Búnaðarrit - 01.01.1902, Page 76
72
var í þvi og fleiru 4 undan sinum tíma. — Nesin meðfram
Reykholtsdalsá, eru efni i bezta töðuvöll; þau bíða að eins
eftir því, að einliver „leggi hönd á plóginn11. Með aukinni
túu og töðurækt, mundi kúnum í’jölga í daluum, og mjólkur-
bú sett á stofn. Þar hagar einnig mjög vel til í því efni,
enda liefir því máli verið hreyft, og mun vera í uudirbún-
ingi. Ætti bezt við, að þar væru sett á fót tvö mjólkur
eða rjómabú, annað í Reykholti, hitt í Deildartungu.
Bæjarsveitin tilheyrir Andakílshreppi; þar eru 4 bæir.
Eg kora þar að Bakkakoti til Jóhauns Björnssonar, Staf-
holtsey til þeirra feðga Páls Blöndals og Jóns lækuis sonar
lians, Bæ til Björns Þorsteiussonar og Varmalæk til Jakobs
Jónssonar. Allir eru þeir búmeuu miklir og búskapur
þeirra mjög myndarlegur. Einna mestar jarðabætur liafa
þeir gjört Björn í Bæ og Jakob á Varmalæk. Túuið í Bæ
lieíir verið bætt mjög mikið, sléttað og verið að girða það.
Eg skoðaði engjarnar þar og athugaði hvernig bezt mundi
að bæta þær. Það þarf að ræsa þær fram og gjöra flóð-
garð til að halda inni vatni. Skurðir þeir, sem gjöra þarf,
eru þessir :
1. JaÖarskurður. Hann þarf að vera 570 faðma á leugd,
7 fet á breidd að ofau og 3 fet á dýpt; það verða
47880 ten.f. I dagsverkið legg eg 400 ten.f. og verða
það þá.......................................120 dagsv.
2. Skuröur í iniðeugjarnar, um 350 faðina á
Ibngd, 5 fet að ofan og 2 fet á dýpt; það
verða 10800 ten.fet eða......................42---------
3. Skurður, sem þarf að endurbæta. Hanu er
um 500 faðma á lengd og á að vera G fet
að ofau. Til þess í'ara .....................38----------
4. Eun f'remur þarf /lóðgarö um 300 faðma á
lengd, 2—3 fet á hæð og 5—7 fet í botn-
inn. Til þess að gjöra hann fara .... 80 ——■
Þetta verða samtals 280 dagsv.
Sé dagsverkið talið á kr. 2,50, þá nemur kostnaðurinn við
þessi verk 700 kr. Á Varmalæk hafa engjarnar verið