Búnaðarrit - 01.01.1902, Page 81
77
jmrkun ineð opnum skurðum eða lokrœsum, áveiluskurS-
ir, flóðgarðar og stíflugarðar, girðingar um tún, sáð-
reitir, fjárbæli, engjarækt, mýrarækt, gróðrarreitir eða
afmarkaðar beitarspildur, Iivort sem þær eru afgirtar með
skurðum, vír eða annars konar girðingu, undirbúningur á
jörð til matjurtareita, trjáplöntuu, sandgræðsla, varnir
gegn landbroti eða up|il)læstri, og sérhvað annað, er
miðar að ]>ví að rækta óræktað land eða auka afurðir
landsins, bvort heldur er til manneldis eða skejinufóð-
urs.
4. gr.
Innstæðuna má aldrei skerða. Ei’ eigi þarf í svip-
inn að halda á einbverju af |)ví fé, sem tií taks er í
sjóðnum til útlána samkvæmt 1. gr. sbr. 3. gr., skal til
bráðabirgða koina því á vöxtu annaðbvort með ]>ví að
kaupa góð verðbréf, sem auðvelt er að koma í ])eninga
eða setja ]>að á vöxtu í áreiðanlegan banka eða spari-
sjóði.
Þann hluta ársvaxtanna, sem eigi er varið til verð-
launa, skal leggja við innstæðuna.
5. gr.
Landshöfðingi hefir stjórn sjóðsins á hendi og veit-
ir hann lán öll og verðlaun, en leitaráður um það álits
stjórnar Búnaðarfélags Islands.
6. gr.
Reikning sjóðsins og skýrslur um verðlaunaveiting-
ar skal birta á ári hverju í B-deild Stjórnartiðindanna.