór-
arinsdóttir líffræðingur sem býr á Egilsstöðum.
Slóðin gegnir mjög mikilvægu hlutverki í meist-
aranámi Ránar í líffræði sem hún lýkur brátt. Verk-
efnið fjallar um vistfræðilega þætti sem tengjast
öndum og hópamyndun andarunga, sem hún segir
nokkuð „krúttlegt verkefni“.
„Annaðhvort get ég sótt heimildirnar beint á
hvar.is eða fæ upplýsingar um hvar ég get nálgast
þær. Við erum náttúrlega með fullt af greinasöfn-
um á Íslandi en þau eru dreifð víða og eru meira og
minna öll á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig að ég yrði að gera mér nokkurra daga
ferð suður og væri lengi að hlaupa á milli húsa við
að leita uppi efni og fletta í gegnum tímarit. Með
leitarsíðum hvar.is, aðallega Web of Science, get ég
bara sett inn lykilorð og þá fæ ég niðurstöður. Ég
get pantað efni eða hreinlega prentað heimildir út
heima hjá mér.
Fær engar heimildir fyrir
austan nema í gegnum netið
Þessi landsaðgangur skiptir mjög miklu máli fyr-
ir þá sem nota frekar heimildir úr tímaritum en
bókum. Ég hef verið í fjarnámi síðustu mánuði og
það væri ekki gerlegt án þessarar þjónustu. Ég var
reyndar búin að afla mér ýmissa heimilda fyrir
sunnan en fæ ekkert af mínum heimildum hér fyrir
austan nema í gegnum netið og þá helst af þessari
síðu.“
Rán hefur aðallega notað landsaðganginn hvar.is
eftir að BS-prófinu lauk og virðast háskólanem-
endur sem hafa lokið fyrstu gráðu einmitt vera
helstu notendurnir. Með síauknum aðgangi verða
möguleikarnir þó meiri á öllum skólastigum.
Fjarnámið
gerlegt
með hvar.is
Morgunblaðið/Steinunn
Landsaðgangur Rán stólar á hvar.is í námi sínu.
NEYSLA á tómötum og spergilkáli
veitir vörn gegn krabbameini í blöðru-
hálskirtli en sér í lagi þegar máltíðin
er samsett úr báðum grænmetisteg-
undum, samkvæmt nýrri rannsókn
Illinois-háskólans í Bandaríkjunum
sem sagt er frá á vefnum forskn-
ing.no.
Í rannsókninni var fylgst með þró-
un krabbameinsæxla í rottum sem
fengu mismunandi fóður. Í ljós kom að
æxlin uxu hægar hjá þeim sem fengu
blöndu af tómötum og spergilkáli en
þeim sem fengu t.d. einungis tómata.
Virkni tómata og spergilkáls í bar-
áttunni gegn krabbameini er þekkt en
ekki hefur áður verið athugað að
blanda þessara grænmetistegunda
hefur enn meiri virkni. Eftir 22 vikna
rannsóknartíma hafði blandan dregið
miklu meira úr vexti æxlisins heldur
en önnur fæðublanda. Tekið er fram
að ekki er fullvíst hvort sama nið-
urstaða fengist hjá mönnum en vís-
indamennirnir við Illionois-háskólann
mæla hiklaust með þessari samsetn-
ingu, auk neyslu ýmiss konar græn-
metis og ávaxta í stað þess að reiða sig
á vítamín.
Í grein forskning.no er áætluð
dagsþörf 55 ára manns af umræddu
grænmeti u.þ.b. 3 dl af spergilkáli
(200 g) og 6 dl tómatar (400 g) eða 2,5
dl tómatsósa og um 1 dl tómatpúrra.
Pasta með tómötum
og spergilkáli
2 msk. ólívuolía
nokkrir saxaðir hvítlauksgeirar
1 dl hvítvín
1⁄2 tsk. þurrkuð paprika
7 dl (450 g) spergilkál, niðurskorið
5 dl (330 g) tómatar, niðurskornir
350 g pasta
Sjóðið pastað. Setjið olíuna á
pönnu og hitið hvítlaukinn í nokkrar
mínútur. Lækkið undir og bætið út í
hvítvíninu og paprikunni, því næst
spergilkálinu. Látið malla undir loki í
u.þ.b. 4 mínútur og síðan er tómöt-
unum blandað saman við, hitið.
Hrærið grænmetisblöndunni saman
við pastað og berið fram með rifnum
parmesan-osti.
Tómatar og spergilkál gegn
blöðruhálskrabbameini
Hollusta Máltíð samsett úr spergil-
káli og tómötum er vopn í barátt-
unni við krabbamein í blöðruháls-
kirtli samkvæmt nýlegri rannsókn.
heilsa