Búnaðarrit - 01.01.1902, Side 73
69
áður, gefur caragana arborescens beztar vonir. Caragana er
ruunur og heyrir til ertublómaættinni; vex i Siberiu.
Síðasta alþingi veitti fé til skógræktar-tilrauua og hefir
landsstjórnin öll umráð þeirrar fjárveitingar. Skógræktar-
tilraunir verða því ekki framvegis gjörðar á gróðrarstöðiuni,
en aftur á móti ætti ekki að verða útilokuð þaðan ræktun
þeirra trjátegunda, sem að eins heyra undir garðræktina og
ekki koma skógræktinni við og það eru þau tré og þeir
runnar, sem ræktuð eru í þessum þremur augnamiðum:
1. til ávaxta (ribs, sólber o. fi.), 2. til skjóls og vörslu (cara-
gaua, pruuus padus, ribs o. fi). 3. til prýöis (áðurnefndir
runnar, reyniviður rósir o. m. fl.). — Viðir heyrir einnig til
garðyrkjunni, en hann getur verið utan við þessa flokka,
því hann er oft ræktaður eingöngu til þess að fá af honum
tágar.
Ræktun fóðurjurta og matjurta verður látin sitja fyrir
allri aunari ræktun á gróðrarstöðinni, en að því er til trjá-
teguuda kemur, verður að láta þær sitja fyrir, sem geta
oiðið til sérlegra nytsemda til heimaræktunar.
FÁnar Helgason.
Ferð um Borgarfjörð.
Síðastliðið haust ferðaðist. eg um Borgarfjörð, eftir ráð-
stöfun Búnaðarfélags Islands. Ymsir bændur þar höíðu
óskað leiðbeiningu við framræslu og áveitu, og var ferðin
aðallega gjörð til þess, að fullnægja óskum þeim, er komið
höf’ðu fram. Eg lagði á stað i þessa ferð 2. október og
kom aftur til Reykjavikur 19. s. m. í þessari ferð fór eg
um Hvalfjarðarströnd, Svíuadal, Andakíl, Bæjarsveit, Reyk-
liolt.sdal, Stafholtstungur, Borgarhrepp og Alftaneshrepp.
Álftaneshreppur og Borgarhreppur liggja frá fjalli til
fjöru. Þar er víða allgóð vetrarbeit og gott fyrir fé. Engjar