Menntamál - 01.08.1957, Page 32
126
MENNTAMÁL
Rejsing í rómverskurn skóla, táknrœn inynd fyrir refsingar i skólum á
miðöldum.
Platon vildi, að aginn væri mildari í skólunum. Hann
lætur Sókrates segja: „Sá, sem ekki lætur sér segjast við
orð, hlýðir ekki, þótt hann sé barinn“. Fleiri voru, sem
vildu aðrar aðferðir en barsmíðar. Þannig hélt Ternetius
því fram, að betri árangur næðist í uppeldinu, ef menn
reyndu með mildi að glæða ábyrgðartilfinningu hjá barn-
inu og hvetja það til ráðvendni.
Plutarchos og Quintillianus voru svipaðrar skoðunar.
Quintillianus sagði, að víst væri hægt að beita barnið valdi
og skipa því, en það skaðaði huga barnsins. Og þegar
barnið væri hætt að hlýða af ótta, vissu menn ekki, hvern-
ig ætti að láta það hlýða.
Kenning Pliniusar var, að kærleikur sé bezti kennar-
inn.
Uppeldis- og menningarsaga miðaldanna hermir hin
ljótustu dæmi um grimmd, sem börnin voru beitt á heimili