Morgunblaðið - 24.01.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 43
Salur E
Upplýsingatækni
Snæbjörn Kristjánsson, RANNÍS, Helgi Þorbergsson, H.Í., Sigurður
Guðmundsson, Rannsóknaþjónusta H.Í.
Salur F
Félags-, hag- og hugvísindi
Eiríkur Smári Sigurðarson, RANNÍS, Ása Hreggviðsdóttir, RANNÍS
Salur D
Orka
Skúli Þórðarson, RANNÍS, Þorsteinn Brynjar Björnsson, RANNÍS
14:45 – 15:00 Kaffihlé - Fordyri
Salir D, E, F og G
15:00 - 16:45 SAMVINNA (COOPERATION)
Kynningar á undiráætlunum
Salur G
Matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni
Oddur Már Gunnarsson, RANNÍS, Rebekka Valsdóttir, RANNÍS,
Ragnheiður Héðinsdóttir, SI, Ingibjörg Gunnarsdóttir, HÍ, Björn
Gunnarsson, MS.
Salur D
Umhverfi
Anna Kristín Daníelsdóttir, RANNÍS, Hjördís Hendriksdóttir, RANNÍS
Salur E
Samgöngur
Skúli Þórðarson, RANNÍS, Þorsteinn Brynjar Björnsson, RANNÍS
Salur F
Örvísindi, örtækni, efnistækni og ný framleiðslutækni
Ingólfur Þorbjörnsson, Iðntæknistofnun, Hjördís Hendriksdóttir,
RANNÍS.
Fordyri
17:00 - 19:00 Íslensk þátttaka í 6. rannsóknaáætlun ESB
Veggspjaldasýning á úrvali verkefna með íslenskri þátttöku.
Ráðstefnustjóri er Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík
Ráðstefnan er öllum opin en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir
kl. 12:00, fimmtudaginn 25. janúar á netfangið rannis@rannis.is
eða í síma 515 5800.
DAGSKRÁ:
Salur A og B
08:30 ÁVARP
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra
08:40 7. RANNSÓKNAÁÆTLUN ESB 2007-2013
Zoran Stancic, framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins
09:40 HUGMYNDIR (IDEAS)
Styrkir Evrópska rannsóknaráðsins til vísindamanna í fremstu röð
Hans Kristján Guðmundsson, RANNÍS
10:00 – 10:15 Kaffihlé – Fordyri
Salur A og B
10:15 MANNAUÐSÁÆTLUN (PEOPLE)
Barbara Rhode, framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins
10.40 UNDIRSTÖÐUR 1 (CAPACITIES)
Áætlanir um:
- Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja
- Alþjóðlegt samstarf
- Færni vaxandi svæða til rannsókna og þróunar
Barbara Rhode, framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins
11:05 UNDIRSTÖÐUR 2 (CAPACITIES)
Áætlanir um:
-Innviði rannsókna
-Þekkingarsvæði
-Stuðning við samræmda rannsóknastefnu
-Vísindin í samfélaginu
Alan Cross, framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins
11:25 FRAMKVÆMD ÁÆTLUNARINNAR
Auglýsingar eftir umsóknum, tegundir verkefnastyrkja, umsóknarferli
og mat.
Alan Cross, framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins
12:00 – 13:00 Hádegishlé – Salir H og I
Salir D, E, F og G
13:00 - 14:45 SAMVINNA (COOPERATION)
Kynningar á undiráætlunum
Salur G
Heilsa
Magnús Karl Magnússon, LSH, Rebekka Valsdóttir, RANNÍS, Ingileif
Jónsdóttir, ÍE/LSH
Kynningarráðstefna um
7. rannsóknaáætlun ESB 2007-2013
Föstudaginn 26. janúar 2007, Hótel Nordica
Í KVIKMYNDAHEIMINUM eru
hátíðirnar m.a. tími íburðarmikilla
afþreyingarmynda sem er ætlað að
hreppa stóra jólagjöf frá bíógestum.
Í ár er það Nótt á safninu – Night at
the Museum, sem hefur tekist ætl-
unarverkið og slegið í gegn um alla
heimsbyggðina. Ef maður vill vera
raunsær stendur hún mikið til undir
væntingum sem fjölskylduskemmt-
un, léttmeti sem er gleymt og grafið
um leið og því er lokið.
Stiller leikur hrakfallabálkinn
Larry, honum helst illa á vinnu, er
skilinn og á ungan son en á, sökum
blankheita, í mesta basli með að
rækja skyldur sínar við hann. Larry
grípur því tækifærið þegar honum
býðst staða næturvarðar á Nátt-
úrugripasafninu, fokið er í flest skjól
og fátt annað að hafa. Starfið lítur út
fyrir að vera auðvelt og einfalt en
annað kemur á daginn þegar dyr-
unum er lokað á kvöldin. Þá vakna
fjölskrúðugir safngripirnir til lífsins.
Ramminn utan um atburðarásina
er hentugur fyrir brellumeistarana
og þeir eiga fínan dag í Nótt á safn-
inu. Við sögu koma frægar persónur
á borð við Teddy Roosevelt Banda-
ríkjaforseta (Williams), Atla Húna-
konung, landkönnuðina Lewis og
Cark og fíla, ljón og risaeðlur, svo
eitthvað sé nefnt.
Sagan af vandræðum Larrys er
ekki áhugaverð en Stiller er flinkur
að fást við slík hlutverk og samband
hans við soninn er vemmilegt, en
slíkar tilfinningar virðast tilheyra
jölapökkunum frá Hollywood. Sama
gildir um boðskapinn.
Slatti fáséðra gamalkunnra gam-
anleikara kemur við sögu og lífgar
upp á atburðarásina. Leikmunirnir
eru augnayndi og tónlist Silvestri
skeytir hlutina saman. Útkoman er
fyrst og síðast frambærileg fjöl-
skylduskemmtun, allt of löng að
vísu, en tekst það sem ætlast er til af
henni.
Næturlífið á náttúrugripasafninu
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó,
Regnboginn, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Shawn Levy. Aðalleikendur:
Ben Stiller, Carla Gugino, Dick Van Dyke,
Mickey Rooney, Robin Williams, Owen
Wilson. 108 mín. Bandaríkin 2006.
Nótt á safninu/ Night at the Museum
Fjölskylduskemmtun Gagnrýnandi segir Nótt á safninu standa undir væntingum sem fjölskylduskemmtun.Sæbjörn Valdimarsson