Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2002, Blaðsíða 152

Andvari - 01.01.2002, Blaðsíða 152
150 JÓN VIÐAR JÓNSSON ANDVARI stöðinni sannaðist hið fornkveðna að þar kló sá er kunni, því að íslenskir hægrimenn hafa átt ákaflega erfitt með að fyrirgefa Halldóri Laxness þessa bók. Kristján Albertsson sá t. d. ekkert nema pólitíkina í henni og kallaði hana „skítugan leir“ sem frægt er orðið. Dr. Búi Arland er gáfað glæsimenni, gæddur miklum persónutöfrum, en fjölskyldan er í upplausn. Elsti sonurinn, Arngrímur, er á góðri leið með að verða drykkjusjúklingur, elsta dóttirin, Guðný, komin út í ástarlíf sem er ekki beinlínis í samræmi við borgaralegar dyggðir. Börnunum er ekki sinnt, yngri sonurinn fær að iðka skemmdarverk úti í bæ athugasemdalaust, matráðskon- an, sem er í sértrúarsöfnuði, er látin annast uppeldi yngri dótturinnar. Hjóna- band Arlands-hjónanna er á fallanda fæti; undir fáguðu yfirborði ólga ást- leysi og hatur. Þetta kemur berast fram í stuttu en ógnvekjandi atriði, sem Ugla verður vitni að eina nóttina, þegar frú Arland tryllist og fær æðiskast við mann sinn.10 Annars er lýsing frú Arland mjög á skoplegum nótum, hún er hrokafull, sjálfumglöð og virðist ekki stíga í vitið, sbr. þau orð hennar að hún þoli ekki menntunarsvip á stúlkum, sjálf hafi hún stúdentspróf en það sjái enginn." Það er því ekki kynlegt þó að hlýir straumar taki, eins og öllu er háttað, að berast á milli doktorsins og nýju vinnustúlkunnar. Lýsingin á Búa Árland sjálfum og því kalda og kærleikslausa fjölskyldulífi, sem þarna er lifað, er ákaflega mögnuð; hafi skáldinu í annan tíma tekist betur að sam- þætta satíru og harmleik man ég þau dæmi ekki. Andstæða Árlands-heimilisins er hús organistans, kennara Uglu. Þar kynn- ist hún fólki sem er flest utangarðs við hið borgaralega mannfélag, þó að sumir reyni að hirða molana af borðum ríkismannanna með miður geðugum aðferðum. En organistinn dæmir engan; hann er hátt hafinn yfir smáborgara- legt siðamat, hæðist aðeins góðlátlega að hræsni og skinhelgi yfirstéttarinn- ar. Hann stendur utan allra flokka og safnaða, hvers kyns viðleitni til að reyna að bæta heiminn er honum víðs fjarri, hann talar gjarnan í ögrandi þverstæð- um og kaldhæðnislegum hálfkæringi, veröldin verður einfaldlega að fá að fara sína leið. Þó má greina undir niðri nógu mikla alvöru, að maður segi ekki sársauka, til að taka hann alvarlega og trúa á áhrifavald hans. Um hús hans og aldraðrar móður hans, sem er horfin inn í eigin veröld friðsælla elliglapa, ganga bóhemískir listamenn, gáfaðir alþýðumenn og smákrimmar, að ógleymdri kanamellunni Kleópötru. Hún er fulltrúi þeirra kvenna sem lifa af líkama sínum í þjóðfélagi þar sem karlar ráða lögum og lofum. Annar fasta- gestur er „feimna lögreglan" sem Ugla eignast í fyllingu tímans bam með. Bygging Atómstöðvarinnar einnkennist mjög af því að hvarflað er á rnilh húss organistans og húss Búa Árlands. Þessi tvö hús eru aðskildir heimar, þ° að sumir heimagangar organistans hafi að vísu leynileg og æði gruggug sarn- bönd „upp á við“. Öðru hverju gefur útsýn í fleiri áttir, t.d. kynnist Ugla ungu pari úti í mjólkurbúð, þau eru virk í kommúnistaflokknum og fara að lokum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.