Morgunblaðið - 24.01.2007, Side 23
a. Grunn-
t í ljós að
reyt-
til að
mál á til-
bendir á
byggðar
lum.
ið skipu-
mið og
hverfi inn-
a starf-
um stað.
nþáttum
ipulags-
erður
ti þarf að
Hann
snæðin til
ð því að
verðar
þrettán
atnsleka
ræða.
ús tjónið
ekki jafn mikið og látið var af, enn
er þó óvitað um fjárhagslegt tjón
vegna lekans. Magnús segir eign-
irnar almennt mjög vel með farnar
og að auðvelt ætti að vera að koma
þeim í almenna nýtingu ef verk-
efnin eru fyrir hendi.
„Markmiðið er að leggja okkur
niður eins fljótt og hægt er,“ segir
Magnús og bætir við að stórfé kosti
að halda bæjarfélaginu gangandi,
þó svo enginn sé þar íbúi. „Við erum
ekki alveg komnir niður á upphæð-
ina en það skiptir tugum milljóna
króna á mánuði.“
Þróunarfélagið tók við þeim
skyldum sem ríkið tók á sig vegna
mengunarmála en áhyggjur hafa
verið. s.s. vegna hugsanlegrar
mengunar í grunnvatni. Magnús
segir að úttektir verði gerðar á
mengunarmálum. „Það var gert ráð
fyrir verulegum upphæðum til að
vinna þessa mengun og koma í veg
fyrir hana, færa jarðveg eða hvað
sem þarf til.“ Það sem skoðað verð-
ur helst er olíumengun auk gamalla
urðunastaða. „Í leiðinni munum við
fara í gegnum eignirnar allar og sjá
hvað af þeim eru í því horfi að við
munum þurfa að láta fjarlægja þær.
Það eru nokkur hús sem eru með
asbest í klæðningu sem verður að
laga eða breyta.“
Erlendir aðilar sýna áhuga
Nýverið var tekin í notkun vef-
síða Þróunarfélags Keflavík-
urflugvallar, www.kadeco.is, þar
sem settar verða inn upplýsingar
um eignir til sölu og leigu. Nafnið er
skammstöfun félagsins á enska
tungu, sbr. Keflavík airport deve-
lopment corparation. „Þessu er
svona komið þar sem við erum ekki
eingöngu að miða við íslenskan
markað heldur ennig erlenda og
hafa töluvert margir erlendir aðilar
þegar sýnt áhuga á ýmiskonar
starfsemi,“ segir Magnús en stað-
festi þó ekki áhuga, s.s. vegna fyr-
irhugaðs álvers í Helguvík.
Magnús áréttar að ef menn hafa
skynsamlegar hugmyndir um nýt-
ingu eigna þá sé félagið tilbúið til
viðræðna. „Það sem við viljum und-
irstrika er að hér eru endalaus
tækifæri,“ segir Magnús.
uðga mannlífið
og atvinnulíf
yrir miðju), sýnir fjölmiðlum sameiginlega setustofu í fjölbýlishúsi á varnarsvæðinu.
Morgunblaðið/RAX
rautum, er í íþróttamiðstöð á fyrrum varn-
ir, s.s. skvass, boxæfingar og körfubolta.
Í HNOTSKURN
»Þróunarfélag Keflavík-urflugvallar var stofnað í
október sl. og tók við eignum
varnarliðsins í desember.
»Eitt af verkefnum félags-ins er að koma eignunum
úr hernaðarlegri í borg-
aralega notkun.
»Undirbúningur hefurgengið vel og er félagið
nú tilbúið til viðræðna við þá
sem hyggjast nýta sér eignir
á svæðinu.
»Bæði verður um að ræðasölu eigna og leigu en
íbúðahúsnæði verður ekki
sett á markað, að sinni.
»Tryggja á að jafnvægisamfélagsins á Suð-
urnesjum verði ekki raskað
með verkefninu.
»Vefsíðu félagsins máfinna á www.kadeco.is.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 23
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Það virðist vera innbyggt í þjóðarsálina hjá okk-ur að fara Krýsuvíkurleið að hlutunum. Þegarvið ætlum okkur stóra hluti verður oft minnaúr verki en til var ætlast, en þegar minnst hef-
ur verið vænst af okkur höfum við jafnvel staðið okkur
best.
Að þessu leyti má segja að við séum mikil öfgaþjóð í
mati á eigin frammistöðu og væntingum,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og formaður landsliðs-
nefndar HSÍ, í samtali við Morg-
unblaðið þegar hann var inntur eftir
því hvernig leikmönnum íslenska
handknattleiksliðsins hefði tekist að
snúa herfilegu tapi gegn Úkra-
ínumönnum upp í glæsilegan sigur á
Evrópumeisturunum Frökkum í
fyrrakvöld. Segir hann Alfreð Gísla-
syni landsliðsþjálfara hafa tekist
einstaklega vel að byggja lið sitt aft-
ur upp eftir tapleikinn.
Að mati Jóhanns Inga er nú að
verða til kynslóð í landsliðinu sem
býr yfir meiri stöðugleika en áður hefur verið. „Þessir
strákar hafa náð langt með liðum sínum erlendis, þannig
að þetta eru orðnir sigurvegarar. Við erum því að vona
að við séum að skapa ákveðna sigurmenningu,“ segir Jó-
hann Ingi og bendir á að reynslan sýni að liðum sem
gangi vel vegni vel í lengri tíma þótt skipt sé um einstaka
leikmenn í liðinu. Bendir hann máli sínu til stuðnings á
sænska handknattleikslandsliðið sem í áratug skaraði
fram úr, sem og Frakkar, Spánverjar og Króatar.
Sjálfstraust leikmanna lykilatriði
Aðspurður segir Jóhann Ingi ekki óalgengt að leikmenn
detti niður í skyndiþunglyndi eftir vondan tapleik, enda
erfitt að takast á við brostnar vonir bæði annarra sem og
væntingar leikmanna til sjálfra sín. Þá skipti miklu að
geta byggt sig hratt upp og endurheimt trúna á sjálfan
sig. „Því í reynd snýst þetta allt um sjálfstraust leik-
manna,“ segir Jóhann Ingi og bendir á að eftir tapleikinn
sl. mánudag hafi leikmenn eðlilega verið mjög fúlir sjálf-
um sér fyrir slakt gengi í leik sem allt benti fyrirfram til
að þeir ættu að geta unnið. „Slíkt tap getur veitt mönn-
um mikinn kraft, enda er enginn jafnhættulegur og
hneifaleikamaður sem hefur verið rotaður. Hann þyrstir
í sigur.“
Að sögn Jóhans Inga finna leikmenn fyrir mikilli
pressu í formi þeirra væntinga sem landinn hefur um
gott gengi þeirra á vellinum. „Í raun má segja að hvati
þeirra eftir leikinn við Úkraínu hafi verið hræðsla, þ.e.
hræðsla við að detta út og valda landsmönnum sárum
vonbrigðum,“ segir Jóhann Ingi og leggur áherslu á að
mikilvægt sé að leikmenn geti nýtt sér væntingarnar
sem jákvæða pressu í stað þess að nálgast hlutina út frá
neikvæðum vinkli. Leggur hann á sama tíma áherslu á
hversu mikilvægt það sé leikmönnum að finna fyrir góð-
um stuðningi áhorfenda.
Afreksíþróttir endurspegla lífið sjálft
Það vakti athygli að íslensku leikmennirnir klæddust
rauðum búningum þegar þeir lögðu Frakka að velli en
voru í bláu þegar þeir töpuðu fyrir Úkraínu. Blaðamaður
man eftir að hafa lesið greinar sem sýndu tölfræðilega
fram á það að rauður væri afar sigursæll litur þegar
keppnisíþróttir eru annars vegar. Það liggur því beint
við að spyrja Jóhann Inga hvort hann sé sammála þessu.
„Litur getur orðið að hjátrú, eins og svo margt annað.
Því er hins vegar ekki að leyna að rauður er heitur litur
og í honum felst því mikill kraftur,“ segir Jóhann Ingi og
bætir við: „Við erum hins vegar ekkert að velta okkur
upp úr þessu. Menn verða að halda sig á jörðinni og hafa
trú á eigin getu.“ Spurður hvort leikmenn hafi heimtað
að klæðast rauðu aftur í leik sínum gegn Túnis í dag
svarar Jóhann Ingi því neitandi og hlær.
Þar sem ljóst má vera að yfirgnæfandi meirihluti
landsmanna fylgist með frammistöðu landsliðsins í
Þýskalandi um þessar mundir liggur beint við að spyrja
Jóhann Inga hvort hann telji íþróttaviðburði á borð við
þennan efla samstöðu meðal þjóðarinnar. „Ekki spurn-
ing. Þegar vel gengur þá samsamar almenningur sig við
okkar helsta afreksfólk. Þannig leyfi ég mér að fullyrða
að íþróttaviðburðir á borð við þennan fela í sér mik-
ilvæga forvörn fyrir geðheilsu Íslendinga,“ segir Jóhann
Ingi. Þegar hann er beðinn að útskýra nánar hvað hann
eigi við bendir hann á að tímasetning bæði Evrópu- og
heimsmeistaramóta sé afar heppileg fyrir landann.
„Þessi mót eru oft í janúar, þ.e. á dimmasta og kaldasta
tíma ársins, sem mörgum reynist oft erfiður. Þá er gott
að geta sameinast yfir viðburði sem fyllir almenning
stolti og gleði. Afreksíþróttir endurspegla lífið sjálft, því
við þurfum að læra það í lífinu að umgangast bæði sigra
og ósigra.“
Spurður hvernig landsliðsmenn og þjálfari muni und-
irbúa leikinn í dag gegn Túnis segir Jóhann Ingi þá að
sjálfsögðu munu nýta sigurinn gegn Frökkum til efl-
ingar á sjálfstrausti. „En leikurinn í gær [miðvikudag]
gildir ekki á morgun, frekar en leikurinn í fyrradag gilti
fyrir leikinn í gær. Þannig að menn þurfa alltaf að fók-
usera á núið og næsta leik. Hættan er sú að ef menn ætla
að fagna of lengi þá sofni þeir á verðinum,“ segir Jóhann
Ingi og tekur fram að Alfreð muni því nota tímann fram
að næsta leik til þess að ná leikmönnum sínum niður á
jörðina og búa þá andlega undir leikinn.
Nýta væntingar landans
sem jákvæða pressu
Ljósmynd/Günter Schröder
Að mati Jóhanns Inga Gunnars-
sonar sálfræðings geta íþrótta-
viðburðir á borð við EM í hand-
knattleik falið í sér forvörn fyrir
geðheilsu Íslendinga.
Jóhann Ingi
Gunnarsson
ELMA Guðmundsdóttir í Neskaupstað er ein
þeirra fjölmörgu sem fylgdust grannt með
gengi strákanna okkar á HM í Þýskalandi.
Hún var ekki bjartsýn fyrir leikinn gegn
Evrópumeisturum Frakka og hét því að hún
myndi éta húfuna sína ef Íslendingar sigr-
uðu. Húfan er engin smásmíði heldur forláta
loðhúfa ættuð frá Rússlandi.
„Hárin gera það að verkum að erfitt er að
steypa húfuna í súkkulaði líkt og Salome
gerði við hattinn sinn forðum. Ætli ég reyni
ekki bara að súrsa hana og éta á komma-
blótinu um helgina,“ sagði Elma og brosti
þegar fréttaritari innti hana eftir því hvern-
ig gengi að snæða gripinn. „En það var eins
gott ég lofaði ekki pelsinum.“
Um frekari framgöngu íslenska landsliðs-
ins sagðist Elma hafa spáð því fyrir mótið að
liðið yrði í fimmta sæti. „En ef þeir spila eins
og þeir gerðu gegn Frökkum getur allt
gerst. Ég þori þó ekki að spá þeim ofar en
þriðja sæti.“
„Eins gott ég lofaði ekki pelsinum“
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Dágóður skammtur í maga Elma Guðmundsdóttir var fegin
að hafa ekki lofað að éta pelsinn, enda dágóður skammtur.