Búnaðarrit - 01.01.1902, Side 53
49
búskap fátækur, fyrir nokkurum árum, og keypti þá jörðiua
í orði kveðnu. Búskap haus hefir farnast vel, og er hann
nú kominn i lagleg efni, og lagt þó í ýmsan kostnað.
Burstarfell er ein af beztu jörðunum i Vopnafirði; þar býr
Metúsalem Einarsson, gildur bóndi og vel metinn. Fleiri
jarðir mætti nefna, en því verður slept.
A Fjallasiðubæjuuum, sem svo eru nefndir, mætti koma
á vatnsveitingum, bæði flóðáveitu og seitluveitu, og það án
stórvægilegs kostnaðar. Vatnið má taka úr Ivvíslinni, sem
svo er nefud, og ennfremur úr Selá og Skjalaþingstaðaá
Til þess að vatnið verði notað, þarf að gjöra skurði, er leiði
vatnið og dreifi því. Þar sem engjarnar eru blautast.ar,
þarf einnig að gjöra skurði til að þurka þær.
A Vopnafirði (kaupstaðnum) heimsótti eg þá verzluuar-
stjóraua Ólaf Daviðsson og Grim Laxdal, sem báðir eru
áhugamenn og láta sér ant um búuaðarframfarir sveitunga
siuna. Grimur Laxdal er að græða upp tún, og hefir kost-
að þar iniklu til, enda er græðslan komin vel á veg.
Skamt fyrir innan kaupstaðinn er mýrarblettur, er nefn-
ist Gerðisblá. Hún er greiðfær og flöt og vel löguð tij
áveitu. En það, sem hér er einkuni spurning jim, er það,
hvert unt sé að ná vatni til áveitu á „blána“. Eg tel lík-
legt, að ná meigi vatni úr Hofsá, æði langt fyrir iunan
„blána“ þar sem áin tellur til austurs við háa melinn. Að
vísu mun það kosta töluvert, eu euginn vafi á því, að sá
kostnaður fengist endurgoldinn, ef vatnið aunars næðist.
Þótt eg nú sé þeirrar skoðunar, að takast inegi að fá vatnið
upp á þessum stað, eftir því sem eg leit til, þegar eg skoð-
aði „blána“, þá er þó betra, að þetta sé nákvæmlega mælt,
áður en nokkuð er gjört í því efni. Því miður gat eg ekki
Jcomið því við að gjöra þessa mælingu, er eg var á ferð;
timinn var orðinn svo naurnur og eg varð að hraða ferð
minni, sem mest að hægt var.
Úr Vopnafirðiuuin fór eg suður á J'ókuldál, en hafði
þar stutta viðdvöl. — Jökuldalur er ágæt fjárræktar sveit,
einhver með þeim beztu á laudinu. Fjeð er þar vænt, eiada
4